Tíminn - 12.07.1990, Síða 9
Fimmtudagur 12. júlí 1990
Tíminn 9
AÐ UTAN
David Irving hefur skrifað þykka doðranta um ýmsar stórpersónurfrá stríðsárunum síðarí, þ.á m. Hitler.
Hann hefur um margt haft aðrar skoðanir en aðrír sagnfræðingar en segist styðja sínar með óyggjandi
myndum og skjölum.
Breskur rithöfundur
átrúnaðargoð nýnasista
í Austur-Þýskalandi
Hinn umdeildi breski met-
söluhöfundur David Irving er
nú á fýriríestraferð í Austur-
Þýskalandi og er hylltur þar
fýrír að bjárga æru nasista.
Gulu auglýsingaspjöldin á rúðum
menningarhallarinnar í Dresden
vöktu athygli á óvenjulegum at-
burði. Þar var fólki lofað að „mest
lesni sagnffæðingur heims“ byði
áheyrendum með sér í einstaka
„ferð um riki sannleikans".
„Ovenjuleg ferð“ um „samtíma-
sögu“ varð þetta svo sannarlega.
Fyrst gerði ræðumaður „áróður-
slygina" um helförina að engu. Þá
hélt hann áfram að afhjúpa hvemig
hinir svonefndu sigurvegarar hefðu
áratugum saman „niðurlægt þýsku
þjóðina" með „fölsuðum skjölum"
um grimmdarlegt athæfi nasista,
við gífurleg fagnaðarlæti áheyr-
enda. Og að lokum fengu viðstadd-
ir að heyra hvaða álit fyrirlesarinn
hefur á sagnffæðingum, sem ekki
eru á sama máli og hann. Þeir em
allir „gungur og lygarar".
Breskur sérfræóing-
ur í Þriðja ríkinu ver
athafnir nasista
Þama fengu Dresdenarbúar að
kynnast manni sem fellt hefur ögr-
andi dóma um þýsku nasistafortíð-
ina og þá sagnffæðinga sem taka
ffæði sín alvarlega, manni sem í sí-
vaxandi mæli hefur orðið átrúnað-
argoð nýnasista i Vestur- Þýska-
landi og er nú að ná sömu stöðu
meðal skoðanabræðra þeirra í Aust-
ur- Þýskalandi. Þetta er breskur rit-
höfundur og sérfræðingur í málum
Þriðja rikisins, David Irving, 52 ára
gamall metsöluhöfundur.
David Irving hefur áætiað að halda
um tylft fyrirlestra í Austur- Þýska-
landi nú. Hann hóf fyrirlestraferð-
ina í júní i Dresden, Leipzig og
Gera. Yfirskrift hennar er: Eng-
lendingur bjargar æm Þjóðveija.
Þar sem Irving hefur nýlega verið
bannað að boða fagnaðarerindi sitt í
Vestur- Þýskalandi hyggst hann
notfæra sér fyrirlestraferðina um
Austur- Þýskaland til að halda
áffam að gera lítið úr glæpum nas-
ista. Hann segist líta á miðhluta
Þýskalands sem miðstöð stuðnings
við sig. Fyrirlestraferðin nú um
Austur- Þýskaland, sem fyrrum op-
inbera málgagn kommúnistaflokks-
ins þar í landi „Neues Deutschland“
segir réttilega „dæmalaust
hneyksli", er nýjasta auglýsinga-
bragð rithöfundar sem hefur verið
duglegur að vekja á sér athygli síð-
asta aldarfjórðunginn.
Irving tryggði sér inngöngu í raðir
metsöluhöfunda og túlkenda Þriðja
rikisins á alþjóðlegum vettvangi
þegar árið 1963. Fyrsta bók hans
fjallaði um tortímingu Dresdenar
og hafði hann gluggað í skjöl i
breskum herskjalasöfhum áður, og
reyndar einnig komist í áður óskoð-
uð skjöl í Dresden-borg sjálffi um
baksvið bresku loftárásarinnar á
Dresden.
Allt ffá þeim tima lætur Irving sér
vel líka hlutverk einfarans í sagn-
ffæðilegum skoðunum á Þriðja rik-
inu. Sjálfur hefur hann engu námi
lokið en sakar vel metna sagnffæð-
inga um að hafa takmarkaðar upp-
lýsingar undir höndum og fyrir óná-
kvæmni í vinnubrögðum. Hann
segir þá alls ekki ganga rétt til verks
í rannsóknum sínum.
Undirróðursstarfsemi Irvings birt-
ist í hatramlega umdeildum, en allt-
af efnismiklum ævisögum margra
þeirra sem hæst bar í síðari heims-
styijöld, s.s. Erwins Rommel yfir-
hershöfðingja, Hermanns Göring
ríkismarskálks og Winstons Churc-
hill, breska forsætisráðherrans.
Með bókum sínum neyddi Irving
aðra sagnffæðilega rithöfunda til að
endurskoða ffamsettar kenningar
og a.m.k. draga aðeins úr margri
túlkuninni, t.d. ffamsetningunni á
hetjulegri andspymubaráttu
Rommels.
En hinn rikulegi efniviður sem
lenti í höndum Irvings leiddi hann í
þær ógöngur að trúa i blindni á
skjöl, sem urðu til þess að hann
sniðgekk önnur sönnunargögn. Auk
þess varð tilhneiging Irvings til að
fella öfgalulla dóma sífellt sterkari.
Óvenjulegar kenn-
ingar í Hitlers-bók
eyöilögöu orðstír
Irvings
Endanlega kom Irving sér fyrir í
eldlínunni 1 lok áttunda áratugarins
þegar hann sendi ffá sér ritverk um
Hitler. Þar studdist hann við ný-
fundin, en ekki sérlega sannfærandi
skjöl og fullyrti nasista-sérffæðing-
urinn að foringinn hafi ekki haft
hugmynd um íjöldamorðin á gyð-
ingum. Gagnrýni sérffæðinga var
harkaleg og reif bókina í sig. Orð-
stír Irvings hefur ekki orðið samur
aftur.
Eftir þetta hefur höfundurinn lagt
sig eftir óljósum kenningum, yfir-
leitt án þess að almenningur veiti
honum minnstu eftirtekt. Hann trúir
því að hann geti sannað með alls
kyns myndum og skjölum að engar
„gereyðingarbúðir" hafi verið til.
Hann segist vera búinn að útrýma
þvi orði.
Irving segir fjöldamorðin í Au-
schwitz ekkert annað en þjóðsögu.
Gasklefana, sem nú á dögum séu
hafðir til sýnis, segir hann „einung-
is blekkingu“.
Svo fór að þessar fegruðu lýsingar
Irvings á nasismanum ráku hann 1
búðir þeirra sem lengst eru staddir
til hægri í stjómmálaskoðunum.
Irving á stuönings-
menn í Vestur-
Þýskalandi, en má
ekki koma þar fram
Irving, sem hefur fullkomið vald á
þýsku, nýtur stuðnings áhrifamik-
illa erkihægrimanna í Vestur-
Þýskalandi sem eru duglegir við að
auglýsa fyrirlestraherferðina hans.
Einnig nýnasistar, eins og hinn
sjálfskipaði leiðtogi vestur-þýSku
brúnstakkahreyfingarinnar, Micha-
el Kiihnen, 34 ára, vilja framvegis
halda Irving enn ffekar á lofti; þeir
áætla „nána samvinnu". Kiihnen
hefur sagt að með atfylgi svo virts
manns eigi nýnasistar aðgang að
hópum, sem annars myndu ekkert
vilja hafa saman við þá að sælda.
Þegar í ágúst nk. kemur Irving
ffam á „stærstu samkomu hægri-
sinna“ að þvi er KUhnen segir,
minningarfundi vegna Rudolfs
Hess, staðgengils foringjans, í
Wunsiedel í Bæjaralandi, og gera
nýnasistar sér vonir um að nærvera
hans þar auki mjög á virðingu
þeirra í augum almennings.
Það er að vísu óljóst hvort Irving
verður gefið leyfi til að koma þama
ffam. Ekki er langt um liðið síðan
yfirvöld í Passau bönnuðu með
skömmum fyrirvara að hann træði
þar upp, af ótta við ólæti öfga-
manna. Samkvæmt lögum varðandi
útlendinga í Vestur-Þýskalandi er
heimilt að banna „pólitíska starf-
semi“ þeirra, ef það er nauðsynlegt
til að koma í veg fyrir röskun á op-
inberu öryggi.
Fær aö koma fram í
Austur-Þýskalandi —
sökum ókunnugleika
yfirvalda þar
Einmitt í hinu strangandfasíska
þýska alþýðulýðveldi leyfa borg-
aryfirvöld, vegna ókunnugleika,
þessum manni með öfugsnúnu
skoðanimar að koma ffam fýrir
áheyrendur — mörgum þeirra til
mestu reiði. Einn áheyrenda Ir-
vings í menningarhöllinni í Dres-
den sagði að eftir að almennri
vitneskju hefur verið haldið frá
austur-þýskum almenningi í ára-
tugi hefði fólk átt von á að fá
ígrundaðar skýringar á því sem
gerðist á nasistatímanum, en ekki
skoðanir fasista.
Meirihluta þeirra um 150 áheyr-
enda sem mættu á fyrirlesturinn í
Dresden féll málflutningur Irvings
vel í geð. 16 ára piltur úr samtök-
um ungrepúblikana lét í ljós mikið
álit á „þessum menntaða manni“,
eins og hann orðaði það. Hann
lýsti hrifningu sinni á því að
hlusta „loks á einhvem sem ekki
talar um Þjóðverja eins og glæpa-
menn“.
Rithöfundurinn setur greinilega
ekki fýrir sig að hann fær lítið í
aðra hönd fýrir fýrirlestrana í
Austur-Þýskalandi þar sem að-
gangurinn hefur verið seldur á 10
heimamörk. Hann segist ekki hafa
þörf fýrir meiri peninga, hann eigi
nóg af þeim þar sem bækur hans
seljistí 10-20 milljóna upplagi um
allan heim. I september eiga að
koma út hjá erkihægrisinnanum
Herbert Fleissner í Munchen tvær
bækur eftir Irving. Og enn einu
sinni á gamla bókin um Rommel
að koma út í Berlin og þýska út-
gáfan á Churchill-verkinu kemur
út í MUnchen á næstunni.
Það virðist litið raska ró breska
rithöfundarins að sagnfræðingar
eins og Hans Mommsen í Boc-
hum, sem í eina tíð bar lof á Irving
fýrir nákvæmni í smáatriðum,
haldi því nú fram að hann sé end-
anlega kominn í fang þýskra ný-
nasista.
Irving hefur þann boðskap að
færa austur-þýskum áheyrendum
sínum að hann búi yfir sannleikan-
um og hlutverk hans sé að breiða
hann út sem víðast.
Nú er David Irving á fýrirlestraferð í Austur-Þýskalandi og nýtur þar mikillar hylli nýnasista.