Tíminn - 08.08.1990, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/TrYggvogötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN 1
j BYGGDUM LANDSINS |
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTU Á
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
Sími 91-674000
HOGG-
Pg G. foj*' ^ 1/L. ■ ■ TAÍl Verslið hjá fagmönnum
> varahlutir
VtL Hamarsbofóa 1 - s. 67-67-44 I
m
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990
Islenskt vatn á mörk-
um alþjóðlegra staðla
Miklu strangari kröfur eru gerðar til vatns sem kemur beint úr
krana á íslandi heldur en vatns í umbúðum að sögn Sigurðar
Greipssonar hjá Hollustuvemd ríkisins. Engir alþjóðlegir
staðlar eru fyrir sýmstig vatns í flöskum eða öðmm umbúðum
en vatn héríendis er víða mjög basískt og á mörkum alþjóð-
legs staðals um pH gildi neysluvatns.
Neysluvatn í Reykjavík og nágrenni
hefiir pH gildi um 8,5, en samkvæmt
alþjóða stöðlum á pH gildi vatns að
vera á bilinu 6,5 upp í 8,5 og er það
þvi alveg á mörkunum að vera of
basískt. Vatnið er hlutlaust við pH
gildi 7. Sigurður sagði þó að sýrustig
vatns sem hefiir verið meðhöndlað á
einhvem hátt, t.d. vatn sem hefiir
verið gerilsneytt eða kolsýrt, lækki
við geymslu.
Eftir þvi sem Tíminn komst næst
hafa engar rannsóknir verið gerðar
hérlendis um áhrif basísks vatns á
fólk. Sigurður sagði að basískt vatn
gæti virkað þurrkandi á húð þegar
það er notað til þvotta en á móti
kæmi að vatnið okkar inniheldur
miklu minna magn af steinefnum en
viða erlendis, en rannsóknir hafa leitt
það í Ijós að steinefni hafa einmitt
mjög þurrkandi áhrif á húðina.
Þórarinn Sveinsson mjólkurbústjóri
Kaupfélags Akureyrar sem ffamleið-
ir Akva vatn til útflutnings sagði að
hvert land fyrir sig hefði sínar reglur
sem vatn í umbúðum yrði að stand-
ast. Hann sagði að alþjóðlegar grunn-
reglur kynnu að vera kröfúminni um
neysluvatn í umbúðum heldur en
beint úr krananum en það þyrfti að
taka tillit til mismunandi staðla hinna
ýmsu landa. Allt vatn sem KEA flyt-
ur út er efnagreint í hvetju landi fýrir
sig áður en innflutningsleyfi fæst fyr-
ir það, að sögn Þórarins.
Þórarinn sagði einnig að vatnið sem
þeir settu á umbúðir væri af sama
vatnasvæði og veitukerfið á Akureyri
fengi sitt vatn og það ætti því að
standast allar þær kröfúr sem gerðar
eru til kranavatns þar. Hann sagði að
pH gildið á vatninu sem þeir flytja út
væri 7,4 og vatnið væri mjög stein-
efnasnautt. Það væri mjög lítið í okk-
ar vatni annað en vatn og þvi yrði að
selja það á þeim nótum. Akvavatnið
er meðhöndlað með útfjólubláu ljósi
til að eyða gerlum og sagði Þórarinn
að það væri nær skilyrt á erlendum
mörkuðum að vatn vaai meðhöndlað
á einhvem hátt.
Jón Scheving Thorsteinson ffam-
kvæmdastjóri íslensks beigvatns,
sem er dótturfýrirtæki Sólar hf. og
sér um gosdrykkja- og vatnsftam-
leiðslu, sagði að þeir reyndu að fylgja
ströngustu stöðlum sem þeir finndu
íyrir það vatn sem þeir flyttu út.
Hann sagði að þeir hefðu gerilmagn
vatnsins imdir þeim mörkum sem
sett væru í innflutningslöndunum og
þeir notuðu mikið af síum til að sía út
örverur úr vatninu. Inntakið inn í
verksmiðjuna væri síað og það síðan
gert nokkrum sinnum á meðan ftam-
leiðslu vatnsins stæði. Þá hefur ís-
lenskt bergvatn einnig fengið erlend-
ar rannsóknarstofúr til að efhagreina
vatnið líkt og gert er við Akva vatnið
á Akureyri.
Jón sagði að þeirra vatn uppfyllti
allar kranavatnskröfúr og þeirra
markmið væri að hafa það sem hrein-
ast. Vatnið rynni nánast alveg bernt
inn til þeúra fra Vatnsveitu Reykja-
víkur og þeirra hlutverk væri að
reyna að menga það ekkert á leiðinni
ofan í dósma.
—só
Harmleikur í Svíþjóð:
Þrír íslendingar
létust í bflslysi
Þrír íslendingar og tveir Svíar lét-
ust í hörðum árekstrí þriggja bif-
reiða í Svíþjóð eftir hádegi á sunnu-
dag. Fjórði Islendingurínn komst lífs
af og er lítið meiddur. Einn Svii ligg-
ur þungt haldinn á spítala.
Islendingamir voru á leið fra Stokk-
hólmi til Gautaborgar á tveimur bif-
reiðum. Atburðurinn átti sér stað á
þjóðvegi E3, sem er tveggja akreina, en
þó ekki breiðari en svo að ef bifreiðar
mætast á honum verður önnur að fara
út fyrir bundið slitlag.
Areksturinn varð með þeim hætti að
bifreið Svíanna kom úr gagnstæðri átt
við Islendingana. Svíamir viku af veg-
inum en misstu við það stjóm á bílnum
með þeim afleiðingum að hann valt
þvert yfir veginn. Islendingamir náðu
ekki að stýra frá bifreiðinni og bílar
þeirra skullu hvorir á eftir öðrum á bíl
Svíanna með fyrmefhdum afleiðing-
um. Ekki er talið ráðlegt að greina fra
nöfnum þeirra látnu að svo stöddu þar
sem ekki hefúr náðst í alla aðstandend-
ur þeirra. Islendingamir voru búsettir í
Svíþjóð og höfðu unnið þar í nokkur ár.
GS.
. - — - .
Flugvél nauö-
lendir á Reykja-
nesbrautinni
Lítil tveggja hreyfla flugvél með
tvo meim innanborðs nauðlenti á
Reykjanesveginum á sunnudags-
kvöldið. Vélin var að koma frá
Kanada og var á leið til Reykjavik-
ur þegar ljóst var að eldsneyti flug-
vélarinnar dygði ekki alla leið.
Flugvélin var þá nýkominn yfir
Keflavík og tók flugmaðurinn þá
ákvörðun að snúa vélínni til Kefla-
víkurflugvallar. Bensínið dugði
hínsvegar ekki alla leíð og tók flug-
maðurinn þá ákvörðun að nauð-
lcnda vélúmi á Reykjanesveginum
eins og áður sagði. Ekki urðu slys á
raönnunum en vélin er mikið
skemmd. Að sögn Grétars Óskars-
sonar hjá Loftferðaeftirlitinu er nú
unnið að rannsókn slyssins. Búast
má við niðurstöðum í lok septem-
bers eða byijun októbers.
-hs.
San Giorgio, ítalska herskipið sem nú liggur við festar í Reykjavíkurhöfn. Skipið er sérstaklega smíðað til
aðstoðar- og hjálparstarfa við strendur þar sem stríðsátök eða náttúruhamfarir herja. Timamynd; Pjetur.
ítalskt herskip í Reykjavíkurhöfn:
457 ÍTALIR SETJA
SVIP SINN Á BÆINN
ítaiskt herskip, San Giorgio, kom til
Reykjavíkur á mánudag og liggur nú
við Ægisgarð. Um borð í skipinu eru
457 ítalir og þar af um 220 sjóliðsfor-
ingjaefni sem eru nú í sinni fyrstu
þjálfunarferð um Atlantshafið.
I gær lögðu skipveijar blómsveig á
leiði óþekkta hermannsins í Fossvogs-
kirkjugarði og úrvalslið þeiira í knatt-
spymu lék við lið KR- inga í gær. Þcir
munu síðan fara í kynnisferðú um
Reykjavík og Suðurland og hljómsveit
skipsins mun leika á Lækjartoigi á
morgun.
Skip þetta er af nokkuð annarri gerð en
önnur herskip. Þvi er ætlað að aðstoða
varðsveitir Itala og Sameinuðu þjóð-
anna í Líbanon og vera til taks ef bjaiga
þarf fólki af hættusvæðum við strendur,
t.d. ef jarðskjálftar verða eða aðrar nátt-
úruhamfarir. Skipið var til sýnis fyrir al-
menning í gær og verður til sýnis í dag
og á morgun milli kl. 16:00 og 18:00.
Það heldur ffá landinu á fostudag áleið-
is til Kanada.
Að sögn lögreglu hafa þessir 457 ítal-
ir sett svip súin á miðbæinn og hafa
m.a. verið áberandi í skemmtanalífi
borgarinnar s.l. kvöld. Allt hefúr þó far-
ið friðsamlega fram að sögn lögreglu
og samskipti íslendúiga og ítalanna
hafa verið með ágætum. Samkvæmt
heimildum Tímans hefúr kvenþjóðúi
sérstaklega látið heillast af dökkhærð-
um ítölunum og jafnvel hafa nokkrar
stúlkur fengið að laumast um borð og
þá í öðium erindagjörðum en að skoða
skipið. —GS.