Tíminn - 10.08.1990, Side 8
8 Tíminn
Föstudagur 10. ágúst 1990
Föstudagur 10. ágúst 1990
Tíminn 9
Beðiö eftir afleik Saddams Husseins
Eftir Þorgeir Sigurðsson
Með innlimun sinni á Kúvæt virðist Saddam Hussein
hafa misst síðustu vini sína meðal Arabaleiðtoga. Liðs-
flutningar Bandaríkjamanna til Persaflóa halda áfram og
viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna er framfylgt af æ
meiri þunga. Nú bíða menn og sjá til hvort Saddam Hus-
sein grípur til einhverra hernaðaraðgerða. Ljóst er að
hann getur ekki haldið áfram útþenslustefnu sinni án
þess að til hernaðarátaka komi við Vesturveldin. Hins
vegar segja fréttaskýrendur að írakar geti þolað algert
viðskiptabann í nokkra mánuði og ekki sé víst að Vestur-
lönd geti beðið svo lengi eftir lausn á deilunni.
Öryggisráðið fordæmir
innlimun Kúvæts einróma
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti
í gær þriðju ályktun sína sem fordæmir að-
gerðir Iraka. Þessi ályktun var samþykkt ein-
róma, allir fulltrúamir 15 greiddu atkvæði
með henni, líka fulltrúi Jemen, en hann sat hjá
í fyrri skiptin. Jemen hefur átt vinsamleg sam-
skipti við íraka, en innlimun íraka á Kuúvæt
virðist hafa hert leiðtoga Arabaríkja mjög í
andstöðu sinni við ríkisstjóm Saddams Hus-
seins. Jórdanir og íranir vom meðal þeirra
ríkja sem fordæmdu innlimunina í gær. í álykt-
un Öryggisráðsins var ítrekuð fyrri samþykkt,
um að Iraksher færi frá Kúvæt og innlimun Ir-
aka á Kúvæt var lýst ógild og marklaus.
Arabaleiðtoga undirbúa
neyðarfund
Leiðtogar Arabaríkja komu í gær til Kaíró til
neyðarfundar um ástandið í írak og Kúvæt. ír-
akar ákváðu á síðustu stundu að senda fulltrúa
til fundarins en þangað var líka boðið æðsta
manni Kúvæts sem nú er í útlegð í Saudi-Ar-
abíu. Klukkutíma áður en fundurinn átti að
hefjast var honum frestað um sólarhring án
þess að ástæða væri tilgreind. í gærkvöldi áttu
hins vegar að hefjast óformlegar viðræður
milli Arabaleiðtoganna, en búist er við að þeir
fordæmi Iraka eindregið fyrir innlimun þeirra
á Kúvæt.
Útlendingar fá ekki að fara
frá írak og Kúvæt
Utlendingar hafa að undanfomu reynt að
komast frá Kúvæt og írak en margir óttast að
írakstjóm muni fangelsa þá og nota sem gísla
ef til hemaðarátaka kemur. I gær bámst fréttir
um að Vesturlandabúum hefði verið snúið frá
landamærunum við Jórdaníu og einnig hafa
borist fréttir um að farið hafi verið með Vest-
urlandabúa til Bagdad. Útlendingar frá öðmm
Arabaþjóðum var í gær hieypt úr landi. Meðal
þeirra, sem ekki fengu fararleyfi, vom banda-
rískir sendiráðsmenn. í gærkvöldi sögðu Irak-
ar, að engir útlendingar mættu fara úr landi
aðrir en sendiráðsmenn. Þeir sögðu erlendum
sendiráðsmönnum í höfuðborg Kúvæts að þeir
yrðu að leggja niður sendiráð sín og flytja til
Bagdad innan tveggja vikna.
írakar hóta að beita
efnavopnum. ísraelar prófa
flugskeyti
írakar sögðust í gær myndu beita efnavopn-
um ef á þá yrði ráðist. írakar ráða yfir skamm-
drægum eldflaugum og gætu skotið eiturvopn-
um á ísrael en Israelar hótuðu í gær að svara
hverri árás íraka með skelfilegri eyðileggingu.
Þeir prófuðu í gær eldflaugar sem þeir hafa
smíðað í samvinnu við Bandaríkjamenn. Frétt-
ir Reuters frá ísrael um þessar prófanir vom
ritskoðaðar af ísraelskum hemaðatyfirvöldum
en almennt er talið að ísraelar ráði yfir kjam-
orkuvopnum og þeir gætu verið færir um það
senda atómsprengjur til íraks.
Liðsflutningar við
landamærin að Tyrktandi
Engar frekari fréttir bárast í gær af liðsflutn-
ingum írakshers við landamærin að Saudi-Ar-
abíu. Hins vegar sögðu tyrkneskir flutninga-
bílstjórar, sem komu heim ffá Irak, að þeir
hefðu séð mikla liðsflutninga við landamærin
að Tyrklandi. Tyrkland er í Nató og ef á það er
ráðist verður litið á það sem árás á öll Nató-
ríkin. Sjónarvottar sögðu fféttamönum í gær
að Saudi-Arabar hefðu sent mikið af hergögn-
um að landamæram sínum við Kúvæt. Þeir
sögðust hins vegar ekkert hafa séð til amer-
ískra hermanna.
írakar einangraðir
á sjó og landi
Mikill stuðningur virðist ætla að verða við
viðskiptabann það sem Öryggisráðið sam-
þykkti að setja á íraka. í gær bættust margar
ríkisstjómir í hóp þeirra, sem hafa ákveðið að
virða bannið, og í gær var nánast búið að loka
öilum viðskipta- og olíuleiðum til íraks. Vest-
rænir diplómatar sögðu í gær að Jórdanir, sem
hafa verið helstu stuðningsmenn Iraka í Ar-
abaheiminum, hafi ákveðið að virða viðskipta-
bann Sameinuðu þjóðanna á Irak. Um Jórdan-
íu liggur ein helsta aðflutningsleið íraka á
landi til hafna við Rauðahaf. í gær skiptu Suð-
ur-Kóreumenn um skoðun og sögðust ekki
ætla að kaupa olíu af írökum en þeir hafa hing-
að til verið helstu kaupendur þeirrar olíu sem
farið hefur um olíuleiðslu íraka í Saudi- Arab-
íu. S-Kóreumenn era ekki í Sameinuðu Þjóð-
unum og höfðu áður sagst ekki ætla að hætta
viðskiptum við íraka. Tyrkir hafa stöðvað alla
olíuflutninga um olíuleiðsluna, sem liggur um
Iand þeirra, og engin olíuskip hafa að undan-
fomu reynt að sækja olíu til Iraks. Hugsanlega
munu Bandaríkjamenn beita valdi til að stöðva
öll brot á viðskiptabanninu en e.t.v. reynist það
óþarfi. Hótunin ein gæti dugað til að fæla alla
viðskiptavini frá írak.
Engu að síður segja erlendir fféttaskýrendur
að staða Saddams Husseins sé sterkari en
margur kann að ætla. Þeir segja að írakar geti
þolað algert viðskiptabann í 3 til 6 mánuði og
óvíst sé hvort Vesturlönd hafi þolinmæði til að
bíða svo lengi með heri við landamærin. Við-
skiptabönnum sé erfitt að ffamfylgja og eftir
því, sem tíminn líður, aukast líkumar á að það
verði rofið.
Sovétmenn fordæma
íraka en vilja ekki senda
hermenn í alþjóölegar
sveitir
Sovétmenn fordæmdu í gær harðlega Iraka
fyrir að innlima Kúvæt en þeir sögðust ekki
vilja taka þátt í liðsafnaði gegn þeim nema
undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. í yfirlýs-
ingu utanrikisráðuneytis Sovétríkjanna voru
herflutningar Bandaríkjamanna ekki gagn-
rýndir en þó mátti skilja á Sovétmönnum að
þeir teldu að Bandaríkjamenn hefðu með þeim
aukið á óæskilega spennu við Persaflóa.
Bandarikjamenn hafa verið mjög ánægðir með
að Sovétmenn hafa að fullu tekið undir for-
dæmingu þeiira á fyrrverandi bandamönnum
sínum i írak. í fféttum frá Washington sagði í
gær að þessi jákvæðu viðbrögð Sovétmanna
gætu leitt til þess að Bandaríkjamenn tækju
þátt í vestrænni fjárhagsaðstoð við efnahag
Sovétrikjanna.
Enginn Arabaþjóö hefur
lýst yfir vilja til að senda
hersveitir í alþjóöasveitir
en Vesturlönd eru jákvæö
Bandaríkjamenn leita nú eftir sem víðtækust-
um stuðningi við liðsafhað sinn i Saudi-Arab-
íu og hugsanlegar hemaðaraðgerðir. Ekkert
Arabaríki hefur þó enn lýst sig reiðubúið til að
senda hersveitir í alþjóðlegar sveitir á Ianda-
mæram Iraks. Hins vegar hafa vestræn ríki
tekið vel i þessa málaleitan. Bretar sögðu á
miðvikudag að þeir myndu senda skip og flug-
vélar til liðs við Bandarikjamenn í Persaflóa.
Utanríkisráðherra Bretlands, Douglas Hurd,
sagði i gær að hann byggist við að önnur Evr-
ópuríki myndu slást í hóp Breta og Banda-
ríkjamanna og senda Iið til vamar Saudi-Arab-
íu. I gær sagði Francois Mitterand forseti að
Frakkar myndu senda skip og flugvélar til
Persaflóa. Hann sagði líka að Frakkar myndu
bregðast vel við óskum sem kynnu að berast
ffá Saudi-Aröbum og öðram Persaflóarikjum
um hemaðar- og tækniaðstoð.
Verðhækkanir eru fljótar
aö skila sér
Hráolíuverð hefur tvöfaldast á olíumörkuðum
eftir að Irakar tóku að ógna rikjum við Persa-
flóa. Enginn veit hversu varanleg þessi hækk-
un kann að verða en hún virðast ætla að skila
sér fljótt út í hærra orkuverði til almennings. í
ávarpi sínu til bandarísku þjóðarinnar í fyrra-
dag hvatti Bush bandarísku olíufélögin til að
sýna biðlund og hækka ekki verð á olíu að
óþörfu. Þessu svöraðu olíufélögin í gær og
neituðu ásökunum um að þau hefðu hækkað
verð óeðlilega mikið. Miklar birgðir era til af
olíu í heiminum. Þessar birgðir gætu dugað í
marga mánuði og vora keyptar meðan olíu-
verð var mjög lágt. Bandaríkjamenn framleiða
sjálfir mestalla þá olíu, sem þeir nota, svo að í
fljótu bragði virðist ekki vera mikil ástæða til
hækkanna á næstunni. Engu að síður er verð á
unninni olíu til neytenda strax tekið að hækka
í Bandaríkjunum.
Þessi verðhækkun mun hafa áhrif til hækk-
unnar á verðlagi almennt. T.d. hefur stærsta
flugfélagið í Bandarikjunum hækkað verð á
fargjöldum sínum um 10% og kennir auknum
eldsneytiskostnaði um.
Saddam Hussein
nýtur vaxandi stuðnings
meðal Araba
Þótt Saddam Hussein hafi verið fordæmdur
af leiðtogum flestra Arabaríkja nýtur hann
vaxandi stuðnings margra alþýðumanna. Þeir
sjá í honum málsvara fátækra araba en oliu-
auðæfum þeirra er mjög misskipt. Margir fá-
■ tæklingar vorkenna ekki hinum ríku Kúvætbú-
um, sem hafa lifað í vellystingum á meðan
mikill meirihluti Araba býr við fátækt. Sadd-
am sagði í yfirlýsingu sinni, þegar hann inn-
limaði Kúvæt, að markmið hans væri að sam-
eina alla Araba. Hann sagði að nýlenduveldin
hefðu af ráðnum hug skipt landi Araba upp f
mörg smáríki til að gera þau vanmáttug og
komið því þannig fyrir að fámennar hópur Ar-
aba ætti einkarétt á mestöllum auðæfum
þeirra.
Gegn þessu sagðist hann vilja beijast en þótt
margir arabar séu sammála um það lokamark-
mið, að rétt sé að mynda eitt sterkt Arabaríki,
telja þó flestir að leiðin, sem hann hefur kosið
að þessu marki, sé röng.
v;