Tíminn - 30.08.1990, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.08.1990, Blaðsíða 2
ZTíminrv Fimmtudagur 30. ágúst 1990 Flugleiðir kaupa ferðaheildsölu Fiugleiðir og flugfélagið Luxair í Lúxemborg hafa keypt 40% hlutafjár hvort í þarlendu ferðaheildsölufyrirtæki. Fyrirtækið heitir Easy travel og hefur sérhæft sig í sölu pakkaferða til Ameríku. Með þátttöku í Easy travel segj- ast Flugleiðamenn vera að styrkja sig á markaðinum í Lúxemborg og nágrenni. Ferðir til Miðjarðarhafs- ins eru nú á undanhaldi á þessum markaði og fólk sýnir vaxandi áhuga á að eyða fríinu á nýjum slóðum. Staða Flugleiða mun enn frekar styrkjast í vetur þegar tekið verður upp daglegt flug þangað, en í fyrravetur voru fjórar ferðir í viku til Lúxemborgar. Þá verður lendingum í Bandaríkjunum einn- ig fjölgað. Nú eru um 36% fleiri bókaðir í Norður-Atlantshafsflug Flugleiða í nóvember og desember en á sama tíma í fyrra. Flugleiðir og Luxair hafa rætt ýmsa mögu- leika á nánari samstarfi félaganna. Kaupin á meirihlutanum í Easy travel eru upphaf á samvinnu sem Flugleiðir vona að geti orðið enn umfangsmeiri. Flugleiðir hafa nú endumýjað myndbandaúrvalið um borð í nýju Boeing 757 þotunum. Farþegar á Saga Class geta nú séð Óskars- verðlaunamyndina Driving Miss Daisy eða numið af myndböndum hvemig hægt er að grenna sig eða hætta að reykja. Þá er hægt að sjá glæpamyndir, ástarsögur, gaman- myndir og spennumyndir auk fræðsluþátta um fiskveiðar með flugu, golf eða garðyrkju. Flug- leiðir em nú að kanna möguleika á að koma sjónvarpsskjám fyrir í sætisbökum í Saga Class og al- mennu farrými. Þangað til verða farþegum á Saga Class boðin afnot af Sony myndbandstækjum á Norður- Atlantshafsleiðum Flug- leiða. —SE Mikil athafnasemi var við byggingu Lindalax rétt innan við Vatnsleysu. Mannvirki eru mikil ofanjarðar og neðan, en þarna var borað eft- ir bæði heitu og köldu vatni. Hvort fiskeldisævintýrinu er lokið verður tíminn að leiða í Ijós. Timamynd: Ami Bjama Kennarafélag Kennaraháskóla íslands og Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga: Vonbrigöi með ríkisstjórnina Kennarafélag Kennaraháskóla íslands og Félag háskóla- menntaðra hjúkrunarfræðinga hafa sent frá sér ályktanir þar sem þau harma og mótmæla bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar í deilu BHMR og ríkisins. í ályktun fiá Kennarafélaginu segir að kjarasamningar þeir sem gerðir voru við fjármálaráðuneytið í maí 1989 hafi ver- ið mikilvægur áfangi í kjaramálum há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Eftir langvinnar kjaradeilur vom m.a. gerðir langtímasamningar sem tryggðu vinnu- ffið í skólum landsins. Jafnffamt var stigið mikilvægt spor i átt til þess að leiðrétta kjör háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna. Þá segir í ályktuninni að effir bráða- birgðalög ríkisstjómarinnar ffá 3. ágúst sl. séu brostnar þær vonir sem bundnar vom þessum samningi. Jafhffamt sæki að áleitnar hugrenningar um merkingu og gildi mikilvægra hugtaka eins og lýðræðis, sátta, samninga og samvinnu í samsldptum manna. Stjóm Kennarafélags Kennaraháskóla islands álítur vinnubrögð ríkistjómar- innar í þessu máli hafa verið henni til mikillar vansæmdar og lýsir djúpum vonbrigðum með að svo skuli komið málum. Félagsfundur Félags háskólamennt- aðra hjúkrunarffæðinga, sem haldinn var mánudaginn 20. ágúst, sendi fiá sér eftirfarandi ályktun: ,félag háskólamenntaðra hjúkrunar- ffæðinga mótmælir harðlega setningu bráðabiigðalaga ríkisstjómarinnar á lög- mæta kjarasamninga BHMR. Félagið andmælir ennfremur þeim skoðun stjómvalda að laun háskólamenntaðra manna og annarra launþega séu helsti verðbólguvaldur í íslensku efnahags- kerfi. Félagið varar við þeirri tilhneig- ingu stjómvalda, samtaka vinnuveit- enda og forystu ASÍ og BSRB að telja almenningi trú um að nýting þekldngar menntafólks sem starfar hjá ríki og bæ skili sér ekki í bættum lífskjörum þjóð- arinnar. An almennrar og sérhæfðrar menntunar og nýtingu hennar væri ís- lenskt samfélag litlu betur sett efhahags- lega og félagslega en þróunarlöndin. Þar sem sýnt er að ríkisstjómin hefur gefist upp við stjóm efnahagsmála og látið allt ffumkvaeði á þvt sviði í hendur vinnuveitendasamtaka og ASI ætti hún að hætta að vera leppstjóm þessara sam- taka og segja af sér tafarlaust" —SE Slátrun í fiskeldisstöðinni sem áður hér Lindalax og síðan Laxa- lind. Laxalind að hætta Stjóm Laxalindar hf. hefur í samráði við íslandsbanka og eigendur fé- lagsins, Iðnþróunarsjóð og Den norske Bank, ákveðið að leggja nið- ur fiskeldi á vegum félagsins, bæði á Vatnsleysuströnd og á Hallkels- hólum. Um töluverðar fjárbæðir er hér að seiðum þegar best lét. í tilkynningu stjómar félagsins segir að öllu starfsfólki verði sagt upp miðað við næstu mánaðamót og að allar rekstrar- skuldir fyrirtækisins verði greiddar. Sömuleiðis að Laxalind muni starfa áfram um sinn en aðeins sem eignar- haldsfélag. Eins og ffam kom í Tímanum þann þrettánda síðasta mánaðar er forsaga málsins sú að fýrirtækið Laxalind var stofnað við gjaldþrot Lindalax hf. fyrir ári. Laxalind falaðist síðan eftir, en fékk ekki, leyfi fyrir innflutningi laxahrogna / ffá Noregi. Jafnffamt er fiárennsli Hall- J kelshóla í vatnasvasði Hvitár og þar með Ölfusár, en samkvæmt íslenskum lögum um vemdun fiskistofha er eldi erlendra ræða því framleiðsla nam milljón seiðastofha óheimilt nema fiárennsli stöðvar liggi beint til sjávar. Laxalind hefði því ekki getað nýtt aðstöðuna að Hallkelshólum, jafiivel þótt leyfi fýrir innflutningi hrogna hefði fengist Einnig var greint fiá því að um tölu- verðar fjárhæðir væri að ræða. Að sögn Óskars Ingebrigtsen, ffamkvæmda- stjóra Laxalindar, nam ffamleiðsla seiða um einni milljón jtegar best lét. A síðast- liðnu ári var ffamleiðsla dregin saman um helming en hvert seiði var selt á um 100 íslenskar krónur á mörkuðum er- lendis. í fýrmefhdri tilkynningu segir að mest af fiskinum hafi nú verið slátrað. Þar sem stöðvamar hafi enn ekki verið seld- ar hefur verið ákveðið að hætta starf- rækslu. Ekki er ætlun þeirra banka og sjóðs sem áttu veð í fiski og stöðinni að standa sjálfir að rekstri stöðvanna um lengri tíma en það eru Den norske Bank og íslandsbanld sem áttu veð í öllum fiski í stöðvum félagsins og hafa fjár- magnað rekstur þess. Fiskeldisstöðin sjálf að Vatnsleysu er i eigu Laxalindar fýrir hönd veðhafa sem era DnB og Iðn- þióunarsjóður. Stöðin verður áffam boðin til sölu eða leigu. Stöðin að Hall- kelshólum er nú eign DnB og Fram- kvæmdasjóðs. jkb Þingflokkur Alþýðu- bandalagsins: Ályktun um smá- báta og framsal kvóta í ályktun sem samþykkt var á þingflokksfundi Alþýðubanda- lagsins 28. ágúst sl., vekur þingfiokkurinn athygli á þelrri miklu réttaróvissu og riugul- reið sem skapast hefur varð- andi framsal á kvóta smábáta eftir að sett voru lög nr. 38/1990 um stjórnun iiskveiða. „Lögin eiga að taka gildi um næstkomandi áramót og reglu- gerðir varðandi kvóta smábáta hafa enn ekki verið settar. Þrátt fyrir það er komin í full- an gang sala á kvóta þessara báta til stærri útgerðaraðUa án þess að smábátaeigendur viti um rétt sinn. Vitað er að ýmsir hugsa sér að komast inn f kerf- ið á ný, en hijóta þá að ganga á hlut þeirra sem fyrir eru,“ seg- ir í ályktuninni. Þingflokkur Alþýpubanda- lagsins beinir þeim eindregnu tilmælum tU sjávarútvegsráð- berra að á þessum málura verði tekið hið fyrsta og hraðað setn- ingu regiugerða. Þá telur þingflokkurinn óhjá- kvæmUegt að taka vissa þætti laganna um stjórnun fiskveiða að því er tekur til smábáta tU endurskoðunar strax og þing kemur saman, m.a. tU að tryggja að forkaupsréttur sveitarstjórnar samkvæmt 11. grein laganna taki einnig til smábáta. —'SF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.