Tíminn - 30.08.1990, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.08.1990, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 30. ágúst 1990 Tíminn 17 p| AIAI^CCTA rLv/r\rv«Ju i h ni- Dagskrá SUF-þings, Núpi, Dýrafirði, 31. ágúst-2. september Föstudagur 31. ágúst Kl. 16.30 Setning - Gissur Pétursson, formaður SUF. Kl. 16.45 Kosning embættismanna. Skipað í nefndir. Kl. 17.00 Ávörp gesta. - Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra - Guðrún Jóhannsdóttir, varaformaður LFK - Guðmundur Ingi Kristjánsson - Egill Heiðar Gíslason Kl. 17.30 Lögð fram drög að ályktunum. Almennar umræður. Kl. 19.00 Kvöldmatur. Kl. 20.00 ísland og Evrópubandalagið - Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur. Fyrirspurnir og umræður. Kl. 21.30 Nefndarstarf. Kl. 22.30 Kvöldvaka - þjóðdansar. Laugardagur 1. september Kl. 08.30 Morgunverður. Kl. 09.00 Nefndarstarf Kl. 11.00 Umræður. Kl. 12.00 Hádegisverður. Kl. 13.00 Umræður og afgreiðsla ályktana. Kl. 14.30 Hlé - Knattspyrna og hráskinnaleikur. Kl. 16.00 Afgreiðsla stjórnmálaályktunar. Kl. 17.30 Kosningar. Önnur mál. Kl. 18.00 Þingslit. Kl. 21.30 Kvöldskemmtun að Núpi - söngur, glens og gaman. Sunnudagur 2. september Kl. 09.30 Morgunverður. Brottför. KJÖRDÆMISÞING framsóknarmanna í Vestfjarðakjördæmi. Haldið að Núpi í Dýrafirði 8.-9. september 1990 DAGSKRÁ: Laugardagur 8. september: 1. kl. 14.00 Þingsetning 2. kl. 14.10 Kosning starfsmanna þingsins 3. kl. 14.15 Kosning nefnda og framlagning mála 4. kl. 14.40 Skýrslur stjórnar, umræður og afgreiðsla 5. kl. 15.10 Ávörp gesta 6. kl. 15.30 Kaffihlé 7. kl. 16.00 Stjórnmálaviðhorfið - staða og horfur 8. kl. 16.40 Ávarp þingmanns og varaþingmanns 9. kl. 17.30 Almennar umræður 10. kl. 19.00 Matarhlé 11. kl. 20.00 Umræður um framboðsmál 12. kl. 21.00 Fundi frestað Sunnudagur 9. september: 1. kl. 09.00 Nefndarstörf 2. kl. 12.00 Hádegisverður 3. kl. 13.00 Afgreiðsla mála 4. kl. 14.00 Kjör stjórnar og nefnda 5. kl. 14.30 önnur mál 6. kl. 15.00 Þingslit Stjórnin Skrifstofa Framsóknarflokksins hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu) m Sími 91-674580. Opið virka daga kl. 8.00-16.00. Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn. Umhverfismálaráðstefna Ráðstefna um umhverfismál verður haldin í Vestmannaeyjum laugardaginn 29. sept. nk. Ráðstefnan er öllum opin. Nánar auglýst síðar. Landssamband framsóknarkvenna, LFK. nú ofgera! Öllu má Ætla mætti að flestir teldu þörf á að láta stækka á sér bijóstin áður en Dolly Parton dytti slíkt í hug. Enda segja gárungamir að hún sé svo fót- smá, sem raun ber vitni, af því að fætur vaxi illa í skugga. Bijóstin hafa löngum verið vöru- merki Dolly Parton og hún virðist aldrei fá nóg af svo góðu. Dolly hefúr farið hvað eftir annað í bijóstastækkunaraðgerðir, en sú síðasta var dropinn sem fyllti mæl- inn. Söngkonan fór í stranga megrun fyrir tveimur árum og er nú svo grönn og fíngerð að bak hennar þol- ir ekki þá þyngd sem hún er búin að láta hlaða framan á sig og þjáist hún nú af stöðugum bakverkjum. Ástandið er orðið svo slæmt að hún þarf að ganga í stuðningsbelti til að þola við. Læknar hafa sagt henni að til að losna við kvalimar verði hún að láta minnka bijóstin á sér um helming, ella geti hún orðið varanlega fotluð. Þannig að nú þarf hún að velja milli vömmerkisins og heilsunnar. Dolly Parton hefur nú stofnað heilsu sinni í alvarlega hættu með síendurteknum brjósta- aðgerðum. Þetta er brjálað fólk Roseanne Barr og eiginmaður hennar virðast ekki geta farið spönn frá rassi án þess að gera allt vitlaust í kringum sig. Parið var statt á flugvellinum í Los Angeles þegar ljósmyndarar, sem hafa lifibrauð sitt af því að mynda ffægt fólk, tóku að mynda þau. Eig- inmaðurinn tmflaðist og réðst á ljósmyndarana og þar sem maður- inn er stór og mikill og sterkur og skapstór eftir því áttu ljósmyndara- greyin fótum sínum fjör að launa. Á meðan eiginmaðurinn barði á ljósmyndumnum með tilheyrandi formælingum stóð Roseanne hjá og hvatti hann með ráðum og dáð. Það vantar ekki samheldnina hjá skötu- hjúunum, hvað sem um geðheils- una má segja. Þau hjónin standa nú ffammi fyrir skaðabótakröfúm af hálfú ljós- myndaranna, bæði vegna líkam- legra áverka og skemmda á vélum þeirra. En þau hljóta nú að vera hætt að kippa sér upp við svoleiðis smámuni eftir það sem á undan er gengið. Þau virðast bara vinaleg, þybbin hjón við fyrstu sýn, en ekki er allt sem sýnist. Pínulítill og skelfingu lostinn Ijósmyndari horfir á tröllið vaða um eins og naut í flagi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.