Tíminn - 30.08.1990, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 30. ágúst 1990
Viðræður Gorbatsjovs
og Jeltsins lofa góðu
Miklar breytingar standa nú fyrir
dyrum á efnahagslrfi Sovétmanna,
í kjölfar viðræðna Mikhaíl Gorbat-
sjovs og Boris Jeltsins. Að sögn
blaðafulltrúa Gorbatsjovs, Vrtalys
Ignatenkos, hrttust stjómmála-
mennimir tveir í gær til að leysa
ágreiningsmál sín varöandi endur-
skipulagnirtguna. ,A næstunni
verður um grfurfegar breytirtgar að
ræða, bæði hvað varðar efnahags-
Irfið sjálft og samskipti ríkja innan
Sovétríkjanna.
Núverandi skipulag er úrelt og því er
erfitt að hafa hemil á breytingum",
sagði Ignatenko. Gorbatsjov og Jeltsin
lenti saman fyrr í sumar vegna tilrauna
þess síðamefnda til að flytja stjóm á
nýtingu náttúruauðlinda, sem flokkur-
inn heftir hingað til séð einn um, heim
í hérað. En allar meginuppsprettur
auðlinda Sovétmanna, bæði olíu,
gulls, gass og demanta er að finna í
Rússlandi, sem er hið stærsta og valda-
mesta af 15 ríkjum Sovétríkjanna.
Án stuðnings Jeltsin væri tilraunum
Gorbatsjov til endurbóta steíht í voða.
Að sögn Ignatenkos munu stjómvöld
Sovétríkjanna taka breytingartillög-
umar til umíjöllunar í dag. „I dag
ræðst nánasta framtíð Sovétríkjanna
hvað varðar efnahagslífið."
Ráðamennimir tveir komu fyrir
nokkm á laggimar rússnesk-sovéskri
nefnd, er hafði það markmið að gera
tillögur varðandi nýtingu auðlind-
anna, er báðir aðilar gætu sæst á. Að
sögn fréttamanna felast í tillögunum
róttækar breytingar í átt að markaðs-
hagkerfi og stangast þær því á við til-
Mikhafl Gorbatsjov.
lögur forsætisráðherrans Nikolai
Ryzhkov sem vill fara hægar í sakim-
ar. En tillögur, sem Ryzhkov lagði
fyrir þingið fyrr í sumar um miðstýrt
markaðshagkerfi, vom felldar og
honum gert að endurskoða þær fyrir
byijun september.
I tillögum rússnesk-sovésku nefhdar-
innar er að finna kafla um aukna sjálfs-
stjóm einstakra ríkja og að dregið
Borís Jettsin.
verði úr miðstjóm kommúnistaflokks-
ins. En næsta víst er talið að Jeltsin
rnuni fagna slíkum breytingum.
Ryzhkov heíhr aftur á móti varað við
þessháttar breytingum í sjónvarps-
ávörpum nýverið. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hver áhrif samkomulag Gorbatsjovs
og Jeltsins mun hafa á pólitíska stöðu
Ryzhkovs, en stjóm hans hefúr sætt
mikilli gagnrýni undanfama mánuði.
Perez de Cuellar segir Bush styðja sig í samningaviðleitninni:
■■ _______g ■ ■ W M
■ ramvæmaastjon
S.Þ. í friðarferð
Aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, Perez de Cuellar, segir
Bush forseta hafa hringt I sig í
gaer og hvatt sig til dáða i við-
leitni sinni til að leysa Pcrsaflóa-
deiluna og óskað sér allra heilla.
Aðalritarinn ræddi við blaða-
menn nokkrum klukkustundum
áður en hann hélt tU Parisar á
leið sinni til Amman þar sem
hann mun ra*ða við utanríkis-
ráðherra fraks, Tareq Aziz, i
dag.
Aðspurður um þá yfirlýsingu
Bush að hann værl ekki bjart-
sýnn á árangur viöræöna, sagði
de Cuellar: „Bush hringdi i mig í
gær, hvatti mig á allan hátt og
óskaði mér góðs gengis.“
Hann var einnig spurður hvort
líta bæri á þá ákvörðun íraka að
leyfa erlendum konum og bðrn-
um að fara úr landi væri i þeim
tilgangi að afla sér góðvilja hans
fyrir viðræðurnar. Við því sagði
de Cuellar: „Sú ákvörðun
stjórnarinnar er allrar athygli
verð, en þó ber einungis að líta á
hana sem hluta af vandamál-
inu.“
Hann sagðist hafa mikinn
áhuga á að reyna að sjá dl þess
að Irakar samþykktu þær fimm
ályktanir sera Öryggisráðið hef-
ur lagt fram frá þvi írakar réð-
ust inn i Kúvæt hinn 2. ágúst sl.
Á blaðamannafundi á mánu-
daginn sagði de Cuellar að hann
myndi leggja á það megiu-
áherslu að reyna að tryggja að
kröfunum um brotthvarf íraka
frá Kúvæt og um Iausn gísla,
sem þar eru í haldi, verði svarað.
í stuttu spjalli við blaðamenn í
gær var hann spurður hvernig
hann myndi brcgðast við ef írak-
ar neituðu að ræða innlimun
sina á Kúvæt.
„Ég vil að svo stöddu ekkert
segja sem dregið geti úr því að ég
nái markmiði mínu,“ svaraöi de
Cuellar.
Öðrum spurningum svaraöi de
Cuellar á þann hátt að það færi
eftir gangi mála hversu lengi
hann yrði í Amman. Yflrlýsing
íraka á þriðjudag þess efnis að
Kúvæt væri nú 19. hérað þess
væri ekki til þess falliu að bæta
upp á sakirnar, sagöi hann.
Oléttar konur streyma til
Óléttar konur frá Hong Kong
streyma nú til Kanada og dvelja
þar þangað til þær hafa orðið létt-
ari.
Astæðan er ekki sú, að aðstaða
fyrir barnshafandi konur sé svo
slæm í Hong Kong, heldur eru þær
að tryggja það að börnin þeirra hafi
i önnur hús að venda árið 1997,
þegar kínverskir kommúnistar taka
við bresku nýlendunni.
Konumar fara til Kanada, því að
öll böm, sem fæðast í landinu,
hljóta sjálfkrafa kanadískan ríkis-
borgararétt, sem þau losna ekki við
nema þau vilji það sjálf. Þetta gef-
ur foreldrunum engan rétt en for-
eldramir telja að það sé gott fram-
tíð bamsins að hafa kanadískan
ríkisborgararétt í pokahominu þeg-
ar Hong Kong verður hluti af Kína.
Þegar bamið er fætt þarf ekki ann-
að en að sanna að það hafi fæðst í
Kanada, ná í vegabréf fyrir það og
halda síðan aftur til Hong Kong.
Kostnaðurinn er hins vegar tals-
verður. Flugfarið er dýrt sem og
uppihald og þá þurfa konumar
einnig að borga fyrir læknisskoð-
anir og sjúkrahúsvist og er kostn-
aðúrinn venjulega í kringum 300
þúsund íslenskar krónur.
Kanadísk stjómvöld hafa ekki
Þrengingar í írak:
Tyrkir hafna
beiðni íraka
um lyf og mat
Tyrknesk stjómvöld höfnuðu í gær beiðni íraka um
matvæli og lýf og sögðust Tyrkirnir myndu virða við-
skiptabann Sameinuðu þjóðanna á írak og Kúvæt.
Tyrkjum barst beiðni um neyðarað-
stoð ffá írökskum stjómvöldum þar
sem matvæla- og lyfjaskortur væri
orðinn mikill. Innanrikisráðherra
Tyrklands, Isin Celebi, sagði í gær eft-
ir fúnd með tveimur ráðherrum í ríkis-
stjóm Saddams Hussaein, að Tyrkir
hafi tilkynnt írökum að þeir myndu
Kanada
miklar áhyggjur af þessu og það
stendur ekki til að spyrja konur,
sem koma til landsins, hvort þær
em óléttar eða stefni að því að ala
sitt bam í landinu. í Bandaríkjun-
um em svipaðar reglur í gangi en
þeir hafa meiri reynslu í þessum
málum en Kanadamenn og erfiðara
er fyrir óléttar konur að fá dvalar-
leyfi í Bandaríkjunum heldur en í
Kanada.
virða viðskiptabann Sameinuðu þjóð-
anna á meðan það væri í gildi og að
tyrknesk stjómvöld myndu aldrei geta
sætt sig við yfirlýsmgu Iraka xun að
Kúvæt væri 19. fylkið í írak. Celebi
sagði einnig eftir fúndinn að íröksku
ráðherramir hefðu rætt um efnahags-
vandræði íraka og komið fram með
ýmsar óskir. Hann sagði að ráðherram-
ir hefðu sérstaklega lagt áherslu á að
leysa þyrfti úr bráðum skorti á lyfjum
og bamamat. Ekkert var rætt um olíu á
þessum fúndi, sem stóð í fjóra tima og
fór ffam í Tyrklandi rétt við landamær-
in við Irak.
Þetta er í fyrsta skipti sem svo hátt
settir ráðamenn fiá írak og Tyrklandi
skiptast á skoðunum ffá því 5. ágúst
þegar sendiherra Tyrkja í Irak færði
Turgut Ozal forseta Tyrklands skila-
boð ffá Saddam Hussein.
Tyrkir hafa stutt viðskiptabann Sam-
einuðu þjóðanna dyggilega. Þeir hafa
ekki heimilað skipum, sem em með
farm til Iraks, að skipa upp vamingi í
tyrkneskum höfnum.