Tíminn - 30.08.1990, Side 9
íi.
Fimmtudagur 30. ágúst 1990
Tíminn 9
PERSAFLOADEILAN
Kjarnorkustyrkur
íraks meiri en talið
var
Hátt uppi í Chyia Gara
fjöllum, á landsvæði
þeirra Kúrda, sem
Saddam Hussein strá-
drap fyrir tveimur ár-
um, segja leyniþjón-
ustumenn að kærasta
eign Saddams sé, úr-
aníumnáma á yfir-
borði jarðar.
Frá því í ársbyrjun
1990 er sagt að Sadd-
am hafi farið þangað
sjálfur sjö sinnum. í
síðasta mánuði lét
hann girða svæðið af,
að því er fregnir frá
Bagdad herma. Löng-
un hans í kjarnavopn
er áköf. Jafnvel er
hann var að undirbúa
valdatöku sína um
miðjan áttunda ára-
tuginn, meðan hann
var enn varaforseti,
lagði hann grunninn
að öflun bæði efna-
og kjarnorkuvopna.
: : x- "
/ w.
4 %•,
■Ættié' Btn •
Þau eru fá ríkin sem Vesturveldin
vildu siður sjá kjamorkuvædd.
Andrew Duncan, sem starfar hjá
rannsóknarstofnun í hemaðartækni,
segir tilhugsunina óskemmtilega.
„Vera kynni að Saddam myndi aldr-
ei beita kjamorkuvopnum, en yfir-
ráð hans yfir þeim gæfu honum
ómælda möguleika til kúgimar.“
Vestræna sérfræðinga greinir á um
hversu langt írak eigi í land með að
geta framleitt kjamorkuvopn. í
fréttabréfi frá Bandaríkjastjóm er
lögð fram sú skoðun, sem Israels-
menn aðhyllast reyndar líka, að Ir-
akar muni ekki geta framleitt efna-
vopn á komandi ámm. Pentagon
spáir því að írakar muni geta fram-
leitt kjamavopn innan tveggja ára í
stað fimm áður vegna nýrra upplýs-
inga sem hafa borist varðandi að-
drætti íraka til kjamorkuvopna-
gerðar. Vamarmáladeild Pentagons
spáði réttilega íyrir um innrás Iraka
í Kúvæt fyrir þremur vikum, þegar
CIA og innanríkisráðuneytinu
skjátlaðist.
„Við höfúm þá trú að þeir fari með
mun meiri leynd en við áður héld-
um,“ segir heimildarmaður innan
Pentagon. „T.d. komumst við að
því í þessari viku að þeir hafa kom-
ist yfir nýtísku skotmarksleitarbún-
að fyrir fallbyssur sínar, líklega ffá
Sviss, sem við höfðum ekki hug-
mynd um.“
Bandaríkjamenn segja að írakar
hafi einnig nýlega haft samband við
/
Suður-Affíku varðandi kjamavopn.
Bandaríski herinn er ekki einn um
skoðun sína á möguleikum íraka.
Paul Beaver, aðalritstjóri tímarits,
sem fjallar um vamarmál, telur Ir-
aka líklega eiga flest það sem þarf i
kjamorkuvopn og að þeir verði
búnir að koma sér upp virkum
kjamorkuvopnum innan tveggja til
þriggja ára.
Sérfræðingar velta því fyrir sér
hvort Saddam hafi sótt aðstoð i
þessum efnum til Kína, en þar hafa
leyniþjónustur löngum talið að lyk-
ilinn að kjamorkuvæðingu Pakist-
ana sé að finna. En þeir segja ekkert
benda til þess að kínversk stjóm-
völd hyggi á samvinnu við Saddam
Hussein. Reyndar hafi ástandið við
Persaflóa nú gert þeim eðli hans
ljóst.
Það hversu kjamorkuáætlun íraka
er flókin gerir allar tilraunir til að
skilgreina umfang hennar mjög erf-
iðar. Útsendarar Iraka em út um all-
an heim í þéttu neti leppfýrirtækja
sem fylgja þeim fyrirmælum Sadd-
ams að aðalmarkmiðið skuli vera
fjölbreytni. Þessu er öllu stjómað af
Tæknideild sérverkefna, sem
stjómað er af Hussein Kamal,
tengdasyni Saddams.
Þessi margbreytileiki hefur aukist
stómm ffá því 1981 er ísraelskar
herþotur sprengdu upp Osiraq
kjamofninn sem staðsettur var í Tu-
waitha suður af Bagdad. írakar
höfðu haldið þvi ffam að ofhinn, sem
Frakkar útveguðu þeim, væri ekki
ætlaður til hemaðarlegra nota. En
Mossad, leyniþjónusta ísrael, taldi
að Saddam hefði náð í kjama úr
brenndu kjamorkueldsneyti og
hefði hug á að komast yfir meira. Ef
þetta hefði verið sett ásamt geisla-
virkum úrgangi í kjamaofhinn hefði
mátt vinna úr því plútóníum i kjam-
orkusprengju.
Eftir árásina, sem gerð var í kjölfar
atburðanna í Pakistan á áttunda ára-
tugnum, sem Mossad telur fyrir-
mynd áætlunar Iraka, hættu Irakar
við tilraunir til að búa til kjamorku-
vopn i venjulegum kjamaofnum.
Aðalástæðan var sú að þrátt fyrir að
tveir tilraunaofhar hefðu staðist
árásina og um það bil 30 pund af
bættu úrani, nægilegt í eina
sprengju, hefðu náðst úr úrgangs-
haugnum, var þetta ónýtanlegt fyrir
Saddam. Alþjóðaeftirlit með kjam-
orku (IAEA) sendir fúlltrúa sína
tvisvar á ári til rústanna af Osiraq
og hefúr eftirlit með hráefnismagni
og vinnslu.
David Kidd, talsmaður kjamorku-
eftirlitsins staðfestir að aðeins sé
hægt að hafa eftirlit með því magni
af kjamorku sem fellur undir samn-
ing um takmörkun kjamavopna
sem írakar hafa undirritað. Ef náma
Saddams í Chyia Gara er þegar far-
in að gefa af sér mikið magn af
„gulköku", úraníum- oxið málm-
grýti, og hann gæti nú þegar, eða
væri nærri því að geta, unnið það til
Saddam Hussein hefur allar
klær úti og er ótrúlega útsjón-
arsamur þegar hann reynir aö
ná sér í kjarnorkuvopn.
framleiðslu á vopnum, væri kjam-
orkueftirlitið magnlaust.
Irakar gætu líka keypt úraníum á
fijálsum markaði. Eftirlitið hefúr
ekki völd til að hindra sölu á gul-
köku, þótt slíkt bærist óhjákvæmi-
lega leyniþjónustumönnum til
eyma. írakar em einnig taldir hafa
reynt að ná sér í hráefhi til kjam-
orkuvopnagerðar á vafasamari hátt:
1984 vom nokkrir Italir kærðir fyr-
ir að ráðgera að selja Saddam 74
pund af plútóníum.
Til að gera vopnfært úraníum úr
gulköku þarf sérstakar skilvindur,
til að skilja að óvirkt úranium 238
frá geislavirku úraníumi 235. I
málmgrýtinu er U-235 u.þ.b. 2%;
styrk þess þarf að auka upp i yfir
90% til þess að búa til sprengju.
Bandarísk yfirvöld hafa komið i
veg fyrir fleiri en eina tilraun til að
flytja þessa skilvindutækni til írak.
Þegar það uppgötvaðist í septem-
ber sl. að útibú ítalska bankans
Banca del Lavoro í Atlanta í Georg-
íu hefði í leyfisleysi lánað írökum 3
milljarða dala, varpaði það Ijósi á
aðra grein öflunaraðferða íraka.
Þegar þetta komst upp höfðu írakar,
að sögn Ítalíustjómar, þegar eytt
um þriðjungi Qárins í hátæknibún-
að og tölvustýrðan vélbúnað.
Einn af viðtakendum fjárins var
Matrix Churchill, verkfræðistofa í
Coventry, sem írakskir útsendarar
keyptu fyrir tveimur ámm. Fénu
var varið til kaupa, fúllkomlega
löglegra, á mjög nákvæmum renni-
bekkjum. Verkffæðistofan hefúr
einnig menntað írakska verkfræð-
inga.
Svör íraka í þessum efnum hafa
alltaf verið á einn veg: að þeir hlut-
ir, sem um hefúr verið að ræða, hafi
verið keyptir i friðsamlegum til-
gangi. Saddam var með sömu svör
á reiðum höndum í mars sl. þegar
Bretar og Bandaríkjamenn náðu að
stöðva útfiuning skotbúnaðar fyrir
kjamorkuvopn á Heathrow flug-
velli og einnig mánuði síðar þegar
tollverðir stöðvuðu útflutning á rör-
um, sem vom hlutar í mjög aflmikl-
ar byssur, frá Sheffield til Irak.
Vandamálið nú er að Saddam hef-
ur snúið sér að frumstigi ferlisins
og reynir ekki aðeins að kaupa
sprengjuhluta heldur vélar til að
búa til vélar til að búa til sprengjur
og eldflaugar. Breska stjómin telur
að a.m.k. 20 bresk fyrirtæki hafi
selt Irökum slíkan tvínota búnað á
lagalegum útflutningspappímm.
Eins og Beaver sagði: „Atvikið á
Heathrow flugvelli var ekkert gabb.
Það er stutt í það að Saddam þurfi á
slíkum búnaði að halda.“