Tíminn - 11.09.1990, Page 6

Tíminn - 11.09.1990, Page 6
6 Tíminn Þriðjudagur 11. september 1990 SsSSsSgSæSraægæðlSs^ $ aHtaf verift tðfundmn síBum tfl iíxiX'XWXw: : andslætt. / \aruan um aö setja skjaldanncrld kennl lýð\ eldisins. Þaft þarf Uka að frk 1874. landsias Hraman.á svalit* þess. Þessi friða exnkennl JCrlstjáns koitungs ■ ■ : . « oftgfepur, Upp reis rinn sjálfstaeft* friftnnamefiidar aft ekki megjl Sýna má kftngsmerkínn & Aljíing- ismaður og kvartafti yfir þvi aö ekki hrejfa viö vtra búnafti hússins. ishúsinu þá virðingu, aft flytja það þeím sökum fráleitt aft skjaldar- stjómar nú í aigleymi bárujárns- um sjö alda yfirrað, sem við höfiim ihu. Svokölluð húsfriðunarnefnd má ekki rifa einn tSasta htinda- sér aft geynta einhv^ja þá á bjóð- hóf þá npp ranst sína og í krafti kofa í borgittui. Og maftur spyr miujasafui, setn halda að búsfriftun nefndarstarfa sinna barftneitafti aft bara: Hvers eiga úíikamramir aö sé teftri iýftvddinu og rinkennnm skjaldamierki íslaods fengi aö gjaída? Ekki sést Jengur tangur eða þess. Misskilningur var þjá forset- prýöa húslö. Eru þetta kunnugleg tetur af þeim og voru þeír þó hin nm AlþingSs aö láía ekki sfrax » viðbrðgft frá síðarf árum vift öllu mest u þarfeþlng og snmir úr bám- upphafi setja skjalriarmerkið upp í og reisn þeirra, sem hafa kosift aft .». , . . . . veifiskatar mikilr ogekkiilklegir ÖI hafa Alþingi yfir sér sem æðstu J01111111 I St30 KöRQS stórræða, sem sítja í forsvari AI- stofnun. Húsið úr hlaðna grjótínn Tven* þingmenn, þtír Stefán Gnð- þingis og láta einhverja bámjárns- er svo rosalega friðað, að eitt af ein- mundsson og Guðni Ágósfsson, nefnd uti í bæ kúga sig tíl að bætta kennuro iýftvekfisins má ekki nærri ha£a réttilega kveöið npp úr með, við uppsetningn á skjaldarmerk- þvi koma. Hvernig aetii þetta hús- að afskipíi húsfriðunamefndar af inu. Úrþvísem komiðer æftu þing- frióunarfólk hugsi? Æfla mætfi að þmu máli sé óhæfa. Veifi lög roenn áð herða sig upp og reka frá fóðurland þe$s vteri Hmbúktú efta nefndlnnl heimiid fði aö rassakast- sjónura okkar kooungstáknið á Ak annar áiika staður á mörknm eyöi- ast ót af staðsetningu skjaidar- þingishúsinu. Skjaldarmerki fs- rocrkur, merkis Islands og setjt hún sig yfir landserþaötáknsemviðvijjumsjá Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin (Reykjavlk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar Indriði G. Þorsteinsson ábm. - Ingvar Gfslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýslngastjóri: Steingrfmur Gfslason SkrifstohjnLyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýslngasími: 680001. Kvöldsfmar Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1000,-, verð I lausasölu kr. 90,- og kr. 110,- um helgar. Gmnnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Leiötogafundurinn Lokið er stuttum viðræðufundi George Bush Bandaríkjaforseta og Mikaels Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna. Fundurinn var boðaður með litlum fyrirvara og fór fram í Helsinki sl. sunnudag. Umræðuefni leiðtoga risaveldanna var ffamar öðru ástandið við Persaflóa. Ekki er vafamál að tímabært var að þeir hittust á formlegum fundi miðað við horfur í heimsmálum, ekki síst hvað varðar atburði á Persaflóasvæðinu, því að bæði risaveldin eru með fíngurinn á þeim málum og hafa haft samstöðu um þær aðgerðir sem hingað til hefur verið beitt til þess að hindra frekari framrás Iraka. Sovétmenn hafa stutt viðskiptabann Örygg- isráðsins gagnvart írak og fordæmt innrás íraka í Kúvæt og krafist þess að þeir hverfi á brott með her sinn þaðan og ógildi innlimun landsins í ríki sitt. Segja má að Bandaríkin og Sovétríkin hafi þann- ig í meginatriðum sömu afstöðu til hemaðarstefnu Iraka og geri sömu kröfur um málalokin. Hins vegar sýnist ýmislegt bera á milli um sjónarmið risaveldanna að öðm leyti. Bandaríkjamenn hafa verið miklu virkari um bein hemaðarafskipti, ekki síst að því er tekur til liðsflutninga til Saudi-Arab- íu og djarflegri yfirlýsingar um hemaðarátök. Þessi viðhorfsmunur kom greinilega fram á fundi Bush og Gorbatsjovs um helgina. Þótt þeir legðu báðir íulla áherslu á í orðum og yfirlýsingum að sýna fram á vinsamleg samskipti sín og vilja til samstöðu um hvemig Persaflóadeilan yrði til lykta leidd, má sýnt vera að samstaða þeirra um þetta eíhi verður að byggjast á málamiðlun og gagn- kvæmri tillitssemi. Fréttaskýrandi Reuters bendir sérstaklega á að fram hafi komið ágreiningur um hversu réttmætt væri að búast til styijaldar gegn Irökum. Bush vildi halda öllu opnu, hvað varðaði beina styijöld, en Gorbatsjov andæfði því sjónar- miði af fullri festu og sagði að hemaðaraðgerðir gætu haft hörmulegar og ófyrirséðar afleiðingar. Hann kvaðst því ekki sjá skynsemi í því að leggja út í beinan hemað. Af þessum ástæðum má draga þá ályktun að um sinn verði ekki um að ræða opið stríð við Iraka, heldur verði haldið áíram að láta á reyna hvers viðskiptabannið er megnugt, en því íylgir hafn- bann, sem í sjálfu sér er hemaðaraðgerð. Um þró- un mála verður þó ekkert íullyrt þegar lengra er litið. Þótt viðskiptabann hafi áreiðanlega sín áhrif, er hinu ekki að leyna að ýmsir valdamenn í Banda- ríkjunum og Bretlandi telja það seinvirka leið til þess að knýja Iraka til uppgjafar. Þótt leiðtogar risaveldanna hafi borið saman bækur sínar og leit- ast við að sýna heiminum fram á gagnkvæman vilja sinn til samráða, er ekki þar með sagt að lausn Persaflóadeilunnar sé á næsta leiti. VÍTT OG BREITT Naprar staðreyndir Enn einn ganginn er þjóðarsáttin lent í bráðum voða, þvi talnafróðir menn sitja og reikna út að dýrtíðin er rokin fram úr rauða strikinu og er efnahagur lýðveldisins i veði að launin hækki ekki. Hinar nöpru staðreyndir rauða striks- ins eru að vísitala framfierslukostnað- ar hefúr hækkað um 0.3% sem þýðir að kaup aimúgans á lægstu launum, sem aðilar vinnumaikaðsins hafa samið um sín á milli, hækkar um 140 krónur á mánuði. Kaup þeirra sem at- vinnuvegimir meta upp á 100 þúsund króna mánaðarlaun hækkar um 300 krónur. Það gefur auga leið að þetta setur allt efhahagskeríið úr skorðum og verður að vinda bráðan bug að þvi að koma í veg fýrir að mánaðarlaun alls þorra ís- lendinga hækki ekki um 140-300 krónur á mánuði, ef ekki á illa að fara. Þeir sem skammta Nú munu fjölmiðlar leita til forstjóra Þjóðhagsstofnunar, sem hefur 493 þúsund krónur f mánaðarlaun, og hann mun sýna fiam á með skýrum rökum og ffamreikningi að þjóðarbú hans stefni í glötun ef svona hrikaleg- ar launahækkanir verða að veruleika. Seðlabakastjórinn okkar (751 þús- und krónur á mánuði) mun eins og venjulega vara mjög við svona launakollsteypum og benda á hina gömlu og farsælu leið stöðugleik- ans. Sem er sú að gamla góða kaup- ið sé láglaunaliðinu alltaf íyrir bestu. Framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins (496 þúsund krónur á mánuði) og forseti ASÍ (294 þúsund krónur á mánuði) líta kauphækkanim- ar mjög alvarlegum augum og heimta að ríkisvaldið geri eitthvað í þeim al- varlegu málum, að almúgakaup á að hækka um 140-300 krónur á mánuði. Þeim voða verður að afstýra til að vama því að etnahagsmál þjóðarinnar sporðreisist, sem hlýtur að verða ef fjöldi manns á að hækka í launum um allt að 300 krónur á mánuði. Slíka innspýtingu þolir efhahagskerfið að sjálfsögðu ekki. Lygalaupar Mánaðarlaun þeirra embættis- og áhrifamanna sem hér fylgja eru gefin upp í nýútkomnu tölublaði Fijálsrar verslunar, en þar era mánaðartekjur 276 einstaklinga gefhar upp eftír heimildum úr skattskrám. Þar stendur svart á hvítu að fjöldi manns hrifsar til sín launatekjur sem ekki era í neinu samræmi við það sem þorra fólks er skammtað fyrir vinnu sína. Einkum er athyglisvert hve ein- staka opinberum starfsmönnum og þeim sem taka laun á einn eða annan hátt úr ríkiskerfinu heíhr tekist að skammta sjálfum sér stóra og feita bita úr kökunni sem lygalaupar halda ffarn að sé til skiptanna. í ritstjómaigrein segir að falskur tónn sé í tekjukerfinu og að furðulegt sé hve háum tekjum einstaka hópum tekst að ná til sín og hitt sé ekki síður undrunarefni hve aðrir era illa launað- ir. Maigir þessara gráðugu launþega, sem sýnast hafa sjálfdæmi um launa- kjör sín, era þeir sem oftast ganga ffam íýrir skjöldu til að sannfæra lýð- inn um nauðsyn þess að hætta öllu sítfi um kaupið sitt, enda sé það laun- þegunum í láglaunafélögunum íýrir bestu að kaupið sé lágt og tíkarlegt, því að þá verði þvi ekki eytt í neina vitleysu. Skuldugir launþegar á lágu kaupi era forsenda farsældarrikis þeirra sem skammta sjálfhm sér og sínum líkum kaup og Hfskjör sem ekki era i sam- ræmi við neinn annan veruleika í fá- mennu en ofboðslega ríku þjóðfélagi. Braskarar í áhætturekstri, okrarar og álagningaraðall og þeir sem ryksjúga til sín rentuna raka til sín fjármunum og þeim gróða sem til verður i þjóðfé- laginu. Skrýtnara er að maigir þeirra sem trúað er fyrir embættum og störfum sem eiga að heita að vera í þágu sam- félagsins virðast halda að hlutverk stotnana þjóðfélagsins sé að mala fé i þeirra eigin privatbuddur. Þetta lið heíur ekkert með þjóðarsátt að gera og ætti því að sjá sóma sinn í að láta hana í friði og fara loks að leita að hinum eiginlegu orsökum verð- bólgu, þótt seint sé. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.