Tíminn - 11.09.1990, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
X
RÍKISSKIP
NTUTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvagolu,
S 28822
AKTU EKKi UT
í ÓVISSUNA.
AKTU Á
Ingvar
Helgason hf.
Sævartiöföa 2
Sími 91-674000
71 HOGG-
DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
varahlutir
Hamarsböfða I - s. 67-6744
J
Tíniinn
ÞRIÐJUDAGUR11. SEPTEMBER1990
Einar Oddur og Guðmundur J. þakka þjóðinni árangurinn í baráttu gegn verðhækkunum:
Verðbólgan niður í 4%
Stöðugu verðlagi (0% hækkun verðlags milli ágúst og september)
er fagnað jafnt í herbúðum launþega og atvinnurekenda. Guð-
mundur J. Guðmundsson og Eina/Öddur Kristjánsson eru sam-
mála um að árangur í baráttunni við verðbólguna sé fyrst og fremst
þjóðinni að þakka. Á hinn bóginn eru þeir ekki sammála um það
hvort 0,27% vísitöluhækkun umfram rautt strik gefi tilefni til kaup-
hækkunar. „Þetta eru út af fyrir sig mikil tíðindi, enda af mörgum
spáð að það væri ekki mögulegt að halda sig innan þessara rauðu
stríka, hvorki í júní eða september," sagði Guðmundur J. varðandi
þann sjaldgæfa atburð að vísitalan hækkaði ekkert íseptember.
Guðmundur telur látlausan áróður
bæði verkalýðsfélaganna og raunar
atvinnurekenda líka eiga stóran þátt í
því að halda verðlagi i skefjum. „Ég
er ekki f minnsta vafa um að verð-
lagsskrifstofa verkalýðsfélaganna
hefur haft veruleg áhrif í þessu eftii,“
sagði Guðmundur sem jafhframt
skorar á launþega að vera vel á verði
gagnvart verðhækkunum, því um
leið og þeir hætti vöku sinni þá ijúki
verðlag upp á ný.
„Við sjáum nú að það er hægt að
halda verðlagi i skefjum. Mér er lfka
sagt það af kaupmönnum og at-
vinnurekendum að fólk hafi aldrei
spurt jafn mikið um verð og núna.
Og eins að fólk hætti við að kaupa
hafi verð hækkað. Sé fólk harðara f
þessu efhi og þátttakan almennari þá
trúi ég að hægt væri að ná fram
lækkun á vísitölunni.V sagði Guð-
mundur.
Þau 0,3% sem vísitalan hefúr farið
ffam yfir rauða strikið sagði hann að
launþegar verði að fá bætt, enda
hættu rauðu strikin annars að vera
ógnandi. Hvemig það verður gert
eigi aðilar vinnumarkaðarins aftur á
móti eftir að ræða um.
„Við fögnum því mjög hvað þetta
stendur vel og teljum þetta ákveðinn
sigur. Þessi 0,27% skakki á sjö mán-
uðum er innan skekkjumarka —
þetta er engin skekkja,“ sagði Einar
Oddur Kristjánsson. „Þessi árangur
sýnir, eins og suma hafði raunar
gmnað, að við séum í alvöru að ná
árangri.“ Lögmálin séu þau sömu hér
og í öðrum löndum, þannig að við
getum vitanlega haldið stöðugu
verðlagi, þótt ýmsir hafi ekki viljað
trúa því. Hveiju þakkar Einar Oddur
árangurinn?
„Þetta er fyrst og ffemst þjóðinni að
þakka. Hún sjálf trúir því að það sé
hægt að lifa án þess að eyða um eftii
ffam. Það er ekkert annað sem gerist.
Enda er orsökin fyrir þessari óstjóm
islenskra efhahagsmála á undanföm-
um áratugum engin önnur en kæm-
leysi. Menn geta þess,vegna alveg
/
sleppt þvf að lesa þær mörgu og
þykku bækur sem hafa verið skrifað-
ar um verðbólgu, þvi kæmleysið er
ástæða þessarar óstjórnar."
En er Einar Oddur sammála Guð-
mundi J. um hugsanlegar kauphækk-
anir? „Eg skal ekki segja um hver af-
staða verkalýðsfélaganna verður f
því efni. Við skulum minnast þess að
launanefndin á ekki að afgreiða
launahækkanir sjálfkrafa og ég held
að menn ættu að hugsa sig vel um.
Við stöndum sannarlega gagnvart
mikilli óvissu þar sem er hinn vænt-
anlegi „flóabardagi“. Hinar miklu
olíuverðshækkanir vom ekki inni í
okkar áætlun. Þannig að ég held að
það borgi sig að gaumgæfa ástandið
mjög vel þessa dagana,“ sagði Einar
Oddur. - HEI
Framfærsluvísitalan:
Engin hækkun frá ágúst
Vísitala framfærslukostnaðar
reyndist 146,8 stig í september og
hefur því ekkert hækkað ffá í ág-
úst Að vísitalan standi í stað milli
mánaða er afar sjaldgæfl Nokkur
hækkun varð á einstaka vöru og
þjónustu, en á móti komu verð-
lækkanir á öðrum liðum vörum og
þjónustu.
„Rauða strikið“ í kjarasamningunum
gerði ráð fyrir að septembervísitalan
færi ekki yfir 146,4 stig. Hækkunin er
því tæplega 0,3% umfram þau mörk.
Síðustu þijá mánuði hefúr vísitalan
aðeins hækkað um tæplega 1% sem
umreiknað til heils árs svarar til 3,9%
verðbólgu. Verðbólga sfðustu 6 mán-
uði mælist 5,8%.
Verði kaup hækkað sem nemur
hækkun vísitölunnar umfram rauða
strikið mundu t.d. 50.000 kr. laun
hækka í kringum 140 kr. á mánuði og
100.000 kr. laun hækka um 280 kr. á
mánuði.
Að framfærsluvísitalan hafi ekki
hækkað milli mánaða hefúr ekki gerst
síðustu fjögur og hálft ár, þ.e. síðan
stór lækkun á verði nýrra bíla lækkaði
visitöluna í mars 1986. Margumrædd
niðurfelling virðisaukaskatts af bók-
um olli 0,2% lækkun vísitölunnar. Um
helmingur þeirrar lækkunar var hms
vegar étin upp af 9% hækkun skóla-
gjalda.
Að vísitalan hækkaði ekkert milli
mánaða má ekki hvað síst þakka verð-
lækkun á mörgum tegundum matvæla
(0,7% að meðaltali). Mest munaði þar
um mikla verðlækkun á kartöflum
(12%), ávöxtum og grænmeti (5%),
þannig að segja má að gróðursælt
sumar hafi stutt þj óðarsáttina. - HEI
Héöirtn Steingrímsson, hinn 15 ára gamll íslandsmeistarí í skák. Tímamynd Svenir Aðaisteinsson.
HÉÐINN VANN MEÐ
MIKLUM YFIRBURÐUM
Frá Sverri Aöalsteinssynl, fréttarrtara
Tfmans á Höfn
Skákþingi íslands lauk á Hótel Höfn
í gær. Hinn bráðefnilegi Héðinn Stein-
grímsson stóð uppi sem skákmeistari
Islands 1990 með níu vinninga af ell-
efú mögulegum. í elleftu umferð atti
hann kappi við Margeir Pétursson
stórmeistara og vann. í öðru sæti á
mótinu varð Björgvin Jónsson með
sjö og hálfan vinning, en báðir þessir
imgu menn náðu áfanga að alþjóðleg-
um titlum.
Héðinn Steingrimsson, sem er aðeins
15 ára gamall, eryngstur íslendinga til
að verða Islandsmeistari í skák, en Jón
L. Ámason var 16 ára þegar hann varð
íslandsmeistari 1977. Jón hefúrþrisv-
ar orðið íslandsmeistari. í hófi á Hótel
Höfh að mótinu loknu afhenti Jón
Rögnvaldsson Héðni farandbikarinn.
Þá tilkynnti Jón Ólympíusveit íslands
sem keppa mun f Júgóslavíu f haust,
en hana skipa: Helgi Ólafsson, Mar-
geir Pétursson, Jón L. Ámason, Jó-
hann Hjartarson, Héðinn Steingrims-
son og Björgvin Jónsson. Þá tilkynnti
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim-
skipafélags íslands, að stjóm Eim-
skips hefði ákveðið að styrkja Ólymp-
íusveitina með 1,5 milljón króna
framlagi, en það er sú fjárhæð sem tal-
ið er að kosti að senda sveitina til
Júgóslaviu.
í hófinu á Hótel Höfn tóku ýmsir til
máls, þar á meðal Maigeir Pétursson
sem sagðist hafa teflt á möigum stöð-
um, en hvergi hafi viðuigjömingur ver-
ið eins góður og hér. Taldi hann að
skákmenn myndu örugglega koma
hingað aftur. Jón L. Ámason sagðist
síðast hafa verið á skákmóti í Moskvu
og gengið þar mjög vel, en hér frekar
illa, svo að sennilega vasri betra að tefla
svangur. En hann tók undir með Maig-
eiri að matur og allt hafi verið til fyrir-
myndar. Og áfram sló Jón á létta strengi
og vildi segja að skýringin á velgengni
Héðins væri líklega sú að faðir Héðins
vasri prófessor i efhafræði og líklega
hefði hann beitt efhavopnum.
Blaðburðar-
laiim la
oarn nario
Sigurður Örn Hjörleifsson,
fnmmtán ára gamall blaðburðar-
drengur Túnans, var sleginn niö-
ur og stolið af honum u.þ.b. tólf
þúsund krónuni, þegar hann var
að koma frá því að rukka um
klukkan tíu að kvöldi sunnudags.
„Ég hef borið út blöð meira og
minna frá því ég var smástrákur,
en það hefur ekkert þessu Ukt
komið fyrir áður við blaðburðinn.
Núna ber ég út í Högunum og var
að koma frá því að rukka,“ sagði
Sigurður í samtali við Tímann.
Hann hafði því sem næst lokið
við að rukka og var á heimlcið
þegar ráðist var á hann. „Ég kom
við í sjoppu á Hjarðarhaganum
og ákvað síðan að stytta mér leið.
Það er göngustfgur á bak við
verslanirnar, sem liggur út á
Kvisthagann og þaðan er annar
stigur sem liggur út á Hofsvalla-
götu en þangað ætlaði ég.“
Sigurður komst þó ekki svo langt
þvi hann var rétt kominn bak við
húsið þegar hann var kýldur nið-
ur og veskið rifrö úr höndunum á
honum. „Þetta voru tveir strákar
en ég sá þá ekki fyrr en ég reis
upp aftur og sá aftan á þá á
harðahlaupum í burtu. Þetta
voru iangir og mjóir náungar og
ég gætí trúað að þeir væru svona
einu til tveimur árum eldri en ég.
Ég varð strax mjðg rauður og
bólginn i kring um augun f gær,
en þegar þetta hafði gerst fór ég
inn i isbúðina og hringdi á lög-
rcgluna. Konan sem var að vinna
Siguröur Öm Hjörleffsson.
Timœnynd: pjetur
skóf innan úr frystfnum ís sem ég
lagði við andlitið á meðan ég beið
eftir lögreglunni, af þvi að mig var
farið að verkja í andlitió. Svo gaf
ég lögregiunni skýrslu um það
sem hafði gerst og vona bara að
þeir nái þessum strákum.“
Sigurður sem stundar nám í 10.
bekk Hagaskóla sagðist aðspurð-
ur telja að hann myndi halda
áfram að bera út þrátt fyrir þessa
óskemratilegu lifsreynslu, þar
sem það væri lítið nm aðrar leiðir
fyrir finimtán ára krakka tíl að
vinna sér inn vasapeninga. Hann
sagðí þó að eftirieiðis mundi hann
vandlega forðast að stytta sér leið
eftír að skyggja tæki og með þetta
mikla peninga meðferðis. jkb