Tíminn - 22.09.1990, Síða 1
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990 -183. TBL. 74. ÁRG.-VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110,
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, hefur
áhyggjur af þjóðarsátt þegar
Alþingi kemur saman innan
skamms. Þar sem kosningar
eru í nánd óttast hann að þing-
menn fari að stunda „yfirboð“
tii að ganga í augu kjósenda
og afleiðingar slíks gætu orðið
þær að verðbólguófreskjan
rankaði við sér á ný. Guð-
mundur vonar að prestur sá
sem annast mun guðsþjón-
ustu við setningu þingsins biðji
ekki aðeins fyrir Alþingi, þjóð,
fósturjörð, forseta og ríkis-
stjóm, heldur einnig fýrír
launamönnum vegna þeirrar
ógnar sem nú steðjar að þeim
frá alþingismönnum. Þá gagn-
rýnir Guðmundur bankana
harðlega fýrir að hafa ekki
lækkað raunvexti. Nú liggi á að
kýla bankana niður með vext-
ina. Þeim megi ekki líðast að
kynda undir verðbólgu öllu
lengur. • Helgarviðtalið
Guömundur J. Guðmundsson kveðst óttast að alþingismenn stefni árangri þjóðarsáttar í voða. Tímamynd: Ámi Bjama
: ::
Guömundur jaki hræddastur viö einn hóp manna út af þjóöarsátt
atgangi
á kosningaari