Tíminn - 26.09.1990, Side 13
Miðvikudagur 26. september 1990
Tíminn 13
rkvrxiAðg ■ Mnr i
Unnur Siv Sigurbjörg
Virðum líf-Vemdum jörð
Ráðstefna um umhverfismál verður haldin í Vestmannaeyjum
laugardaginn 29. september nk.
Dagskrá:
Kl.
10:20 Ráðstefnan sett
Unnur Stefánsdóttir, formaður LFK.
10:30 Norrænt umhverfisár
Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi í framkvæmdastj. Norræna fé-
lagsins.
11:00 Umhverfið er dýrmætt
Sigurbjörg Sæmundsdóttir hagverkfræðingur
11:40 Umhverfismál í Vestmannaeyjum
Birna Þórhallsdóttir, áður í heilbrigðis- og umhverfisnefnd
Vestmannaeyja.
Eftir hverja framsögu er hægt aö bera fram fyrirspurnir
12:00 Matarhlé
13:20 Hópvinna
15:05 Miðdegishlé
15:20 Niðurstöður hópa kynntar/umræður
16:25 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjórar Oddný Garðarsdóttir og Svanhildur Guð-
laugsdóttir
17:00 Skoðunarferð um Vestmannaeyjar
19:45 Kvöldverður og kvöldvaka í umsjón heimakvenna.
Kvöldið og nóttin frjáls.
Ráðstefnan er öllum opin. Þeir sem þurfa gistingu og flug, vin-
samlega hringi í Svanhildi í s. 98-12041 e.h. og Þórunni í s. 91-
674580 fyrir 24. september nk.
Landssamband framsóknarkvenna
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547.
Félagar eru hvattir til að líta inn.
K.S.F.S.
Skrifstofa
Framsóknarflokksins
hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu).
Sími 91-674580.
IMÍ
Opið virka daga kl. 8.00-16.00.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn.
Keflavík — Opin skrífstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla
virka daga milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg Ingimundardóttir,
verður á staðnum. Sími 92-11070.
Framsóknarféiögin
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmasamband framsóknarmanna boðar til formannafundar
þriðjudaginn 2. október kl. 20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi.
Stjórn K.F.R.
Keflavík
Aðalfundur Framsóknarfélags Keflavíkur verðurhaldinn sunnudaginn
30. september kl. 14.00 í Félagsheimilinu.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Borgnesingar, nærsveitir
Spiluð verður félagsvist í Félagsbæ föstudaginn 28. sept. kl. 20.30.
Mætum vel og stundvíslega.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Borgarness.
Nef fólks er af ýmsum gerður og hefur verið reynt að fégra þau og laga í 2500 ár.
Fegrunaraðgerðir eru
2500 ára gamlar
Fegrunaraðgerðir af ýmsu tagi
eru nú mjög vinsælar. Hjá þeim
ríku og frægu sem og meðal sauð-
svarts almúgans, þar sem margir
komast nær á vonarvöl við að fá
bætt úr mistökum náttúrunnar.
En fegrunaraðgerðir eru ekki nýtt
fyrirbæri. Til eru heimildir sem
sanna að þær hafi verið fram-
kvæmdar á Indlandi um 600 fýrir
Krists burð. Heimildir þessar um
forna læknisfræði Indverja nefnast
„Susruta" og er þar greint frá því
hvernig laga má eyrnasnepla og
nef með því að færa húð af kinnum
yfir á skaddaða svæðið.
Fyrir fjögur hundruð árum skrif-
aði ítalinn Gaspare Tagliacozzi bók
um aðgerðir á nefi og varð sú met-
sölubók í Evrópu á sínum tíma.
Hann var álitinn einn af þremur
fremstu læknum Evrópu á þeim
tíma og varð fýrstur manna til að
lýsa í smáatriðum og framkvæma
iýtaaðgerðir, á nefi, vörum og eyr-
um.
Þessa lýsingu á aðgerð á nefi, sem
hann framkvæmdi 1586, er að
finna í bókinni: „Hold er tekið af
upphandlegg. Það er grætt á nefið
og síðan fest aftur við handlegginn
sem bundinn er fastur við höfuðið
í tvær til þrjár vikur til að hindra
hreyfmgar. Þegar húðin hefur náð
að gróa eru umbúðirnar fjarlægð-
ar og skilið á milli.“
En þetta voru erfiðir tímar fyrir
brautryðjendur og Tágliacozzi var
ákærður fyrir galdrastarfsemi.
Ári eftir andlát sitt var hann graf-
inn upp og settur í ómerktan graf-
reit fyrir „heiðingja".
Er Eric Roberts á
hraðri leið til glötunar?
Julia Roberts hefur þungar
áhyggjur af bróður sínum sem
vonlegt er.
Eríc Roberts þótti mjög efnilegur leikarí en hafði ekki sálarþrek til að
þola velgengnina.
Fyrir fimm árum var Eric Roberts
talinn einn af efnilegustu ungu
leikurum í Hollywood. Eric, sem
nú er 34 ára gamall, lék í sinni
fyrstu kvikmynd 1978, „Konungi
sígaunanna". Síðan fékk hann
mjög góða dóma fyrir leik sinn í
kvikmyndunum „Raggedy Man“ og
„The Pope of Greenwich Village“.
Árið 1985 var hann útnefndur til
óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
„Runaway Train“.
En það fór fyrir Eric eins og mörg-
um öðrum, hann þoldi ekki vel-
gengnina. Hann býr nú í New York
og eyðir dögunum í stanslausri
fíkniefna- og áfengisvímu. Hann er
enn góður leikari og segja kunnug-
ir að það sé ótrúlegt hvað hann geti
strammað sig af íyrir framan
myndavélarnar. En um leið og tök-
um lýkur fer allt í sama horfið.
Eric er bróðir leikkonunnar Juliu
Roberts sem leikur aðalhlutverkið í
„Stórkostleg stúlka". Julia hefur að
vonum miklar áhyggjur af bróður
sínum og hefur gert hvað hún get-
ur að koma honum til hjálpar. En
án árangurs, því bróðir hennar vill
alls ekki viðurkenna að um nein
vandamál sé að ræða hjá sér og af-
neitar allri aðstoð.
Julia hefur reynt að fá hann til að
flytja aftur til Los Angeles til þess
að fjölskyldan geti haft auga með
honum og aðstoðað hann ef þörf
krefur. En Eric er harður á því að fá
að vera í friði í sinni vímu í New
York.