Tíminn - 08.11.1990, Síða 8
8 Tíminn Fimmtudagur 8. nóvember 1990
Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda:
Hugsanleg áhrif GATT-samn-
inga um landbúnaðarmál
á íslenskan landbúnað
Um fátt hefur veríð meira taiað að undanfömu á vettvangi land-
búnaðarmála en yfírstandandi GATT-samningar um landbúnaðar-
mál og hugsanleg áhríf slíks samkomulags á starfsskilyrði
landbúnaðar. í yfírstandandi samningaiotu innan GATT eru iand-
búnaðarmál einn þeirra 15 málafíokka sem fjallað er um. Þetta er
í fyrsta sinn sem reynt er að ná samkomulagi um aukið frelsi í við-
skiptum með landbúnaðarvörur innan GATT.
Það kann að þykja undarlegt að á
rúmiega 40 ára ferli GATT skuli
þessi mikilvægi málaflokkur ekki
hafa verið tekinn til umfjöllunar
fyrr. Skýringin er þó að líkindum sú
að landbúnaðarmál eru það flókin
og nátengd öryggi og viðkvæmustu
hagsmunum hverrar þjóðar að
menn hafa ekki treyst sér til þess að
gera tilraun til samræmingar á
þeim vettvangi fyrr en nú.
Mismunandi
sjónarmið
í grófum dráttum má segja að í
þessum viðræðum takist á tvenn
sjónarmið. Annars vegar er það
sjónarmið þeirra landa sem stunda
útflutning búvara í miklum mæli,
þ.e. Bandaríkjanna, Argentínu,
Ástralíu og Nýja-Sjálands. Þessi
lönd vilja afnema sem mest allar
hömlur á milliríkjaviðskipum með
búvörur. Hins vegar eru svo sjónar-
mið Evrópubandalagsins, Norður-
landa, Japans o.fl. ríkja sem vilja
sjálf fullnægja eigin þörfum fyrir
búvörur sem mest og styrkja land-
búnað sinn á þann hátt sem nauð-
synlegt er talið í því skyni. Þessar
þjóðir leggja áherslu á að hlutverk
landbúnaðarins sé ekki eingöngu
matvælaframleiðsla, heldur þurfi
einnig að taka tillit til byggðasjón-
armiða, umhverfismála og öryggis-
sjónarmiða hvað varðar fæðuöflun.
Ekki er tóm til þess hér að rekja
gang þessara viðræðna sem nú hafa
staðið yfir í rúm 4 ár, en segja má
að þær hafi smám saman leitað í
þann farveg að reynt yrði að ná
samkomulagi um að draga sem
mest úr þeim stuðning við land-
búnað sem hefur markaðstruflandi
áhrif. Þar er fyrst og fremst um að
ræða um beinar niðurgreiðslur á
vöruverði og útflutningsbætur.
Á fundi GATT-viðræðunefndar-
innar í júlí var málamiðlunartillaga
formanns landbúnaðarnefndar,
Hollendingsins de Zeeuw, hafnað.
Hins vegar varð samkomulag um
að hvert land gæfi fyrir 1. október
samræmt yfirlit um stuðning við
landbúnað og fyrir 15. október
legðu löndin fram hugmyndir sínar
eða tilboð um hvernig dregið yrði
úr slíkum stuðningi á tilteknu ára-
bili.
Það er hins vegar ekki einfalt mál
að henda reiður á því hvernig
stuðningi við landbúnað í einstök-
um löndum er háttað. Öll hin iðn-
væddu ríki heimsins styðja land-
búnað sinn.
Hin hefðbundna og um leið mik-
il- vægasta ástæða er þörfin fyrir að
tryggja nægilegt og öruggt fram-
boð matvæla.
Vegna árferðissveiflna væri stöð-
pgt og öruggt vöruframboð í mörg-
um greinum óhugsandi án skipu-
lags og stuðnings hins opinbera.
Þá styðja margar þjóðir landbún-
að sinn beinlínis sem hagvarnir til
þess að vera ekki öðrum þjóðum
háðar um nauðsynlegustu
matvæli.
Loks vil ég nefna sem ástæðu við-
leitni manna og til þess að stuðla að
tekjujöfnun í þjóðfélaginu og sem
jafnastri tekjulegri og félagslegri
stöðu bænda borið saman við aðra
þjóðfélagshópa.
Neikvæðar
aukaverkanir
Það verður hins vegar að viður-
kenna að þessi stuðningur hefur
ýmsar neikvæðar aukaverkanir í för
með sér, meðal annars þær að verð
búvara á heimsmarkaði eru í mörg-
um tilfellum langt undir fram-
leiðslukostnaði.
Þar er í mörgum tilfellum verið
að selja afgangsvörur á verði sem
ekki er í neinum tengslum við
fram- leiðslukostnað í viðkomandi
landi. f þessu sambandi er rétt að
hafa í huga að einungis 2-3% af
heildarbúvöruframleiðslu heimsins
eru seld í milliríkjaviðskiptum.
Þetta ástand er meginástæða
þess að nú er reynt að koma betra
skipulagi á þessi mál innan GATT.
I umræðum um GATT-samning-
ana hefur, að minnsta kosti hér á
landi, mest verið fjallað um land-
búnaðinn. Því fer hins vegar víðs
fjarri að landbúnaðarvörur séu eini
vöruflokkurinn sem þar er fjallað
um. Alls er yfirstandandi GATT-viö-
ræðum skipt f 15 málaflokka og eru
iðnaðarvörur þar fyrirferðarmestar.
Iðnaðarframleiðsla nýtur gífurlega
mikils stuðnings hins opinbera í
mörgum löndum, ekki síður en
landbúnaður, og hefur sá stuðning-
ur í mörgum tilfellum mjög mark-
aðstruflandi áhrif.
{skýrslu sem stjórn EB birti í júlí
sl. kemur fram að opinber stuðn-
ingur við iðnað í löndum banda-
lagsins nemur um 650 milljörðum
danskra króna á ári.
Við íslendingar þekkjum áhrif
slíkra aðgerða, t.d. á fataiðnað,
skipasmíðar og skipaviðgerðir, sem
nánast hafa lagt þá starfsemi í rúst
hér á landi á undanförnum árum.
Eins og áður segir styðja öll iðn-
ríkin landbúnað sinn í verulegum
mæli en í þróunarlöndunum er
þessi stuðningur mun minni. Það
er hins vegar mjög breytilegt frá
einu landi til annars í hvaða formi
stuðningur er veittur.
Algengt er að veittir séu styrkir í
ýmsu formi til endurskipulagning-
ar og framleiðniaukandi aðgerða.
Þar má nefna stuðning við fjárfest-
ingar og til rannsókna og leiðbein-
inga.
Meiri þýðingu, bæði fyrir afkomu
bænda og fyrir viðskipti með bú-
vöru, hafa í raun ýmsar stuðnings-
og verndaraðgerðir sem tengdar
eru framleiðslu einstakra vara.
Slíkar varnar- og stuðningsaðgerðir
geta verið með ýmsu móti en í
GATT-viðræðunum er þeim í megin
atriðum skipt í þrjá flokka, þ.e. 1.
stuðningur innanlands (intern
stötte) sem byggir á beinum stuðn-
ingi við tiltekna framleiðslu, 2. inn-
flutningsvernd í formi tolla og/eða
banns og 3. innflutningskvótar og
útflutningsbætur.
í þessu sambandi er einnig gerð-
ur greinarmunur á annars vegar
stuðningi sem fjármagnaður er
með sköttum hins opinbera og hins
vegar stuðningi sem neytendur
greiða í formi hærra vöruverðs.
Þessi fjölbreytileiki í stuðningi
veldur miklum vandræðum í GATT-
viðræðunum. í lyrsta lagi er mjög
erfitt að bera saman stuðning í ein-
stökum löndum og í öðru lagi er
ágreiningur um hvað af þessum að-
gerðum er mest markaðstruflandi.
Þessi atriði eru það sem mestum
ágreiningi valda milli hinna tveggja
stóru í GATT-viðræðunum, þ.e.
Bandaríkjanna og EB.
Til þess að skýra þetta eilítið nán-
ar má geta þess að Bandaríkjamenn
hafa í aðalatriðum valið þá leið að
styrkja sinn landbúnað með bein-
um greiðslum til kornbænda. Þessi
stuðningur nemur mismuni þess
viðmiðunarverðs sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið innanlands og þess
verðs sem fæst fyrir korn á heims-
markaði. Stuðningur er greiddur
jafnt á það korn sem nýtt er innan-
lands í Bandaríkjunum og það sem
flutt er út.
Aðrar búgreinar, svo sem mjólk-
ur- framleiðsla og kjötframleiðsla,
njóta góðs af þessu, þar sem þær
Haukur Halldórsson
formaður Stéttarsambands
bænda.
geta keypt fóðrið á heimsmarkaðs-
verði.
Þessar aðgerðir virka einnig
óbeint sem innflutningsvernd þar
sem verðlagi bandarískra búsafurða
er með þessu móti haldið niðri.
Þessar stuðningsaðgerðir túlka
Bandaríkjamenn hins vegar sem
innri stuðning en ekki útflutnings-
bætur og gera kröfu um að mega
halda honum áfram.
Ástæða þess að ég hef skýrt þessi
atriði hér, góðir fundarmenn, er sú
að þau eru undirstaða þess að menn
geti áttað sig á stöðu mála í GATT-
viðræðunum og um hvað þær í
raun og veru snúast.
Hve mikill er
stuðningurinn?
Ýmsar aðferðir eru notaðar til þess
að mæla stuðning við landbúnað í
hinum einstöku löndum. Á vegum
OECD hefur stuðningur við land-
búnað í löndum þess verið mældur
samkvæmt svokallaðri PSE aðferð,
Producer Subsidy Equivalent. Evr-
ópubandalagið hefur notað afbrigði
af PSE aðferðinni, þ.e. svonefndan
SMU-útreikning; Support Measure-
ment Unit. í GATT-viðræðunum
varð hins vegar samkomulag um að
nota svonefnda AMS aðferð ,Aggre-
gate Measurement of Support" sem
er eins konar samnefnari hinna að-
ferðanna. Með þessari reikniaðferð
er reynt að meta heildarstuðning
við landbúnaðinn.
Nú hafa verið reiknuð út AMS
gildi fyrir ísland og kemur í ljós að
sá stuðningur sem landbúnaður nú
nýtur er svipaður og hjá nágranna-
þjóðum okkar, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi, eins og við hjá Stéttar-
sambandinu höfum haldið fram.
Heildarstuðningur við íslenskan
landbúnað samkvæmt AMS út-
reikningi er 9,1 milljarður króna á
verðlagi ársins 1988. Þessi stuðn-
ingur er flokkaður niður eftir eðli
hans samkvæmt fyrirmælum frá
höfuðstöðvum GATT.
Þar vegur þyngst „reiknuð mark-
aðsvernd", tæpir 4,4 milljarðar
króna. í þeirri tölu er metinn til fjár
sá stuðningur sem í því felst að ekki
er leyft að flytja inn búvörur
tillandsins. Einnig mætti segja að
þessi tala sýni þann viðbótarkostn-
að sem því fylgir fyrir neytendur að
geta ekki keypt búvörur á heims-
markaðsverði. Ég legg áherslu á að
hér er um reiknistærð að ræða en
ekki framlag af hálfu hins opinbera.
Næst þyngst vega svo niður-
greiðslurnar, 3,1 milljarðar króna.
Þriðji liðurinn er framlag til lækk-
unar á kostnaði, þ.e. framlag til
ræktunar o.fl., 217 milljónir, og
loks það sem nefnt er „almenn
þjónusta" tæpar 1,7 milljarðar
króna. Þar í eru meðal annars fram-
lög til Framleiðnisjóðs landbúnað-
arins, framlag til Lífeyrissjóðs
bænda og til Sauðfjárveikivarna.
Þessi stuðningur er síðan flokk-
aður í annars vegar markaðstrufl-
andi aðgerðir og hins vegar „innri
stuðning" eða þjónustu. Undir
markaðstruflandi stuðning fellur
markaðsverndin og niðurgreiðsl-
urnar upp á samtals 7,2 milljarða
króna en undir almenna þjónustu
koma tæpir 2 milljarðar króna. Ég
vek athygli á því að framlög til svo-
kallaðrar almennrar þjónustu eða
„innri stuðningur" er mun lægri
hér á landi en t.d. í Noregi. Hjá okk-
ur er þessi hluti heildarstuðnings-
ins 20,7% en hjá Norðmönnum er
hann 43%. Ég vek einnig athygli á
því að í GATT-viðræðunum er ekki
gert ráð fyrir niðurskurði á þessum
þætti og ekki gert ráð fýrir að
athugasemdir verði gerðar við það
þótt hann verði aukinn.
Til viðbótar þeim stuðningi sem
AMS útreikningarnir gefa til kynna
koma svo útflutningsbæturnar sem
á árinu 1988 voru 920 milljónir
króna. í heild nemur því sá stuðn-
ingur sem landbúnaðurinn nýtur
rúmum 10 milljörðum króna m.v.
árið 1988. Þar er hinn reiknaði
markaðsstuðningur tæpir 4,4,
milljarðar króna.
í umræðum um stuðning við
Iandbúnaðinn hafa ýmsir gripið til
þeírrar einföldunar að hægt væri að
bæta hag neytenda í landinu sem
næmi þessari fjárhæð með því að
afnema allan stuðning við landbún-
aðinn. Jafnvel að beinlínis væri
hægt að senda hverri fjölskyldu
ávísun upp á 200 þúsund krónur.
Slíkur málflutningur er fjarri öll-
um raunveruleika þó að hann hafi
verið borinn á borð. Engu er líkara
en að þeir sem reka þann áróður
haldi að í svo flóknu máli séu öll
meðöl leyfileg þar sem almenning-
ur hafi ekki aðgang að upplýsing-
um sem geri honum kíeift að
mynda sér sjálfstæða skoðun.
Frá fúndi bændasamtakanna um GATT-viðræðumar. Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, í ræðustóli. Haukur
Halldórsson er lengst til hægri. Við hlið hans situr Jónas Jónsson, búnaðarmálastjórí. Timamynd:. Ámi Bjama.