Tíminn - 08.11.1990, Side 9

Tíminn - 08.11.1990, Side 9
Fimmtudagur 8. nóvember 1990 Tíminn 9 Kostir og gallar frelsisins Lítum nú nánar á einstaka liði málsins og þá fyrst á markaðs- verndina. Þegar þessi stærð er skoðuð, tæpir 4,4 milljarðar króna samkvæmt nýgerðum AMS út- reikningum, er mikilvægt að átta sig á því að hér er ekki um beinan fjárstuðning að ræða heldur er þetta reiknuð stærð. Þessir reikn- uðu fjármunir verða því aldrei sendir heim til neytenda í ávísun. Markaðsverndin er þannig fundin að tekinn er mismunur á heims- markaðsverði hverrar vörutegund- ar og niðurgreiddu heildsöluverði vörunnar hér innanlands. Með öðr- um orðum, metið er það fjárhags- lega óhagræði sem neytandinn hef- ur af því að geta ekki keypt vöruna á heimsmarkaðsverði. En hversu raunhæf er þessi við- miðun við heimsmarkaðsverð og hvaða líkur eru á að hún haldi gildi sínu til lengri tíma litið? Ef við tökum dæmi af mjólk og kjöti þá eru það Ástralir og Nýsjá- lendingar sem boðið hafa hvað lægst verð á þessum vörum. En á hverju byggist geta þessara þjóða til að geta boðið svo Iágt verð? Flestir munu benda á hagstæð náttúru- skilyrði, en fleira kemur til. Lágur framleiðslukostnaður bænda í þessum löndum byggist ekki síst á gífurlegum fjárstuðningi hins op- inbera á undanförnum áratugum. Bændur í þessum löndum hafa því getað afskrifað mikinn hluta af því fjármagni sem bundið er í fram- leiðslunni. Þeir búa enn að þessum mikla stuðningi. Það geta liðið 20 ár áður en þeir ná eðlilegum fram- leiðslukostnaði á ný þannig að framleiðslan beri eðlilegan þunga af fjárfestingum. Hvað með Japani? Hvers vegna eru þeir hæstir í útreikningum um stuðning við landbúnaðinn? Hvar eru þeir staddir í þróuninni? Og áfram má spyrja. Hvar stæði íslenskur landbúnaður ef verulegur hluti af fjárfestingum hans væru af- skrifaðar? Til þessara atriða þarf að taka tillit til í samanburðarfræðun- um? Hvað kostar að framleiða ekki? Fróðlegt er að velta því fyrir sér hvað það kostaði ef við hættum að mestu matvælaframleiðslu í land- inu og hver yrði ávinningur neyt- enda. Ef við lítum fyrst á ávinning neytenda þá er gert ráð fyrir að verð landbúnaðarvara á heimsmarkaði hækki um 30-40% í kjölfar GATT- samkomulags um lækkun útflutn- ingsbóta og annarra markaðs- truflandi stuðningsaðgerða. Því til viðbótar kæmi svo dreifingarkostn- aður varanna, því að tæpast er hægt að gera ráð fyrir að ódýrara sé að dreifa erlendum matvælum en ís- lenskum. í sumum tilfellum kæmi einnig til hluti vinnslukostnaðar og pökkunarkostnaður. Þá verður rýrnun meiri eftir því sem varan verður eldri og flutningaleið leng- ist. Hætt er við að ávinningurinn væri farinn að rýrna þegar matvæl- in yrðu komin á borð íslensks al- mennings. Þetta gæti verið hlutur neytand- ans. En hvað þýðir það fyrir samfé- lagið í heild ef við framleiðum ekki búvörur? Fyrir samfélagið þýddi þetta beint tap ríkis og sveitarfélaga vegna ýmissa opinberra gjalda svo sem aðstöðu- og fasteignagjalda, svo og opinberra gjalda bænda og þeirra sem vinna við úrvinnslu. Ekki er heldur sjálfgefið að fyrir hendi væru nægilega mörg verð- mætaskapandi atvinnutækifæri fyrir þá sem hefðu ekki lengur störf við landbúnaðinn. Hvað myndi það kosta okkur ef við framleiddum ekki landbúnaðar- vörur sjálf? Hvað kostar það Færey- inga og Grænlendinga að framleiða ekki sínar búvörur sjálfir? Er það einskær tilviljun að þau lönd sem hafa hliðstætt AMS-gildi og við, Japan, Sviss, Noregur, Svíþjóð og Finnland, eru meðal þeirra landa þar sem eru hæstar þjóðartekjur og ráðstöfunartekjur? Er það þrátt fyr- ir að þau styðja landbúnað sinn jafnmikið og raun ber vitni eða er það vegna þess að stuðningur við landbúnað er sameiginlegt ein- kenni þjóða sem búa við góðan hag og liður í að tryggja öryggi þeirra? Og hvernig er svo með talsmenn frelsisins í búvöruviðskiptum? Col- umbíu, Brasilíu, Thailand, Argent- ínu, Chile, Indonesiu, Malasiu, Fil- ippseyjar og Uruguay? Er það tilvilj- un að þessar þjóðir sem eru í hópi frelsis þjóðanna eiga það sameigin- legt að þar ríkir lítill kaupmáttur og almenn fátækt. Er það vegna lítils stuðnings við landbúnaðinn eða er það vegna hans? Góðir fundarmenn! Ég hef hér að framan leitast við að skýra ýmsar hliðar þess flókna máls sem hér er til umræðu. Enda þótt ég hafi í máli mínu dregið í efa rétt- mæti ýmissa atriði í þeim saman- burðarfræðum sem menn stunda þegar meta skal landbúnaðarkerfi einstakra þjóða vil ég taka fram að ég álít að það geti á margan hátt verið til bóta að fastari skipan kom- ist á alþjóðaviðskipti með búvörur. Til dæmis mundi heimsmarkaðs- verð sem nálgaðist meira fram- leiðslukostnað draga úr þeim vill- andi samanburði sem sífellt er ver- ið að gera við verð á búvörum hér innanlands. Á síðasta aðalfundi Stéttarsam- bands bænda var samþykkt ályktun þar sem tekið er undir nauðsyn þess að koma fastari skipan á við- skipti með búvörur á alþjóðamark- aði en lögð áhersla á að vegna hins fjölþætta hlutverks landbúnaðarins og mikilvægis hans fyrir sjálfstæði hverrar þjóðar hafi þjóðirnar frelsi til að ráða landbúnaðarstefnu sinni sjálfar. Hvað þýðir tilboð ríkisstjómarinnar? Samkvæmt tilboði ríkisstjórnarinn- ar í GATT-viðræðunum er gert ráð fyrir að draga úr hinni reiknuðu markaðsvernd og niðurgreiðslum um 15-25% fram til ársins 1996 og úr útflutningsbótum um allt að 65%. Almennt um útgjöld ríkisins til landbúnaðarmála vil ég segja að það hefur verið stefna stjórnvalda sl. 10 ár að úr þeim skuli dregið. Þessi stefna var mörkuð með breytingu á Framleiðsluráðslögunum árið 1979 og ítrekuð með setningu Búvörulag- anna árið 1985. Ef útgjöld til landbúnaðarmála samkvæmt ríkisreikningi eru skoð- uð frá árinu 1980 kemur í Ijós að þar er um stöðugan samdrátt að ræða ef frá eru talin áhrif niðurgreiðslna vegna matarskattsins, frá ársbyrjun 1988. Rétt er að taka fram að í þessum tölum er að sjálfsögðu ekki meðtalin hin reiknaða markaðsvernd. Varðandi þann samdrátt sem felst í tilboði ríkisstjómarinnar þarf að hafa í huga að þar er lögð til grund- vallar staða ársins 1988 svo að aug- Ijóst er að hinn ráðgerði samdráttur er að nokkru leyti þegar kominn fram. Þer því dálítið undarlegt þegar einstakir ráðherrar í ríkisstjóminni tala um þetta sem einhvem nýjan áfanga í pólitískri baráttu sinni og stórgjöf til neytenda. Það hefur verið afstaða Stéttar- sambands bænda til þessara mála að landbúnaðinum sé það nauðsyn að lifa í sem bestri sátt við samfélagið á hverjum tíma. Stéttarsambandið hefur því allt frá árinu 1979 kosið að vinna með stjómvöldum að aðlögun landbúnaðarframleiðslunnar að breyttum aðstæðum. Um það bera Framleiðsluráðslögin frá 1979 og Búvörulögin frá 1985 gleggst vitni og þeir búvörusamningar sem gerð- ir hafa verið í framhaldi af þeim. Við höfúm í þessu sambandi lagt á það megin áherslu að landbúnaðurinn fái nauðsynlegan tíma til aðlögunar. Nú standa yfir viðræður um nýjan búvörusamning sem taka á gildi 1992. f þeim viðræðum hefur sá möguleiki verið ræddur að færa nú- verandi niðurgreiðslur sem mest yf- ir í beinar greiðslur til bænda. Slíkt kerfi þarf samkvæmt mínum skilningi ekki að þýða minni stuðn- ing við Iandbúnaðinn en getur, eins og áður sagði, skapað möguleika á mun markvissari nýtingu fjármun- anna. Ég tel að þar verði menn að hafa fyrir sér tiltekin byggðamark- mið og að með þeim verði stuðlað að aukinni hagræðingu og lægra vöru- verði. Varðandi niðurskurð á útflutn- ingsbótum þá eru þær í stórum dráttum innan þeirra marka sem rætt hefur verið um í tengslum við nýjan búvörusamning. Þá vil ég víkja örfáum orðum að hugmvndum um innflutning bú- vara. I þessu sambandi vill það alltof oft gleymast að við íslendingar flytj- um inn meira af matvælum okkar, mælt í hitaeiningum, en flestar aðr- ar þjóðir í Vestur-Evrópu eða um 50%. Þótt við séum stórútflytjendur af próteinum flytjum við inn megin- hlutann af kolvetnafæðunni og að sjálfsögðu alla ávexti og vín. Þessa stöðu þuríúm við að hafa í huga þeg- ar við ræðum hugmyndir um auk- inn innflutning búvara. Annað atriði í þessu sambandi vil ég einnig nefna en það eru heil- brigðiskröfumar. I ályktun síðasta aðalfundar Stétt- arsambandsins um GATT-málið er sú krafa gerð, að komi til frekari innflutnings á búvörum verði tryggt að ekki verði gerðar minni kröfur til þeirra en innlendra búvara varðandi aðbúnað á framleiðslustigi og notk- un lyfia, hormóna og eiturefna. Að lokum, gott fundarfólk Bændum er það vel Ijóst að þeir verða á næstunni að aðlaga sig breyttum aðstæðum og leggja höf- uðáherslu á að finna leiðir til þess að Iækka framleiðslukostnað. Til þess eru ýmsar leiðir færar, en til þess að vinna úr þeim möguleikum þurfum við tíma. Stundum heyrast þær raddir að þvinga beri fram hagræð- ingu í landbúnaðinum með því að opna fyrir innflutning búvara. Þetta myndi jafngilda því að skjóta fýrst og spyrja svo. Slík vanhugsuð skyndi- aðgerð myndi leiða til hmns í flest- um greinum landbúnaðarins á ör- skömmum tíma og þegar menn átt- uðu sig á mistökunum eftir nokkur ár væru framleiðslutækin ekki til staðar lengur. Það er ekki hægt að stöðva land- búnaðinn í tilraunaskyni og setja hann svo í gang aftur eins og hverja aðra verksmiðju þegar tilrauninni er lokið. Landbúnaðurinn er eins og lífið sjálft, honum verður stöðugt að viðhalda og þróa hann. Ég vona að forsjónin forði okkur frá öllum slíkum tilraunum. Snúum okkur heldur að því í alvöru að skapa landbúnaðinum skilyrði til þess að takast á við þær breyttu aðstæður sem framundan eru. Ein mikilvægasta niðurstaða þjóðarsáttarinnar í febrúar sl., var að aðilar vinnumarkaðarins féllust á að taka sæti í nefnd ásamt bændum og fulltrúum stjórnvalda til að endur- skoða verðmyndunarkerfi búvara og finna leiðir til þess að verð búvara geti lækkað. Ég geri mér von um að þetta starf muni með tímanum færa bæði bændum og neytendum mik- inn ávinning og efla skilning á eðli og högum landbúnaðarins. Horfur í áliðnaði í Suður-Ameríku, Ástralíu og við Persaflóa Um stöðu og horfur áliðnaðar í heimi öllum, að sósíalískum lönd- um undan skildum, hafa tvö kunn fyrirtæki birt yfirlit 1990, Shear- son Lehman Brothers í apríl og Bil- liton-Enthoven Metals í september. Suðúr-Ameríka. Árleg vinnslugeta áliðnaðar í Venezúela 1995 verður um 1.838 þú?und tonn, að Billiton- Enthoven Mejals þykir sennilegast, en gæti þó orjðið allt að 3.188 þús- und tonn. Og segir í greinargerð þess: „... þetta kann að virðast hug- arflugskennt, en staðreyndin er sú, að vandfundið mun land jafn vel fallið til álvinnslu sem Venezúela." Og tilnefnt er nám bauxíts þarlend- is, fallvatns-raforkuver, gnótt ódýrs vinnuafls og góðar samgöngur. Ekk- ert land annað býður upp á slíka kosti, að segir í greinargerðinni. En við dálítið annan tón kveður í grein- argerð Shearson Lehman Brothers: „Skuldabyrði (landsins), matvæla- uppþot og áburður um spillingu hrella fyrirtæki frá fjárfestingu í grænengjafyrirtækjunum í Venezú- ela, þrátt fyrir auðsæjan kostnaðar- legan ávinning af fjáríestingu í land- inu.“ — í Brasilíu er verið að stækka tvö álver, Albras og Alumar. Ástralía. Árleg vinnslugeta ástr- alskra álvera er nú 1.275 þúsund tonn, og mun aðeins vaxa um 10.000 tonn fram til 1992. Ráðgert er nýtt álver í Vestur-Ástralíu, í Kemerton. Og fyrirhugað er að auka vinnslugetu álveranna í Gladstone, Tomago og Portland, sem til starfa tóku 1982, 1983 og 1987. Líkindi eru þannig á, að vinnslugeta ástr- alskra álvera 1995 verði á bilinu 1,5- 2,0 milljónir tonna. Persafiói. í Bahrain, Dubai og íran er unnið að stækkun þriggja álvera. Núverandi samanlögð árleg vinnslu- geta þeirra er um 445.000 tonn, en verður um 765.000 tonn 1995, ef að líkum lætur. Þá eru þrjú álver í und- irbúningi við Persaflóa, í írak, Quat- ar og Saudi-Arabíu. Samanlögð ár- leg vinnslugeta þeirra verður um 563.000 tonn. Um þessa fyrirhug- uðu útþenslu áliðnaðar við Persa- flóa hafa Shearson Lehman Broth- ers fyrirvara í greinargerð sinni. Afríka. Á næstu árum mun ekkert nýtt álver taka til starfa í Afríku. En í Álsír og Nígeríu eru uppi ráðagerð- ir um álver, í Alsír með 220.000 tonna árlegri vinnslugetu (sem auka megi upp í 330.000 tonn); í Nígeríu (í samvinnu við Reynolds Metals) með 200.000 tonna árlegri vinnslu- getu. Úrelding. Til úreldingar munu átta álver fara 1991-1993 í Kanada, Bandaríkjunum, Ástralíu, Frakk- landi og Þýskalandi. Samanlögð ár- leg vinnslugeta þeirra mun 513.000 tonn. Stígandi ÁHRIF SAMKNÝTINGAR GJALD- MIÐLA Á VERÐLAG OG LAUN Fulltrúi Bretlands í framkvæmdanefnd Efna- hagsbandalags Evrópu, Samuel Brittan, birti í Financial Times 8. október 1990 grein um áhrif upptöku sterlingspunds í gengis-samknýtingu f aldmiðla (ERM) á verðlag og Iaun á Bretlandi. greininni segir: „(Hagdeild fjársýslubankans) Goldman Sachs telst svo til, að vegna hlutdeildar sterlingspunds að gengis-samknýtingu gjaldmiðla muni viðvar- andi verðbólga á Bretlandi, nú nær 8% á ári, hjaðna niður í 4% 1995, en hafa í för með sér hægan hagvöxt og fjölgun atvinnuleysingja um hálfa milljón. Líkur er í meginatriðum á þeim kostnaði þess að setja niður verðbólgu með öðru en sýndaraðgerðum (cosmetics). Mat þetta er byggt á samdrætti framleiðslu á Frakklandi, sem neytti tengsla við þýskt mark fyr- ir gengis-samknýtingu gjaldmiðla til að setja nið- ur verðbólgu á níunda áratugnum. En breskir for- stöðumenn og verkamenn hafa einn ávinning umfram Frakka: Aðstöðu til að læra af reynslu Frakka af því að koma ekki til móts við verðbólgu- kennda launasamninga. En sú lexía lærist ekki á því einu að þylja fyrirheit; og við tekur tímaskeið hægs hagvaxtar og uppsagnar starfsfólks, jafnvel fram yfir lok núverandi afturkipps. Vaxtasælu- víman dvín, og styrkt sterlingspund mun þrengja að arðsemi, jafnvel á bataskeiði. í hönd fer það, sem í kennslubókum er nefnt starfsháttabreyting eða umskipti á leikreglum. Þegar vegur flotgengis (floating rate) var sem mestur, töldu ríkisstjórnir sér vera heimilt að marka stefnu í peningamálum að þörfum inn- lends efnahagslífs — og leiddi það loks til (árlegr- ar) verðþenslu upp á tveggja stafa (hundraðstölu). Síðan reyndu þær að setja vexti peninga mörk. Upp á síðkastið hafa þær tekið „tillit til alls“. — Héðan af verður gengið helsti leiðarvísir. Þegar gengi sterlingspunds sígur, munu vextir hækka. Þegar gengi þess lyftist, falla þeir. Merkir þetta, að þörf verði annarra ráða gegn verðbólgu og bakfalli, eins og málsvarar beitingar fjárlaga og lánaskorða vona svo innilega? Ég er hræddur um ekki. Helsta vörn gegn verðbólgu verða nú tengsl sterlingspunds við hið óverðþanda þýska mark, sem er akkeri gengis-samknýtingar gjaldmiðla (ERM). Ef við þau fyrirheit verður staðið innan tíðar, mun kostnaður og verðlag í þeim helmingi at- vinnulífsins, sem að alþjóðlegum (viðskiptum) veit, ekki getað hækkað hraðar en í Þýskalandi. í hinum helmingi þess, sem innlends skjóls nýtur, geta þau um sinn hækkað meira, — en nokkrum takmörkunum er það bundið, hve mikill launa- munur getur orðið greina á milli í hagkeríinu... Það verður leitast við að hafa nær hallalaus fjárlög öll ár hagsveiflunnar. Á því verða vandkvæði frammi fyrir kröfum um aukinn fjárframlög (rík- isins), nema fjárlög verði fínkembd.11

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.