Tíminn - 09.11.1990, Qupperneq 3
Föstudagur 9. nóvember 1990
"Tíminn 3
Þjóðarflokkur hafnar og afneitar aðild að Heimastjórnarsamtökum:
Tómar flugufregnir
Þjóðarflokkurinn á enga aðild að stofnun Heimastjómarsamtak-
anna og engar viðræður hafa átt sér stað milli talsmanna þessara
flokka um samruna þeirra eða bandalag á einu eða öðm sviði. Það er
því rangt, sem skilja má af ummælum hvatamanna að stofnun
Heimastjómarsamtakanna, að Þjóðarflokkurinn eigi aðild að kosn-
ingaundirbúningi á vegum Heimastjómarsamtakanna.
Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu
frá Þjóðarflokknum sem send hefur
verið til fjölmiðla. í tilkynningunni
segir ennfremur að harma beri að
ranglega hafi verið greint frá þessu
máli, slíkt hafi aldrei verið til fram-
dráttar góðum áformum um sam-
stillingu þeirra krafta sem helst gætu
orðið til framdráttar lýðræði í land-
inu og landsbyggðinni til réttarbóta.
Árni Steinar Jóhannsson, talsmaður
Þjóðarflokksins, segir að með þessu
vilji Þjóðarflokksmenn leiðrétta end-
urteknar flugufregnir um meinta að-
ild flokksins að stofnun Heimastjóm-
arsamtakanna. Ámi sagði að síðustu
fiögur ár hafi Þjóðarflokkurinn þurft
hvað eftir annað að leiðrétta fullyrð-
ingar Stefáns Valgeirssonar um sam-
vinnu og/eða sammna samtaka hans
og Þjóðarflokksins. Ámi sagði að fylg-
ismenn Þjóðarflokksins hefðu
áhyggjur af þessu og til að leiðrétta
slíkan misskilning í eitt skipti fyrir
öll, þá stæði sú ákvörðun óhögguð að
Þjóðarflokkurinn byði fram f öllum
kjördæmum landsins við næstu al-
þingiskosningar.
Landsfundur Þjóðarflokksins verður
haldinn í Ölfusborgum dagana 23.-
25. nóvember nk. Helstu umræðu-
efni verða stefnuskrá flokksins og
stjómmálayfirlýsing flokksins verður
rædd og afgreidd.
Undirbúningur kosninga er hafinn í
öllum kjördæmum landsins og segir
Árni Steinar að á landsfundinum sé
stefnt að því að lögð verði fram drög
að framboðslistum og þeir verði síðan
gerðir opinberir fljótlega eftir lands-
fund.
hiá-akureyri.
Menntaskólinn við
Hamrahlíð:
Myndbands-
tækjum
stolið
Tveimur myndbandstækjum, af
gerðinni Panasonic og Fisher, var
stolið úr Menntaskólanum við
HamrabJfð um heigina. Tældn
voru geymd í tækjakompu í austur-
hluta skólans en ekki er vitað ná-
kvæmlega hvenær um helgina þau
hurfu. Þjófnaðurinn var tilkynntur
til Rannsóknariögreglu ríkisins sl.
mánudag og vinnur hún að rann-
sókn málsins. —SE
m
iipj
SKOÐANAKONNUN
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík um val á frambjóðendum Framsóknarflokksins í Reykjavík,
fýrír næstu kosningar til Alþingis, fer fram laugardaginn 10. og sunnudaginn 11. nóvember nk. að Hafnarstræti 20,3. hæð,
Reykjavík (væntanlegri skrífstofu Framsóknarflokksins í húsnæði Strætisvagna Reykjavíkur við Lækjartorg).
I framboði eru eftirtaldir aöilar:
Anna Margrét
Valgeirsdóttir,
nemi
Ásta Ragnheiður Bolli Héðinsson, Finnur Ingólfs- Guðmundur
Jóhannesdóttir, efnahagsráðgjafi son, aðstoðar- Birgir Heiðars-
deildarstjóri forsætisráðherra maður heilbrigð- son, leigubif-
isráðherra reiðastjóri
Guðmundur G.
Þórarinsson, al-
þingismaður
Hermann Svein-
bjömsson, að-
stoðarmaður
sjávarútvegsráð-
herra
SigfúsÆgir
Ámason, fram-
kvæmdastjóri
Þór Jakobsson,
veðurfræðingur.
✓
Skoðanakönnun fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
^ ÍATKVÆÐASEÐILL
Velja skal fjóra frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Merkja skal með
tölustöfum 1,2,3, og 4 í reiti framan við nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem
kjósandi vill aðframbjóðendurtaki sæti áfTamboðslistaFramsóknarflokksins
í Reykjavík
Rétt til þátttöku í skoðanakönnuninni hafa allir fulltrúaráðsmenn í fulltrúaráði
framsóknarfélaganna í Reykjavík og varamenn þeirra.
Kjósendur skulu velja fjóra frambjóðendur, hvorki
fleiri né færrí, og merkja með tölustöfum við nöfn
þeirra og í þeirri röð sem þeir vilja að frambjóðendur
taki sæti á framboðslistanum, þ.e. 1 við þann sem
kjósandi vill í fyrsta sæti, 2 við þann sem sem skipa á
annað sæti, 3 við þann sem skipa á þríðja sætið og 4
við þann sem skipa á fjórða sætið. Sá frambjóðandi
sem flest atkvæði fær í 1. sætið telst kjörinn í það sæti,
sá sem flest atkvæði fær í 1. og 2. sætið samanlagt
hlýtur annað sæti, sá sem flest atkvæði fær í 1., 2. og
3. samanlagt hlýtur þríðja sætið og sá sem flest at-
kvæði fær í 1., 2., 3. og 4. sæti samanlagt hlýtur fjórða
sætið. Niðurstaða skoðanakönnunarinnar er bindandi
hvað snertir þá frambjóðendur sem hijóta 50% eða
meira gildra atkvæða í eitthvert af fjórum efstu sætun-
um.
Sími á kjörstað er 624480
Utankjörfundarkosning fer fram á skrífstofu Fram-
sóknarflokksins í dag, föstudag 9. nóv. milli kl. 16-18.
í kjörnefnd eiga sæti:
Jón Sveinsson formaður, s. 75639, Steinþór Þorsteinsson, s.
16388, Helgi S. Guðmundsson, s. 77622, Sigrún Sturludóttir, s.
30448, Anna Kristinsdóttir, s. 21883. Veita fulltrúar kjömefndar
frekari upplýsingar um framkvæmd skoðanakönnunarínnar.
Kjömefnd fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna í Reykjavík
Anna Marsrét Valseirsdóttir, nemi
Asta Ragnheiður Jóhannesdóttir, deildarstjóri
Bolli Héðinsson, efnahassráðaíamfcrsætisráðherra
OÍy Finnur Insólfsson. aðsJHBblmamir heilbrisðisráðherra
Guðmundur BireirtleiaíSson, leigubifreiðastióri
Guðmundur c^ÞóÞíminsson, alþingismaður
V Hermann Sveinbiömsson, aðstoðarmaður siávarútvegsráðherra
Sigfús Ægir Árnason, framkvæmdastjóri
Þór Jakobsson, veðurfræðingur
Ath. Merkja skal við Qóra frambjóðendur með tölustöfum .
Ef merkt er við færri en fíóra telst seðillinn ógildur.