Tíminn - 10.11.1990, Blaðsíða 9

Tíminn - 10.11.1990, Blaðsíða 9
8 Tíminn Laugardagur 10. nóvember 1990 Laugardagur 10. nóvember 1990 Tíminn 17 Heilbrigðisráðherra segist ekki búast við að heilbrigðisþjónustan fái stærri hlut af heildarútgjöldum ríkissjóðs í framtíðinni: Eðlilegt að menn vilji verja sína sérhagsmuni Guðmundur Bjamason heilbrigðisráð- herra hefur undanfamar vikur verið harðlega gagnrýndur fyrir tillögur sem hann hefur lagt fram eða viðrað um spamað og hagræðingu í heilbrigðis- þjónustunni. Lyfsalar hafa bmgðist harkalega við tilraunum hans til að draga úr lyfjakostnaði. Tiliaga heilbrigð- isráðherra um að koma á fót samstarfs- ráði sjúkrahúsanna í Reykjavík varð til þess að nokkrir stjómendur sjúkrahús- anna boðuðu til blaðamannafundar þar sem vinnubrögðum ráðherrans var mót- mælt. í síðustu viku réðst Davíð Odds- son borgarstjóri að heilbrigðisráðherra og sakaði hann um að hafa gefið bein fyr- irmæli um að senda gamalt og veikt fólk heim af spítölum í sumar í þeim tilgangi að spara. Málflutningur borgarstjór- ans lágkúrulegur Hverju svarar þú fullyrðingum Davíðs? „Það er ótrúlegt að borgarstjórinn skuli geta leyft sér að segja svona nokkuð. Við í heilbrigðisráðuneytinu höfúm verið að reyna að gæta hér aðhalds og spamaðar á öllum sviðum. Við höfum komið þeim tilmælum til sjúkrahúsanna að þau reyni að leita allra leiða til að hagræða í rekstri sínum. Héðan hafa að sjálfsögðu aldrei farið nein fyrirmæli um að það eigi að loka einstökum deildum. Ef hægt er tala um lágkúm í málflutningi, en borgarstjóri hefur leyft sér að viðhafa það orð í tengslum við þetta mál, þá finnst mér þetta vera lágkúrulegt. Sjúkrastofnanimar fengu í fjárlögum þessa árs hærri fjárveitingu heldur en í fyrra. Þá var gert ráð fyrir að stofnanim- ar skæm niður launaliðinn um 4%, en úr því var dregið á þessu ári. Staða þeirra hefði því átt að vera betri í ár. Lokanim- ar munu að vemlegu leyti stafa af því að það hefúr ekki tekist að fá starfsfólk til starfa. Ummæli aðstoðarframkvæmda- stjóra Borgarspítalans í sumar staðfestir það.“ Hvaða aðili er það þá sem tekur ákvarð- anir um lokanir deilda? „Það em að sjálfsögðu stjómendur spít- alanna sem taka slíkar ákvarðanir. Ég hef vissar efasemdir um hversu mikill spamaður felst í þessum lokunum. Starfsemi spítalanna fylgir vemlegur fastur kostnaður og þar að auki sýnir það sig að sjúkrahúsin hafa veitt bráðaþjón- ustu og þá tekið sjúklinga inn á þær deildir sem opnar em, jafnvel inn á gangana. Það er því ekki óeðlilegt þó spurt sé: Er ekki óhagræði og auka- kostnaður af þessu meiri en sparnaður- inn sem felst í lokun einstakra deilda? En þetta er mál sem stofnanirnar sjálfar, stjórnendur þeirra og starfsfólk verða fyrst og fremst að takast á við og vega það og meta hvort aðrar sparnaðarleiðir em ekki virkari en lokanir deilda. Að til- mæli um lokanir, að ég tali nú ekki um bein fyrirmæli, séu komnar frá ráðu- neytinu er alveg fráleitt." Taldi nauðsynlegt að kveða skýrar á um verksvið samstarfsráðsins Tillaga þín um að setja á stofn sam- starfsráð sjúkrahúsanna í Reykjavík hef- ur mætt andstöðu. Fjórir menn sem sátu í nefnd, sem gerði tillögu um þetta ráð, héldu fyrir skömmu blaðamanna- fund þar sem þeir sökuðu þig um að spilla því samkomulagi sem náðist f nefndinni. „Þetta em líka furðuleg ummæli. Um- ræða um aukið samstarf og verkaskipt- ingu milli stóm sjúkrahúsanna í Reykja- vík er ekki ný. Fyrir fáum árum síðan var komin vel á veg umræða um að sameina starfsemi Borgarspítala og Landspítala og ég man ekki betur en þá ættu aðild að málinu borgarstjórinn í Reykjavík og þá- verandi heilbrigðisráðherra, Ragnhildur Helgadóttir. Við höfum reynt að þróa þessar hugmyndir og ég held að þetta eigi enn fullan rétt á sér. Eg er sannfærð- ur um að með miklu meira samstarfi, betri og skipulegri verkaskiptingu milli sjúkrahúsanna og ákveðinni áætiana- gerð um þróun og fjárfestingar sé hægt að fá meira fyrir þær fjárveitingar sem við höfúm úr að spila. Með því móti mætti jafnvel einnig komast hjá þessum margumtöluðu og illræmdu lokunum. Ég setti sérstaka nefnd í þetta í upphafi árs 1989, sem skoðaði ýmsar tillögur. Úr þeim upplýsingum, sem nefndin lagði fram, virtist okkur hér í ráðuneytinu ljóst að það mætti ná fram spamaði. Þess vegna vom settar fram hugmyndir við fjárlagagerðina í haust um að það yrði komið á fót sérstöku samstarfsráði spít- alanna sem ætti að fjalla um fjárveiting- amar til þeirra. Á lokafundi nefndarinn- ar náðist samkomulag um að koma á fót slíku ráði. Ég ákvað að fara í öllum meg- inatriðum að tillögum nefndarinnar, en hins vegar taldi ég rétt að kveða skýrar á um verksvið ráðsins, þannig að það kæmi meira að fjárlagagerðinni og út- hlutun þeirra fjármuna sem fjárlög veita til þessa málaflokks á hverjum tíma. Þama er fyrst og fremst um að ræða áherslumun. Ég tel að með þeirri breyttu áherslu, sem ég hef lagt til að ráðið starfi eftir, verði tillögur ráðsins um þróunar- og fjárfestingaáætlanir, um starfslið sjúkrahúsanna og um verka- skiptingu milli þeirra, miklu nákvæmari og líklegra að eftir þeim verði farið. Það er mikilvægt að ráðið hafi vald til að fylgja eftir tillögum sínum.“ Pólitískt upphlaup í tengslum við prófkjör Sjálfstæðisflokksins í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, sem lögð var fram á sama fúndi og Davíð lagði fram sína bókun, er talað um að með stofnun samstarfsráðs- ins sé stigið mikilvægt skref til aukins samstarfs og hagræðingar innan sjúkra- húsanna í Reykjavík. í fljótu bragði virð- ist manni sem það sé ekki mikill mál- efnaágreiningur á ferðinni. „Það er alveg rétt og ég held að menn séu dálítið að gera úlfalda úr mýflugu. Það er ákaflega lítill mismunur á tillög- um nefndarinnar um þetta samstarfsráð og þeim hugmyndum sem ég hef síðan kynnt. Ég verð að segja að ég skil ekki þessi hörðu viðbrögð nefndarmanna við mínum hugmyndum, vegna þess að ég tek þeirra tillögur nánast orðrétt upp í mínar hugmyndir. Fullyrðingar þeirra um að ég hafi misnotað nefndarálitið eru fráleitar.“ Blandast flokkspólitík að einhverju leyti inn í þetta mál? „Maður getur satt að segja ekki séð hvað annað stendur á bak við þetta. Þeg- ar borgarstjóri talar um að það sé heil- brigðisráðherra sem tekur ákvörðun um að loka stofnunum, er rétt að minna á að Borgarspítalinn er eini spítalinn sem lögum samkvæmt er sjúkrahús sveitar- félags. Borgarstjóm hlýtur að hafa gert sér grein fyrir að þegar hún gerði kröfu um að spítalanum yrði haldið utan við, hlyti hún að bera einhverja ábyrgð á rekstri spítalans. Það vildi þannig til að þessi umræða um samstarfsráðið átti sér stað á meðan kandídatar í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík þurftu að leita sér að ein- hverju til að skrifa um. Skrif þeirra og fleiri, sem um þetta hafa fjallað á síðustu dögum, hafa einkennst af vanþekkingu og að sumu leyti af hreinni þröngsýni. Ég fagna því hins vegar að borgarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokksins skuli telja sam- starfsráðið mikilvægt skref í átt til auk- ins samstarfs og hagræðingar innan sjúkrahúsanna í Reykjavík. Aðalatriðið er að þessu ráði verði fundin lagaleg staða.“ Þess er ekki að vænta að heilbrigðisgeirinn fái stærri hlut í heildarútgjöldum ríkissjóðs Það er einnig andstaða við hugmyndir þínar í heilbrigðiskerfinu sjálfu. Fram- kvæmdastjórar Borgarspítala og Landa- kotsspítala höfðu uppi hörð orð um til- lögur þínar á áðurnefndum blaða- mannafrindi. Er ekki erfitt að spara og hagræða í heilbrigðiskerfinu, þegar það er gert í andstöðu við starfsfólk og stjómendur spítalanna? „Það er nauðsynlegt að um þetta náist sem best samkomulag við það fólk sem kemur til með að vinna eftir væntanlegu skipulagi. Það er nú einu sinni þannig að hver og einn vill verja sitt starfssvið eða sinn geira. Ég vil að það komi fram að þessar hugmyndir um aukið samstarf, jafnvel sameiningu stofnana, hafa fengið góðan hljómgmnn meðal forráðamanna sjúkrastofnana. Á minn fund hafa gengið forsvarsmenn sjúkrahúsa og læknar og lýst þeirri skoðun sinni að það væri hægt að ná fram miklu meiri hagræðingu með auknu samstarfi og betri stjómun fjármuna. Við þurfum að nýta þá fjár- muni, sem varið er til heilbrigðisþjón- ustunnar, sem best, ekki síst fjárfestingu í nýjum, dýrum tækjabúnaði. Nú er svo komið að hið almenna viðhorf er að ekki verði gengið lengra í skattheimtu og jafnvel verði að draga úr ríkisútgjöldum, en sjálfstæðismenn hafa ekki síst verið talsmenn þess. Það skýtur því skökku við að sömu menn skuli ávallt bregðast ókvæða við þegar á að reyna að gæta að- halds og nýta betur þá fjármuni sem við höfum til ráðstöfunar. Én undirtónninn í mínum tillögum er einmitt að nýta bet- ur þá fjármuni sem eru í heilbrigðis- þjónustunni og tryggingakerfinu. Þess er ekki að vænta að heilbrigðismálin fái mikið stærri hlut en nú er af heildarút- gjöldum ríkissjóðs." Menn snúast til vamar sínum einkahagsmunum Á síðustu mánuðum hefúr mikið verið skrifað í blöð um spamað í heilbrigðis- kerfinu og það er ljóst að sumar tillögur þínar mæta harðri andstöðu, ekki síst frá ýmsum starfsmönnum í heilbrigðisstétL ,JMér er það ljóst að í sumum tilfellum em menn að verja sína einkahagsmuni. Þær tillögur, sem hafa verið uppi í ráðu- neytinu og miðað því að nýta betur það fé sem við höfúm til ráðstöfúnar, koma í sumum tilfellum beint við pyngju manna og það er eðlilegt að menn snúist þá til vamar. Skrif sumra manna í blöð um heilbrigð- ismál undanfamar vikur hafa verið með þeim hætti að maður er hreint orðlaus. Ég get t.d. nefht grein eftir Guðmund Hallgrímsson lyfjafræðing í Morgunblað- ið síðastliðinn laugardag. Guðmundur situr í lyfjaverðlagsnefnd, tilnefndur af forvera mínum í heilbrigðisráðuneytinu. Það er ekkert skrýtið, þó hægt gangi að koma á spamaði og hagræðingu í heil- brigðiskerfinu þegar menn vinna með þeim hætti sem hann gerir.“ í ráðuneytinu em nú til umfjöllunar mjög róttækar tillögur í lyfjamálum. „Við höfum mikið rætt lyfjamál, allt frá því að ég kom hér í ráðuneytið árið 1987. Á þessu ári hefúr verið gripið til þess að lækka álagningu á lyf vemlega, en þrátt fyrir það virðist lyfjakostnaður stöðugt vaxa. Ástæðan fyrir því að erfiðlega geng- ur að lækka þennan kostnað er m.a. sú að við emm að fá inn á markaðinn ný og dýr lyf. Eitthvað af þessum nýju lyfjum kem- ur til með að lækka kostnað á öðrum sviðum og því er ekki einhlítt að horfa á tölur um aukinn lyfjakostnað. Engu að síður höfúm við náð vemlegum árangri á þessu ári og við teljum að það sé hægt að ná fram enn frekari spamaði með auk- inni hagræðingu í innflutningi lyfja og lyfjadreifingu. Nýlega tók sérstök nefnd til starfa sem á að fara ofan í þessi mál. Ég hef lagt áherslu á að nefndin reyni að komast að einhverri niðurstöðu hið allra fyrsta. Nú er verið að skoða hvort gerlegt sé og hagkvæmt að stofna eitt lyfjadreif- ingarfyrirtæki í hlutafélagsformi og þá með aðild þeirra einstaklinga sem í dag annast lyfjainnkaup og lyfjadreifingu. Þetta er hugmynd sem ég tel rétt að skoða ítarlega, en ég er að sjálfsögðu einnig reiðubúinn að skoða aðrar hug- myndir.“ Er framkvæmanlegt að steypa þessu í eitt fyrirtæki, ef lyfsalar og aðrir þeir sem að lyfjamálum starfa em hugmyndinni algerlega andsnúnir? „Ég vil ekkert um það segja á þessu stigi, vegna þess að nefndarstarf á ekki að fara fram undir þrýstingi, að ég tali ekki um hótunum. Ég vil að,þetta verði skoðað frá öllum hliðum. Löggjafinn hefur í hendi sér að breyta lögum um lyfjamál, hvort sem það er um lyfjainnflutning eða lyfja- dreifingu. Það form, sem nú ríkir og hef- ur ríkt um langt skeið, þarf ekki endilega að vera það eina rétta. Það hefur a.m.k. verið rætt að undanfömu að þetta form sé kostnaðarsamt. Verði gerðar gmnd- vallarbreytingar á skipulaginu, verður það aldrei gert nema þeim sem eiga í þessu kerfi fjármuni og hagsmuni verði bætt það með samkomulagi eða mati.“ Egill Ólafsson Tímamynd Sverrir Vilhefmsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.