Tíminn - 13.11.1990, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 13. nóverhber 1990
Finnur hlaut bindandi
kosningu í efsta sæti
Finnur Ingólfsson, aðstoöarmaður
heilbrigðisráðherra, hlaut bindandi
kosningu í fyrsta sæti framboðs-
lista Framsólmarflokksins í Reykja-
vík. Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður lenti í öðru sæti. Þessi
niðurstaða fékkst í skoðanakönnun
meðal félaga í fulltrúaráöi fram-
sóknarfélaganna í borginni.
Finnur Ingólfsson fékk 236 at-
kvæði í fyrsta sætið og 328 alls.
Guðmundur G. Þórarinsson fékk
175 atkvæði í fyrsta sætið, 199 sam-
tals í fyrsta og annað og 228 alls.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
deildarstjóri fékk 280 atkvæði í
þriðja og 322 alls. Bolli Héðinsson
hagfræðingur fékk 276 atkvæði og
lenti í fjórða sæti. Hermann Svein-
björnsson, aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra, fékk 180 atkvæði og
lenti í fimmta sæti. Anna Margrét
Valgeirsdóttir nemi fékk 152 at-
kvæði og lenti í sjötta sæti. Sigfús
Ægir Árnason framkvæmdastjóri
fékk 145 atkvæði og lenti í áttunda
sæti. Guðmundur Birgir Heiðarsson
leigubflstjóri fékk 26 atkvæði og
lenti í níunda sæti.
Alls tóku 440 menn þátt í skoðana-
Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður:
Prófkjörið var
marklaust gabb
„Ég vil orða það svo að þetta próf-
kjör hafi verið marklaust gabb. Hér
var ekki um prófkjör að ræða heldur
skipulagða aðför. Þetta var lokað
prófkjör þar sem var bundið hverjir
mættu taka þátt í því, en búið var að
velja um 40% fulltrúanna fyrir
fram án minnar vitundar með það
að markmiöi að fella þingmanninn.
Þama fór fram keppni þar sem for-
maður fulltrúaráðsins, sem í kjöri
var, var með forgjöf upp á 170-180
atkvæði þegar keppni hófst," sagði
Guðmundur G. Þórarinsson alþing-
ismaður þegar úrslitin í prófkjörinu
Iágu fyrir.
Þegar samþykkt var á aðalfundi
fulltrúaráðsins að fara þessa leið við
val frambjóðenda á lista flokksins,
kom engin athugasemd fram. Guð-
mundur sagði að það ætti sínar
skýringar. Hann sagði að fyrir aðal-
fundinn hefði hann gert formanni
fulltrúaráðsins og formanni Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur grein fyrir
því að hann gæti ekki sætt sig við að
einungis fulltrúaráðið veldi listann.
Finnur Ingólfsson hefði hins vegar
sannfært sig um að engin átök yrðu
um skipan listans. „Við Finnur gerð-
um um það drengskaparsamkomu-
lag að reyna að halda listanum
óbreyttum, ég yrði í fyrsta sæti og
hann í öðru. Eftir að við höfðum
tekist í hendur um það samkomulag
gaf ég út þá yfirlýsingu að ég gæti
Guðmundur G. Þórarinsson.
fallist á prófkjör inni í fulltrúaráð-
inu, enda skipti það ekki öllu máli ef
séð varð fyrir því að engum bola-
brögðum yrði beitt. Ég hef verið al-
veg bláeygður í þessu máli og aldrei
dottið í hug að unnt væri að reka
stjórnmálafélög eins og bófafélög í
Chicago."
Guðmundur sagðist krefjast þess
að stjórn fulltrúaráðsins lýsi próf-
kjörið ógilt og að efnt verði til opins
prófkjörs þar sem Iistinn verði val-
inn. „Ef menn ekki taka á þessu máli
málefnalega og átta sig ekki á hvað
hér hefur gerst, þá eru alvarlegir
hlutir í vændum. Þetta mál er ekki
búið,“ sagði Guðmundur. -EÓ
„Flugeldasýning“ Hitaveitunnar:
MÖKKUR VIÐ
GRENSÁSVEG
Þeir sem áttu ieið um Grensásveg
og Miklubraut á ellefta tímanum í
gærmorgun urðu eflaust varir við
mikinn gufumökk sem lagði upp úr
hitaveitubrunni á Grensásvegi.
Ástæðan mun hafa veriö hitaveitu-
rör sem sprakk með fyrmefndum
afleiðingum.
Að sögn Hreins Frímannssonar, yf-
irverkfræðings hjá Hitaveitu
Reykjavíkur, var þarna um eðlilega
skemmd að ræða, sem „sumar eru
flugeldasýning en aðrar ekki“, bun-
an stendur upp undir brunnlokið
sem fer af og þá stendur bunan upp í
loftið. En ástæðan fyrir því að rör
þetta sprakk var að það lak með
brunnlokinu niður á rörið og það
ryðgar í gegn.
Hitaveitan er með reglubundnar
athuganir og endurnýjun á búnaði
sínum þar sem reynt er að koma í
veg fyrir leka af þessu tagi, að sögn
Hreins. „En miðað við að við erum
með 1000 kflómetra af lögnum, þá
má alltaf reikna með að svona lagað
komi fyrir, en það er þó ekki al-
gengt." Hreinn sagði þó að Hitaveit-
an gerði við nokkur hundruð litla
leka á ári, en lekar af þessu tagi hafi
ekki orðið lengi.
í gær mun Iíklega hafa verið vatns-
lítið í Smáíbúðahverfi og Kringlu-
hverfi, en Hreinn bjóst við að við-
gerðum yrði lokið fyrir gærkvöldið.
—GEÓ
könnuninni, en á kjörskrá voru 504.
Jón Sveinsson, formaður kjör-
nefndar, sagði að engar athuga-
semdir hefðu verið gerðar við fram-
kvæmd könnunarinnar. Hún hefði
verið framkvæmd í samræmi við
þær reglur sem aðalfundur fulltrúa-
ráðsins samþykkti 17. október síð-
astliðinn. -EÓ
Finnur Ingólfsson varaþingmaður:
Frambjóðendur vissu
að hverju þeir gengu
„Þetta er meiri stuðningur en ég
átti von á. Úrslitin koma mér því
þægilega á óvart og ég er ákaflega
þakklátur því fólki sem studdi
mig,“ sagði Finnur Ingólfsson,
aðstoðarmaður heilbrigöisráð-
herra, eftir að úrslit í skoðana-
könnun fulltrúaráðs framsóknar-
félaganna í Reykjavík lágu fyrir.
Finnur hlaut bindandi kosningu í
fyrsta sætið.
„Það er fulltrúaráðið sem tekur
ákvörðun um hvaða leið er farin til
að velja fólk á framboðslistann og
einnig hvernig hann á endanum er
skipaður. Ég get ekki séð að um
neitt gabb sé að ræða í þeim efn-
um,“ sagði Finnur um viðbrögð
Guðmundar G. Þórarinssonar við
úrslitunum.
Finnur benti á að aðalfundur full-
trúaráðsins hefði samþykkt skýrar
reglur um hvernig standa ætti að
prófkjörinu. Frambjóðendur hefðu
fengið í hendur kjörskrár og þeim
gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við þær. „Frambjóðendur
vissu nákvæmlega að hverju þeir
gengu og ég veit ekki til að neinar
athugasemdir hafi verið gerðar."
Guðmundur G. segir að þið tveir
hafið gert samkomulag um skipan
Iistans.
Finnur Ingólfsson.
„Ég vísa því á bug að ég hafi gert
samkomulag við nokkurn mann í
þessari könnun. Við Guðmundur
hittumst hins vegar fyrir aðalfund
fulltrúaráðsins þar sem ég kynnti
honum, sem formaður fulltrúa-
ráðsins, þær reglur um skoðana-
könnunina sem stjórnin hugðist
bera undir fundinn. Ég vildi að
hann væri vel upplýstur fyrir fund-
inn um vilja stjórnarinnar. Ég vil
taka skýrt fram að það er ekki hlut-
verk okkar Guðmundar að stilla
upp þessum lista. Það er móðgun
við fulltrúaráðið að reyna að gera
slíkt með samkomulagi."
Finnur sagðist hafa gert Guð-
mundi það Ijóst í byrjun síðustu
viku að hann stefndi ákveðið á
fyrsta sæti listans. „Mér fannst
heiðarlegt af mér að tilkynna Guð-
mundi ákvörðun mína. Hann getur
þess vegna ekki ásakað mig um að
koma aftan að sér í þeim efnum."
Finnur benti á að þeir Guðmund-
ur hefðu keppt um efsta sætið í
opnu prófkjöri 1986. Hann sagði að
margir hefðu gert athugasemd við
framkvæmd prófkjörsins. Á það
hefði m.a. verið bent að menn,
flokksbundnir í öðrum flokkum,
hefðu tekið þátt í því. Finnur sagð-
ist hafa ákveðið að sætta sig við úr-
slit prófkjörsins þrátt fyrir þessa
annmarka á framkvæmd þess. „Á
yfirstandandi kjörtímabili hef ég
unnið af fullum heilindum með
Guðmundi G. Þórarinssyni. Nú
hefur flokkskjarninn í Reykjavík
ákveðið að víxla okkar sætum og ég
vonast til þess að Guðmundur hafi
þetta með svipuðum hætti og ég
1986 og sætti sig við úrslitin. Það
sem við þurfum á að halda í Reykja-
vík er samstaða," sagði Finnur að
lokum.
-EÓ
Framsóknarflokkurinn á Vestfjörðum:
Olafur Þ. Þórðarson
áfram í efsta sæti
Síðastliðinn laugardag var haldið
aukakjördæmisþing framsóknar-
manna á Vestfjörðum þar sem rað-
að var á lista flokksins fyrir kom-
andi kosningar. Raðað var á listann
samkvæmt úrslitum skoðanakönn-
unar meðal framsóknarmanna sem
haldin var fyrir um hálfum mánuði.
Útbúnir voru atkvæðaseðlar og þeir
sem voru félagar í framsóknarfé-
lögum á Vestfjörðum þann dag sem
kjördæmisþingið var haldið í sept-
ember fengu að kjósa.
Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður
skipar fyrsta sætið líkt og fyrir síð-
ustu kosningar og Pétur Bjarnason
fræðslustjóri skipar annað sætið. í
þriðja sæti er Katrín Maríasdóttir, í
fjórða sæti er Magnús Björnsson, í
fimmta sæti er Magdalena Sigurðar-
dóttir, í sjötta sæti er Guðmundur
Hagalínsson, í sjöunda sæti er
Sveinn Bernódusson, í áttunda sæti
er Kristinn Halldórsson, í níunda
sæti er Guðni Ásmundsson og í tí-
unda sæti er Jóna Ingólfsdóttir.
Pétur Bjarnason fræðslustjóri
sagði að niðurstöðurnar væru skýr-
ar og afgerandi, það væri hvergi
vafaatriði í þeim og vilji þeirra sem
tóku þátt í þessu mjög ljós. „Hins
vegar finnst mér galli við þessa
skoöanakönnun, sem ég vona að
Ólafur Þ. Þórðarson alþingismað-
ur skipar fyrsta sæti á lista fram-
sóknarmanna á Vestfjörðum.
endurtaki sig ekki, að ekki skyldi
vera heimilað að taka nýja félaga
inn. Það verður tæpast endurtekið
því það vakti óánægju," sagði Pétur.
Aðspurður sagðist hann ekki hafa
átt von á því að það hefði breytt nið-
urstöðunum en það gæti hafa gert
einhverja óánægða sem hefðu viljað
vera með í valinu á listanum. Pétur
sagðist telja þennan lista sterkan og
sagðist hann vekja sérstaklega at-
hygli á því að alþingismaðurinn
Pétur Bjamason fræðslustjóri
skipar annað sæti á lista fram-
sóknarmanna á Vestfjörðum.
þeirra, Ólafur Þ. Þórðarson, hefði
fengið þarna mjög skýra og afger-
andi kosnipgu, sem komi til með að
styrkja þennan lista mjög verulega.
Pétur sagði að Ólafur hefði mun
sterkari stöðu nú heldur en fyrir síð-
ustu kosningar og þeir færu af stað
með þennan lista mjög bjartsýnir á
árangur. „Við erum bjartsýnir og
stefnum að því að endurheimta okk-
ar fyrri styrk í Vestfjarðakjördæmi,"
sagði Pétur. -SE