Tíminn - 13.11.1990, Side 3
,Þriðjudagur 13. nóvember 1990
Tíminn 3
Tillaga á borði ríkisstjórnarinnar frá sérstökum starfshópi:
Stjórnarráðið noti sem
mest endurunninn pappír
Tillaga frá menntamálaráðherra um að mótuð verði stefna í Stjómarráði ís-
lands í samvinnu við Þjóðskjalasafn um notkun á endurunnum pappír var
samþykkt 27. mars sl. I framhaldi af því var ákveðið að fela starfshópi skip-
uðum fulltrúa frá forsætisráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, menntamálaráðu-
neyti, umhverfísráðuneyti og Þjóðskjalasafni að móta tillögumar.
Tillaga starfshópsins um pappír-
snotkun fyrir Stjómarráð fslands er
eftirfarandi: „Skjalavörslusjónarmið
skulu lögð til grundvallar við kaup
Stjómarráðs íslands á pappír en jafri-
framt skuli tekið tillit til umhverfis-
vemdarsjónarmiða. Pappír til skjala-
gerðar verði samkvæmt staðli og
gæðaprófíinum sem Þjóðskjalasafn fs-
lands hefur samþykkt og telur hæfan
til gagnaframleiðslu. í staðlinum skuli
tekið tillit til umhverfisvemdarsjónar-
miða, m.a. ávinnsluferli pappírsins.
Endurunninn pappír sé heimilt að
nota í afrnörkuðum málaflokkum ef
eyða á skjölum eftir skamman tíma
samkvæmt skjalavistunaráætlunum
sem samþykktar hafa verið af Þjóð-
Samningafundur í London um raforkuverð til Atlantsáls:
Tímafrekari samningar
en gert var ráð fyrir
Fyrir helgina lauk í London tveggja
daga samningafundi fulltrúa
Landsvirkjunar og Atlantsáls fyrir-
tækjanna þriggja. Jóhannes Nordal,
stjómarformaður Landsvirkjunar,
sagði eftir fundinn að hann hefði
verið mjög gagnlegur og mál hefðu
þokast í rétta átt. Samningsaðilar
væru hins vegar sammála um að
margt væri eftir og að mun lengri
tíma tæki að ljúka öllum atriðum
málsins en upphaflega var talið.
Með Jóhannesi á fundinum var
nefnd þriggja manna sem stjórn
Landsvirkjunar skipaði í lok síðasta
mánaðar til að fara með samning-
sumboðið ásamt stjórnarformanni.
f nefndinni eiga sæti Páll Pétursson,
Birgir ísleifur Gunnarsson og Davíð
Oddsson. Jóhannes sagði að á fund-
unum hefði verið farið yfir öll atriði
málsins með nefndinni, en hún hef-
ur ekki áður setið samningafundi.
Jóhannes tók fram að ekki hefði ver-
ið farið yfir málin að nýju í þeim til-
gangi að taka alla þætti til endur-
skoðunar. Samningafundurinn í
London hefði verið í eðlilegu fram-
haldi af fyrri samningafundum.
Jóhannes var spurður hvort samn-
inganefndarmenn Atlantsáls hefðu
látið í ljós óánægju með gang við-.
ræðnanna, en fyrir fáeinum dögum
lét Robert G. Miller, aðstoðar-
framvæmdastjóri Alumax, í Ijós ótta
um að skipan samninganefndar
Landsvirkjunar táknaði að samning-
arnir myndu tefjast. Jóhannes kvað
það ekki vera, þvert á móti hefðu
samningamenn Atlantsáls lýst því
yfir að þeir væru mjög ánægðir með
gang viðræðnanna.
Næsti fundur verður haldinn 9. og
10. desember nk. í Atlanta í Georg-
íufylki. Jóhannes sagðist vonast eftir
að á þeim fundi yrði hægt að þoka
málum mjög langt áfram. Fram að
fundinum verður unnið að ýmsum
þáttum samningsins, bæði tækni-
Íegum og fjárhagslegum.
-EÓ
skjalasafni. Ennfremur við gerð fjöl-
földunarefnis sem hefur takmarkað
varðveislugildi, enda séu frumgögn
varðveitt á viðurkenndum pappír.
Stjómarráð íslands skuli nota endu-
runninn pappír þar sem því verður við
komið. M.a. á það við um allar hrein-
lætisvörur, risspappír, umslög, boðs-
kort o.fl.“.
í niðurstöðukafla greinargerðar
nefndarinnar segir m.a. „Það er skylda
Stjómarráðsins og annarra ríkisstofn-
ana að gera miklar kröfur um varð-
veislu skjala. Lélegur pappír og ritföng
hafa oft leitt til þess að dýrmæt gögn
hafa orðið nánast ólæsileg. Því er
nauðsynlegt að nota viðurkenndan
pappír fyrir skjöl sem hafa varðveislu-
gildi. Rannsóknir sýna að endurunn-
inn pappír hefur ekki lengra geymslu-
þol en 3040 ár. Jafnframt skemmir lé-
legur pappír út frá sér svo að gæta
verður þess að slíkur pappír lendi ekki
innan um skjöl sem hafa varðveislu-
gildi".
Starfshópurinn leggur til að Inn-
kaupastofnun ríkisins sjái um að
kaupa inn pappír og hreinlætisvörur.
Á fundi ríkisstjómar á föstudaginn
var ákveðið að fela forsætisráðherra og
fjármálaráðherra, auk menntamála-
ráðherra, að vinna að málinu frekar.
khg.
íslandskynn-
ing í Japan
Á mrgun 14. nóvember hefst í
Japan Islandskynning. Kynning-
in er haldin í tilefni af ferð forseta
íslands, frú Vigdísar Finnboga-
dóttur til Tokyo vegna krýningar
Japanskeisara. Kynningin er að
mestu leyti kostuð af tveimur
japönskum fyrirtækjum.
Áf íslands hálfu eru 36 fyrirtæki
og stofnanir sem taka þátt í
kynningunni með einum eða
öðrum hætti. Kynningin er ís-
lenskum þátttakendum að mestu
að kostnaðarlausu, þar sem jap-
önsku aðilarnir annast alla kynn-
ingu og útvega aðstöðu fyrir
vörukynninguna. 14. nóvember
mun Útflutningsráð íslands
halda hádegisverð fyrir helstu
viðskiptavini íslenskra fyrirtækja
og verður forseti íslands þar
heiðursgestur. Sama dag verður
tískusýning á íslenskum fatnaði í
menningarmiðstöð Tokyo-sam-
steypunnar með þátttöku Lindu
Pétursdóttur. Fimmtudaginn 15.
nóvember mun forseti íslands
opna íslandskynninguna og dag-
inn eftir verður síðan vígt Is-
landshús sem byggt hefur verið
og er eftirlíking af Höfða, húsi
Reykjavíkurborgar. Þau fyrirtæki
og stofnanir sem taka þátt í
kynningunni eru m.a. Álafoss,
Alpan, Bláa Iónið, Fínull, Fisk-
mar, Frostmar, menntamála-
ráðuneytið, Saga Film, Lýsi hf.,
Listasafn Islands og Jókó sem
ætlar að markaðssetja íslenska
jólasveininn í Japan.
—SE
Á myndinnl sjáum vW þau sem hafa haft veg og vanda af útgáfu Skóg-
ræktarbókarinnar. Frá vinstri: Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags íslands, Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfé-
lags Islands, Haukur Ragnarsson, ritstjóri bókarinnar, og Sigurþór Jak-
obsson sem sá um hönnun hennar. Timamynd Pjetur
Upplýsingarit í skógfræði
Skógræktarfélag Islands hefur
gefið út bók, Skógræktarbókina,
sem fjallar um undirstöðuatriði í
skógfræðum. Að sögn Brynjólfs
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélagsins, er hér verið
að koma á móts við þann mikla
áhuga sem íslendingar hafa á skóg-
rækt og gróðri. Þá segir Brynjólfur
að mikið sé lagt upp úr myndræn-
um þætti í bókinni og reynt eftir
fremsta megni að túlka texta
á myndrænan hátt. Bókina skrifa
níu sérfróðir höfundar auk Hauks
Ragnarssonar sem er ritstjóri bók-
arinnar.
Það var í byrjun síðasta árs sem
ákveðið var að gefa skógræktarbók
út á 60 ára afmæli Skógræktarfélags
íslands. Einnig var ákveðið að bókin
yrði tileinkuð minningu Hákonar
Bjarnasonar, sem var meðal stofn-
enda Skógræktarfélags íslands og
framkvæmdastjóri þess í áratugi og
ritaði einnig fjölda greina í ársrit fé-
lagsins.
í kynningarbæklingi um bókina
segir að Skógræktarbókin sé alhliða
fræðslu- og leiðbeiningarrit um
skógfræðileg efni. Þar er að finna á
einum stað svör við ýmsum spurn-
ingum ásamt fróðleik er áhuga-
menn jafnt sem lærðir geta flett
upp á þegar á þarf að halda. Skóg-
ræktarbókin er 248 blaðsíður. Kafl-
ar bókarinnar eru 27 og er m.a.
fjallað um ýmis undirstöðuatriði
skógfræðinnar auka margs annars
sem tengist skógrækt og gróðri.
Mikill áhugi virðist vera fyrir bók-
inni því þegar bókin kom úr prent-
un í gær var þegar búið að panta
500 eintök. Bókin verður seld á sér-
stöku kynningarverði, kr. 2.800, til
1. desember en eftir það kostar hún
3.500. Þeir sem hafa áhuga á að
nálgast bókina er bent á að hafa
samband við Skógræktarfélag ís-
lands en í desember verður hún
einnig seld í nokkrum bókaverslun-
um.
khg.
EINDAGI
STAÐGREIÐSLUFJÁR
ER 15. HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt
að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar.
Munlð að gera skil tímanlega!
RSK
RÍKISSKATTSTJÓR!