Tíminn - 13.11.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 13. nóvember 1990
Tíminn 5
Könnun menntamálaráðuneytisins um háskólastigiö:
Allir skólar vilja heita
háskólar — en af hverju?
Teljið þiö mikilvægt að orðið háskóli sé í nafni skóla ykkar og þá hvers vegna?
var fyrsta spuming menntamálaráðuneytisins í könnun sem það sendi til 14
háskóla og sérskóla í landinu s.l. vor. Tónskóli Sigursveins reyndist hinn eini
þessara skóla sem neitaði því alveg að hann þyrfti á háskólaheitinu að halda,
en Fósturskólinn tók ekki afstöðu til spumingarinnar.
í umsögn menntamálaráðuneytis-
ins segir að rök allra hinna, sem
vildu hafa háskólaheiti í nafni skóla
sinna, hafi verið af ýmsum toga.
„Skólarnir voru þó furðu fáorðir um
mikilvægi inntaks þeirrar starfsemi,
sem fram ætti að fara í háskóla til
þess að slík stofnun risi undir nafni.
Sú mynd blasir því við í þessari
könnun að rök um ímynd skólanna,
t.d. tengsl þeirra út á við, yfirgnæfa
rök um að inntak náms og starfs-
hættir segi fyrir um heiti þeirra." Og
samkvæmt þessari könnun segir
menntamálaráðuneytið „þeirri sí-
gildu spurningu því enn ósvarað
hvort það sé nafnið sem eigi að segja
til um starfsemi stofnunar eða að
nafnið eigi að ráðast af eðli þeirrar
starfsemi sem þar fer fram“.
Spurningar voru sendar eftirtöldum
skólum í framhaldi af ráðstefnu
ráðuneytisins um háskólastigið í maí
í vor:
1. Bændaskólinn á Hvanneyri
2. Fósturskóli íslands
3. Háskóli íslands
4. Háskólinn á Akureyri
5. íþróttakennaraskóli íslands
6. Kennaraháskóli íslands
7. Leiklistarskóli íslands
8. Myndlista- og handíðask. ísl.
9. Samvinnuháskólinn Bifröst
10. Tónlistarskólinn í Reykjavík
11. Tónskóli Sigursveins
12. Tækniskóli íslands
13. Tölvuháskóli Verslunarsk. ísl.
14. Þroskaþjálfaskóli íslands
Allir skólarnir skiluðu svörum, sem
ráðuneytið (Þorsteinn Gunnarsson
og Gerður G. Óskarsdóttir) segir bera
vitni um mikinn áhuga háskóla-
manna á viðfangsefninu. Önnur
spurning f könnuninni var: „Teljið
þið að hlutverk ykkar skóla eigi að
vera fleira en kennsla?"
Þessu svöruðu allir skólarnir játandi
nema Tölvuháskóli VÍ. „í svörum
annarra skóla vakti athygli sú mikla
áhersla sem lögð var á rannsóknar-
hlutverk þeirra. Nær allir töldu rann-
sóknir mikilvægari en kennslu," seg-
ir í umsögn ráðuneytisins.
í þriðja lagi var spurt hvaða tegund-
ir náms ættu að vera í viðkomandi
skólum og þar gefnir þrír valmögu-
leikar: 1) eins til tveggja ára starfs-
námsbrautir; 2) starfsnám/undirbún-
ingur undir sérnám (BA/BS/BEd og
fleira) og 3) Fræðilegt framhaldsnám
til meistara/doktorsgráðu.
Sex skólar tiltóku flokk 1. Allir skól-
arnir nema Tölvuháskóli VÍ nefndu
flokk 2. Og átta skólar tiltóku fram-
haldsnám.
„Hér vekur athygli sá mikli áhugi
sem fram kemur á framhaldsmennt-
un, jafnvel til doktorsprófs," segir í
samantekt ráðuneytisins. Bent er á
að HÍ hafi veitt 57 doktorsgráður frá
upphafi. Með tilvísun í svör skólanna
við fyrstu spurningunni er dregin sú
ályktun að „nauðsynlegt væri að skil-
greina nánar hvert væri eðli og
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra leitar leiða til að koma
Gísla Sigurðssyni lækni heim:
Tekst Arafat
aö koma Gísla
til íslands?
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hefur sent Yassir
Arafat, leiðtoga PLO, bréf þar sem
fram kemur beiðni um hjálp við að
koma Gísla Sigurðssyni lækni frá
Kúvæt og til íslands.
Forsætisráðherra sendi þetta bréf
áður en Gísli kom til Bagdad sl.
föstudag. Forsætisráðherra hefur
borist bréf frá skrifstofu PLO í
Stokkhólmi þar sem fram kemur að
þetta muni verða mjög erfitt mál að
leysa.
Steingrímur Hermannsson sagði í
samtali við ríkisútvarpið í gær að
þetta mál hafi fyrst og fremst verið í
höndum utanríkisráðuneytisins en
hann hefði verið beðinn um að gera
það sem hann gæti. Hann sagði að
til sín bærust bréf frá ýmsum aðil-
um sem eru t.d. að kynna sinn mál-
stað, og eftir að hann átti fund með
Arafat fyrir nokkru, hafi honum bor-
ist slík bréf frá PLO. Þegar hann rit-
aði svar við einu slíku bréfi, notaði
hann tækifærið til að vekja athygli á
málefnum Gísla og sendi allar þær
upplýsingar sem hann taldi að
kæmu að gagni og fór fram á að
þetta mál yrði skoðað á þeirra veg-
um.
markmið hins almenna háskólanáms
og hagkvæma verkaskiptingu há-
skólastofnana á grundvelli þeirrar
skilgreiningar, áður en farið væri að
byggja upp tiltölulega langt og
kostnaðarsamt fræðilegt nám við all-
margar stofnanir hér á landi".
Spurðir um inntökuskilyrði vildu
listaskólarnir nota eigið inntökupróf,
en allir hinir mæltu með að það væri
stúdentspróf. Þar af vildu allmargir
skólar binda inntöku við stúdents-
próf af ákveðinni námsbraut.
Þá má geta þess að enginn skólanna
lýsti sig mótfallinn afnámi æviráðn-
inga, þótt nokkrir tækju fram að
skoðanir væru skiptar um það atriði.
Menntamálaráðuneytið mun nota
niðurstöður þessarar könnunar til
hliðsjónar við þá framkvæmdaáætl-
un unnið er að í ráðuneytinu um
skólamál til aldamóta, þar sem sér-
stakur kafli verður um háskólastigið.
Listi framsóknarmanna á Norðuriandi eystra ákveðinn:
GUÐMUNDUR OG
VALGERÐUR EFST
Kjördæmisþing framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra fór fram á Húsavík á laug-
ardaginn. Þingið var málefnalegt
og fór vel fram. Auk hefðbund-
inna þingstarfa störfuðu vinnu-
hópar, og blrtlst niðurstaða þelrra
í stjórnmálaályktun sem sam-
þykkt var á þinginu. Á sunnudag-
inn var síðan haldið aukaþing, þar
sem kosið var bindandi kosningu {
sjö efstu sæti lista framsóknar-
manna í kjördæminu fyrir kom-
andi Alþlngiskosningar. Kosið var
bindandi kosningu í 7 efstu sæti
listans, en stjóm kjördæmissam-
bandsins mun síðan raða í þau 7
sæti sem eftir eru. Kosið var um
hvert sæti fyrir sig, og niðurstöð-
ur kynntar áður en kosið var um
næsta sætL 25 manns voru í kjöri
samkvæmt tilnefningum.
Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra og Valgerður
Guðmundur Bjarnason.
Sverrisdóttir þingmaður hlutu ör-
ugga kosningu í tvö efstu sæti
listans. Talsverð barátta varð um
3ja sætið milli Jóhannesar Geirs
Sigurgeirssonar og Guðmundar
Stefánssonar, en Jóhannes hafði
betur. Guðmundur hlaut síðan
fjórða sætið. Sigfús Karisson og
Bjami Aðalgeirsson börðust um
sjöunda sætið, og hafði Bjami
betur.
Röð 7 efstu manna varð þessi:
1. Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra Húsavík
2. Valgerður Sverrisdóttir þing-
maður Grýtubakkahreppi
3. Jóhannes G. Sigurgeirsson
bóndi Eyjafjarðarsveit
4. Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri Akureyri
5. DaníelÁmason skrifstofumað-
ur Akureyri
6. Guðlaug Björasdóttir banka-
starfsmaður Dalvík
7. Bjarai Aðalgeirsson fram-
kvæmdastjóri Húsavík
hiá-akureyri.
Keflavík:
Faðir blés lífi
í barnið sitt
Eins og fram hefur komið í fréttum
tekur PLO afstöðu með írökum í
Persaflóadeilunni. Hafa því leiðtogar
PLO aðgang að æðstu embættis-
mönnum íraks. í svarbréfi PLO seg-
ir að þeir geti ekki lofað neinu í
þessu sambandi, en í millitíðinni
hafa aðstæður breyst að því leyti að
Gísli er ekki lengur í Kúvæt heldur
kominn til Bagdad. —GEÓ
Tvö slys urðu í Keflavík í gær.
Um miðjan daginn i gær féll
tveggja ára gömul stúlka í litla
tjörn sem var inni á lóð við hús.
Stúlkan var meðvitundarlaus
þegar hún fannst. Faðir stúlk-
unnar fann hana og blés í hana
lífi og var hún síðan flutt á
sjúkrahús. Talið er að stúlkan
hafi ekki hlotið skaða af.
í versluninni Samkaup féll
hillusamstæða með vörum í, sem
staðsett var inni á lager, ofan á
konu sem var þar að vinna. Að
sögn lögreglunnar í Keflavík
slapp konan tiltölulega vel en
kvartaði undan eymslum í hálsi
og var flutt á sjúkrahúsið til
skoðunar. —SE
Maður í 30 daga gæsluvarð-
hald á Akureyri:
Grunaður
um
sifjaspell
Akureyringur á fimmtugsaldri hef-
ur verið úrskurðaður í 30 daga
gæsluvarðhald, vegna sifjaspells-
brots. Kæra barst til lögreglunnar á
Akureyri s.I. fimmtudag. Maðurinn
var handtekinn á föstudag og færður
til yfirheyrslu. í kjölfar þess var
gæsluvarðhalds krafist, og úrskurð-
aði héraðsdómari manninn í 30
daga gæsluvarðhald. Rannsóknar-
deild lögreglunnar á Akureyri vinn-
ur nú að rannsókn málsins, og verða
frekari upplýsingar ekki gefnar fyrr
en rannsókn er lokið. hiá-akureyri.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi:
Ólafur G. í fyrsta sæti
Sjálfstæðismenn héldu prófkjör
á Reykjanesi um helgina. Ólafur
G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, fékk
góða kosningu í fyrsta sætið og
Salome Þorkelsdóttir lenti í öðm
sæti. í þriðja sæti lenti nýliðinn
Ámi M. Mathiesen en þingmaður-
inn Hreggviður Jónsson lenti í
12. sæti.
í fjórða sæti varð Árni R. Árna-
son, í fimmta Sigríður A. Þórðar-
dóttir, í því sjötta lenti María
Ingvadóttir og Sveinn Hjörtur
Hjartarson lenti í sjöunda sæti. Á
eftir þeim komu síðan Viktor B.
Kjartanson, Kolbrún Jónsdóttir,
Lovísa Christiansen, Sigurður
Helgason, Hreggviður Jónsson,
Þröstur Lýðsson, Lilja Hallgríms-
dóttir og Guðrún Stella Gissurar-
dóttir.
Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður sagði að sér litist vel á þessi
úrslit. „Ég er auðvitað mjög
ánægð með þann stuðning sem ég
fékk til að ná öðru sætinu. Ég er
einnig mjög ánægð með það hvað
Ólafur G. Einarsson fékk ótvíræð-
an stuðning í fyrsta sætið sem for-
ystumaður," sagði Salome. Hún
sagði að það hefði komið fram í
fjölmiðlum á undanförnum vikum
að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að
yngja upp og auka hlut kvenna.
„Ég sé ekki betur en að listinn á
Reykjanesi muni uppfylla þær
kröfur, því við verðum með þrjár
konur í sex efstu sætunum," sagði
Salome. —SE