Tíminn - 13.11.1990, Page 6

Tíminn - 13.11.1990, Page 6
6 Tíminn Þriðjudagur 13. nóvember 1990 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin [ Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrimsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason SkrifstofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Framsýni og fyrirhyggja íslendingum er nauðsynlegt að hyggja að framtíðar- þróun atvinnulífsins, því að sýnt er að þjóðfélagið er á breytingaskeiði sem m.a. stafar af því að núverandi undirstöðugreinar framleiðslunnar hafa sínar takmark- anir nema þróuninni sé stýrt í samræmi við nýja vaxt- armöguleika og markaðsaðstæður. Síst skal því haldið fram að ráðamönnum þjóðarinn- ar, athafnamönnum og sérfræðingum í tækni og vís- indum hafi ekki verið ljós þessi staðreynd, því að vissulega hafa stjómmálamenn látið í sér heyra um þessi mál, athafnamenn hafa tekið til hendinni um djarflegar ffamkvæmdir og sérfræðingar á tæknisviði og verkmenntun látið að sér kveða í margs konar upp- byggingu. I rauninni hefur ekkert skort á að sungin væri glymj- andi framtíðarmúsík í atvinnumálum á íslandi og leit- ast við að hrífa þjóðina með í miklu bjartsýnistali um ffamtíðarmöguleikana. Það væri því synd að segja að svartsýni og úrtölum hafði verið haldið að þjóðinni. Þótt skyldugt sé að virða bjartsýni og athafnasemi, því að án slíkra eiginleika er hætt við hnignun og aftur- för, verður fyrirhyggja eigi að síður að ráða athöfhum manna. Það kann ekki góðri lukku að stýra, þegar ffamtakssemin ber fyrirhyggjuna ofurliði. Segja má að þetta sjónarmið hafí ríkt á ráðstefnu sem haldin var á Akureyri í fyrra mánuði, þar sem lærðir og reyndir menn á sínu sviði báru saman bækumar um eldi sjávarfíska á íslandi. Vel fór á að halda þessa ráð- stefnu á Akureyri, því að undanfarin þijú ár hefur Fisk- eldi Eyjafjarðar hf. stundað tilraunir með lúðueldi í Eyjafirði í eðlilegu samráði við Haffannsóknastofnun. Fyrir því eru ffæðileg rök að lúða kunni að vera álitleg- ur eldisfískur og arðsöm markaðsvara. Tilraunir sem gerðar eru á þessu sviði í Eyjafirði hafa að markmiði að leita sannana fyrir því að þessi fræðilegu rök stand- ist. Hitt virðist jafnvíst að tilraunimar hafa að svo komnu máli ekki sannað eitt eða neitt í þessu efni ann- að en það að skynsamlegt sé að halda þeim áfram. A ráðstefnunni vom norskir rannsóknarmenn, sem unnið hafa að tilraunum með lúðueldi í heimalandi sínu. I máli þeirra og Halldórs Asgrímssonar sjávarút- vegsráðherra var upplýst að eftirspum eftir fiski í heiminum vaxi miklu hraðar en afrakstursgeta heims- hafanna ræður við. „Bilið verður fyrst og fremst brúað í framtíðinni með auknu eldi, bæði ferskvatns- og sjáv- arfiska,“ sagði sjávarútvegsráðherra. Hann sagði því spáð að heildarframleiðsla og eldi físks muni þrefald- ast á tuttugu ámm úr tíu milljón lestum í þrjátíu millj- ónir. Islendingar verði að gefa þessari þróun gaum og geti það ekki nema með sjálfstæðu rannsókna- og þró- unarstarfí. Hið sama kom fram í máli Jakobs Jakobs- sonar, forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Þrátt fyrir þær góðu vonir sem framtíðarspár gefa um eftirspum eftir fiski til neyslu og þá staðreynd að þörf er á miklu magni eldisfisks til þess að eftirspuminni verði svarað og augljóst sé að íslendingar eigi að líta til fiskeldis sem tiltækrar framleiðslugreinar, er jafnvíst að fyrirhyggja verður að ráða uppbyggingunni. Hún má ekki eingöngu stjómast af bjartsýni og „dugnaði“. á að hlusta á mann, sem gaf séra Matthíasi vatn að drekka. Og ekki er minna um vert a& vatnsberinn talaði við okkur í sjónvarpi eins og ungur maður. Þóvarð hann áttatíu og átta ára í ágúst í sumar. Þcssi maður er Steindór Steindórsson frá Hlöðum, náttúrufræðmgur og fyrrum skólameistari við Mennta- skólann á Akureyri, margvís mað- ur, góður rithöfundur og sjór af fróðleik. Það einkennlr Steindór að hami er yfirleitt alltaf skemmti- legur og varpar stórum svip á um- hverii sitt. Hann var núna að koma fram í sjónvarpsþætti um Matthías Joc- humson, skáldprestinn miida, sem var 8vo trúheitur, að þegar efmn sótti að honum kvað hann, „eins og út úr ofni æpi stiknað hjarta." Mætir menn höfðu hin sterkustu orð um sera Matthfas, b»ði skáld- skap hans og persónu. Þótt sjón- varpsþættir séu yfírleitt yfírborðs- kenndir, komst séra Matthías mjög vel tíl skilaíþættíGísla Jónssonar, rithöfundar og fyrrum mennta- skólakennara, í sjónvarpinu á sunnudagskvöld, þ.e. sú ímynd sem við höíum fengið af þessu yf- irburðaskáidi í áranna rás. Hnoð án orðgnóttar Samt var þess* þáttur sorglegur að einu ieytí. Hann var sorglegur vegna þess samanburðar, sem óhjákvæmilegt var að gera við þaö Steindórsson Þessi mál eru nefhilega þanníg vaxin, að engin furða er þótt lítið sé gert af þáttum f sjónvarp og annars staðar um samtfmaskóld Matthíasar. Dagskrár fjölmiðla eru l f ísienslcum skáldskap, þar sem lárið er með nútímalegum norrænum himin- skautum um margvíslegt hnoð án orðgnóttar, sem borið er uppi af sérstökum taismönnum fáfengð- eifcans. Þeir koma hver á fætur öðrum t3 að freista að haida við þeirri fmynd að hér Hfi fjölmenn Og afkastamikil skáldakynslóð. Þeh" búa út bækur fyrír skólana meö þessu skáidapuði, sem er bæði tilfinningalítið og afskipta- Matthtas Jochumson laust og líkara uppkasti að kross- gátu en raunverulegu mæltu máli, Sigur þessara talsmanna fáfengil- eikans er umtalsverður sé miðað við fjölmiðla og skóla. Hann kem- ur iika f Ijós eins og f Rhhöfunda- sambandi íslands, sem er h'tíð annað en deild úr Alþýðubandalag- inu, þar sem á fjóröa hundrað meðlimir hafa komið sér fyrir. Síð- an á þjóðin að líta upp og hlusta. Barist gegn minningum Sjónvarpsþáttur um séra Matthí- as réttir af kompásmn andartak, en síðan leggst þokan yfír að nýju. Og það meridlega við Matthíasarþátt- inn er að hann var ekki geröur af talsmötmum fáfengileikans. Vegna þess að þeim er ijóst að þeir eiga f baráttu við minningar um góðan sem brá á létt hjal við fyrinnenn jafnt og konur, sem gáfu honum kaffi. Sagan um vatnið var þó skemmtílegust, enda talaði þar rödd manns aftan úr tímanum, sem hafði líknað þyrstum manni. Autt Íand austan Vaðlaheiðar Steindór frá Hlöðum man Matthí- as, en hann var sjö ára, þegar Matt- um og báðu um vatn að drekka. Áður höðfu þau spurt eftír Ólöfu frá Hlöðum, sem var á engjum að heýja ofan í kindur sínar. Þessi fá- brotna saga er nóg. Hún lýsir fyrfr áttatíu og einu ári. Drengur- enn tíma var hann forystumaður AJ- á Akureyri. Þeir Gísla Jónssonar var aftur á móti fiaiiað um Matthías af virðingu og reist í stuttan tíma og fékk að jjóma um sinn á skjánum tneð sltt hann hafa setið stutt á þingL Steindór lentí í Laxárdeilunni svo- Þingeyinga, eins og fram kcmur í hans. Liggur nærri að Sögurnar af Matthfasi eru tnargar. Sjálfur hef- ur hann skrifað nokkrar og ekki óétýrar í bókinni Sögukaflar af sjálfum mér. Við sjáum fyrir okkur austan Vaðlaheiðar. En Matthías býr f huga hans, Hann fætðl hon- uro vatn að drekka. Um stund hef- ur það orðið okfeur binnm eíns- konar lífsíns vatn. Ol handa milljón manns Það þóttu tíðindi fyrir nokkru í samantekt helgarblaðs að hátt í 23 þúsund manns geta setið samtímis á vínveitingahúsum Reykjavíkur- borgar. Krárnar og veitingahúsin sem selja áfengi eru hátt í níutíu talsins. Þetta verður að teljast nokkuð vel í lagt í þar sem ríflega fjórðungur borgarbúa getur setið samtímis að sumbii, og sæmilega rúmt um alla. Síðan bjórinn var lögleiddur hefur kránum fjölgað jafnt og þétt og unglingspiltar aukið drykkjuna um 60% eða svo. Samt dugir það hvergi nærri til því mikið vantar á að nóg sé drukkið til að sæmileg nýting fáist á veitingahúsin. IDV um helgina vom raktar mikl- ar gjaldþrotaharmatölur vegna erf- iðleika í rekstri veitingahúsa. í nýju tölublaði Frjálsrar verslunar segir að veitingarekstur sé í kreppu og óðum dimmi yfir næturlífmu. Framboð skemmti- og veitinga- staða í Reykjavík einni gæti nægt milljón manna borg. Dimmir að í úttekt Frjálsrar verslunar segir að afkoma flestra staðanna sé mjög slæm, eigendaskipti tíð og enn fleiri gjaldþrot framundan í svona rekstri ef að líkum lætur. En áfram er haldið og kránum fjölgar vikulega og virðast engir meinbugir vera lengur á því hverjir fá leyfi til áfengissölu né hvar. í Breiðholti standa íbúar og versl- unareigendur að söfnun mótmæla vegna kráar sem opna á í verslun- armiðstöð í miðju íbúðahverfi. Þarna er svo undarlega staðið að verki að verið er að innrétta krána án þess að sótt hafi verið um form- legt leyfi til að reka hana á þessum stað. Yfirvöld hafa því fengið undir- skriftalista í hendur þar sem kráar- smíði er mótmælt, en ekkert um að þarna sé verið að stofnsetja vínveit- ingahús. Mótmæli Ekki er langt um Iiðið síðan íbúar í Þingholtunum söfnuðu undir- skriftum til að mótmæla uppsetn- ingu kráar þar. Það erindi gekk umræðulaust um meltingarvegi borgarráðs, rétt eins og ölið sem á greiðan gang í gegnum gesti bjór- kránna og er oft á tíðum skilað aft- ur á staðnum. Það tilheyrir víst ekki alfrelsi nú- tímans að hafa vit fyrir neinum. En það er undarleg árátta að stofnsetja hvert dýrindis veitingahúsið af öðru til að stefna eigendunum lóð- beint í gjaldþrotin. Sumir verðandi veitingamenn virðast ekki einu sinni láta sér detta í hug að sækja um vínveit- ingaleyfi til réttra aðila áður en búllurnar eru smíðaðar. Svo mikil er fartin í þessu nýtísku- lega offjárfestingaatvinnulífi, að vertshúsin eru sett niður á staði þar sem íbúarnir vilja ekki sjá þau en enginn hlustar á umkvartanir þeirra. Þeir verða svo aðeins að bíða rólegir eftir að gjaldþrotin dynji yfir, eins og Frjáls verslun tel- ur að sé óhjákvæmilegt. En borgaryfirvöld gætu að minnsta kosti hlustað eftir óskum íbúa í nábýli við kátínuhús um að þau séu ekki æskileg í of nánu ná- býli. Það gæti líka bjargað sumum veit- ingamönnum frá enn verri útreið ef hægt væri svolítið á fram- kæmdagleði þeirra og þeim bent á að íbúar Reykjavíkur séu enn ekki orðnir milljón. Það vita að minnsta kosti þeir sem kunna að telja.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.