Tíminn - 13.11.1990, Side 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 13. nóvember 1990
\
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnslu
+
Innilegar þakkir sendum við öllum vinum og vandamönnum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
Birgis S. Bogasonar.
Sérstakar þakkir til félaga úr Fóstbræðrum.
Svanhildur Jónsdóttir
Sigrún Elín Birgisdóttir
Krís^án Einar Birgisson
Jón Gauti Birgisson
Sigríður Ósk Birgisdóttir
Bogi Öm Birgisson
Albert Birgisson
Eiín S. Jóhannesdóttir
Eggert Bogason
Siguriaug Eggertsdóttir
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Fríðríka Sigríður Bjamadóttir
Hraunbæ 5
lést á Landspitalanum sunnudaginn 11. nóvember.
Ari Jósefsson
Krístín Aradóttir Guðmann Sigurbjömsson
ÓmarArason Áslaug Pétursdóttir
og bamaböm
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Jóhann Pétur Einarsson
Fýlshólum 3, Reykjavfk
lést á Landspltalanum aðfaranótt 11. nóvember sl.
Sigrún Pálsdóttír
og aðrír aðstandendur.
Angela Berthold
Páll Samúelsson
Þórhildur Kristjánsdóttir
Landssamband hjálparsveita skáta
Formenn aðildarsvcita Landssambands hjálparsveita skáta hittust Á fundinum var fjallað um ýmis mál er varða hjálparsveitimar og
ásamt stjóm sambandsins og starfsfólki dagana 2. og 3. nóvcm- landssambandið.
ber sl. á Sclfossi. Myndin var tekin af hópnum á Hótel Selfossi.
Jólakort Styrktarfélags vangefinna
Sala er hafin á jólakortum félagsins. Þau em með myndum af
verkum listakonunnar Sólveigar Eggerz Pétursdóttur. Hefur hún
gefið félaginu frummyndimar, 4 talsins, og verður dregið um þær
25. janúar 1991 og vinningsnúmer þá biit í fjölmiðlum.
Átta kort em f hveijum pakka og fylgir spjald sem gildir sem
happdrættismiði. Verð pakkans er kr. 400. Kortin verða til sölu á
skrifstofú félagsins að Háteigsvegi 6, í versluninni Kúnst, Lauga-
vegi 40, Nesapóteki, Eiðistorgi 17 og á stofnunum félagsins.
Að gefnu tilefhi skal tekið fram að kortin em greinilega merkt
félaginu.
Kyrrðardagar með
Sigurbirni Einarssyni
Þér er boðið að hefja aðventu í faðmi
Skálholtsstaðar og undir leiðsögn Sigur-
björas Einarssonar. Skálholtsskóli gengst
fyrir kyrrðardögum 30. nóv. til 2. desem-
ber. Kyrrðardagar eru öllum opnir og
henta þcim sem lifa annasömu lífi, leita
slökunar og vilja rækta sinn innti mann.
Hrynjandi dags er lík og í klaustri. Þátt-
takendur hverfa ftá skarkala hversdags-
lífsins og ganga á vit íhugunar, þagnar og
tíðagjörða. Sigurbjöm Einarsson biskup
mun miðla af trú sinni og hugsun á íhug-
unarstundum og auk þess ræða við þá sem
óska samtala. Ef þú ert að lcita að sjálfri
cða sjálfúm þér, viti og grundvelli til að
standa á eða vilt einfaldlega fá frið til að
eflast innan frá, em kyrrðardagar einstakt
tæki. Þér cr boðið til aðventukyrrðardaga.
Skráning fer ftam á Biskupsstofu í
Reykjavík.
Félag eldri borgara
Haldin verður skáldakynning í dag,
þriðjudag, að Hverfisgötu 105, Risinu, og
hefst hún ld. 15. Ath. Húsið er opnað kl.
14. Lesið vcrður úr verkum eftir Stefán
Jónsson. Umsjón hefúr Vilborg Dag-
bjartsdóttir, kennari og rithöfundur.
Fundur um atvinnumál
Almennur borgarafúndur um atvinnu-
mála á Akrancsi haldinn i Bíóhöllinni
laugardaginn 17. nóvemberkl. 14.00.
Dagskrá: 1. Fundur settur. 2. Skipan um-
ræðustjóra og fúndarritara. 3. Framsögu-
erindi: Gísli Gíslason bæjarstjóri, Signin
Jónsdóttir Halliwell húsmóðir, Guðmund-
ur Páll Jónsson, Hervar Gunnarsson,
form. atvinnumálancfndar. 4. Almennar
umræður og fyrirspumir. 5. Fundi slitið.
Við vonumst eindregið til þcss að þið
sjáið ykkur fært að mæta á þcnnan fúnd.
JC Akrancs
Kvenfélag Oháöa safnaöarins
heldur spilakvöld i Kirkjubæ í kvöld
13.11.1990 kl. 20.30. Kaffiveitingar
verða á eftir.
Kvenfélag Kópavogs
Spilað verður í kvöld í Félagsheimili
Kópavogs. Byrjað verður að spila kl.
20.30. Allir velkomnir.
Kvennadeild Skagfiröinga-
félagsins í Reykjavík
verður með vöfflukaffi og hlutaveltu í
Drangey, Siðumúla 35, sunnudaginn
18.11. nk.kl. 14-17.
Frétt frá íslensku
hljómsveitinni
Islenska hljómsveitin er nú að hefja 10.
starfsár sitt með átta hljómsveitar-,
kammer- og söngtónleikum, auk eins tón-
vísindalegs fyrirlesturs, og verða fyrstu
tónlcikamir haldnir 18. nóvember.
Þessir níu atburðir bera ýmsar yfir-
skriftir, sem gefa til kynna inntak þeirra,
svo sem „Söngur og hörpusláttur", „Úr
heimi tónvisindanna", „Frá Hándel til
Bcmstein", ,Jólastemmning“, eða „Paris-
Vín-París“. Aðrir titlar em e.t.v. torræðari
svo sem „Nýir tónalitir", „Aufúsugcstir úr
austri", „Takemitsu Il“, eða „Námur V“.
Þeir, sem hins vegar þekkja til starf-
semi íslensku hljómsveitarinnar s.l. þijú
ár munu þó skilja t.d. af heitinu „Námur
V“, að þar verður haldið áffam að kynna
nýsamið tónverk við nýtt ljóð og nýtt
myndlistarverk um tiltekinn atburð eða
atriði íslandssögunnar. Alls verða þetta
12 slík þríþætt „Námuverk", og fjögur
þeirra hafa þegar séð dagsins ljós á tón-
leikum íslensku hljómsveitarinnar. Höf-
undur tónverksins i „Námum V“ er
Áskell Másson á lokatónlcikunum í apríl í
vor, en alls verða frumflutt 5 íslensk verk
á komandi starfsári.
Hið víðfræga og viita ljóðskáld og tón-
skáld, Tom Takemitsu, verður ásamt 11
japönskum flytjendum gestur íslensku
hljómsveitarinnar á tvennum tónleikum í
marsbyrjun. Öll þessi atriði verða nánar
kynnt, þegar þar að kemur. Allir tónleik-
amir verða i Langholtskirkju og munu
nemendur fá helmings afslátt af miða-
verði. Á fýrstu tónleikimum, sunnudaginn
18. nóvember, verður frumfluttur á ís-
landi hörpukonsertinn „Strengdans“ eflir
Mist Þorkclsdóttur. Einleikari á hörpu er
Elísabet Waage, en hún frumflutti verkið
fyrir skömmu með „Avanti“ kammer-
sveitinni í Helsinki. Bandaríska sópran-
söngkonan Lynn Helding syngur „Sumar-
nætur“ eftir Hector Berlioz á þessum
sömu tónleikum. Önnur verk em „Svíta"
eftir Poulenc og „Divertisscment" eftir
Ibert. Stjómandi verður Öm Óskarsson.
Öm hefúr nýlokið námi vestan hafs
með góðum árangri. Hann stjómaði m.a.
röð tónleika í Mexikó í fyrra. Viku síðar,
sunnudaginn 25., munu þær Lynn Held-
ing og Anna Guðný Guðmundsdóttir
halda tónleika undir heitinu „Frá Hándel
til Bcmstcin". í vetur munu hátt á annan
tug íslenskra einleikara og einsöngvara
koma ffam á tónleikum íslensku hljóm-
sveitarinnar.
Fyrir tveimur ámm vom stofnuð Sam-
tök um íslensku hljómsveitina, sem nú
skipa um 70 hljóðfæraleikarar, söngvarar,
tónskáld og þrfr ungir stjómendur, sem
nýlega bættust i hópinn, auk Guðmundar
Emilssonar, sem hefúr verið aðalstjóm-
andi íslensku hljómsveitarinnar ffá upp-
hafi.
Hver stjómandi verður ábyrgur fyrir
einum tónleikum í vetur. Fyrst Öm, síðan
Guðmundur Óli Gunnarsson í janúar, þá
Hákon Leifsson í febrúar, og loks Guð-
mundur Emilsson i apríl.