Tíminn - 06.12.1990, Síða 5
Fimmtudagur 6. desember 1990
Tíminn 5
Raunvextir.verðtryggðra lána hafa stöðugt þokast upp á við undanfarið ár:
Raunvextir á þessu ári
miklu hærri en í fyrra
Raunvextir óverotryggðra skuldabréfa verða allt að tvöfalt hærri að
meðaltali á þessu ári heldur en í fyrra, eða 8,6% borið saman við
4,7% á síðasta ári að mati Seðlabankans. Og raunvextir vísitölu-
bundinna lána verða allt að fjórðungi hærri, eða að meðaltali 7,5% á
þessu ári borið saman við 6% á því síðasta. Að árinu 1988 frátöldu
hafa raunvextir aldrei verið hærri heldur en á yfirstandandi ári.
„Raunvaxtaþróunin á árinu bendir
til þess að viðskiptabankar og spari-
sjóðir hafi ekki náð að Iáta vaxta-
lækkanir alveg fylgja takti verð-
bólguhjöðnunar. Þessi tregða bank-
anna var áberandi seinnihluta sum-
ars“, segir m.a. í Hagtölum
Seðlabankans um vaxtaþróun ársins
1990. Þar kemur í ljós að raunvextir
óverðtryggðra lána urðu 12-13%
bæði á fyrsta fjórðungi þessa árs og
þeim þriðja.
Raunvextir hér að framan reiknar
Seðlabankinn út frá vísitölu fram-
færslukostnaðar, eins og hann hefur
gert síðan í febrúar 1989. Reiknaðir
út frá lánskjaravísitölu (eins og al-
gengast er á innheimtuseðlum bank-
anna) eru raunvextir um 0,5% hærri
á þessu ári en að framan greinir.
Á mælikvarða lánskjaravísitölu hafa
raunvextir verðtryggðra lána stöð-
ugt verið að þokast upp á við:
Úr 7,4% að meðaltali í október í
fyrra.
í 7,8% í byrjun þessa árs.
Síðan í 7,9% þegar kom fram á vor-
ið.
Áfram upp í 8% í sumar.
Og enn upp í 8,2% á haustmánuð-
um, eins og þeir eru nú að meðaltali.
Seðlabankinn rifjar upp (oft til vitn-
að) loforð (yfirlýsingu) sem bankam-
ir gáfu við gerð kjarasamninganna í
upphafi ársins, sem tók til þriggja at-
riða: f íyrsta lagi lækkun vaxta al-
mennra skuldabréfa um 7% hinn 1.
febrúar og annarra vaxta til sam-
ræmis. í öðru lagi að íylgja næstu
Ijóra mánuði þeirri reglu við vaxta-
hækkanir að miða við 3ja mánaða
breytingar lánskjaravísitölu (LKV).
Og í þriðja lagi að miða vaxtaákvarð-
anir síðar á árinu við það að ávöxtun
verðtryggðra og óverðtryggðra út-
lána verði sem jöfnust yfir árið.
Vafasamt sjálfshól
hjá „frjálsu“ útvarpi
Siðanefnd um auglýsingar fjallaði í
gær um kæru vegna dreifirits ffá út-
varpsstöðvunum Bylgjunni og
Stjörnunni og unnið var af Auglýs-
ingastofunni Góðu fólki. Niðurstaða
siðanefndarinnar var að brotnar
hefðu verið 4. og 5. gr. siðareglna um
auglýsingar.
Með bréfi hinn 29. nóvember s.I. til
Siðanefndar um auglýsingar lagði
Ríkisútvarpið fram kæru á hendur
útvarpsstöðvunum Bylgjunni og
Stjörnunni fyrir mjög villandi sam-
anburð á útvarpshlustun og gildi
auglýsinga hjá mismunandi útvarps-
rásum í kjölfar könnunar, sem Gall-
up gerði á íslandi í byrjun nóvember.
í bréfinu segir að þessi samanburður
brjóti mjög alvarlega gegn grundvall-
arreglum um sanngimi í samkeppni
og hafi verið birtur í sölubæklingi
Bylgjunnar-Stjörnunnar og í blaða-
auglýsingum. Segir ennfremur að
samanburðurinn byggist á rang-
færslum og fölsunum á niðurstöðum
Gallup.
í niðurstöðu Siðanefndar um kær-
una er það staðfest að siðareglur um
auglýsingar hafi verið brotnar á mjög
alvarlegan hátt af hálfu útvarpstöðv-
anna Bylgjunnar- Stjömunnar með
vísvitandi rangfærslum og fölsunum.
Siðanefndin hefur gert athugasemdir
við auglýsingamar sem kærðar voru.
í fréttatilkynningu frá Siðanefnd seg-
ir að nefndin vænti þess að íslenska
útvarpsfélagið taki athugasemdimar
til greina og noti ekki það efni sem
fundið hefur verið að til frekari kynn-
ingar eða í auglýsingum sínum. khg.
Uppfylling þriðja liðar „loforðsins"
(sem íslandsbanki vísaði m.a. til við
vaxtahækkun í nóvember) þýðir í
raun umtalsverða vaxtahækkun,
vegna þeirra stöðugu hækkana, sem
bankamir hafa gert á vöxtum verð-
tryggðra lána, eins og rakið er hér að
framan.
Nafnvextir óverðtryggðra inn- oi
útlána lækkuðu hratt til 1. apríl.
skuldabréfum t.d. úr 22,2% í febrúar
niður í 14% í aprfl. Breytingar voru
síðan óverulegar þar til í október-
byrjun þegar enn varð um nokkra
lækkun nafnvaxta að ræða. íslands-
banki hækkaði sína vexti svo aftur í
nóvember sem frægt varð.
- HEI
Bankarnir láta ekki að stjórn við framkvæmd þjóðarsáttar.
Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar:
Hart að bankarnir einir
á
„Bankamir virðast alveg standa á
öndinni yfir því að verðbólga hafi
lækkað og óttast bcinlínis um líf sitt
þess vegna. Að fróðra mannayfirsýn
erálitiðaðhagnaðurafrekstribanka
og sparisjóða í heild árið 1990 verði
2,5-3 mlQjarðar. Samt ráðgera bank-
arair nú 1% vaxtahækkun".
Þetta eru orð Guðmundar J. Guð-
mundssonar formanns Dagsbrúnar
og Verkamannasambandsins í gær.
Guðmundur sagði að mjög værí
þungt í launþegum vegna fram-
komu banka og peningastofnana í
þjóðarsáttarmállnu, ekki síst nú
þegar nýbúið værí að framlcngja
samningunum. „Það er hart að í
ÖUu þessu frafári og bardaga um
þjóðarsátt þá skuU einn aðUi sleppa
frá því að taka á sig byrðar vegna
hennar, - bankamir,“ sagði Guð-
mundur og bætti við að það værí
ansi hart að raunvextir skuli vera
jafh háir og þeir eru þrátt fyrir að
lánskjaravísitala hafi hrapað niður.
Guðmundur sagði að bæði vaxta-
hækkanir og tregða bankanna tU að
breyta vÖxtum í samræmi við þjóð-
arsáttina hefði sldlað bönkunum
mjög mUdum tekjum umfram tekj-
ur siðasta árs. En bankarnir ætluðu
ekki að láta þar viö sitja og því væri
uggur í launþegum enda bUkur á
lofti. OKuverð stefnir upp á við, sUd-
arsölusamningar eru tvísýnir og
sama er að segja um loðnuvertfðina.
„Maður gæti búist við að í þessum
slag við að halda verðbólguni niðri
legðu bankarair baráttunni eitthvert
Uð, en það er öðru nær. Þvert á móti
ætla þeir að svara með 1% vaxta-
hækkun. Núna fyrir jólin er víst
meiningin að skella yfir fólk vaxta-
hækkunum en predika svo fyrir öðr-
um að ekkert annað megi hækka.
Ætla þeir að heilsa þannig upp á
okkur eftir að þjóðarsáttin hefúr nú
verið framlengd? Ætía þelr að
standa fyrir hækkuöu vöruverði og
hærri fjármagnskostnaði hjá at-
vinnufyrirtækjum í undirstöðu-
greinum?
Maður spyn Hvað á að segja við lág-
launafólk með 40-60 þús. kr. laun
sem ekki hækka á sama tíma og
bankamir hækka útlánavexti þrátt
fyrir mun betri afkomu en í fyrra?
Vaxtahækkanimar fara nefnilega
beint út í verðlagið að stórum hluta.
Og annað verra: Það vetða alls kon-
ar hækkanir fóðraðar vegna þeirra.
Það er því furðulegt að þeir sem
hvað erfiðast er að fá til að standa við
bakið á markmiöum þjóðarsáttar
eru peningastofnanir, meira að segja
þær þelrra sem eru í eigu ríldsins.
Peningastofnanlmar hafa bókstaf*
lega ekki látið að stjóm.“
Guðmundur gagnrýndi einnig
Seðlabankann fyrir að hafa b'tið beitt
sér í því að halda niðri vöxtum. „Ég
er hræddur um að sfjómendur hans
séu að dunda eitthvað annað,“ sagði
hann.
„En bankamir láta ekki bara við
sitja að heimta síhækkandi raun-
vexti á útlán. Þeir hafa stórhækkað
þjónustugjöld, fjölmörg þeirra um
þjónustu sem áður var ókeypis“.
Guðmundur J. Guðmundsson
fbrmaður Dagsbrúnar: „Eiga
bankamir einir að fá að maka
krókinn meðan aðrir halda í við
sig?“ Tímamynd; Pjetur
Sem dæmi um hið síðastnefnda
sagði Guðmundur að íslandsbanld
hefðl nýlega teklð að innheimta sér-
stakt afgreiðslugjald af launum sem
greidd væru af atvinnurckanda í ís-
landsbanka en sfðan send áfram til
annarrar peningastofnunar. Þá hef-
ur lántökugjald verið hækkað á gild-
istíma þjóðarsáttar úr 1,5% í 1,8%
1. júlí og hjá íslandsbanka í 2% frá
1. septcmber. Við bankasamrunann
um síðustu áramót hækkaði leiga
fyrir bankahólf í gamla Alþýðubank-
anum vlð Laugaveg um 100%. ,4s*
landsbanki er almennt hæstur með
allt nema innlánsvextí,“ sagði Guð-
mundur. —sá
SJUKRAHUSIN VILJA MILJARÐ
í VIÐBÓT Á NÆSTU 5 ÁRUM
í heilbrigðisráðuneytinu liggur fyrir
áætlun frá stjómum þriggja stærstu
sjúkrahúsa landsins. Þessi áætlun
gerir ráð fyrir að fjárveitingar til heU-
brigðismála aukist á föstu verðlagi um
einn miljarð á næstu fimm árum, þ.e.
fari úr 11,8 miljörðum upp í 12,8 mil-
jarða. Þetta kom fram í ræðu sem
Guðmundur Bjamason heilbrigðis-
ráðherra hélt í efri deild í gær, þegar
hann mælti fyrir frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um heilbrigðis-
þjónustu, en í frumvarpinu er gert ráð
fyrir að stofnað verði sérstakt sam-
starfsráð stóru sjúkrahúsanna í
Reykjavík.
í upphafi ræðu sinnar vék Guðmund-
ur að þeim kröfum sem gerðar eru til
heilbrigðisþjónustunnar. Hann upp-
lýsti að á þessum áratug hafa útgjöld til
heilbrigðismála, sem hlutfall af vergri
landsffamleiðslu, aukist úr 6,6% í
8,5%. Svíar eru nú einir Norðurlanda-
þjóðanna með hærra hlutfall en íslend-
ingar. „í þjóðfélagsumræðunni að und-
anfömu hefur nokkuð borið á harðri
andstöðu við aukna skattheimtu, en
jafnframt mjög ákveðnum og hávær-
um kröfum um aukin útgjöld til heil-
brigðismála og að hér sé ávallt veitt hin
besta fíanlega þjónusta með þeim til-
kostnaði sem hún að sjálfsögðu kallar
á.“
Heilbrigðisráðherra sagði erfitt að
samræma þessar ólíku kröfur. Hann
sagðist ekki telja líklegt að heilbrigðis-
mál fai mikið stærri hlut af landsfram-
leiðslu á næstu árum nema að til komi
aukinn hagvöxtur. Hann sagði ólíklegt
að samstaða náist um að auka skatt-
heimtu til að standa straum af viðbótar
útgjöldum til heilbrigðismála.
Guðmundur vitnaði í viðtal sem Tím-
inn átti nýlega við Þórð Harðarson, yf-
irlækni á lyflækningadeild Landspítal-
ans. í viðtalinu segir Þórður m.a. að svo
geti farið að í ffamtíðinni verði íslend-
ingar að sætta sig við að þeir geti ekki
veitt bestu þjónustu, sem völ er á,
vegna vaxandi kostnaðar. Hann minnti
á gífúrlegan Iyfjakostnað einstakra
sjúklinga, en einn sjúklingur Landspít-
alans kostaði á þessu ári um 30 millj-
ónir. Fyrir þessa upphæð væri hægt að
reka öldrunardeild í 4-5 mánuði.
Síðar í viðtalinu vék Þórður að þeim
mikla siðferðilega vanda, sem búast má
við að læknar standi ffami fyrir í fram-
tíðinni, en svo kann að fara að læknar
verði að neifa sumum sjúklingum um
læknismeðferð vegna þess hversu dýr
hún er. Hann sagði slíkar ákvarðanir
vandasamar og sársaukafullar og óvíst
væri hvort íslenskir læknar væru til-
búnir til að axla slíkar ákvarðanir
óstuddir.
Ráðherra vék síðan að sjállú frum-
varpinu og rakti tilurð þess. Hann
sagði mjög brýnt að reyna að auka
samstarf sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Hann sagðist líta á stofnun samstarfs-
ráðsins sem mikilvægt skref í þá átt. í
ffumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðið
verði skipað fimm mönnum, þ.e. for-
mönnum stjóma Landspítala, Borgar-
spítala og Landakotsspítala og tveimur
mönnum skipuöum af ráðherra. Ráð-
herraskipuðu fulltrúamir verða skip-
aðir til eins árs í senn og er það gert svo
að nýr ráðherra geti skipt um þessa
fulltrúa ef honum þykir það nauðsyn-
legL Hinir verða skipaðir til tveggja ára
í senn.
Aðalhlutverk ráðsins á að vera að gera
tillögur um mótun framtíðarstefnu
sjúkrahúsanna þriggja, starfsvið þeirra
og verkaskiptingu. Einnig að gera
áætlanir um fjárfestingar og stuðla
þannig að sem hagkvæmastri verka-
skiptingu milli sjúkrahúsanna í ffam-
tíðinni. Þá er gert ráð fyrir að sam-
starfsráðið fylgist með að sjúkrahúsin
starfi innan þess fiárveitingaramma
sem þeim er settur á fjárlögum. Það á
einnig að skipta fjárveitingum milli
sjúkrahúsanna þriggja.
Undir lok ræðunnar sagði Guðmund-
ur um framtíðarverkefni í heilbrigðis-
þjónustu: „Við þurfum að bæta húsa-
kost, við þurfúm að endumýja tækja-
búnað og við þurfúm að gæta þess að
stofnanimar séu vel mannaðar. Þessu
náum við því aðeins fram að við séum
viss um að skipulagið sé það besta og
hagkvæmasta sem völ er á. Ég er sann-
færður um það sjálfur að það má koma
því betur fyrir heldur en er í dag og
liggja fyrir ýmsar áætlanir því til stað-
festingar."
Deilur urðu um þetta mál í haust, en
heilbrigðisráðherra sagðist telja að all-
flestir málsaðilar væru sáttir við ffum-
varpið í þeirri mynd sem það er í nú.
Hann sagðist vonast til að það verði að
lögum fyrir áramótum. - EÓ