Tíminn - 11.12.1990, Side 3
Þriðjudagur 11. desember 1990
Tíminn 3
Mat Seðlabankans á þróun og horfum í peninga-, gjaldeyris- og gengismálum:
Botninum náð og tekin
að mjakast upp á við
„Bendir flest til þess að botni þeirrar efnahagslægðar, sem þjóðar-
búskapurinn hefur gengið í gegnum undanfarin tvö ár, sé náð, þótt
engin örugg merki almenns afturbata séu enn farin að koma fram,“
segir í nýrri greinargerð Seðlabankans um þróun og horfur í efna-
hagsmálum, sem á þessu ári hafi einkennst annars vegar af stöðn-
un í framleiðslu og hins vegar af góðu jafnvægi milli framboðs og
eftirspumar.
Verðhækkun sjávarafurða og
nokkur merki aukinnar eftirspurn-
ar eftir innflutningi og vinnuafli á
síðari hluta ársins rennir stoðum
undir spár um hægfara aukningu á
þjóðarframleiðslu á næsta ári. Telj-
andi hagvöxt sér Seðlabankinn
ekki í náinni framtíð, nema að ný
stóriðja eða önnur tækifæri til
hagvaxtar komi til.
Með hinni víðtæku sátt í kjara-
málum og aðgerðum ríkisvaldsins
til að standa við hana, „hefur um
sinn verið lögð tryggari kjölfesta
að stöðugleika í verðlagsþróun en
oftast áður“, segir Seðlabankinn.
Árangurinn hafi þegar komið fram
í því að verðbólga sé komin niður í
7- 8%, frá upphafi til loka þessa
árs, og eigi að geta haldist nálægt
þeim mörkum út samningstímann.
„Hjöðnun verðbólgunnar á þessu
ári markar tímamót í efnahagssög-
unni hér á landi."
Seðlabankinn segir mikilvægt að
þetta reynist upphafið að varan-
legri jafnvægisstefnu í efnahags-
málum. íslendingar eygi nú í fyrsta
skipti um langan aldur, að hægt er
að ná því markmiði að verðbólga
hér á landi verði svipuð og meðal
annarra iðnvæddra þjóða.
Eigi þetta að takast verði menn
bæði að gefa verðstöðugleika meiri
forgang sem markmiði í stjórn
efnahagsmála en gert hefur verið
um langt skeið og jafnframt að
draga réttar ályktanir af þeim ár-
Reykjavík:
Kveikt á
Óslóar-
trénu
Það var mikið fjölmenni á Austur-
velli á sunnudag, þegar Ijósin voru
tendruð á „Óslóarjólatrénu", jóla-
tré sem Óslóarbúar gefa Reykvík-
ingum. Það var norski sendiherr-
ann sem afhenti tréð og Magnús L.
Sveinsson, forseti borgarstjórnar,
tók við því fyrir hönd Reykvíkinga.
Að því loknu brugðu jólasveinar á
leik og skemmtu viðstöddum með
söng og leik. Jólasveinarnir eru að
vísu aðeins á undan áætlun, því
þeir eiga ekki að koma til byggða
fyrr en á morgun, 12 desember, og
því viðbúið að þeir hafi skroppið í
bæinn í leyfisleysi. Engu að síður
skemmtu börn og fullorðnir sér
konunglega.
Það var fjölmenni sem fylgdist
með því þegar Ijós voru kveikt á
„Óslóartrénu“ og kjörið tækifæri
fýrir þá sem ætla að verða lögg-
ur þegar þeir verða stórir, að
æfa varðstöðustellingamar inn-
anvið kaðalgirðinguna.
Timamynd: Pjetur
Jólasveinamir eru sivlnsælir, jafnvel þó þeir séu full snemma á ferðinni. Timamynd Pjetur
angri sem náðst hefur.
Gengismálin segir Seðlabankinn
hafa verið í góðu jafnvægi að und-
anförnu, jafnframt því sem
greiðsluhalli við útiönd hafi verið
tiltölulega lítill bæði í ár og í fyrra.
Sú stefna stöðugleika í gengismál-
um, sem fylgt hefur verið um eins
árs skeið, virðist því ekki í mikilli
hættu í náinni framtíð. Umræða
um framtíðarstefnu í gengismál-
um sé þó nauðsynleg, þar sem hún
geti skipt sköpum við nýja kjara-
samninga haustið 1991. ítrekar
Seðlabankinn þá skoðun, að stöð-
ugt gengi sé æskileg meginfor-
senda í stjórn peningamála hér á
landi.
„Mjög örar breytingar hafa orðið
undanfarin ár á starfsemi lána-
markaðarins í heild, þar sem verð-
bréfaviðskipti og frjáls markaðs-
ákvörðun vaxta skiptir æ meira
máli.“ Seðlabankinn segir mikla
lánsfjárþörf ríkissjóðs mjög hafa
sett svip sinn á markaðsþróunina.
Innlend fjármögnun á halla ríkis-
sjóðs og markviss samdráttur á
lántökum hjá Seðlabanka dragi
hvort tveggja úr þeirri hættu að
halli ríkissjóðs leiði til innlendrar
peningaþenslu.
Hve mjög hefur dregið úr láns-
fjáreftirspurn fyrirtækja segir
Seðlabankinn meginástæðu þess
að ríkissjóður hafi getað aflað mik-
ils lánsfjár í bankakerfinu án veru-
legrar útþenslu og peningamynd-
unar. Fyrirtækin hafi dregið veru-
lega úr fjárfestingum og þess í stað
lagt megináherslu á fjárhagslega
endurskipulagningu og lækkun
skulda. Almennt hafi fjárhagsstaða
fyrirtækja batnað á þessu ári, þótt
mörg eigi enn mikil vandamál
óleyst, einkum vegna offjárfesting-
ar og skuldasöfnunar, sem rekja
megi til þensluáranna 1986 og
1987.
Seðlabankinn telur hins vegar
óæskilegt að hlutur ríkissjóðs í út-
lánum bankakerfisins vaxi að ráði
frá því sem nú er, ef bankarnir eigi
að geta þjónað atvinnulífinu með
eðlilegum hætti þegar efnahags-
starfsemin glæðist á ný. Verði því
að reikna með að ríkissjóður þurfi
að fjármagna greiðsluhalla sinn í
vaxandi mæli með almennri verð-
bréfasölu utan bankakerfisins á
næstu árum.
- HEI
Hitaveita Reykjavíkur:
ORSÖKIN ÓFUNDIN
Sigfus Halldórsson, sem löngu er orðinn landskunnur af lögum sín-
um, hefúr opnað málverkasýningu á Kjarvalsstöðum. Sýningin er
haldin í tilefni af því að í haust varð iistamaðurinn sjötugur. Um er að
ræða sýningu á rúmlega 100 vatnslitamyndum sem Sigfus hefur
málað af mannlífi og mótívum úr Reykjavík. Sýningin var formlega
opnuð um helgina og voru þeir fjölmargir sem komu til þessarar
veislu. Lúðrasveit Reykjavíkur lék nokkur af lögum Sigfúsar og eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd höfðu þau Sigfús og kona hans nóg
að gera við að taka á móti gestum. Timamynd: ge
Eins og kunnugt er bárust yfir
500 kvartanir til Hitaveitu Reykja-
víkur yfir helgina og héldu þær
áfram að berast í gær, en yfir 100
kvartanir bárust í gærmorgun.
Flestar kvartanimar hafa komið frá
íbúum Hafnarfjarðar, Garðabæjar
og Kópavogs. Líklega er um að
ræða stíflu sem heftir rennsli og
var enn verið að leita að rót vandans
í gær.
Gunnar H. Kristinsson hitaveitu-
stjóri sagði í samtali við Tímann í
gær að „vinnuhópar frá Hitaveit-
unni eru við skoðanir og mælingar
en niðurstaða hefur ekki borist enn,
en ég vonast eftir henni fyrir kvöld-
ið“. Ekki er því enn vitað hversu víð-
tækur vandinn er. Ástandið hefur þó
eitthvað lagast samfara minni notk-
un sem kemur í kjölfar hlýrra veð-
urs, sagði Gunnar. Gunnar sagði
jafnframt að hér væri ekki um að
ræða þær magnesíumútfellingar og
óhreinindi sem hafa borist frá Nesja-
vallavirkjun.
Viðgerðir við Miklubraut og Álf-
hólsvegi í Kópavogi, sem stóðu yfir
nú um helgina, voru á venjulegum
ryðskemmdum, að sögn Gunnars,
og eru því ekki í tengslum við skort
á heitu vatni sem er ástæðan fyrir
meirihluta þessara kvartana.
—GEÓ
DÚA leikfangabílarnir landsþekktu eru úr tré.
Pöntunarsími 94—8181. Sendum hvert á land sem er.
Leikfangaverksmiðjan ALDA HF., Þingeyri Dýrafirði, sími 94-8181