Tíminn - 11.12.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 11. desember 1990»
Tíminn 13
Þijár nýjar frá Björk:
* Áf/M ;
i-
HJÁAFAOG
ÖMMU
HRCSmmSZSSSSSSSmQSSSSIHÍ
l»RÍR LITLiR
GRÍSIR
Hjá afa og ömmu
Þrír litlir grísir
Draumalandið
komu allar út í haust í fyrsta sinn. Þær eru í
bókaflokknum Skemmtilegu smábamabækumar,
sem eru hinar vinsælustu fyrir lítil börn er fyrirfmnast
á bókamarkaðnum, enda valdar og íslenskaðar af
hinum færustu skólamönnum og prentaðar í mörgum
litum. Nokkrar þeirra hafa komið út í áratugi og eru þó
alltaf sem nýjar.
Fást í öllum bókaverslunum og heita:
1. Bláa kannan
2. Græni hatturinn
★ 3. Benni og Bára
4. Stubbur 8. útg.
5. Tralli
6. Stúfur
7. Láki
8. Bangsi litli
9. Svarta kisa
★ 10. Kata
11. Skoppa
12. Leikföngin hans Bangsa
13. Dísa litla
14. Dýrin og maturínn þeirra
* 15. Kallisegirfrá
16. Geitumar þrjár
17. Gettu hver ég er
18. Dýrín á bænum
19. Tommi er stór strákur
20. Kötturínn Branda
21. i heimsókn hjá Hönnu
22. Litla rauða hænan
23. Hjá afa og ömmu
24. Þrír litlir grísir
25. Draumalandið
* Ekki til eins og er
Fallegar - Vandaðar - Ödýrar
Aðrar bækur fýrír böm:
Húsið mitt, Kata IHJa og brúðuvagninn
Mídas konungur, Nýju fötin keisarans
Bókaútgáfan Björk
VETRARHJÓLBARÐAR
Nýir
fólksbflahjólbarðar
HANKOOK frá Kóreu
Gæðahjólbarðar á mjög
lágu verði frá kr. 3.180,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 91-84844
BÍLALEIGA
með útibú allt (kringum
landið, gerir þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akuneyri
96-21715
Pöntum bíla eriendis
interRent
Europcar
Tilkynning frá
Atvinnutryggingarsjóði
útflutningsgreina
Eigendum verðtryggðra skuldabréfa Atvinnu-
tryggingarsjóðs útflutningsgreina er bent á, að
síðasti gjaiddagi vaxta og verðbóta á þessu ári
var 1. desember sl. Frá gjalddaga, þartil greiðslu
er vitjað, greiðir Atvinnutryggingarsjóður útflutn-
ingsgreina hvorki vexti né verðbætur, vegna
hækkunar á lánskjaravísitölu.
Eigendum bréfa, sem enn hafa ekki vitjað
greiðslna, vegna gjalddaga á yfirstandandi ári, er
góðfúslega bent á að gera það sem fyrst.
Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina,
Rauðarárstíg 25, Reykjavík. Sími 605400.
SPEGILL
¥
„Eg er ekki lesbísk,"
segir Whitney Houston
Poppsöngkonan Whitney
Houston er ofsareið þessa
dagana og er það ekki von-
um fyrr. Arum saman hefur
sú saga gengið að hún sé
lesbísk og hingað til hefur
hún látið orðróminn eiga
sig, enda margoft lýst því yf-
ir að hún hafi alls ekki hugs-
að sér að giftast — nokkurn
tíma.
Nú hefur Whitney snúist hugur.
Hana er farið að dreyma um að
eignast mann og börn, enda orðin
27 ára. „En það vill enginn maður
kynnast mér náið vegna þessarar
kjaftasögu," segir hún döpur í
bragði.
Reyndar gerði Whitney tilraun til
að kveða niður þennan orðróm í
viðtali sem birtist í vikuritinu Time
fyrir þrem árum. En það hefur ekki
dugað ti! og sérlega lífseig er sagan
um að hún hafi staðið í þríhyrn-
ingsástarsambandi við tvær lesbí-
skar leikkonur 1988. Sú saga var á
þá leið að þegar önnur leikkonan
frétti að hin stæði í ástarsambandi
við Whitney kom til handalögmáia
milli þeirra sem enduðu með því að
tvær tennur voru brotnar úr þeirri
ótrúu. Þessi saga hefur aldrei verið
staðfest, en Iifir stöðugt góðu lífi.
Nú hefur Whitney gripið til þess
ráðs að eiga hispursiaus og hrein-
skilin viðtöl við blöðin Fame og
Life þar sem hún neitar því að
nokkur fótur sé fyrir því að hún sé
lesbísk. Með þessu móti gerir hún
sér vonir um að kveða kjaftatífurn-
ar í kútinn í eitt skipti fyrir öll og
eiga nú auðveldara með að ná sér í
mann og eignast börn.
„Ég vil eignast mann og böm,“
segir Whitney Houston og gefur
út yfirlýsingar um að hún sé ekki
lesbísk.
Krakkar í New York fara nú í
skólann í skotheldum fatnaði
Lögguleikur er nú enginn Ieikur
lengur í New York. Þar ríkir nú slík
óöld, að foreldrar eru farnir að
senda börn sín í skólann í skot-
heldum fatnaði.
Almenningur varð skelfingu lost-
inn sl. sumar þegar átta lítil börn
voru skotin til bana án alls tilefnis
og voru öll tilfellin rakin til eitur-
lyfjaneyslu. Því var þess vegna tek-
ið opnum örmum þegar tekið var
til við að selja skotheldan varning í
verslunum. Nú má fá þar jakka,
vindúlpur og jafnvel skólatöskur,
regnhlífar og skrifmöppur, reyndar
allan þann skóiabúnað sem boðið
er upp á í stórverslunum. Einn
þeirra sem selur þennan skothelda
varning segist fá allt að 1000 fyrir-
spurnir á dag frá áhyggjufullum
foreldrum.
Eins og nærri má geta er hér ekki
um ódýrar vörur að ræða. Jakkar,
fóðraðir Kevlon 129, sama efni og
lögreglan notar í fatnað sinna
manna, kosta 450 dollara og 400
dollara kosta ungbarnateppi úr
sama efni.
En foreldrar horfa ekki í aurana
þegar um það er að ræða að vernda
börnin sín.
„Það er ekki hægt að kaupa nýtt
barn,“ segja þeir.
Tveir ungir félagar á leið í skólann í skotheldum fötum.