Tíminn - 11.12.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 11. desember 1990
Tólf hafnfirskir listamenn
kynna verk sín
í kaffistofu Hafnarborgar
Tólf hafnfirskir myndlistanncnn kynna
vcrk sín í kaffistofu Hafharborgar, mcnn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
Ekkcrt gallcrí cr starfrækt í Hafnarfirði
cnn scm komið cr, og nota listamennimir
því þcssa lcið til þcss að minna bæjarbúa
á að öflugt myndlistarstarf blómgast i
Firðinum. Það er von listamannanna að
þctta gcti orðið vísir að listagallcrii, Hafh-
firðingum og öðrum sem þangað koma til
gagns og gleði.
Vinnuslofur listamannanna cru einnig
opnar áhugasömum listunncndum. Starf-
scmi þcirra og cfnisval cr margbrcytilegt.
Þcir vinna að höggmyndalist, leirlist,
grafik, tcxtíl og málun. Listamennimir
benda á að hcntugt væri að gestir á vinnu-
stofur hringdu og boðuðu komu sína.
Kynningin í kaffistofu Hafharborgar
vcrður opin fram á Þorláksmessu.
Listamennimir em: Kristrún Ágústsdótt-
ir, Elín Guðmundsdóttir, Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Jóna Guðvarðardóttir,
Janos Probstner, Sigríður Erla, Sigríður
Ágústsdóttir, Pétur Bjamason, Rúna,
Gcstur Þorgrímsson, Gunnlaugur Stcfán
Gíslason og Sverrir Ólafsson.
Kaffistofan cr opin alla daga frá kl. II-
19.
I Svcrrissal cr sýning á vcrkum úr safni
Hafharborgar.
Árbæjarkirkja
Starf fyrir cldri borgara: Lcikfimi í dag
kl. 14. Hárgrciðsla hjá Hrafnhildi á
þriðjudögum. Opið hús á morgun mið-
vikudag kl. 13.30. Bamakór ffá Árbæjar-
skóla syngur. Fyrirbænastund miðviku-
dagkl. 16.30.
Breiöholtskirkja
Bær.aguðsþjónusta í dag kl. 18.30. Fyrir-
bænaefnum má koma á ffamfæri við
sóknarprcst f viðtalstímum hans þriðju-
daga til föstudaga kl. 17-18.
Dómkirkjan
Þriðjudagur 11. dcsembcr kl. 17: Opið
hús í safnaðarheimilinu fyrir stóra krakka
(11-12 ára). Miðvikudagur 12. dcsember
kl. 10: Samvera í safhaðarheimilinu fyrir
foreldra tuigra bama (Mömmumorgnar).
Rætt um aðventuna og jólahaldið.
Grensáskirkja
Kirkjukaffi í Grcnsási í dag kl. 14. Sr.
Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
Seljakirkja
Mömmumorgun. Opið hús kl. 10.
Tónleikar Háskólakórsins
í Hafnarborg
Háskólakórinn hcldur tónlcika í mcnn-
ingarmiðstöðinni Hafharborg í Hafnar-
firði föstudaginn 14. desember klukkan
20.30. Þetta em fyrstu tónleikar kórsins
mcð Fcrenc Utassy við stjóm, cn hann tók
við kómum í haust af Guðmundi Óla
Gunnarssyni.
Á efnisskrá tónleikanna er meðal annars:
* „Nanie“ eftir Johannes Brahms.
* ítalskir, ffanskir og þýskir madrigalar
m.a. eftir Monteverdi og Gcsualdo.
* íslensk þjóðlög og ættjarðarlög.
Jónas Ingimundarson píanólcikari mun
taka þátt f flutningi „Nanie“ eftir Brahms
mcð kómum. Aðgangseyrir á tónleikana
vcrður krónur 800,- og allir em hjartan-
lega velkomnir.
Kvenfélags Kópavogs
Spilað vcrður í kvöld, þriðjudag, i Fé-
lagsheimili Kópavogs. Byijað verður að
spila ld. 20.30. Allir vclkomnir.
Frá Félagi eldri borgara
Opið hús i dag, þriðjudag, í Risinu,
Hverfisgötu 105, ffá kl. 14.
Nk. föstudag, 14. desembcr, verður hald-
inn dansleikur í Risinu kl. 20.30. Lokað i
Goðheimum við Sigtún vcgna jólaleyfis
frá og með 17. dcsember. Opnað aflur
sunnudaginn 6. janúar. Risið við Hverfis-
götu verður lokað vegna flutninga ffá 17.
dcsember. Opnað aftur að Hverfisgötu
105, 2. jan. 1991.
Jólavaka Barnabókaráðsins
Bamabókaráðið, íslandsdcild IBBY,
býður til jólavöku i Norræna húsinu
sunnudaginn 16. desembcr, kl. 16. Á dag-
skrá verður upplestur úr bamabókum,
söngur og hljóðfæraleikur. Allir em hjart-
anlcga velkomnir og aðgangur ókeypis.
Ökevpis
HÖNNUN
auglýsingar
ÞEGAR ÞÚ
AUGLÝSIR í
Tímanum
AUGLÝSINGASÍMI
680001
Robin
OG
dælur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gott verð
Rafst.: 600-5000 W
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf
Sævarhöfða 2
Sími 91-674000
Guörún Kristjánsdóttir
sýnir olíumálverk í Finnlandi
Fimmtudaginn 22. nóvcmbcr s.l. var
opnuð sýning á verkum Guðrúnar Krist-
jánsdóttur myndlistarmanns í einum virt-
asta sýningarsal Norðurlanda, Gallcry
Persons & Lindcll, scm cr í miðborg
Hclsinki. Á sýningunni em 12 vcrk, öll
unnin með olíu á striga. Stærð verkanna
er mjög mismunandi, allt ffá 90 x 65 cm
upp í 110 x 600 cm.
Þctta cr í fýrsta sinn scm íslendingi cr
boðið að vcra með einkasýningu í þessum
sal, en áður hafa vcrið haldnar þar tvær
samsýningar islcnskra listamanna. Á
þcssu ári hafa þckktir listamcnn, s.s. Don-
ald Judd, Olivcr Whitchcad, Mafti Kuja-
salo og Lars-Gunnar Nordström, sýnt í
Gallety Persons & Lindcll.
Guðrún var við nám í Myndlistaskóla
Reykjavíkur og Ecole des Bcaux Arts í
Aix-en-Provencc í Suður-Frakklandi.
Hún hcfur haldið einkasýningar, hér
heima og crlcndis, og tckið þátt í fjölda
samsýninga.
í febrúar nk. hefúr hcnni vcrið boðið að
sýna í Gallcry Orpheus i Eskilstuna í Sví-
þjóð.
Sýning Guðrúnar stendur til 13. dcscm-
bcr.
/------------
1í
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
Drengs Guðjónssonar, bónda
Fremstuhúsum, Dýrafirði.
María Vagnsdóttir
Hermann Drengsson
Bjöm Drengsson Björk Ingadóttir
Guðbjörg Drengsson Þröstur Ólafsson
MINNING
Pétur M. Guðjónsson
múrari
Fæddur 12. desember 1922
Dáinn 1. desember 1990
Okkur systkinunum langar að
minnast móðurbróður okkar, Pét-
urs Guðjónssonar, sem lést á St.
Jósepsspítalanum í Hafnarfirði eftir
langvarandi sjúkdóm. Pétur fædd-
ist að Hrygg í Hraungerðishreppi,
sonur hjónanna Guðjóns Sigurðs-
sonar og Kristínar Láru Gísladótt-
ur. Hann átti stóran systkinahóp
sem eru: Guðmunda, Sigurður, dá-
inn 10. september 1988, Gísli, Ásta,
Ágúst, Guðrún og Þorbjörg og var
Pétur þriðji yngstur. Eiginkona
Péturs var Lilja Lárusdóttir sem
lést 12. desember 1985 og áttu þau
tvö börn, þau Lárus Arnar tann-
lækni, f. 21. október 1946, og Sól-
rúnu kennara, f. 17. júní 1948. Lár-
us er giftur Svanhildi Thorstensen
og eiga þau þrjú börn, þau Pétur
Atla, Lilju Björk og Huldu Klöru,
sem voru sólargeislar afa síns og
ömmu.
Það er margs að minnast þegar lit-
ið er yfir farinn veg. Pétur bjó ásamt
fjölskyldu sinni á Laugateignum og
minnumst við þess þegar við kom-
um þangað á 17. júní, afmælisdag
Sólrúnar, að þá voru teppin rúlluð
upp og svo var stiginn dans öllum til
mikillar skemmtunar. Síðan flytjast
þau í Gnoðarvoginn þar sem þau
bjuggu lengst af. Var mikill sam-
gangur okkar á milli, enda stutt að
fara. Það var alltaf gaman að koma
til þeirra og móttökurnar ávallt hlý-
legar og allir velkomnir. Það var
mikil tilhlökkun hjá okkur þegar
leið að gamlárskveídi, því það var
föst venja að fagna nýju ári í Gnoð-
arvoginum. Þar var mannmargt og
glatt á hjalla, sungið, spilað á spil og
spilað „púkk“. Pétur var tíður gestur
á heimili okkar í Eikjuvoginum og
er skemmst að minnast sunnudags-
morgnanna, en þá sat hann gjarnan
í eldhúsinu yfir kaffibolla og ræddi
um heima og geima. Hann var alltaf
hrókur alls fagnaðar, skemmtilegur,
söngelskur, hlýr og hjálpfús. Hann
var mannblendinn og átti marga
vini, unga sem aldna. En það sem
einkenndi Pétur umfram annað var
hin mikla ósérhlífni og neitaði hann
ógjarnan mönnum er til hans leit-
uðu.
Við kveðjum elskulegan frænda
með söknuði og þökkum ánægju-
iegar stundir.
Elsku Lillý, Lárus, Svanhildur,
Pétur Atli, Lilja Björk og Hulda
Klara, við sendum ykkur innilegar
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Péturs
frænda.
Áslaug, Guðjón,
Kristín Lára og Björg.
Guðmundur Guðmundsson
vélstjóri frá Vífilsmýrum
Guðmundur Guðmundsson vél-
stjóri andaðist 29. nóvember s.l.
Hann var fæddur á Vífilsmýrum í
Önundarfirði 12. apríl 1916, hið
þriðja í aldursröð 9 systkina. For-
eldrar hans voru hjónin Guðmund-
ur Ágúst Jónsson og Guðjóna Jóns-
dóttir Ijósmóðir, en þau bjuggu þá á
Vífilsmýrum og lengi síðan. Guð-
mundur var sunnlenskur maður,
fæddur í Hrafnshúsum í Grindavík
en ættaður úr Biskupstungum.
Guðjóna var dóttir Jóns bónda á Víf-
ilsmýrum Jónssonar, Ebenesersson-
ar og konu hans Ólafar Jónsdóttur,
Nikulássonar.
Guðmundur ólst upp á heimili for-
eldra sinna fram yfir fermingu, en
upp frá því lágu leiðir hans að sjón-
um. Varð hann í fyrstu háseti á vél-
bátum á Flateyri. Hann tók vél-
stjórapróf og var næstu árin eftir
það sjómaður á ísafirði. Þar kvænt-
ist hann 1941 Stellu Árnadóttur
skipstjóra Magnússonar. Þau eign-
uðust einn son, Árna bifvélavirkja.
Stella andaðist 1955.
Guðmundur flutti frá ísafirði til
Reykjavíkur og var vélstjóri á fiski-
skipum og farskipum. Hann giftist
aftur 1957, Solveigu Sæmundsdótt-
ur. Þau eignuðust dóttur, Stellu
húsfreyju í Reykjavík.
Þau Guðmundur og Solveig skildu,
en síðar giftist hann í þriðja sinn.
Síðasta kona hans er Guðbjörg Hall-
dórsdóttir frá Bæjum á Snæfjalla-
strönd.
Eftir að Guðmundur hætti sjóferð-
um vann hann talsvert við kælibún-
að og frystitæki og gegndi ýmsum
störfum öðrum.
Ég man vel eftir Guðmundi í
bernsku heima í Önundarfirði, en
sex ára aldursmunur er verulegt bil
á þeim hluta ævinnar. Ég vissi að
hann hafði góðar námsgáfur, hafði
yndi af vísum, tók vel eftir þeim og
ýmsum fróðleik og sögnum sem
þeim tengdust. En svo liðu áratugir
án frekari kynningar.
Þá vill svo til að á efri árum liggja
leiðir okkar saman. Guðmundur vr
þá næturvörður hjá Alþingi. Vinnu-
tíma hans Iauk klukkan 8 að
morgni. Þá var minn vinnudagur
byrjaður í Þórshamri. Stundum
voru rólegir morgnar og þá kom fyr-
ir að Guðmundur hinkraði við og
bar þá margt á góma. Þá kom í ljós
að í raun vorum við enn sveitungar
og höfðum alltaf verið.
Guðmundur var mjög vel lesinn í
íslenskum bókmenntum og mun
vandfundinn maður handgengnari
íslenskum kveðskap en hann var.
Kunningjar hans auðkenndu hann
stundum frá öðrum Guðmundum
með viðurnefninu ljóðasjóður.
Hér vil ég minnast 10 daga ferðar
kringum land á útvegi Ferðaskrif-
stofu ríkisins sem við Guðmundur
vorum báðir í ásamt konum okkar.
Þá kom í Ijós hversu vel hann þekkti
land okkar og sögu þess, enda þótt
hann hefði aldrei fýrri litið suma
sögustaðina. Það var ákjósanlegt að
hafa slíkan förunaut.
Slíkur samferðamaður er kvaddur
með söknuði en jafnframt með
þakklæti fyrir samfylgdina. H.Kr.