Tíminn - 11.12.1990, Page 16
AUGLÝSINGASÉMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Tryggvogotu,
S 28822
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
SUBARU
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Slml 91-674000
Iímiiin
ÞRIÐJUDAGUR11. NÓVEMBER1990
G -ramfærsluvísitalan mælir 4-5% verðbólgu síðasta hálfa árið:
l\ a ■ :i ii r á sama \ re r ð ■ i og
í byrjun þjóðarsáttar
Verð á matvælum í byrjun jólamánaðar er hið sama að meðaltali
eins og það var við upphaf þjóðarsáttar í febrúar s.l.f samkvæmt
mælingum vísitölu framfærslukostnaðar. Rúmlega 1% lækkun
varð á matvörulið vísitölunnar milli nóvember og desember.
Mest varð hún á sykri, sem lækkaði um 16%, og ávöxtum og
grænmeti sem lækkaði um tæplega 7%. Liðurinn mjólkurvörur
og egg lækkaði einnig, sömuleiðis feitmeti og kaffi og súkkulaði.
Á hinn bóginn hækkaði verð á kartöflum um 4%, mjölvörum um
1% og örlítil hækkun varð á kjötvörum og fiski.
Framfærsluvísitalan í desember
mældist 148,6 stig, sem er tæplega
0,3% hækkun frá byrjun nóvem-
bermánaðar. Þriðjung þeirrar
hækkunar er að rekja til nýlegrar
verðhækkunar á áfengi og tóbaki.
Nokkur hækkun varð einnig á
„jólavörum11, svo sem fatnaði, hús-
gögnum og eldhúsáhöldum og
ýmsu fleiru sem vinsælt er til
gjafa. Þar á móti kom hins vegar
fýrrnefnd verðlækkun á matvör-
um.
Hækkun framfærsluvísitölunnar
í desember svarar til aðeins rúm-
lega 3% verðbólgu á heilu ári og
síðasta hálfa árið hefur verðbólga
verið rúmlega4%.
Frá desember í fýrra hefur verð-
Iag hækkað um rúmlega 7% að
meðaltali. Verðhækkanir eru hins
vegar mjög mismunandi á einstök-
um liðum. Segja má að verð á
brýnustu nauðsynjum hafi hækk-
að lítið, en ýmislegt sem auðveld-
ara er að vera án hækkað margfalt
meira:
Símakostnaður og bækur eru nú
umtalsvert ódýrari en í desember í
fýrra. Verð á matvælum hefur að-
eins hækkað um tæplega 2% á
heilu ári. Og orku- og húsnæðis-
kostnaður er aðeins um 3% hærri
en fýrir ári.
Áfengi og tóbak hefur hækkað um
rúmlega 6% og kostnaður við
rekstur einkabílsins um rúmlega
7%.
Snyrtivörur og snyrting eru á
hinn bóginn 10% dýrari en fýrir
síðustu jól. Húsgögn og margs
konar hlutir fýrir heimilið hafa
hækkað um rúmlega 12% á sama
tíma. Jólafötin eru nú 14% dýrari
en í fýrra. Og þjónusta veitinga-
húsa og hótela er 19% dýrari en í
byrjun desember í fýrra.
- HEI
Ungir afbrotamenn í Garðabæ grunaðir
um fjölda glæpa, meðal annarra nauðgun:
Unglingagengi í
yfirheyrslu RLR
Mál nokkurra 16 til 18 ára drengja
úr Garðabæ hefur veriö til meðferð-
ar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
að undanfomu. Drengirair eru
meðal annars taldir hafa nauðgað
stúlku á svipuðu reki, ásamt fleiri
afbrotum sem þeir hafa framið í
Garðabæ og nágrenni undanfarið.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Tíminn hefur aflað, er hér um
þrjá drengi að ræða á aldrinum sex-
tán til átján ára. Þeir voru teknir til
yfirheyrslu Rannsóknarlögreglunn-
ar í vikunni vegna ákæru um nauðg-
un á stúlku á svipuðum aldri, en sá
atburður gerðist fýrir stuttu síðan í
Garðabæ. Við þá yfirheyrslu munu
þeir hafa viðurkennt að hafa framið
ýmis afbrot í sameiningu í Garðabæ
og nágrenni undanfarið, innbrot og
þjófnað eitthvað aftur í tímann.
Vitað er að lögreglan hefur þurft að
hafa afskipti af þessum drengjum í
nokkurn tíma vegna ýmiss konar af-
brota og þeir munu ekki vera byrj-
endur í slíkri ástundun. „Þeir hafa
fengið að valsa mikið um, þessir
sveinar, og hafa valdið hálfgerðu
vandræðaástandi í Garðabæ og tölu-
vert hefur borið á kvörtunum frá
fólki sem býr við Garðatorg vegna
óláta þar,“ sagði einn viðmælandi
Tímans um þetta mál.
Rannsóknarlögreglan hefur eins og
áður sagði haft piitana í yfirheyrslu
nú í vikunni vegna nauðgunar í
Garðabæ. Þórir Oddsson vararann-
sóknarlögreglustjóri vildi þó ekki
segja neitt um þetta mál í samtali
við Tímann, en sagði að eðli málsins
samkvæmt yrðu mál af þessu tagi
rekin fýrir luktum dyrum, bæði fýrir
dómi og hjá lögreglu.
Álmálið:
Þokast í rétta átt
Samningar um byggingu álvers á
Keilisnesi þokuðust í rétta átt á fund-
um sem fulltrúar stjómar Lands-
virkjunar og álfyrirtækjanna þriggja í
Atlantsál-hópnum áttu um helgina.
Fundimir fóru fram í borginni Atl-
anta í Bandaríkjunum. Jón Sigurðs-
son iðnaðarráðherra hefur látið svo
ummælt að ef ekki verði verulegur
árangur af þessum fundum, sé hætta
á að ekki verði hægt að undirrita ál-
samningana næsta vor, eins og ráð-
gert hefur verið.
Þau efnisatriði sem einkum voru
rædd á fundunum í Atlanta vora end-
urskoðunarákvæði og ábyrgðarmál.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í
gær í útvarpsviðtali á Bylgjunni að
það stæði ekki síst á erlendu álfýrir-
tækjunum að ná samkomulagi. Fyrir-
tækin ættu eftir að samræma sjónar-
mið sín á milli. „Því hefúr verið hald-
ið að fólki að þetta væri allt klappað
og klárt, en það er fjarri öllu lagi að
það hafi verið.“
Það er fleira heldur en ágreiningur
íslenskra stjómmálamanna sem get-
ur haft áhrif á framgang álmálsins.
Eitt þeirra eru aðstæður á eriendum
lánamörkuðum. Persaflóastríðið hef-
ur gert það að verkum að þar era að-
stæður nú breyttar. Erfiðara er að fá
lán og vextir hafa hækkað. Þetta getur
haft áhrif á framgang málsins. -EÓ
teljí ioðdýr braoður og systur manna. Ttmamynd Ami ejama
Loðdýravinir láta til sín taka á íslandi i fámennum
mótmælum gegn pelsasýningu. Loðdýravinir staðhæfa:
.Mundu, viðtakandi góður, að hentuþeimbréfþarsemskoraðer Bréfiö hefur að geyma ýmsar
kærleikur og virðing fýrlr öllu lífi í á fólk að kaupa eldd pcls. Kröfu- upplýsingar um villt og alin Ioð-
hvaða formi sem er, loðdýranna spjöid voru þar einnig á ioftl. í for- dýr, m.a. um hveraig dýrunum er
ekki síst, sem fáa sem enga tals- svari fýrir hópnum var Magnús H. lógað. Talað er um að dýrin búi við
menn eiga sér opinberlega hér, er Sfearphéðlnsson, en hann er best „ómannúðlegar aðstæður**. Undir
með göfugustu maricmiðum lífs þekktur fyrir baráttu fyrir friðun lok bréfsins er spurt: „Var okkur
hvers hugsandí og kærleiksriks hvala. ekki kennt að við ættum að gæta
manns.“ í bréfi loðdýravina er fólk hvatt yngri bræðra okkar og systra, ekki
Þetta er brot úr bréfi sem „Loð- tll þess að bunsa sýninguna og síst hinna smæstu? Og var okkur
dýravinir" sendu fjölmiölum í einnig að kaupa ekki loðdýrakápur ekld einnig kennt að við ættum
gær. Tilefnlð var að efnt var til eða aðrar afurðir ioðdýra. Minnt er aldrei að gera nelnum það sem við
sýningar á loðfeldum á Hótel Sögu á að hin síðustu ár hafi milljónir vildum ekki að okkur væri gert?“
í gær. Fimm eða tex loðdýravinlr „dýravina um allan heim og annað Svari hver iyrir aig.
stóðu fyrir utan Hótel Sögu þegar góöhjartað íólk“ teldð höndum -EÓ
sýningargestir streymdu að og af- saman og hætt að kaupa loðkápur.