Tíminn - 19.01.1991, Qupperneq 12
20 Tíminn
Laugardagur 19. janúar 1991
Robert Macauley, stofnandi og aðalsprautan í AmeríCares (3. f.v.), ásamt vini sínum George Bush fýlgja gjafasendingu á neyðarsvæði.
Bandarísk hjálparstofnun með pólitíska stefnu:
AmeriCares
nýtur bless-
unar
Sjónvarpsmyndatökuvélar skjal-
festa til að sýna um allan heim hið
stórkostlega örlæti. Sovétborgarar
fá kveðjuna: Til almennings í Sovét-
ríkjunum frá almenningi í Banda-
ríkjunum — með ástarkveðju.
Njóta stuðnings
bandaríska hersins
og CIA
Sendandi ástarkveðjunnar til
Moskvu og annarra staða er hjálpar-
stofnunin AmeriCares, sem aðsetur
hefur í Connecticut í Bandaríkjun-
um. Það er margmilljónamæring-
urinn Robert Macauley, 68 ára gam-
all, sem hefur byggt upp þessa fram-
takssömu stofnun, sem aðrar góð-
gerðastofnanir öfunda. Það er engu
líkara en AmeriCares reki sig aldrei
á skrifræðisþröskulda, starfsmenn
hennar njóta velviljaðs stuðnings
bandaríska hersins jafnt og leyni-
þjónustunnar CIA og eru alltaf með
þeim fyrstu þangað sem þeirra er
þörf.
Þ.e.a.s. það er ekki alveg sama hver
staðurinn er. Reyndar hefur stofn-
unin skuldbundið sig til að útdeila
Sami atburðurinn virð-
ist endurtaka sig sífellt
hvar sem neyðarástand
skapast. Á afskekktum
flugvöllum á jarðskjálfta-
svæðum, en ekki síður á
Sheremetévo-flugvellin-
um í Moskvu, þar sem
vandræði hafa verið með
matvæladreifingu, lenda
drekkhlaðnar bandarískar
flutningaflugvélar með
hjálpargögn.
aðstoð án tillits til „kynþáttar, trúar-
bragða og stjómmálaskoðana" en í í
reyndinni lenda flugvélar AmeriC-
ares fyrst og fremst þar sem áhrif
Sovétmanna fara dvínandi, sósíal-
ískt samfélag hrynur, eða t.d. á Fil-
ippseyjum þar sem verið er að verja
svokölluð vestræn gildi gegn upp-
reisnarmönnum.
Það er engin tilviljun að einka-
hjálparstofnunin AmeriCares er vel
með á nótunum í utanríkisstefnu
Bandaríkjanna. í yfirstjóm hennar
hafa fyrst og fremst safnast saman
hugmyndafræðilegir trúboðar, sem
enn hafa ekki sætt sig við að síðasti
áratugur er liðinn, þ.e. íhaldssamir
kaupsýslumenn, fyrrverandi stjóm-
málamenn með ágætis sambönd við
leyniþjónustuna, og fyrrum áhrifa-
menn í hernum, sem áður einbeittu
sér að því að berjast gegn kommún-
ískum uppreisnarmönnum. Og allt-
af em með í ferð meðlimir fjöl-
skyldu Bush forseta og fyrrum yfir-
manns CIA.
Lyfjasendingar frá
framleiðendum
Þaö em fyrst og fremst lyf og lækn-
isgögn, fengin frá um 200 lyfjafram-
leiðendum, sem AmeriCares flytur á
neyðarsvæðin. Það veitist fyrirtækj-
unum ekki erfitt að sýna örlæti; þau
geta losað sig við lyf sem erfitt er að
selja, eins og þau sem em að renna
út á tíma, án þess að greiða fyrir frá-
ganginn á þeim. Varaformaður Am-
eriCares segir líka að lyfjaframleið-
endumir geti ekki bara einfaldlega
hent afgangslyfjum á mslahaugana.
Eftir jarðskjálftana í Armeníu
harmaði t.d. breska læknablaðið
Lancet hið gífurlega flóð af lyfjum
sem hellt var yfir neyðarsvæðið.
Lyfjafræðingar á staðnum urðu að
eyða tveim þriðju hluta tíma síns í
að „leita að og tína saman nýtanleg
Iyf“. Fluttar vom á staðinn sjö millj-
ónir taflna bakteríudrepandi lyfsins
doxycyclin, sem að mestum hluta
var gjöf frá AmeriCares, en ekki var
þörf fyrir nema um fjórðung millj-
ónar af töflunum.
Gefendur kjósa helst að gefa lyf sín
til svæða í Mið-Ameríku, Afganist-
an, Eþíópíu, Armeníu og Póllandi.
Það em fýrst og fremst skæmliðar
sem berjast gegn kommúnistum
sem geta reitt sig á stanslausa að-
stoð góðgerðastofnunarinnar. Svo
seint sem á árinu 1985 stóð í einum
bæklingi hennar að AmeriCares
álíti það „skyldu sína að styðja and-
spyrnu afgönsku þjóðarinnar gegn
sovésku tilrauninni til þjóðar-
morðs“.
Valið milli þeirra sem
þurfandi eru
Þegar fellibylurinn Joan fór með
eyðileggingarmætti yfir Níkaragúa,
sem þá var enn undir stjóm sandin-
ista, kaus hjálparstofnunin að senda
engin lyf á vettvang, andstætt því
sem bandaríski Rauði krossinn
gerði. En þrem dögum eftir að Vio-
leta Chamorro var kosin forseti, en
hún naut stuðnings Bandaríkja-
stjórnar, flutti fyrsta AmeriCares-
flugvélin 23 tonn af líknarvarningi
til Managúa.
í Gúatemala hefur aðsetur fulltrúi
stofnunarinnar í Mið- Ameríku, Ro-
berto Alejos Arzú. Hann er auðugur
landeigandi sem veitti bandarísku
leyniþjónustunni CIA aðgang að
plantekmnum sínum árið 1960 til
þjálfunar fyrir hina misheppnuðu
Svínaflóaárás. Hann útdeilir lyfja-
sendingunum fyrst og fremst til
svokallaðra fyrirmyndarþorpa. Þau
em í reynd rammgerð vígi fyrir
landbúnaðarverkamenn sem hafa
neyðst til að skipta um heimkynni,
og þaðan hafa stjórnarhermenn
staðið í borgarastyrjöld undanfarin
30 ár.
Alejos lætur oft útdeilinguna eftir
herskáum bandarískum hópum, s.s.
aðstoðarmönnum bandaríska sjón-
varpspredikarans, og fyrmm fram-
bjóðanda til forsetatiinefningar, Pat
Robertson, eða ,Air Commandos",
hópi fýrrverandi bandarískra flug-
manna, sem á stjórnarámm Reag-
ans skipulögðu aðstoð við kontra-
skæmliða, sem börðust gegn sand-
inistum. Alejos gefur þá skýringu að
góðgerðastofnunin AmeriCares
starfi með stuðningi Bandaríkjanna.
Margir starfsmenn AmeriCares
þekkjast síðan á tímum kontra-
skæmliðanna, en þá sá stofnunin
búðum uppreisnarmanna meðfram
landamæmm Hondúras fyrir vist-
um og lyfjum. Richard Stilwell, sér-
fræðingur í að berjast gegn upp-
reisnarmönnum, fyrrverandi hers-
höfðingi og áberandi þátttakandi í
íran-kontrahneyksli Reagan-
stjórnarinnar, á nú sæti í yfirstjóm
stofnunarinnar.
Páfinn átti hugmynd-
ina — og alltaf ein-
hver Bush með í för
Macauley segist hafa í eigin per-
sónu fengið hugmyndina um ein-
dregna andkommúníska hjálpar-
stofnun frá sjálfum páfanum. Þeg-
ar hann átti einkaáheyrn hjá Jó-
hannesi Páli II. 1981 hafi páfinn
beðið sig að senda lyf til Póllands
þar sem þáverandi kommúnista-
leiðtogi, Wojciech Jaruzelski, hafði
nýlega sett herlög.
Hvert svo sem AmeriCares sendir
flutningaflugvélar sínar er alltaf
með í ferðinni eða veitir þeim mót-
töku einhver úr fjölskyldu forset-
ans. Prescott Bush, bróðir hans, á
setu í yfirstjórn stofnunarinnar.
Jeb Bush, sonur forsetans, fylgdi
sendingum AmeriCares til Armen-
íu. Annar sonur, Marvin, flaug með
hjálparfluginu til Níkaragúa eftir
kosningarnar.
1985, þegar George Bush var
varaforseti, stóð hann á flugvellin-
um í Khartoum með Macauley og
tók á móti aðstoðarsendingu til
uppreisnarmanna í Erítreu gegn
kommúnistastjórn Eþíópíu. Jafn-
vel líflæknir Bush, Burton Lee, er
meðlimur læknisráðs stofnunar-
innar.
Hið nána samband Hvíta hússins
og AmeriCares er engin tilviljun.
Stofnandi AmeriCares, Macauley,
og Bush þekkjast allt frá því þeir
voru saman í leikskóla og voru
skólabræður í Yale-háskóla. í aug-
um forsetans er AmeriCares besta
dæmið um einn af þeim „þúsund
ljósu punktum" í ábyrgðarfullu
eirtkaframtaki sem hann hafði
hvatt til í innsetningarræðu sinni.
En það er reyndar ekki alltaf sem
einhver úr Bush-fjölskyldunni
fylgir með flutningum AmeriCar-
es, það kemur líka fyrir að góð-
gerðastofnunin fylgir forsetanum.
Einni viku eftir að bandaríski her-
inn gerði innrás í Panama gat
Macauley sent fyrstu aðstoðina
þangað.