Tíminn - 29.01.1991, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 29. janúar 1991
Tíminn 13
Styrkir
tii umhverfismála
A næstunni verður úthlutað styrkjum úr Poka-
sjóði Landvemdar.
1. Um styrk geta sótt: félög, samtök og einstak-
lingar.
2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverf-
ismála, svo sem landgræðslu, skógrækt, frið-
un, verndun, fegrun og snyrtingu lands og til
fræðslu og rannsókna. Skilyrði er að verkefn-
in séu í þágu almennings.
3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera
vel afmörkuð og skilgreind. Styrkumsókninni
þarf að fylgja:
A. Verklýsing.
B. Kostnaðaráætlun.
1. heildarkostnaður.
2. eigið framlag.
3. upphæð umsóknar.
4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum
mótframlag sem getur falist í fjárframlögum,
vélum, tækjum, efni eða vinnu.
5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu
um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir
lok úthlutunarárs.
6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land-
verndar fyrir kl. 17.00, 20. febrúar 1991.
Þeir sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn þurfa
að endurnýja þær í samræmi við þessa auglýs-
ingu.
Landvemd,
Skólavörðustíg 25,
101 Reykjavík
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum
frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, fyrir
10.-12. greiðslutímabil með eindögum 15. hvers
mánaðar frá nóvember 1990 til janúar 1991.
Reykjavík 24. janúar 1991,
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
TÖLVU-
NOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum,
setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða
fyrir tölvuvinnsiu
Smiðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
VETRARHJÓLBARÐAR
Nýir
fóiksbílahjólbarðar
HANKOOK frá Kóreu
Gæðahjólbarðar á mjög
lágu verði frá kr. 3.180,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Sfmar: 91-30501 og 91-84844
Foreldrar Macaulays Culkin hafa ekki enn gleymt syni sínum einum heima þegar þau hafa farið í frí.
„Ég leik bara sjálfan mig,“
segir stjaman í „Aleinn heima“
Kvikmyndin Aleinn heima hefur
slegið í gegn og þar á stærstan
hlut að máli aðalleikarinn, Maca-
ulay Culkin. Macaulay er ekki
nema 10 ára, en þykir leika svo
vel í myndinni að honum hefur
þegar verið boðin ein rpilljón
dollara fyrir næstu mynd.
En Macaulay er ekkert viss um
að hann sé svo afskaplega góður
leikari. Hann segist bara vera að
leika sjálfan sig í myndinni Al-
einn heima. „Ég hef sett upp
gildrur í herberginu mínu og ég
hef sett vatnsfötu ofan á hálfopna
hurð svo að hún detti á þá sem
koma inn,“ segir hann stoltur.
í myndinni er fylgst með strák
sem af tilviljun hefur gleymst
einn heima þegar fjölskylda hans
fer í frí. Hann á í brösum við tvo
innbrotsþjófa og beitir ekki alltaf
hefðbundnum aðferðum í barátt-
unni við þá. M.a. hitar stráksi upp
hurðarhúna þar til þeir verða
rauðglóandi til að reyna að
hindra þjófana í að komast inn.
Hugmyndin er fengin úr eldhús-
inu heima, frá því Macaulay
teygði sig í heitan pott á eldavél-
inni hjá mömmu.
Fleiri atriði eru byggð á lífs-
reynslu Macaulays sjálfs. T.d. er
gerð tilraun til að hindra ferðir
innbrotsþjófanna með því að
strengja vír í veg fyrir þá.
Til þess ráðs greip einmitt Maca-
ulay þegar hann vildi hefna sín á
vini sínum sem stríddi honum
fyrir að fara í balletttíma. Og þeg-
ar þjófarnir verða fyrir því að
missa jafnvægið með ótalmarga
lacaulay á ýmis prakkarastrik uppi í erminni og á þess vegna
ekkert erfitt með að setja sig í spor stráksins í myndinni.
smábíla undir fótunum, geta þeir
þakkað það prakkarahugmynd-
um Macaulays. Upphaflega áttu
þeir að missa fótanna á ávaxta-
hlaupi.
Og hugmyndaflugið kemur
Macaulay oftar til góða. Hann
þykir t.d. snjall pókerspilari og
gerði sér lítið fyrir og vann 55
dollara af fullorðnum starfs-
bræðrum sínum við kvikmynda-
tökuna.