Tíminn - 09.02.1991, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.02.1991, Blaðsíða 6
14 HELGIN Laugardagur 9. febrúar 1991 Paradis Hálf öld er liðin frá andláti F. Scott Fitzgeralds Hefði Francis Scott Fitzgerald aldrei komið fram á sjónarsviðið hefði þurft að finna hann upp. En vandinn er sá að varla neinn hefði getað tekið slíka sköpun að sér nema Scott Fitzgerald sjálfur. Varla eru önnur dæmi um að höfundur hafi skilgreint heilt tímabil og verið sjálfur annar eins fulltrúi þess sem persóna og Scott Fitzger- ald. Stormurinn á undan logninu Tímabilið sem hér um ræðir var jass-tímabilið, þessir hraðfleygu dagar léttúðugra, ungra stúlkna og nætur-partía - stormviðrið á undan logninu. Hér lifði og hrærðist Fitz- gerald og varð hluti af þessu. En þegar þetta tímaskeið óumflýjan- Íega hlaut að enda var hlutverki hans að miklu leyti lokið, það hvarf líkt og kaffiilmur, þegar sterku áfengi er hellt út í bollann. „Hann var saman settur úr einhverju af allri þeirri snilli sem finnst með amerísku þjóðinni og öllum barna- skap hennar", sagði H L Mencken um höfund The Great Gatsby, Ten- der is the Night og The Last Tycoon. Harmleikur Fitzgeralds var sá að hið síðartalda hafði yfirhöndina. Nú, er fimmtíu ár eru liðin frá dauða hans, er hann metinn og hafður f meiri heiðri meðal bók- menntamanna og þeirra er með völdin fara í Hollywood en nokkurn tíma meðan hann lifði. Æfi hans er orðin að fmynd hins glæsta hóglífis og áhyggjulausa úrkynjunarlífernis. En satt að segja var hann einangr- aður og afskiptur maður sem lést úr hjartaslagi aðeins 44 ára, eftir að hafa selt kvikmyndaiðnaðinum hæfileika sína fyrir hlálega lágt verð. Hann mátti meira að segja þola að vinnu hans var fleygt fram- an í hann aftur. Grískur guð á 20 öld Fitzgerald var fæddur í St Paul í Minneapolis 24. september 1896. Foreldrar hans voru metnaðar- gjarnt fólk en ekki efnað og voru gott dæmi um miðstéttarifólk á þeim árum. Sonurinn var látinn ganga í einkaskóla og þá sendur í Princeton- háskóla. Sem ungur stúdent var hann íþróttamannlega vaxinn og aðlaðandi maður, með skarpa andlitsdrætti. Eitthvað í út- liti hans minnti á grískan guð, sem villst hafði inn í 20. öldina. Þar sem hann var áhugalus um námið gerð- ist hann sjálfboðaliði í hernum seint í fyrri heimsstyrjöld. En hvorki Princeton (þar sem hann sinnti engu námi) né herinn (þar sem hann lenti aldrei í bardaga) fengu kennt honum margt. En á báðum stöðum varð hann áskynja um ýmislegt er að gagni mátti koma verðandi rithöfundi. Hann tók að skrifa á skólatíma sínum og heppn- aðist að selja ritgerð eftir sig, en Charles Scribner’s hafnaði fyrstu skáldsögu hans, The Romantic Ego- ist. Þetta forlag átti seinna eftir að gefa út verk hans í heilu líki. Frækom vonbrigðanna Árið 1918 kynntist hann Zeldu Sa- yre, efnaðri fegurðardís frá Suður- ríkjunum, sem meira yndi hafði af að láta ljós sitt skína meðal tísku- skálda samtíðarinnar en eyða tíma sínum með óþekktum byrjanda í listinni. Samt var það hún sem varð til þess að Fitzgerald ákvað að end- urskoða skáldsögu sína. Þessi nýja gerð hlaut nafnið „This Side of Par- adise“. Nú var handritið samþykkt og gefið út í mars 1920. Mánuði síðar gengu þau Zelda í hjónaband. Þótt bókin fengi ágæta dóma og hagnaður af henni væri mikill, var sem þarna væri þegar sáð fræjum þeirra vonbrigða sem einkenndu líf Scott Fitzgeralds. Sagan af Amory Blaine felur nefnilega í sér siðræn- an boðskap. Lauslæti og efnis- hyggja kunna ekki lukku að stýra og það er loks er söguhetjan hefur tapað öllum auði sínum að hún finnur frið og fullnægju í tilver- unni. En menn litu fram hjá þess- um aðvörunarþáttum og bókin varð að nokkurs konar handbók í galsafengnu líferni meðal þeirra ungu og gáfuðu. Bókin varð að am- erískri hliðstæðu Brideshead Revi- sited eftir Evelyn Waugh. Lesendur létu boðskapinn fram hjá sér fara, en veltu sér upp úr lítríki og fjöri frásagnarinnar. Æðisgengið gaman Þrátt fyrir að Fitzgerald tæki það nærri sér hve bók hans missti þess VIRBISSUKIHHIVKSMM t ' — ' • Mörg fyrirtæki og fjölmargir . • iónaóarmenn hafa nýtt sér. •' | ' i ' - frádráttarbæran _ . v I viróisaukaskattinn auk lága verösins á LADA SKUTBÍL og ^ ^ eignast frábæran vinnubíl, ‘ X'x * rúmgóóan og kraftmikinn. Kr. 346.000 ánvsk. 'N Tökum gamla bílinn upp ínýjan og semjum um eftirstöðvar. - ,\ \ i i • • ' __ Opiö laugardaga frá kl. 10-14. : \ * •N ■ \ ’ / ^ -— MliStiLm Staðgr. verð 1200 SAFÍR 4ra g ....345.268,- 1500 STATION 4ro g 429.763,- 1500 STATION 5ra g 452.71 1,- 1500 STATION LUX 5 g.... 467.045,- 1600 LUX5 g 454.992,- 1300 SAMARA 4 g., 3 d.. 452.480,- 1300 SAMARA 4 g., 5 d.. 492.349,- *1500 SAMARA 5 g., 3 d. 495.886,- *1500 SAMARA-LUX 5 g., 3 d.507.714,- ‘1500 SAMARA 5 g., 5 d. 523.682,- ♦1500 SAMARA-LUX 5 g.. 5 d.542.029,- 1600 SP0RT 4 g 678.796, 1600 SP0RT 5 g 723.328,- * „Metallic” litirkr. 11.000 - i — i \ marks er hann ætlaðist til, döns- uðu þau kona hans í ljós þeirrar fræðgar sem nú umlukti þau. Þetta var byrjunin á því sem Fitzgerald kallaði „mesta og æðisgengnasta gaman í mannkynssögunni". Þótt Zelda hefði frumkvæðið í taumleys- inu, þá fylgdi maður hennar and- mælalaust á eftir. Kostnaðurinn af hinum geggjuðu partíum, boðum, ferðalögum og innkaupum kom umga fólkinu í stórkostlegar skuld- ir. Fitzgerald varð að skrifa án afláts til þess að halda þeim á floti og honum tókst að finna kaupendur að nær öllu sem hann festi á blað. Það varð höfundinum þó höfuð- verkur alla hans ævi að bók- menntasmekkur lesenda var svo háður tískusveiflum. Fyrir söguna The Popular Girl, sem tók hann varla viku að rita, fékk hann 1500 dollara hjá Saturday Evening Post. En fyrir hina snilldargóðu sögu The Diamond as big as the Ritz greiddi The Smart Set honum að- eins 300 dollara. Árið 1921 fæddist þeim dóttirin Frances Scott og rólegra gerðist í kring um þau Zeldu. Árið eftir kom út The Beautiful and the Damned, frábærlega rituð skáldsaga um ung hjón sem lausungarlífið hefur lagt að velli. Dómarnir voru misjafnir og full biturðar fluttust Fitzgerald- hjónin til Evrópu. Þau urðu hluti af þeirri flökku-kynslóð, sem Gertrud Stein kallaði „hina glötuðu". Zelda og Scott, sem ýmist dvöldu f Bandaríkjunum eða á frönsku Rivierunni, voru prinsinn og prins- essan í þessu litskrúðuga samfé- lagi. Árið 1925 kom út The Great Gatsby, bókmenntalegur óður um ameríska drauminn og harmræn takmörk hans. Með þessu hófst Fitzgerald ekki aðeins upp á hátind frægðar sinnar, heldur hófst nú og tími drykkjusýki hans og hægfara sjálfstortímingar. „Síðustu viku hef ég drukkið minna en einn og hálfan pott af veikri ginblöndu með löngu millibili", ritaði hann vini sínum einum, sem hann vildi sannfæra um hófsemi sína. Um 1930 voru þau Zelda komin fram á ystu nöf taugabilunar og andlegrar veiklun- ar. Fitzgerald tókst að bjarga sér með vinnu sinni, en Zelda, sem kvaldist af stöðugri taugaspennu og brotnaði saman. Hún greindist þjást af geðklofa og var komið fyrir á hæli í Sviss þar sem hún leið af of- skynjunum og ofsóknaræði. Vægðarlaus sjálfslýsing Næsta skáldsaga Fitzgeralds var Tender is the night, sem út kom 1934. Þetta er vægðarlaus sjálfslýs- ing, sem segir frá geðlækninum Dick Diver, sem kvæntur er geðbil- aðri konu. Óvinsamlegir og vægð- arlausir dómar, auk þess sem hann þurfti mjög á fé að halda vegna áfengisnautnar sinnar, varð til þess að hann tók að sér að semja handrit fyrir kvikmyndir. Hann afsakaði þetta fyrir dóttur sinni með þessum orðum: ,AHur vandaður skáldskap- ur verður til með því að synda und- ir yfirborðinu og halda fyrir nefið“. Því miður var geta hans til slíkra sundiðkana orðin mjög takmörkuð. Löngum stundum lifði hann f móðu áfengisvímu. Um skeið rofaði nokkuð til fyrir atbeina hinnar ensk-fæddu Sheilu Graham. Hún annaðist þennan niðurbrotna mann af alúð og varð honum lífs- nauðsynlegur stuðingur. En stuðningur hennar kom of seint. í nóvember 1940 fékk hann minniháttar hjartaáfall og mánuði síðar, er hann sat í hægindastól og var að maula súkkulaði, fékk hann annað áfall. Hann lést nær sam- stundis. Útförin var átakanleg og fátt sem minnti á hve merkur höf- undur var genginn. Þau viðurkenn- ingarorð sem hann verðskuldaði komu ekki fyrr en síðar, þegar The Last Tycoon var gefinn út. Þá skrif- aði Stephen Vincent Bénet í Satur- day Review of Literature: „Nú getið þér tekið ofan, herrar mínir, og það er eins gott að þér gerið það. Hér er ekki goðsögn á ferð heldur skáld- frægð- og við nánari athugun gæti hún orðið óbifanlegasta skáldfrægð okkar tfma“. (Michael Coren/ Sunday Times) Laugardagur 9. febrúar 1991 HELGIN 15 Jill St John og Jason Robards í hlutverkum sínum f kvikmyndinni „Tender is the Night“. BILFEEÆ) TIL EVROPU MEÐ XÚXUSSKIPI ■ \M □ ■ - IÍ-Ib w-llr "by- 555/11 iiiiiiiiiiiiiiii "‘iiiiiiiiiiiiiiiiiiii □ mi........... ■ ■ iiiiiiiiiiiini SMYRIL — LINE Það er notaleg tilbreyting að sigla með lúxusfleytu til Evrópu. Um borð í þægi- legri ferju með öllum ný- tísku þægindum geturðu slakað á og byrjað að njóta sumarleyfisins. Hreint sjávarloftið hressir ótrú- lega og streitan hverfur eins og dögg fyrir sólu á Atlants- hafsöldunni. Norræna er bílferja af fullkomnustu gerð, búin þeim þægindum sem kröfuharðir ferðamenn nútímans vilja. Um borð í Norrænu er að finna veitingastaði, frí- höfn, bari, diskótek og leikherbergi fyrir bömin. Fullkominn stöð- ugleikabúnaður gerir siglinguna að ljúfum leik. Þannig eiga sumarfríin að vera. Hringdu eða líttu inn og fáðu all- ar upplýsingar um ferðir Norrænu til Færeyja, Noregs, Danmerkur og Hjaltlands, því vel undirbúið sumarfrí er vel heppnað sumarfrí. NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN SMYRIL-LINE ÍSLAND LAJJGAVEGUR 3 101 REYKJAVÍK SIMi 91-62 63 62 AUSTFAR HF. N0RRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN FJ^RÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI SIMI 97-211 11 tækniskóli t íslands Tækniskóli íslands óskar að ráða í eftirtalin störf: 1) 100% staða skólaritara á skrifstofu skólans. 2) 50% staða bókasafnsfræðings á bókasafn skólans. Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma 84933 og á skrifstofu skólans að Höfðabakka 9 kl. 8-10 og 13-15 alla virka daga. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Rektor Loftkældar dieselrafstöðvar fyrir verktaka, bændur, sumarhúsaeigendur, björgunarsveitir og útgerðarmenn. Eigum á lager margar stærðir.frá 1.7KW til 5 KVA, 220 og 380 volt. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. Á næstunni getum við einnig boðið vatnskældarrafstöðvar7.6 - 10.0 - 17.0og 23 KW á ótrúlega hagstæðu verði. Sala - Ráðgjöf - Þjónusta. SKÚTUVOGI 12A, 124 REYKJAVÍK SÍMI 82530 FRIÐRIK SOPHUSSON ...Rauttnef gefurmöguledka Sala rauöa nefsins er fyrir lokaátak húsbyggingar Samtaka endurhæföra mænuskaddaöra. • SEM-hópurinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.