Tíminn - 14.03.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur M. mars 4991
Tíminn 3
Eru íslendingar mestu vinnuþrælar hins vestræna heims (OECD)?
Hlutfall fólks í starfi er
hvergi hærra en á íslandi
Opinberar tölur virðast gefa til kynna að íslendingar séu vinnusam-
asta þjóð hins vestræna heims. Arið 1988 töldust 54,4% þjóðarinn-
ar til vinnuafls á íslandi (og raunar enn hærra hlutfall skattlausa ár-
ið áður). Danmörk var þá hið eina OECD-landanna sem hafði hærra
hlutfall vinnuafls af fólksfjölda (56,6%). En þar sem stór hluti (8-
9%) hins danska vinnuafls hefur gengið atvinnulaus á undanföm-
um ámm, virðist ljóst að stærra hlutfall íbúanna er í starfi á íslandi
heldur en í Danmörku.
Þegar einnig er litið til þess hve
mikið er um yfirvinnu hér á landi,
virðist Ijóst að engin þjóð hins vest-
ræna heims eyðir hlutfallslega
stærri hluta af tíma sínum á vinnu-
stað heldur en íslendingar. Þetta met
okkar er m.a. athyglisvert í ljósi þess
að samanlagt eru börn og aldraðir
hlutfallslega fleiri á íslandi en á hin-
um Norðurlöndunum. Árin 1988-89
var t.d. hlutfall vinnuafls að meðal-
tali um 2% stærra á Norðurlöndun-
um en hér. En nánast hið sama
(rúmlega 79%) ef aðeins var miðað
við íbúa á aldrinum 15-64 ára. Árið
1988 svaraði vinnuafl hér á landi til
84,6% allra 15-64 ára íslendinga.
Upplýsingar um hlutfall vinnuafls af
fólksfjölda í fjölda OECD-landa kem-
ur fram í nýrri skýrslu frá Þjóðhags-
stofnun. Tölurnar ná til áranna 1980
og 1988 sérstaklega og síðan meðal-
tals áranna þar á milli. Á þessu tíma-
bili óx hlutfall vinnuaflsins meira á
Þrír vilja byggja
hótel í Hafnarfirði
Þrír óskyldir aðilar hafa sent bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar bréf þar sem
þeir Iýsa áhuga sínum á byggingu
hótels í miðbænum. Málið hefur
verið sent miðbæjar-, ferðamála- og
skiplagsnefndum og er óskað
skjótrar afgreiðslu.
„Bæði er hér um að ræða þjónustu
sem hefur vantað í bæinn og eins er-
um við að hefja uppbyggingu nýs
miðbæjar. Þar væri hótel kærkomið
lífsmerki," sagði Guðmundur Árni
Stefánsson bæjarstjóri.
Ekki er endilega gert ráð fyrir hót-
eli í skipulagi að miðbæ Hafnar-
fjarðar. Þar er þó gert ráð fyrir þjón-
ustukjarna og innan hans segir
Guðmundur Árni að hótel myndi
fara ágætlega.
íslandi heldur en í nokkru þeirra
OECD-landa sem skýrslan nær til.
Árið 1980 voru aðeins 46,6% íslend-
inga talin til vinnuafls, en 54,4% átta
árum síðar, sem áður segir.
Á Norðurlöndunum var meðaltal
vinnuafls tæplega 51% í byrjun ára-
tugarins og óx í 53,4% árið 1988. Ár-
ið 1980 voru Norðurlöndin þau einu
sem áttu meira en helming íbúa
sinna á vinnumarkaðnum. Á Irlandi
og Spáni spannaði vinnumarkaður-
inn m.a.s. ekki nema rúmlega þriðj-
ung (um 36%) íbúanna og það hlut-
fall hafði aðeins hækkað um 1-2% til
ársins 1988.
Það ár var hins vegar yfir helming-
ur íbúanna kominn út á vinnumark-
aðinn í Sviss, Kanada, Japan og
Bandaríkjunum og aðeins örlítið
vantaði upp á það hlutfall í Bret-
landi. í Evrópulöndum öðrum en
Norðurlöndunum var hlutfall vinnu-
markaðarins að meðaltali 44,5% af
íbúafjölda árið 1988. En hins vegar
rúmlega 50% í OECD-löndum utan
Evrópu.
Tölur Þjóðhagsstofnunar sýna
einnig hvað hið opinbera notar stór-
an hluta vinnuaflsins.
Á íslandi stækkaði hluti hins opin-
bera úr 15,7% árið 1980 upp í 17,4%
árið 1988. íslenska hlutfallið var
bæði þessi ár nánast hið sama og í
löndum Evrópu utan Norðurland-
anna. Mjög var þetta þó mismunandi
milli landa: Um og yfir 20% í Austur-
ríki, Belgíu, Bretlandi og Frakklandi,
aftur á móti 15-16% í S-Evrópu,
Hollandi og Þýskalandi og aðeins
11% starfandi Svisslendinga unnu
hjá hinu opinbera 1988.
Á Norðurlöndunum er þetta hlut-
fall miklu hærra og hefur sömuleið-
is vaxið töluvert á síðasta áratug. Ár-
ið 1988 vantaði orðið lítið á það að
þriðjungur (31,7%) starfandi Svía
sæktu launin sín til hins opinbera. í
Danmörku var hlutfallið tæp 30% og
tæplega fjórðungur í Noregi.
í Japan eru aftur á móti aðeins um
6% fólks í vinnu hjá hinu opinbera.
- HEI
Borgardómur Re.vkjavíkur hefúr
dæmt Hljóövarp hf., sem átti og
rak útvarpsstöðina Stjömuna,
til aö greiða 9 millj. í Menning-
arsjóö útvarpsstööva.
Hljóövarp hf. varð gjaidþrota
fyrír rúmlega ári og Menningar-
sjóðurinn bætist því við þá sem
gera kröfu í þrotabúið.
Stjómarformaður fyrirtækisins
var ÓJafur Laufdal, sem nýlega
varð að selja Búnaðarbankanum
Hótel ísland langt undir raun-
virði. Ólafur mun þó ekki vera
persónulega ábyrgur fyrir skuld-
um Hljóðvarps hf., og segir að
sér komi málið ekki við. -aá.
Bandaríska djasssveitin Full Circle er stödd á íslandi og leikur í Púls-
inum í kvöld, fimmtudagskvöld 21. mars og föstudagskvöldið 22. mars.
Það er Jazzvakning sem heldur tónleikana. Bassaleikari hljómsveitarinnar
er íslendingurinn Skúli Sverrisson (til vinstri). Við hlið hans er Dan Rieser,
svo Anders Bostrom, Karí Lundberg og Philip Hamilton.
„Bankakostnaður
einstaklings lægstur
íLandsbanka"
Nýlega gerði Verðlagsstofnun könnun þarsem bornar voru
saman verðskrár banka og sparisjóða frá 1. janúar síðastliðnum.
Samkvæmt könnuninni reyndust heildarútgjöld einstaklinga
vegna bankaviðskipta vera lægst í Landsbankanum.
Niðurstaðan kom okkur ekki á óvart. Að þessari hagkvæmu
þjónustu geta viðskiptavinir okkargengið á afgreiðslustöðum
Landsbankans og Samvinnubankans um land allt.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna