Tíminn - 14.03.1991, Side 12

Tíminn - 14.03.1991, Side 12
12 Tíminn Fimmtudagur 14. mars 1991 KVIKMYNDIR DREPTU MIG AFTUR Kill Me Again ★★1/2 Aðalhlutverk: Val Kilmer (Willow, Top Secr- et, Real Genius), Joanne Whalley-Kilmer (Scandal, To Kill a Priest), Michael Madsen (A Perfect Stranger), Jonathan Gries. Lelkstjóri: John Dahl. Framleiðandi: Steve Golin, Sigurjón Sig- hvatsson. Sýnd i Laugarásbió. Bönnuð innan 16 ára. Að ræna frá mafíunni virðist vera meira en að segja það og hvað þá að komast upp með það. Fay Forrester (Joanne Whalley-Kilmer) fær stóra vinninginn þegar hún ásamt félaga sínum rænir tvo sendisveina mafí- unnar. í töskunni reynist vera nóg fé til til þess að fæða hálfa Afríku, en við hverja eru þau að eiga? Jú, mafí- una og enga aðra. Fay, sem kærir sig ekki um að eyða næstu fimm árum í fjallakofa í felum fyrir þeim, ákveður að yfirgefa félaga sinn og hirða hans hlut af peningunum og setja á svið sinn eigin dauða með aðstoð einka- spæjarans Jack Andrews (Val Kilm- er). Andrews, sem er maður á leið í Hjónakomin Val Kilmer og Joanne Whalley-Kilmer úr kvikmyndinni Dreptu mig aftur. svaðið, tekur tilboði hennar og flétt- ast þannig inn í stórt mál sem hann hefði betur forðast. John Dahl, sem áöur hafði leikstýrt kvikmyndinni EinkarannsÓknin, er leikstjóri myndarinnar. Hann er þekktastur fyrir tónlistarmyndbönd, en hefur nú þessi síðustu ár snúið sér eingöngu að kvikmyndum og er kominn með nokkuð mótaðan stíl á því sviði. Dahl hefur sagt að í þessari mynd hafi hann gert tilraunir með liti og veður til að undirstrika visst andrúmsloft innan kvikmyndarinn- ar. Hann fæst þarna við venjulegan söguþráð, sem hann reynir að vinna þannig að útkoman verði óvenjuleg mynd, en því nær hann ekki full- komlega. Joanne Whalley-Kilmer, bresk leikkona sem áður hafði sýnt sig og sannað í kvikmyndinni Scan- dal, fer með hlutverk hér og stendur sig með sóma. Val Kilmer, sem leik- ur einkaspæjarann, er í ansi loðnu hlutverki í myndinni og erfitt að lýsa því, en þó er leikur hans rétt fýrir ofan meðallag. Myndin í heild skilar sér þokkalega til áhorfandans, en ekki á þann hátt sem ég hafði bundið trú við. ÁHK. GARÐYRKJUSKÓLI RÍKISINS REYKJUM — ÖLFUSI Frá Garðyrkjuskóla ríkisins FRÆÐSLUFUNDUR verður 15. mars 1991 kl. 14.00 um niðurstöður tilrauna með ræktun í vikri á árinu 1990 og ræktunartilraunir í vikri á árinu 1991 verða kynntar. Sjá nánar um dagskrá í dreifibréfi til garðyrkjubænda. Allir velkomnir. Skólastjórí. Á SÍÐASTA SNÚNING Pacific Heights ★★★ Aðalhlutverk: Melanie Griffith (Body Dou- ble, Working Girt), Matthew Modine (Birdy, Full Metal Jacket), Michael Keaton (Bat- man, Mr. Mom, Clean and Sober). Leikstjóri: John Schlesinger. Bönnuö innan 14 ára. Sýnd i Bíóborginni. í myndinni Pacific Heights er unn- ið með skemmtilegar hugmyndir sem unnar eru á enn betri hátt og leikara sem kunna sínum hlutverk- um skil. Hjónaleysin Drake Good- man (Matthew Modine) og Patty Palmer (Melanie Griffith) ákveða að kaupa stórt, gamalt hús og gera það upp þannig að þau geti leigt út tvær íbúðir og búið í þeirri þriðju og með því sparað mun meira en annars. En kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið. Einn af leigjendunum er Carter Hayes (Michael Keaton), ungur og dularfullur maður sem þau síðar komast að að er glæpa- maður sem hefur það að atvinnu að hafa fé út úr íbúðareigendum. Kea- ton er stórkostlegur í þessu hlut- verki og þvílíkur skúrkur hefur ekki sést á tjaldinu í langan tíma. Söguþráðurinn er snilld og skemmtilega spunnið úr honum og spennan er í fyrirrúmi. Þarna takast á lög og regla og réttlæti á annan hátt en við eigum að venjast í bíó- myndum sem eru á boðstólum. Leikstjórinn John Schlesinger er enginn nýgræðingur í kvikmynda- gerð, en hann hefur áður látið frá sér fara kvikmyndir á borð við Midn- ight Cowboy, Marathon Man og The Believers. Hann heldur þarna sömu línu og í gegnum tíðina og kemst vel frá söguþræðinum án þess að gera stór mistök. Kvikmyndataka er góð og gallar eru ekki greinanlegir á öðrum sviðum. Þarna gefst kostur á að sjá mynd sem heldur áhorfandanum við efnið og skapar réttu stemmninguna sem sóst er eftir. Ég sá myndina á 9 sýn- ingu og var salurinn þéttsetinn fólki sem fékk það sem það vildi. ÁHK. Hinn mikli Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í Reykjavfk 8.-14. mars er í Vesturbæjar- apótcki, og Háaleitisapóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar f sfma18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands er starfrækt um helgar og á stórhátlðum. Sim- svari 681041. Hafnarfjöröur Hafnartjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin virka daga á opnunartfma búða. Apó- tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið I því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. A helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tímum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í sfma 22445. Apótek Keflavikur Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Læknavakt fyrir Reykjavik, Seffjamames og Kópavog er I Heilsuvemdarstöö Reykjavfkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sófarhringinn. Á SeHjamamesi er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiönir, sfmaráðleggingar og tfmapant- anir I sima 21230. Borgarspftalinn vaktfrá kl. 08- 17 alla virka daga fyrir fólk sem ekkl- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (sfmi 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu emgefnar í slm- svara 18888. Ónæmisaðgerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér ónæmisskírteini. Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni Eiðistorgi 15 viika daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Simi 612070. Garðabær Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I sima 51100. Hafharijötðun Heilsugæsla Hafnartjarðar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt simi 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opín 8.00-18.00 virka daga. Simi 40400. Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Sími: 14000. Sálræn vandamáf: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf i sál- fræðilegum efnum. Simi 687075. Landspftalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennaddldin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagí. - Landa- kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Botg- arspítalinn f Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta- bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30til kl. 16ogkl. 18.30tilkl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa- vogshæliö: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspítali: Heimsóknar- tími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St Jósepsspítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Aðalfundur Lögmannafélags íslands verður haldinn föstudaginn 15. mars 1991, kl. 14.00 í Ársal á 2. hæð nýju álmunnar á Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 19. gr. sam- þykkta L.M.F.Í. 2. Tillögur stjórnar um hækkun á árgjaldi úr kr. 20.000,00 í kr. 22.000 og um hækkun á mála gjaldi úr kr. 250,00 í kr. 300,00. 3. Tillaga stjórnar um breytingu á 40. gr. siða- reglna L.M.F.Í. 4. Skýrsla bókasafnsnefndar. 5. Önnur mál. Stjórn L.M.F.Í. The Mighty Quinn ★ Aðalhlutverk: Denzei Washington, Robert Townsend. Leikstóri: Jacques Steyn. Bönnuö innan 14 ára. Sýnd i Bióhöllinni. Aldrei hef ég áður farið á frumsýn- ingu í sal 3 þar sem fimm manns bíða og virðast allir hálf vonlitlir um að fá eitthvað fyrir peningana sína. The Mighty Quinn segir frá sam- skiptum fólks á Jamaica, þ.e.a.s. samskiptum The Mighty Quinn, sem er lögreglustjórinn, við konu sína sem telur hann vinnusjúkling og auðvitað baráttu hans gegn vondu körlunum. Einn helsti smá- bófi Jamaica kemst yfir 10.000 doll- araseðla, sem CIA vill fá til baka, og þá er komin upp saga sem við sjáum oft í myndum á borð við þessa að dæmið hefur snúist við: Svörtu karlarnir eru orðnir góðir, en þeir hvítu vondir. Myndin sjálf er Iangt frá því að vera merkileg og leikarar virðast flestir vera af götunni og gera þetta kaup- laust. En það er ekki laust við það að hún sé spaugileg þegar best lætur, en meira hrós á hún ekki skilið. Denzel Washington og Robert Townsend eru í aðalhlutverkum í myndinni og eru nokkuð góðir í af- slappaðri mynd eins og þessari. Townsend leikur smábófann, sem er síðhærður Rastafarimaður sem tek- ur lífinu létt og er ekki að velta sér upp úr hlutunum. Það sem mér þótti best við mynd- ina var hljómlistin, sem var ættuð beint frá Jamaica og gaman að heyra. Aðdáendur reggaetónlistar ættu að finna eitthvað fyrir sig hér og ættu því ekki að láta myndina frá sér fara. En fyrir okkur hin skilur myndin ekki mikið eftir annað en tóma buddu. ÁHK. Sunnuhlið hjukrunarheimili i Kópavogi: Heim- sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraðs og heilsu- gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Simi 14000. Keflavik-sjúkrahúsiö: Heim- sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. A barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavík: Seitjamames: Lögreglan sími 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100. Kópavogur Lögreglan slmi 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 11100. Hafnarfiörður Lögreglan simi 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 51100. Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og sjúkrabill sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjar Lögreglan, slmi 11666, slökkviliö siml 12222 og sjúkrahúsíö simi 11955. Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og 23224, slökkviiiö og sjúkrabifreið siml 22222. Isatjörður: Lögreglan simi 4222, slökkvilið simi 3300, brunasimi og sjúkrabifreið sími 3333.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.