Tíminn - 14.03.1991, Síða 5
Fimmtudagur 14. mars 1991
Tíminn 5
Bæjarþing Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í gær að bráðabirgðalög sem sett voru á samninga
BHMR brjóti ekki í bága við stjórnarskrána og sýnt þyki að setning þeirra hafi verið nauðsynleg:
Sýnt að bráðabirgða-
lögin voru nauðsynleg
Ríkisstjórnin var í fullum rétti og braut í engu gegn ákvæðum í
stjórnarskránni þegar hún frestaði með bráðabirgðalögum samn-
ingsbundnum launahækkunum félaga í BHMR. Þetta eru niðurstöð-
ur Bæjarþings Reykjavíkur en dómur í máii félaga í BHMR gegn rík-
inu, var birtur í gærmorgun. í niðurstöðum dómsins segir að sýnt
hafi verið fram á að setning bráðabirgðalaganna hafi veríð nauðsyn-
leg til að ná þeim stjórnmálamarkmiðum sem ríkisstjórnin stefndi
að. Líta verði svo á að löggjafanum sé heimilt undir vissum kríng-
umstæðum, svo sem við framkvæmd efnahagsstefnu, að skerða
samningsbundin laun manna án þess að bætur komi fyrír.
Af hálfu stefnanda var því haldið
fram að með setningu bráðabirgða-
laganna hafi bráðabirgðalöggjafmn
brotið gegn fjórum greinum stjórn-
arskrárinnar.
f fyrsta lagi hafi verið brotið gegn 2.
grein stjórnarskrárinnar og bráða-
birgðalöggjafinn farið inn á valdsvið
dómstóla. I öðru lagi sé það ósannað
að og beinlínis rangt að aðrar launa-
hækkanir hafi verið að bresta á eins
og haldið hafi verið fram og því hafi
verið brotið gegn 28. grein stjórnar-
skrárinnar þar sem segir að brýn
nauðsyn þurfi að vera fyrir útgáfu
bráðabirgðalaga. í þriðja Iagi hafi
67. grein verið brotin þar sem segir
að eignarétturinn sé friðhelgur og
sú launahækkun sem búið var að
semja um sé eign BHMR manna, og
í íjórða lagi að brotið hafi verið gegn
73. grein stjórnarskrárinnar þar
sem kveður á um félagafrelsi, en
stefnandi hélt því fram að bráða-
birgðalögin Ieiddu til þess að menn
glötuðu trúnni á það að starfa í
verkalýðsfélögum.
Ríkið sýknað af
öllum kröfum
í dómi bæjarþings er ríkið sýknað
af öllum kröfum og talið sýnt og
sannað að ekki hafi verið brotið
gegn stjórnarskránni. Þar kemur
fram að sýnt hafi verið fram á það
með nægjanlegum hætti fyrir
dómnum að nauðsyn hafi borið til
setningu bráðabirgðalaganna og sú
nauðsyn þykir hafa verið nægilega
rík til þess að telja verði setningu
bráðabirgðalaganna innan heimild-
armarka 28 gr. stjórnarskrárinnar
að því er varðar ákvæði um brýna
nauðsyn. „Telja verður að í málinu
hafi verið leiddar í ljós yfirgnæfandi
líkur á því, að stór hluti launþega í
landinu hefði fengið greidda sömu
kauphækkun og félagsmenn í
BHMR, hefðu bráðabirgðalögin ekki
verið sett,“ segir í dómnum.
í dómnum segir að lagasetningin
brjóti ekki gegn þrígreiningu ríkis-
valdsins sem kveðið er á um í 2. gr.
stjórnarskrári nnar.
Þá segir að líta verði svo á að lög-
gjafanum sé heimilt undir vissum
kringumstæðum, svo sem við fram-
kvæmd efnahagsstefnu, að skerða
samningsbundin laun manna án
þess að bætur komi fyrir. í þessu til-
felli hafi verið um að tefla þá hags-
muni stjórnvalda að hafa svigrúm til
þessa að framfylgja ákveðinni efna-
hagsstefnu, með það að markmiði
að koma í veg fyrir víxlhækkanir
launa og halda verðlagi í skefjum.
Þá hagsmuni verði að telja það ríka
að afnám þeirrar almennu launa-
hækkunar sem bráðabirgðalögin
kváðu á um hafi verið réttlætanleg.
,Allra helst kosið að
þurfa ekki að gera
þetta“
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sagði að hann væri að
sjálfsögðu ánægður með þennan
dóm og hann hefði aldrei efast um
að niðurstaðan yrði þessi því það
hafi verið mjög nauðsynlegt að setja
þessi bráðabirgðalög. „Ég hefði að
sjálfsögðu allra helst kosið að þurfa
ekki að gera þetta og tel mig hafa
lagt mig fram eins og ég gat til að ná
samkomulagi. Ég tel að það sem ég
bauð BHMR upp á til samkomulags
hafi verið vel viðunandi kostur og
langbesti kosturinn fyrir þá í stöð-
unni. Fyrst að það var ekki þegið þá
fagna ég því að sjálfsögðu að dómur-
inn kemst að sömu niðurstöðu og
ég,“ sagði Steingrímur. Aðspurður
sagði Steingrímur að það væri á
valdi BHMR hvort þeir áfrýjuðu
þessum dómi, hann sagðist ekki
telja það skynsamlegt en það væri
þeirra mál. „Ég vona enn að það tak-
ist sættir við BHMR og menn geti
farið að vinna að kjaramálunum á
skynsamlegum og þjóðhagslegum
grundvelli," sagði Steingrímur.
Kjarklausir
dómstólar
Stjórn BHMR sendir frá sér álykt-
un vegna dómsins um hádegisbilið í
gær: „Stjórn BHMR lýsir furðu sinni
á dómi undirréttar í máli sem höfð-
að var gegn fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra vegna afnáms
ríkisstjórnarinnar á 4,5% samnings-
bundinni launahækkun. Undirrétt-
ur kemst að þeirri niðurstöðu: „að
löggjafanum sé heimilt undir viss-
um kringumstæðum, svo sem við
framkvæmd efnahagsstefnu, að
skerða samningsbundin laun
manna án þess að bætur komi fýrir."
Þetta þýðir að stjórnvöld á hverjum
tíma geta tekið aftur af launamönn-
um löglega gerða kjarasamninga ef
þeir henta ekki stundarmarkmiðum
stjórnmálamanna. Þar með er
samningsréttur stéttarfélaga að
engu orðinn. Við það verður ekki
unað.“
Páll Halldórsson, formaður BHMR,
sagði að viðbrögð sín við þessum
dómi væru mjög í anda þessarar
ályktunar. „Ég tel að með þessum
dómi og þó sérstaklega með rök-
stuðningi hans sé samningsréttur-
inn í landinu að engu gerður en
með því er sagt að efnahagsstefna
ríkisstjórnarinnar á hverjum tíma
sé í öllu ráðandi og kjarasamningar
verði að aðlaga sig að henni. Ég veit
ekki hvort það verður næsta skref
hjá okkur að þurfa að semja um
efnahagsstefnuna líka,“ sagði Páll.
Hann sagði að ekki væri búið að
taka ákvörðun um framhald þessa
máls. Aðspurður sagði Páll að niður-
staða dómsins hefði ekki komið
mönnum óskaplega á óvart. „Maður
veit það að dómstólar hér á landi
hafa ekki haft mikinn kjark þegar
framkvæmdavaldið er annars vegar.
Hins vegar kemur þessi rökstuðn-
ingur mér verulega á óvart því að
með þessum rökstuðningi er í raun
og veru verið að svipta stéttarfélög
samningsréttinum," sagði Páll.
BHMR sendi einnig kæru til AI-
þjóða vinnumálastofnunarinnar og
er hún nú þar til meðferðar. Að-
spurður sagðist Páll ekkert vita
hvort sú niðurstaða yrði í samræmi
við þá sem nú er fallin. „Sá mál-
flutningur byggir á allt öðrum for-
sendum. Við verðum að athuga það
að það var ekki hægt að fara í mál út
af bráðabirgðalögunum sem heild,
heldur einungis þeim þætti þeirra
sem sneri að þessum 4,5%. Það
gerði allan málflutning frekar
þröngan," sagði Páll.
Stjórn Hins íslenska kennarafélags
sendi einnig frá sér ályktun í gær og
telur stjórnin að dómsniðurstaðan
sé mikið áfall fyrir alla launamenn í
landinu. „Ríkisvaldið hefur brotið
allan trúnað við starfsmenn sína og
erfitt er að sjá hvernig þar geti gróið
um heilt," segir í ályktuninni.
Skýrar og afdráttar-
lausar niðurstöður
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra sagði að það væri mikil-
vægt að niðurstöður dómsins væru
mjög skýrar og afdráttarlausar í öll-
um þeim atriðum sem um var deilt.
Dómurinn staðfesti að bráðabirgða-
lögin voru sett í fullu samræmi við
stjórnarskrá lýðveldisins og þær
réttarreglur og grundvallarviðhorf
um félagafrelsi sem við viljum hafa í
heiðri í okkar landi. „Á þessari
stundu er mér hins vegar efst í huga
að BHMR málið hefur verið mjög
erfitt og viðkvæmt mál og við þurf-
um öll að draga okkar Iærdóm af því
máli. Dómurinn setur punkt aftan
við ákveðinn kafla. í þeim kafla er
sjóður reynslu sem kannski var
nokkuð dýrkeypt en má hins vegar
nýta ef menn skoða hana með opn-
um huga og heiðarleika. Ég tel hins
vegar mikilvægast að haldið sé
áfram þeim viðræðum sem ég hef
átt á undanförnum mánuðum við
forystumenn einstakra félaga BHMR
til þess að leita nýrra leiða til að
bæta kjör háskólamenntaðra manna
hjá ríkinu," sagði Ólafur.
Hann sagði að þær leiðir sem færar
væru til að bæta kjör háskólamanna
hjá ríkinu væru auk sérhæfðari
kjarasamninga, aukið sjálfstæði rík-
isstofnana sem hefðu meiri mögu-
leika til þess að efla kjör og kjara-
tengd atriði hjá sínum starfsmönn-
um og skapa þannig meira svigrúm
og sveigjanleika. „Ég hef lagt
áherslu á það að við lykjum þeirri
kjarakönnun sem við ákváðum að
gera. Við höfum ekki fengið enn ná-
kvæma lýsingu á kjarasamanburð-
inum og það hefur verið erfitt að
vinna að honum vegna þessarar
deilu, m.a. þessa máls fyrir dómstól-
um. Nú er þeirri málsmeðferð lokið
og við ættum því að geta tekið til
hendinni varðandi kjarasamanburð-
inn og byggt þá lausnir á þeim nið-
urstöðum sem hann skilar," sagði
Ólafur.
Léttúðugur
umgangur
um stjómarskrána
Minnstu munaði að þing yrði rofið
fyrr í vetur og efnt yrði til kosninga,
þar sem þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins samþykkti að greiða at-
kvæði gegn bráðabirgðalögunum
þegar þau komu til afgreiðslu í þing-
inu. Nokkrir af þingmönnum
flokksins voru með efasemdir um
hvort lögin væru í samræmi við
stjórnarskránna og töldu einnig að
lögleysa væri að setja lög eftir að
dómur féll um málið í félagsdómi.
Ólafur G. Einarsson, formaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, sagði að
þessi niðurstaða kæmi honum frek-
ar á óvart. Hann væri hins vegar
ekki búinn að kynna sér dóminn og
forsendur hans og gæti því lítið tjáð
sig um hann. Aðspurður sagði Óíaf-
ur að þeir hefðu byggt mótmæli sín
við bráðabirgðalögunum þegar þau
komu til afgreiðslu í þinginu á því
að það væri ekki siðlegt að rjúfa
svona gerða samninga, hvorki með
þessum hætti né öðrum. „Við höfð-
um ákveðnar efasemdir en vorum
aldrei með fullyrðingar um stjórn-
arskrárbrot, heldur töldum að þetta
væri fremur léttúðugur umgangur
umi stjórnarskránna,“ sagði Ólafur.
„Ég neita því ekki að þessi dómur
kemur mér á óvart þar sem mér
skilst að hann sé byggður á því að
þetta hafi verið til að ná fram efna-
hagsstefnu ríkisstjórnar, og meðan
ég hef ekki lesið frekar forsendur
dómsins, þá kemur slík röksemda-
færsla mér á óvart," sagði Ólafur G.
Einarsson.
—SE