Tíminn - 14.03.1991, Page 15
Fimmtudagur 14. mars 1991
Tíminn 15
DAGBÓK
Borgarlandslag
í dag, 14. mars, opnar Ásgeir Smári Ein-
arsson sýningu á olíumálverkum í Gall-
erí Borg við Austurvöll. Sýninguna nefn-
ir hann Borgarlandslag, en viðfangsefni
Ásgeirs eru húsin og fólkið í borginni.
Ásgeir Smári er Reykvíkingur, fæddur
1955. Hann stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla fslands 1974 til 1979, og
er þessi sýning nú 9. einkasýning hans.
Fyrir réttu ári sýndi Ásgeir Smári vatns-
lita- og olíumyndir í Gallerí Borg. Mjög
mikil aðsókn var að þeirri sýningu og
seldust þá allar myndimar sem sýndar
voru.
Sýning Ásgeirs Smára stendur til 26.
mars. Virka daga er sýningin opin á milli
klukkan 10.00 og 18.00 og frá kl. 14.00
til 18.00 laugardaga og sunnudaga.
Ljósmyndasamkeppni
Hugmyndar ‘81 og Sólar hf.
Þann 1.3. ‘91 undirrituðu Vilmundur
Kristjánsson, formaður Hugmyndar ‘81,
og Davíð Scheving Thorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sólar hf., samning um
ljósmyndasamkeppni.
Hugmyndin er að taka myndir fyrir Sól
hf., sem nýst gætu sem auglýsingamynd-
ir, en færu jafnframt uppá vegg í fyrir-
tækinu.
Samkeppnin fer þannig fram að félags-
maður Hugmyndar ‘81 skilar inn mynd-
um, hvort sem er f svart/hvftu eða á sli-
des. Þá tekur við myndunum dómnefnd
þar sem tveir menn eru skipaðir af Hug-
mynd ‘81 en einn af Sól hf. og velja þeir
síðan 10 bestu myndimar. Þær myndir
sem lenda í þrem efstu sætunum njóta
síðan sérstakrar viðurkenningar frá
Hugmynd ‘81.
Skilafrestur mynda í Ijósmyndasam-
keppnina er 30. mars og eru allir félags-
menn Hugmyndar ‘81 hvattir til að taka
þátt í keppninni. Upplýsingar um keppn-
ina eru veittar að Klapparstíg 26, næstu
fimmtudagskvöld frá kl. 20.30 til 23.00.
Fyrirlestur í Odda:
Þjóóernisdeilur og öryggismál
í Evrópu
Föstudaginn 15. mars nk. mun dr. J.D.
Sandole, prófessor í lausn milliríkja-
deilna (conflict resolution) og alþjóða-
samskiptum við George Mason Univers-
ity í Bandaríkjunum, flytja fyrirlestur
um þjóðemisdeilur og öryggismál í Evr-
ópu í Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís-
lands, á vegum Alþjóðamálastofnunar
háskólans og Menningarstofnunar
Bandaríkjanna. Mun dr. Sandole ræða
um þjóðernisdeilur þær sem sprottið
hafa upp í Austur-Evrópu og Sovétríkj-
unum, þau áhrif sem þessar deilur
kunna að hafa á samskipti austurs og
vesturs, og hvernig unnt er að bregðast
við þeim á vettvangi Atlantshafsbanda-
lagsins, Evrópubandalagsins og Ráð-
stefnunnar um öryggi og samvinnu í
Evrópu. Fyrirlesturinn hefst khikkan
15.30 í stofu 101 í Odda og eru allir vel-
komnir.
Kársnessókn
Starf með öldruðum í Borgum í dag kl.
14.
Æskulýðsstarf 10-12 ára bama í Borg-
um í dag kl. 17.15.
ERASTUS — íslenskt
launaforrit
Hugbúnaðarfyrirtækið M. Flóvent hef-
ur nýlega sett nýtt íslenskt launaforrit á
markaðinn sem ber nafnið ERASTUS.
Engin takmörk eru á fjölda þeirra laun-
þega sem hægt er að vinna með í forrit-
inu, hentar það því bæði litlum sem stór-
um fyrirtækjum. Þá er forritið einnig til
í svokallaðri fjöl- fyrirtækjaútgáfu sem er
fyrir þá sem sjá um launaútreikninga
margra fyrirtækja í senn.
í launaforritinu ERASTUS er með ein-
földum hætti haldið utan um orlof,
skatta, staðgreiðslu, bílastyrk, dagpen-
inga, greiðslur til lífeyrissjóða og stéttar-
félaga, uppsöfnun á persónuafslætti svo
eitthvað sé nefnt. Forritið inniheldur
lista yfir alla lífeyrissjóði og stéttarfélög.
Allar tölur geymast og í árslok er auðvelt
að fá samtölur ársins og ganga frá launa-
miðum. Hvers kyns skýrslugerð á grund-
velli launaútreikninga er því fljótunnin
og launabókhaldið ætíð aðgengilegt.
Framleiðandi launaforritsins ERASTUS
aðlagar það jafnóðum öllum þeim breyt-
ingum sem kunna að verða gerðar á fýr-
irkomulagi tryggingagjalda, skattalög-
gjöf, hlutfalli gjalda, skattleysismörkum
og öðru því sem hefur áhrif á gerð launa-
útreikninga.
f þessu felst framtíðaröryggi fyrir þá
sem hefja notkun á ERASTUS launafor-
ritinu. Launaforritið ERASTUS kostar
aðeins 19.920 kr.
Allar upplýsingar um ERASTUS eru
veittar hjá M. Flóvent, Ármúla 38,
Reykjavík, síma 688933.
Kirkjulistavika 1991
Kirkjulistavika 1991 er haldin í annað
sinn í Akureyrarkirkju 21.- 28. apríl
1991. Þar sameinast kraftar margra aðila
sem standa að menningarmálum hér í
bæ. Má þar nefna Kór Akureyrarkirkju,
Tónlistarfélag Akureyrar, Leikfélag Akur-
eyrar, Kammerhljómsveit Akureyrar og
fleiri. Að þessu sinni verður Sinfóníu-
hljómsveit íslands einnig þátttakandi og
flytja þau m.a. verk fyrir sinfóníuhljóm-
sveit og orgel og kemur þar að góðum
notum stærsta orgel landsins (45 radda)
sem á þar að auki 30 ára afmæli í ár.
Dagskrá vikunnar er þannig:
Sunnudag 21. aprfl kl. 11: Fjölskyldu-
messa. Helgileikur skólabama. Kl. 14:
Hátíðin formlega sett og myndlistarsýn-
ing í Safnaðarheimilinu opnuð. Fimm
konur, ein úr hverri grein myndlistar,
reyna að höndla hugtakið „Trú“ og festa
það í efni. Kristín G. Gunnlaugsdóttir
málverk. Anna G. Torfadóttir grafík.
Margrét Jónsdóttir leirlist. Ragnheiður
Þórsdóttir vefnaður. Sólveig Baldurs-
dóttir skúlptúr. Kl. 17: Tónieikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands. Flutt verður m.a.
sinfónía nr. 3 eftir Camille Saint-Saéns
fyrir sinfónfuhljómsveit og orgel. Ein-
leikarar eru Bjöm Steinar Sólbergsson
orgel, Kristinn Öm Kristinsson píanó,
Sólveig Anna Jónsdóttir píanó. Stjórn.
Petri Sakari.
Þriðjudagur 23. aprfl kl. 17: Hringborð-
sumræður. Tengsl hinna ýmsu greina
lista við kirkju og guðfræði. Fyrirlestur
sr. Kristján V. Ingólfsson, þátttakendur
m.a. Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld,
listfræðingur, myndlistarfólk. Umræður.
Safnaðarh.
Miðvikudagur 24. aprfl kl. 21: Sýning
Leikfélags Akureyrar á leikriti Björgvins
Guðmundssonar í tilefni 100 ára afmæl-
is hans, „Skrúðsbóndinn" í leikgerð Jóns
Stefáns Kristjánssonar. Einnig flutt
fimmtud. 25. og föstud. 26. apríl kl. 21.
Laugardagur 27. apríl kl. 17: Ljóðatón-
leikar í Safnaðarheimilinu. Margrét Bó-
asdóttir sópran og Kristinn Öm Kristins-
son píanó flytja efnisskrá með trúarleg-
um Ijóðum.
Sunnudagur 28. apríl kl. 14: Hátíðar-
méssa í Akureyrarkirkju. Flutt verður
„Missa brevis" í C-dúr kv 259 (orgel-
messan) eftir WA Mozart (í tilefni 200
ára ártíðar hans), fyrir kór, einsöngvara
og hljómsveit. Flytjendur: Kór Akureyr-
arkirkju, einsöngvarar úr röðum kóiífé-
laga: Dagný Pétursdóttir sópran, Sigrún
Amgrímsdóttir alt, Bryngeir Kristinsson
tenór, Benedikt Sigurðarson bassi og fé-
lagar úr Kammerhljómsveit Akureyrar.
Þriðjudagur 23. aprfl kl. 12-13: Hádeg-
istónleikar, ritningarlestur og súpa og
brauð á eftir. Björn Steinar Sólbergsson
orgel, ásamt orgelnemendum Tónlistar-
skóla Akureyrar. Einnig á dagskrá á sama
tíma miðvikud. 24. og föstud. 26. aprfl.
Miðvikudagur 24. aprfl kl. 10-12: For-
eldramorgnar þar sem foreldrar ungra
bama hittast og ræða saman um börn og
málefni.
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
6234.
Lárétt
1) Fen 6) Viðgerð 10) Bor 11) Utan
12) Strekkja 15) Meta
Lóðrétt
2) Timbur 3) Dýrki 4) Saka 5) Hótar
7) Gubbað 8) Líka 9) Lærdómur 13)
Ruggi 14) Andstutt
Ráðning á gátu no. 6233
Lárétt
1) Hissa 6) Danmörk 10) Dr 11) Án
12) Ameríka 15) Lamað
70 ára afmæli
Jóhann Bjömsson, fyrrv. forstjóri, Vest-
mannabraut 42, Vestmannaeyjum, verð-
ur 70 ára í dag (14. mars).
Jóhann og kona hans, Freyja Jónsdóttir,
taka á móti gestum í safnaðarheimili
Landakirkju, laugardaginn 17. mars frá
kl. 20.
Félag eldri borgara
Opið hús f Risinu í dag fimmtudag kl.
14, þá hefst félagsvist.
Dansleikur kl. 20.30. Ath. að minni sal-
urinn er lokaður á fimmtudögum.
Neskirkja
Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13-17.
Biblíuleshópur f dag kl. 18, í umsjón sr.
Guðmundar Óskars Olafssonar.
Ljósmyndaklúbburinn Nesmynd: Fund-
ur kl. 20.
Laugameskirkju
Kyrrðarstund f hádeginu í dag. Orgel-
leikur, fyrirbænir, altarisganga. Léttur
hádegisverður eftir stundina.
Bamastarf 10-12 ára í dag kl. 17.
Æskulýðsfundur í kvöld kl. 20.
Hallgrímskirkja
Æskulýðsfélagið Örk heldur fund f dag
kl. 17.30.
Kvöldbænir með lestri Passíusálma kl.
18.
Fundur hjá Indlandsvinum kl. 20.30.
Leikfélag Flensborgarskóla
sýnir Keiluspil
Leikfélag Flensborgarskóla frumsýnir
fimmtudaginn 14. mars leikritið „Keilu-
spil“ eftir hinn kunna höfund Sigurjón
B. Sigurðsson, öðru nafni Sjón. Leikritið
er ærslafullt ævintýri með alvarlegum
undirtón. 25 leikendur taka þátt í sýn-
ingunni, en leikstjóri er Skúli Gautason.
„Keiluspil" er eins og áður segir frum-
sýnt fimmtudaginn 14. mars og hefst
sýningin kl. 20.30.
Ncestu sýningar verða sem hér segir:
Sunnudaginn 17. mars kl. 20.30.
Mánudaginn 18. mars kl. 20.30.
Föstudaginn 22. mars kl. 20.30.
Upplýsingar og miðapantanir em í síma
53392.
Lóðrétt
Inn 3) Sjö 4) Oddar 5) Eknar 7)
m 8) Mör 9) Rák 13) Eta 14) fma
Kvikmyndin „Stríð og friður“
sýnd á „maraþonsýningu"
í bíósal MÍR
Sovéska stórmyndin „Stríð og friður",
sem gerð var á árunum 1966 og 1967 eft-
ir samnefndri skáldsögu Lévs Tolstoj,
verður sýnd í heild í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10, laugardaginn 16. mars. Leik-
stjóri myndarinnar er Sergei Bondart-
sjúk og leikur hann jafnframt eitt aðal-
hlutverkið (Pierre Bézúkhov), en aðrir
helstu leikendur em V. Tikhonov (Andrei
Bolkonsky), L. Savelyéva (Natasha
Rostova), Boris Zakhava (Kútuzov hers-
höfðingi). Allt að 30 þús. aukaleikarar
tóku þátt í stærstu fjöldaatriðum mynd-
arinnar, t.d. omstunni við Borodino.
Kvikmyndin „Stríð og friður" er í fjór-
um hlutum og verða þeir allir sýndir á
laugardaginn. Sýningin verður því löng,
hefst kl. 10 að morgni og lýkur á sjöunda
tímanum um kvöldið. Kaffi- og matarhlé
verða gerð milli einstakra hluta kvik-
myndarinnar og þá bomar fram veiting-
ar, m.a. þjóðlegir rússneskir réttir eins
og borsj og pelmeni. Kvikmyndin er tal-
sett á ensku. Aðgangur að sýningunni er
takmarkaður og aðeins gegn framvísun
aðgöngumiða sem seldir verða fyrirfram
á Vatnsstíg 10. Uppselt hefur jafnan verið
á fyrri „maraþonsýningar" MIR á „Stríði
og friði".
f bilar rafmagn, hitaveita eða vatnsveita má
ringja í þessi simanúmen
afmagn: i Reykjavík, Kópavogi og Seltjarn-
rnesi er sími 686230. Akureyri 24414, Kefla-
ik 12039, Hafnarfjörður 51336, Vestmanna-
yjar 11321.
litaveita: Reykjavik simi 82400, Seltjarnar-
es slmi 621180, Kópavogur 41580, en eftir
1.18.00 og um helgar i sima 41575, Akureyri
23206, Keflavik 11515, en eftir lokun 11552.
Vestmannaeyjar simi 11088 og 11533, Hafn-
arfjörður 53445.
Simi: Reykjavík, Kópavogi, Seltjamarnesi,
Akureyri, Keflavik og Vestmannaeyjum til-
kynnist (slma 05.
Bilanavakt hjá borgarstofnunum (vatn, hita-
veita o.fl.) er I sima 27311 alla virka daga frá
kl. 17.00 til kl. 08.00 og á helgum dögum er
svarað allan sólarhringinn. Tekið er þar við til-
kynningum á veitukerfum borgarinnar og i
öðrum tilfellum, þar sem borgarbúar telja sig
þurfa að fá aöstoö borgarstofnana.
13. mars 1991 kl. 9.15
Kaup Sala
Kvennalistinn í Reykjavík
Kvennalistinn átti afmæli þann 13. mars.
Upp á það verður haldið föstudaginn 15.
mars í salnum í Síðumúla 35, 2. hæð.
Húsið opnar kl. 19.00. Maturinn verður
austrænn. Skemmtiatriði. Verð: 2500
kr., fordrykkur innifalinn. Makar vel-
komnir. Látið skrá ykkur sem fyrst.
Fjölskylduhátíð á vegum Kvennalistans
verður haldin í Gerðubergi laugardaginn
13. aprfl.
Tekið er við framlögum í kosningasjóð
Kvennalistans á ávísanareikning nr.
42430 í Búnaðarbanka, aðalbanka.
Samkirkjuleg bænavika
Samkoma í Herkastalanum kl. 20.30. Sr.
Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkj-
unnar á íslandi, prédikar.
ÖLL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
PRENTSMIÐIAN
Bandaríkjadollar.......56,770 56,930
Sterilngspund.........105,754 106,052
Kanadadollar...........49,218 49,356
Dönskkróna.............9,4216 9,4482
Norsk króna............9,2520 9,2780
Sænsk króna............9,7989 9,8265
Flnnskt marit.........15,0604 15,1028
Franskurfranki........10,6192 10,6491
Belgiskur franki.......1,7557 1,7606
Svlssneskurfranki.....41,6661 41,7835
Hollenskt gyllinl.....32,1016 32,1920
Þýsktmark.............36,1927 36,2947
Itölsk líra...........0,04848 0,04862
Austurriskursch........5,1445 5,1590
Portúg. escudo.........0,4167 0,4178
Spánskur peseti........0,5812 0,5829
Japansktyen...........0,41645 0,41762
Irektpund..............96,432 96,704
Sórst. dráttarr.......79,1924 79,4156
ECU-Evrópum...........74,3403 74,5498