Tíminn - 22.03.1991, Síða 4
4 Tíminn
Föstudagur 22. mars 1991
|
UTLOND
IpmMA
/
-~ríTí
iraskir stríðsfangar bandamanna. Fangaskiptin hafa gengið treglega.
(rakarsleppa 1.500 Kúvætum:
92 hermenn frá
Senegal farast
Þjóðaratkvæðagreiðslan í USSR:
Niðurstöður
birtar f gær
Niöurstöður úr þjóðaratkvæðagreiðslunni í Sovétríkjunum, sem
fram fór á sunnudag, voru birtar í gær. Yfirmaður nefndar, sem sá
um atkvæðagreiðsluna, kynnti sovéska þinginu niðurstöðumar, en
hann sagði að einhverjar smávægiiegar breytingar ættu eftir að
verða á tölunum, en nákvæmar niðurstöður munu ekki liggja fyrir
fyrr en eftir nokkra daga.
Níutíu og tveir senegalskir hermenn
létust í gær þegar C-130 Hercules
flutningavél þeirra fórst skammt
sunnan við bæinn Khafji í norðaust-
urhluta Saudi-Arabíu.
Hermennirnir voru í hópi fimm
hundruð manna liðs frá Senegal sem
var hluti af fjölþjóðahernum sem
hrakti íraka úr Kúvæt.
Stjórnvöld í Senegal hafa skipað
átta daga þjóðarsorg vegna slyssins.
Nú á síðustu dögum hafa írakar
gefiö um 1.500 kúvæskum stríðs-
föngum frelsi. Þeir slepptu um 1.200
manna hóp 8. mars og nú telja kú-
væskir lögfræðingar, sem hafa tekið
saman lista yfir þá sem eftir eru í ír-
ak, að þeir séu a.m.k. 2.000.
Kúvætarnir 1.500 dvöldu í norð-
vesturhluta Saudi-Arabíu í nótt, en í
dag mun verða flogið með þá til Kú-
væts. Rauði krossinn sá um að fiytja
þá til Saudi-Arabíu og þar sá kúvæski
herinn um að flokka þá úr sem ekki
mega koma til Kúvæts.
Yfirvöid í Kúvæt hafa nefnilega
ákveðið að fækka mönnum af er-
lendu þjóðerni í landinu, þannig að
menn af kúvæskum uppruna verði
ávallt í meirihluta.
Að sögn vestrænna stjórnarerind-
reka vilja írakargefa þeim Kúvætum,
sem eftir eru í Irak, frelsi sem fyrst,
en þessi flokkun kúvæskra yfirvalda
hefur tafið mjög fyrir. Daglega eru
farnar mótmælagöngur fyrir framan
bústað forsætisráðherra Kúvæts og
hóteliö sem flestir erlendir frétta-
menn dveljast á til að mótmæla hve
hægt gengur að fá Kúvætana heim
frá Irak.
Reuter-SÞJ
Kjósendur voru spurðir hvort þeir
teldu nauðsynlegt að varðveita sov-
éska ríkjasambandið sem nýtt sam-
band fullvalda ríkja. Niðurstaðan var
sú að um 58% allra atkvæðisbærra
manna svöruðu spurningunni ját-
andi. Þátttakan í atkvæðagreiðsl-
unni var 80%, en 76% þeirra sem
greiddu atkvæði sögðu já.
í einu lýðveldanna, Kazakhstan, var
spurningunni breytt þannig að
meiri áhersla var lögð á sjálfstæði
ríkisins. Sex lýðveldi af fimmtán
sniðgengu þjóðaratkvæðagreiðsl-
una: Lettland, Litháen, Eistland,
Georgía, Armenía og Moldóva.
Niðurstöður úr ýmsum atkvæða-
greiðslum, sem fóru fram í einstök-
um lýðveldum samhliða allsherjar-
atkvæðagreiðslunni, liggja ekki fyr-
ir. Fyrir þeim atkvæðagreiðslum
stóðu róttækir umbótasinnar í
óþökk við Kremlarvaldið. Meðal
annars var spurt í Rússlandi hvort
menn vildu velja forseta landsins
beint og bráðabirgðatölur benda til
að 70% þeirra sem greiddu atkvæði
hafi svarað því játandi.
Menn hafa öðrum þræði litið á at-
kvæðagreiðsluna sem baráttu milli
Mikhails Gorbatsjov, forseta Sovét-
ríkjanna, og helsta stjórnmálaand-
stæðings hans, Boris Jeltsin, forseta
Rússlands. Ljóst þykir af þessum
niðurstöðum að Gorbatsjov hafi
ekki fengið þann stuðning sem hann
vænti. Jeltsin er ótvíræður sigur-
vegari kosninganna.
En margir stuðningsmanna Jeits-
Fréttayfirlit
DHAKAR - Níutiu og tveir sene-
galskir hermenn létu lífið í gær
þegar C-130 Hercules fiutninga-
vél, sem þeir voru f, fórst rétt
sunnan við bæinn Khafji f norð-
austur Saudi-Arabíu. Þeir voru
hluti af fjölþjóðahemum sem
hrakti (raka frá Kúvæt.
DAMASKUS - Kúrdfskir upp-
reisnarmenn í (rak sögðust f gær
vera að berjast um yfirráð borgar-
innar Monsul í Kúrdistan, en
Monsui er eina borgin í Kúrdistan
sem þeir sögðust ekki hafa á valdi
sinu. Þeir sökuðu stjórnarherinn
um að dreifa sýru úr þyrium yfir
óbreytta borgara.
ANKARA - Forseti Tyrklands,
Turgut Ozal, sagðist f gær ekki
búast við að Saddam Hussein,
fbrseti fraks, verði mikið lengur
við völd.
KÚV/ET - (rakar hafa sieppt
1.500 Kúvætum til viðbótar þeim
1.200 sem þeir slepptu 8. mars.
Þeir voru f Saudi-Arabíu f nótt, en
það verður flogiö með þá tH Kú-
væts f dag.
AMMAN - Erlendír læknar, sem
komu til Sýrlands frá (rak í gær,
sögðu að hungursneyðin í (rak
minnti þá á hungursneyðina f
Súdan. Þeir sögðu brýnt að (rök-
um yröi veitt alþjóðleg hjálparað-
stoð, sérstaklega til að koma f veg
fyrir útbreiðslu farsótta.
SAN DIEGO, Kaliforníu -
Tvær P-3 Orion kafbátaleitarflug-
vélar bandarfska sjóhersins rák-
ust saman norövestur af San Di-
ego í gær. Aliir tuttugu og sex,
sem voru um borð í fiugvélunum,
létust.
LONDON - Breska rikisstjómin
tilkynnti i gær að hún mundi af-
nema nefskattinn óvinsæla.
MOSKVA - Opinberar tölur um
þjóðaratkvæðagreiðsluna í Sov-
étrfkjunum voru birtar f gær með
fyrirvara um smávægilegar breyt-
ingar. Samkvæmt þeim vildu 58%
atkvæðisbærra manna halda
rfkjabandalaginu áfram.
BÚKAREST - Stjómarandstaö-
an ( Rúmenfu þrýsti á forsætis-
ráðherra landsins, Petre Roman,
um að breyta um stefnu f kjölfar
afsagnar tveggja ráðherra og
óláta meðal verkamanna vegna
efnahagsumbótanna sem hrint
var í framkvæmd í fyrradag.
BRUSSEL - Vaclav Havel, for-
seti Tékkóslóvakfu, skoraði í gær
á leiðtoga Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) að verja hina við-
kvæmu lýðræðishreyfingu, sem
væri aö þróast meðal þjóða Aust-
ur-Evrópu, f stað þess að fara I
varnarstöðu gagnvart þessum
þjóðum.
PEKING - Fulltrúi Kína í Örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna sagði
í gær að Kínverjar vildu að efna-
hagsþvingununum gegn (rökum
yrði fljótlega hætt. Kína er eitt
þeirra fimm ríkja sem hafa neitun-
arvaid i ráðinu.
SHARPEVILLE, Suður-Afr-
Iku - Þúsundir manna í Sharpe-
ville voru heima í gær og fóru ekki
til vinnu til að mlnnast þess að 31
ár eru liðin sfðan lögreglan myrti
69 blökkumenn sem voru að mót-
mæla kynþáttaaðskilnaðarstefnu
stjómvalda. Reuter-SÞJ
Saudi-Arabía:
Sænskt hjálparlið snýr heim
Sænskur herspítali með 525
manna starfsliði, sem var settur
upp í eyðimörk Saudi-Arabíu vegna
átakanna um Kúvæt, verður fluttur
aftur til Svíþjóðar í næsta mánuði.
Herspítalinn var sendur til Saudi-
Arabíu 12. febrúar að beiðni Breta
og var það í fullu samræmi við
stefnu Svía í stríði sem þessu.
Þeir fylgja yfirleitt hlutleysis-
stefnu, en veita oft víðtæka hjálpar-
aðstoð.
Tæplega tvö hundruð manns hafa
notið aðhlynningar á spítalanum,
flestir írakar en einnig nokkrir Bret-
ar. Um 150 manns dvelja enn á spít-
alanum, en að sögn talsmanns utan-
ríkisráðuneytis Svía þá munu þeir
ins óttast afleiðingar baráttu þessara
stjórnmálaleiðtoga. Stepan Ki-
selyov, umbótasinni og stuðnings-
maður Jeltsins, lýsti þessum ótta í
grein sem hann birti í Moskvufrétt-
um í þessari viku. Þó hann styðji
Jeltsin telur hann Gorbatsjov mjög
mikilvægan fyrir allar umbætur í
landinu. Gorbatsjov kemur, að hans
áliti, í veg fyrir að harðlínumenn
innan kommúnistaflokksins komist
til valda og stöðnun verði á umbót-
um eða jafnvel afturför til fyrri
stjórnarhátta. Hann óttast að ef Gor-
batsjov verði hrakinn frá, þá verði
Jeltsin auðveld bráð fyrir harðlínu-
kommúnista. Gorbatsjov brúar
þannig bilið, að hans áliti, milli
hinna róttæku og íhaldssömu og
kemur í veg fyrir baráttu á milli
þessara afla sem Kiselyov telur að
hinir íhaldssömu mundu sigra auð-
veldlega. Reuter-SÞJ
verða útskrifaðir eða fluttir á aðra
spítala fyrir næstu viku.
Sænsk yfirvöld hafa boðist til þess
að láta flytja spítalann til Kúvæts, en
því hafa kúvæsk yfirvöld hafnað.
Reuter-SÞJ
John Major
boðar mýkrí íhaldsstefnu.
Bretland:
Nefskattur-
inn afnuminn
Ein mesta stefnubreyting, sem gerð
hefur verið í breskri pólitík, var
gerð í gær þegar ríkisstjóm íhalds-
manna sagðist ætla að afnema skatt
sem kallaður hefur verið nefskatt-
urinn. Nefskatturinn var hom-
steinn þeirrar félagslegu stefnu
sem Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra og formaður
íhaldsflokksins, hafði mótað.
Hlutverk nefskattsins var að skapa
fjármagn fýrir sveitarstjórnir sem
þær síðan veittu í félagslega aðstoð.
Nefskatturinn vakti gífurlega
óánægju meðal almennings, af því
að hann kom jafnt niður á fátækum
og efnuðum. Kjarninn í stefnu
Thatchers var að allir ættu að greiða
jafnt fýrir félagslega þjónustu.
Það var Michael Heseltine, um-
hverfismálaráðherra í ríkisstjórn
Johns Major, sem tilkynnti breytta
stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann
sagði að sveitarstjórnum yrði séð
fýrir fjármagni til félagslegrar að-
stoðar með nýjum skatti, eigna-
skatti, sem mundi taka tillit til fjöl-
skyldustærðar. Það hljómar líkt því
kerfi sem var áður.
Bryan Gould, þingmaður Verka-
mannaflokksins, réðst harkalega á
ríkisstjórnina og sagði m.a. að það
gætti engrar iðrunar í yfirlýsingu
hennar. Hann taldi þetta vera ein
mestu mistök í breskri stjórnmála-
sögu. Reuter-SÞJ