Tíminn - 22.03.1991, Blaðsíða 10

Tíminn - 22.03.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn Föstudagur 22. ma^s 1991 TÓNLEIKAR Skemmtilegir sinfóníutónleikar Sinfóníutónleikarnir 14. mars voru skemmtilegir fyrir margra hluta sakir, enda var þar „eitthvað fyrir a!la“: nútímatónlist, róman- tísk tónlist, glæsilegur einleikur og forvitnileg tónlist, svo eitthvað sé talið. Auk þess sem hljómsveitin spilaði mjög vel, sem hún gerir næstum alltaf núorðið. Þá var skemmtilegra hlutskipti gagnrýn- enda í gamla daga þegar eitthvað var um að skrifa — fiðlurnar falsk- ar og ósamtaka, einn eða fleiri blás- arar drukknir, nótnapúlt ultu um koll o.s.frv. Forvitnilega verkið var 2. sinfónía Charles Ives (1874-1954), banda- rísks tryggingasala sem eftir á að hyggja reyndist vera langt á undan sinni samtíð, svo sem segir í tón- leikaskrá: „innan við tvítugt var hann farinn að reyna fyrir sér með að láta tvær eða fleiri tóntegundir hljóma samtímis, áratugum fyrr en evrópskir framúrstefnumenn hlutu frægð fyrir samskonar stílbrögð. Á sama hátt var hann langt á undan samtímamönnum sínum í tilraun- um með nýstárlega byggingu hljóma og notkun mjög flókinna hljóðfallsmynstra. En hann var líka ósmeykur við að nota einföld með- öl, bæði í hljómsetningu og hljóð- falli, og hikaði ekki við beinar til- vitnanir í þjóðlög og jafnvel verk annarra höfunda." Allt kom þetta hins vegar (yrir ekki um framþróun tónlistarinnar, því Ives hirti ekkert um að koma verkum sínum á fram- færi, heldur lét þau hrannast upp á hlöðulofti sínu. Stjórnandinn, Murry Sidlin frá Bandaríkjunum, gerði sér auðvitað enga grein fyrir því að íslendingar eru sjóaðir í Ives: Concorde-sónata hans hefur verið flutt hér a.m.k. tvisvar, og sönglög eftir hann hafa heyrst hjá Tónlistarfélaginu og víð- ar. Þess vegna hélt hann litla ræðu um tónskáldið og 2. sinfóníu hans til að undirbúa hlustendur undir það sem koma skyldi. Þar taldi hann m.a. upp ein 10 meira eða minna alkunn stef sem tónskáldið tekur traustataki og notar í sinfón- íu sinni, stundum eitt í einu en stundum mörg saman. Tónlist Ives má kannski lýsa með tilvísun í eitt sönglaga hans, sem segir frá tveim- ur (nema þær séu fleiri?) lúðra- sveitum sem koma hvor eftir sinni götu og spilandi hvor sitt lag í átt að torgi, og verður úr hinn mesti glaumur. Þetta lag söng William Parker í Austurbæjarbíói um árið. Tónleikarnir byrjuðu annars á nú- tímaverkinu, Sónans eftir Karólínu Eiríksdóttur, samið 1980-81. Mér finnst þessi tónlist líkust brota- silfri, alls konar hljóð og brögð, en án heildarmyndar. Hins vegar er Sónans síður en svo óþægilegt eða leiðinlegt áheyrnar, enda ekkert mjög langt. En ekki trúi ég því að framtíð æðri tónlistar verði eftir þessum meiði, nema þá að yfirvöld tækju þá ákvörðun að einmitt svona skuli tónlistin vera, og henni væri haldið að mönnum frá blautu barnsbeini. Glæsilegur einleikari kvöldsins var rússneski fiðlarinn Victor Tret- jakov, f. 1946 í Krasnojarsk í Síber- íu en tónlistarmenntaður í Moskvu. Svona lagað getur sovét- skipulagið gert vel, að framleiða fyrsta flokks tónlistarmenn. Tret- jakov flutti hinn mikilfenglega og sívinsæla fiðlukonsert Tsjajkofskís (stafsetning tónleikaskrár) í D-dúr, op. 35, með miklum brag og upp- skar að launum hrifningu áheyr- enda jafnt sem hljómsveitar. Eitt- hvað þótti sumum hraðavalið sér- viskulegt hjá Tretjakov — t.d. fyrsti kaflinn óvenjulega hægur — en vafalaust var það með ráðum gert og er framlag þessa frábæra fiðlara til framþróunar tónlistarinnar. Sig.St. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka I Reykjavlk 15.-21. mars er I Reykjavíkur- apótoki og Borgarapótekl. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar í síma18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Slm- svari 681041. Hafnartjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug- ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar i slmsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apólek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó- tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar í sima 22445. Apótek Keflavíkur Opið virka daga frá k. 9.00- 19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frí- daga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. SeHóss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Tónleikar ársins? Vonandi er ofsnemmt að velja tón- leika ársins strax í febrúar, en þó gæti svo farið að tónleikar Kammer- músíkklúbbsins í Bústaðakirkju 24. febrúar standist óhöldnum tónleik- um ársins 1991 snúning. Þar voru flutt tvö verk, tríó fyrir horn, fiðlu og píanó í Es-dúr op. 40 eftir Jó- hannes Brahms og „Kvartett um endalok tímans" (Quator pour la fin du temps) fyrir fiðlu, knéfiðlu, klar- inettu og píanó eftir Olivier Messia- en. Hvort tveggja var, að verkin eru bæði frábær, og að flutningurinn var mjög góður. Þar voru að verki Tríó Reykjavíkur — Guðný Guð- mundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haraldsson — og blásararn- ir Einar Jóhannesson klarinettuleik- ari og Joseph Ognibene hornleikari. Jóhannes Brahms (1833-1897) samdi fimm kammerverk með blást- urshljóðfæri, og af þeim eru fjögur fyrir klarinettu, öll frá síðustu árum tónskáldsins. Horntríóið samdi Brahms miklu fyrr (1865) þegar hann var liðlega þrítugur, enda þykj- ast fræðimenn greina í því áhrif frá Beethoven sem skáldið átti eftir að „vinna sig frá“ að einhverju leyti Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa að vera vélritaðar. með tímanum. En þetta er háleit og göfug tónlist og var, eins og fyrr sagði, afar vel flutt. Tónleikaskráin skýrir tilurð hins verksins: „Olivier Messiaen (f. 1908) samdi kvartettinn „Um endalok tím- ans“ í fangabúðum Þjóðverja í Gör- litz, og þar var hann frumfluttur 15. janúar 1941. Hljóðfæraskipunin réðist af því hvaða hljóðfæraleikarar voru meðal samfanga hans. Heiti verksins skýrir höfundurinn með tilvitnun í Opinberunarbók Jóhann- esar, 10:5-7: „Og engillinn, sem ég sá standa á hafinu og á jörðinni, hóf upp hægri hönd sfna til himins, og sór við þann, sem lifir um aldir alda, hann sem himinninn skóp og það sem í honum er, og jörðina og það sem á henni er, og hafið og það sem í því er, að enginn frestur mundi lengur gefinn verða, heldur mundi, þegar kæmi að rödd sjöunda engilsins og hann færi að básúna, fram koma leyndardómur Guðs, eins og hann hafði boðað þjónum sínum, spá- mönnunum, gleðiboðskapinn um.“ Kvartett um endalok tímans er í 8 þáttum, sem hver um sig ber nafn, eins og „Söngur án orða fyrir engil- inn sem tilkynnir endalok tímans" (nr. 2) og „Ofsafenginn dans fyrir lúðrana sjö“ (nr. 6). Og þetta er hræðilega áhrifamikil tóníist sem lætur engan ósnortinn. Tæplega var kvartettinn jafnvel fluttur í fanga- búðunum og nú, því gamla píanóið, sem Messiaen sjálfur spilaði á (hann hafði annars verið organisti í Kirkju heilagrar þrenningar í París síðan 1929, en lenti í klóm Þjóðverja sem stríðsfangi) var bæði bilað og van- stillt, og einn strenginn vantaði á knéfiðluna sem Etienne Pasquier, féiaga í „hinu fræga Pasquier- tríói“, hafði verið gefin. Hinum tveimur, fiðlaranum og klarinettistanum, hafði af einhverjum ástæðum verið leyft að halda hljóðfærum sínum. En þrátt fyrir biluð hljóðfæri kvaðst Messiaen hvorki fyrr né síðar hafa mætt jafn móttækilegum áheyrend- um og þeim 5000 föngum af ýmsu þjóðerni og úr öllum stigum þjóðfé- lagsins sem hlýddu á frumflutning- inn, standandi úti í 12 stiga gaddi. Því jafnvel í þægilegum sætum hlýrrar kirkjunnar, með fagurt gler- listaverk Leifs Breiðfjörð fyrir aug- um, liggur við að hárin rísi á höfði áheyrenda — svo áhrifamikil er þessi tónlist. Sig.St. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Laus er til umsóknar 1 staða deildarröntgen- tæknisfrá 1. júní nk. Umsóknarfrestur er til 5. apríl nk. Upplýsingar veitir Jónína Þorsteinsdóttir yfir- röntgentæknir. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100. Ar hornsins Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Gunnar Guðbjartsson bóndi, Hjaröarfelli verður jarösunginn frá Fáskrúðarbakkakirkju á morgun laugar- daginn 23. mars kl. 14.00. Bílferð verðurfrá BSl kl. 10.30. Ásthildur Teitsdóttir, böm, tengdaböm og bamaböm Stundum ákveða stjórnvöld að helga eitthvert ár tilteknu málefni — ár trésins, ár kvenna, ár aldraðra o.s.frv. Hins vegar virðast örlögin ætla að haga því svo, að 1991 verði ár hornsins hér á landi, a.m.k. fyrri hluti þess, því á einum mánuði eða svo hefur reykvískum tónleikagest- um boðist að hlusta þrisvar sinnum á yfirburða hornleik. Fyrst spilaði Þjóðverjinn Hermann Baumann einn af hornkonsertum Mozarts á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar- innar, en þrír af hornleikurum hljómsveitarinnar slógust í hóp með honum á eftir. Næst spilaði Joseph Ognibene horntríó Brahms hjá Kammermúsíkklúbbnum (24. febrúar), og loks kom Emil Frið- finnsson fram á Háskólatónleikum sl. miðvikudag (13. mars). Þessir stóru atburðir í hornleik minna einna helst á það þegar Lansky-Otto spilaði hornkvintettinn á Gljúfra- steini, sem frægt varð. Á Háskólatónleikum 13. mars komu fram fyrrnefndur Emil og Þórarinn Stefánson píanóleikari, sem nú er við nám í Hannover. Fyrst fluttu þeir saman sónötu í F-dúr op. 17 eftir Beethoven, og fór Emil Frið- finnsson að hætti stór-hornista og spilaði sónötuna á „náttúruhorn", þ.e. takkalausan forvera „franska hornsins" sem þó kom fram um 1800. Hér er um allmikið íþrótta-af- rek að ræða, þar sem bilið milli nátt- úrutónanna er brúað með því að reka hægri höndina mislangt inn í bjölluna á horninu. Við þetta breyt- ist tónblærinn — tónninn verður klemmdari — en þannig á þetta að vera. Hafi einhverjir tónleikagesta ekki áttað sig á því hvers kyns var, og haldið að Emil væri frekar slappur hornleikari sem þyrfti að gera átak í löngum tónum til að jafna tón- myndunina, þá fengu þeir sönnur hins gagnstæða í seinna verkinu sem þeir Þórarinn Stefánsson spil- uðu saman, Villanellu eftir Paul Dukas (1865-1935). Þetta verk spil- aði Emil á nútímahorn með miklum glæsibrag. Milli hornverkanna tveggja flutti Þórarinn Ballöðu í g-moll eftir Chopin, glæsilegan góðkunningja píanista og áhugamanna um píanó- tónlist. Þórarinn spilaði þetta af krafti og fimi, þótti mér, og mun hann vera hinn efnilegasti píanisti. Hann er nú við framhaldsnám hjá prófessor Eriku Haase í Hannover, en hafði áður lokið kennara- og ein- leikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1987. Emil er hins vegar búinn að fá vinnu í Þýskalandi sam- hliða námi hjá Hermanni Baumann í Essen. Sig.St. Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjamames og Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög- um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiönir, simaráðleggingar og timapant- anir í sima 21230. Borgarspítalinn vakt frá kl. 08- 17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki- hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar- hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar í sím- svara 18888. Ónæmisaðgeröir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur á þriöjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi meö sér ónæmisskírteini. Seiljamames: Opiö er hjá Tannlæknastofunni Eiöistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Sími 612070. Garðabæn Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er í síma 51100. Hafnarljöröur: Heilsugæsla Hafnarfjaröar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, simi 53722. Læknavakt sími 51100. Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Sími 40400. Keflavík: Neyöarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöö SuÖumesja. Sími: 14000. Sálræn vandamái: Sálfræöistöðin: Ráögjöf i sál- fræðilegum efnum. Sími 687075. Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15- 16. Heimsóknartími fyrirfeður kl. 19.30-20.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunariækningadeild Landspítalans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa- kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg- arspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Álaug- ardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúöir. Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta- bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu- daga kl. 14- 19.30. - Heiisuvemdarstöðín: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa- vogshæliö: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. - Vífilsstaöaspítali: Heimsóknar- tími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL Jósepsspítali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sunnuhlíö hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim- sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavikuríæknishéraös og heilsu- gæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólarhring- inn. Simi 14000. Keflavík-sjúkrahúsiö: Heim- sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgarogá hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00- 19.30. Akureyn- sjúkrahúsiö: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akraness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavík: Seltjamarnes: Lögreglan sími 611166, slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 11100. Kópavogur Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreiö sími 11100. Hafnarljöröur: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreiö simi 51100. Keflavík: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og sjúkrabíll sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjar Lögreglan, sími 11666, slökkvilið sími 12222 og sjúkrahúsiö simi 11955. Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö sími 22222. (saQöröur: Lögreglan sími 4222, slökkviliö simi 3300, brunasími og sjúkrabifreið simi 3333.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.