Tíminn - 22.03.1991, Page 5
Föstudagur 23. mars 1991
Tíminn 5
Sakadómur Reykjavíkur kvað í gær upp dóm í máli Töggs hf.:
Fyrrum stjórnar-
formaður dæmdur í
18 manaða fanoolsi
Ingvar Sveinsson, fyrrum stjómarformaður og framkvæmda-
stjóri Töggs hf„ var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og til ævi-
langrar sviptingar verslunaratvinnu í Sakadómi Reykjavíkur í
gær. Hann er m.a. sakfclldur fyrir fjárdrátt og í dómnum segir að
hann hafi komið því tii leiðar að gífurlegir fjármunir nýttust ekki
þegar þrotabú Töggs hf. var tekið til gjaldþrotasldpta.
Baldvin Tryggvason sparisjóðs-
stjóri og Katrín Pálsdóttir deúdar-
stjóri hjá SPRON voru sýknuð, en
ákvörðun um refsingu tveggja
stjómarmanna og eins starfs-
manns Töggs hf. var frestað og
sfeal hún faJIa niður eftir 3 ár,
haidi þau skilorðið. Ingvar
Bjömsson iögmaður var dæmdur
í 3 mánaða fangelsi sfeilorðsbund-
Ið í þrjú ár og til svíptingar mál-
flutningsleyfis f 6 mánuöi.
Töggur hf. var stofnað 18. maí
1979 og starfaði frá upphafi við
innflutning og sölu á nýjum og
notuðum bifreiðum og hafði
einkaumboð iyrir Saab-bifreiðar
hér á landi. Árið 1983 var farið að
halla undan fæti hjá fyrirtækinu
og snemma á árinu 1987 fór
stjóra fyrirtældsins þess á leit við
sfeiptaráðanda í Reykjavik að fé-
laglnu yrði veitt heimild til
greiðslustöðvunar í alit að þrjá
mánuði vegna fjárhagsörðugleika.
Heimild tii greiðslustöðvunar var
tvívegis framlengd og rann hún út
15. júní 1987 og daginn eftir var
bú félagsins tekið til gjaldþrota-
skipta. Við gjaldþrotameðferðina
þótti koma í Ijós að ýmis atriði
varðandi fjármál félagsins þyrftu
nánari sfeoðunar við. Bófehald fé-
lagsins var ekki að öllu leyti upp-
fært og af sfejölum, sem þar fund-
ust, taldi sfeiptaráðandi ýmsar
hæpnar ráöstafanir hafa verið
gerðar. Skiptaráðandinn í Reykja-
vík vaktl síðan athygli á því í bréfi
tíl ríkissaksóknara dagsettu 24.
mars 1988, að við athugun á mál-
efnum þrotabúsins hafi komið
fram að ástæða væri til að ætla að
forsvarsmenn Töggs hf., sem og
nokkrir aðrir tilgreindir, hafi gerst
sekJr um refsiverða háttsemi. Rífe-
issaksóknari sendi RLR fyrirroæli
í aprfi 1988 um opinbera rann-
sókn af þessu tilefni. RLR lauk
rannsókn á málinu í febrúar 1990
og 10. apríl sama ár var gefin út
ákæra. Þeir sem vom ákærðir
vom Ingvar Sveinsson, stjómar-
formaður Töggs hf., stjómar-
mennimir Bjöm Sveinsson og
Hanna Elíasdóttir, Ágúst Ragn-
arsson delldarstjóri hjá Tögg hf.,
Ingvar Bjömsson lögmaður, Bald-
vin Tryggvason sparisjóðsstjóri og
Katrin Pálsdóttir deiidarstjóri hjá
SPRON.
í dómi Sakadóms Reykjavíkur
voru Baldvin Ttyggvason og Katr-
ín Pálsdóttir sýknuð af öllum
kröfum ákæruvaldsins. Stjóraar-
mennimir þrír vom einnig sýkn-
aðir af nokkmm liðum ákærunn-
ar, en allir fundnir sekir um skila-
svik. Ingvar Sveinsson var fund-
inn sekur um stórfeUdan fjárdrátt
og segir í dómnum að ástæður
mikiis fjármagnskostnaðar hjá fé-
laginu hafi fyrst og fremst verið
slæm lausaQárstaða þess, sem
versnaði verulega undir lokin
vegna mlkilla úttekta Ingvars
Sveinssonar. Tngvar var einnig
sakfelldur fyrir að hafa tnismunað
lánardrottnum og í dómnum segir
að með ráöstöfunum sínum hafi
Ingvar komið því til leiðar að gíf-
urlegir fjármunir nýttust ekki
þrotabúinu við gjaldþrot þess. Þá
var Ingvar sakfeildur fyrir að hafa
slegið eign sinni á nýja Saab-bif-
reið þremur dögum fýrir gjaldþrot
félagsins og fyrir að hafa ívilnaö
tilteknum kaupcndum bifreiða
með afslætti frá gildandi verðskrá
Tðggs hf. Meðal þeirra, sem fengu
þennan óeðlUega afslátt, voru Ing-
var Bjömsson lögmaður, sem var
ráðinn sem aðstoðarmaður hluta-
félagsins á greiðslustöðvunartím-
anum. Ingvar Bjömsson er sak-
feUdur fyrir að hafa misnotað sér
aðstöðu sína meö þessum hætti,
en bróðir hans, Bjöm Bjömsson,
fékk einnig bfl með afslætti, sem
og Pétur Kjerúlf, samstarfsmaður
Ingvars. Ingvar, Pétur og Bjöm
keyptu sér allir bfla af gerðinni
Saab 9005 og fengu 80 þúsund
krónur í afslátt hver. Bflamir em
alUr keyptir nokkmm dögum áður
en fyrirtækið er tekið til gjald-
þrotaskipta. Ingvar Sveinsson er
einnig sakfeUdur tyrir að hafa selt
Ingiríði Oddsdóttur 5- dyra Saab
9000 Turbo með 150 þúsund
króna afslætti 12. júní 1987,
nokkrum dögum áður en fyrir-
tækið var tekið til gjaldþrota-
skipta.
Þá vom Ingvar Sveinsson og Ág-
úst Ragnarsson fundnir sekir um
að hafa selt veðsetta lyftara og
leynt kaupendur veðsetningunni
og hvorki greítt veðskuldina né af-
lýst henni.
Dóminn kváðu upp HjÖrtur O.
Aðalsteinsson sakadómari og
meðdómendur hans, Stefán Daní-
el Franklín, iöggiitur endurskoð-
andi, og Stefán Már Stefánsson
prófessor. —SE
Grímseyingar fá
rafmagnið aftur
Grímseyingar fengu rafmagn aftur
í gær eftir að hafa verið án þess í
tvo sólarhringa. Fólk í eyjunni
þurfti að flýja til vina og ættingja
sem höfðu rafmagn, en gat loks í
gær snúið aftur til síns heima.
Vonskuveður gekk yfir eyjuna á
þriðjudagskvöldið. Henni fylgdi
mikil ísing sem orsakaði að raf-
magnslínur slitnuðu niður.
í gær komust viðgerðarmenn með
báti út í eyna og komst rafmagn aft-
ur á síðdegis í gær. Þá kom báturinn
með mjóik, en á henni var orðinn
skortur í Grímsey. -sbs.
Leiknar aug-
lýsingar ekki
á Ijósvakanum
Fulltrúar stjómmálaflokkanna,
sem sæti eiga á Alþingi, hafa gert
með sér samkomulag um aö þeir
muni ekki birta leiknar stjómmála-
og kynningarauglýsingar í ljósvaka-
fjölmiðlum fram til kosninga.
í sjónvarpi mun heimilt, sam-
kvæmt samkomulaginu, að birta
skjáauglýsingar um fundi eða sam-
komur flokkanna. í auglýsingunum
mega auk þess koma fram merki eða
vígorð flokkanna.
í hljóðvarpi er heimilt að flytja aug-
lýsingar lesnar af þul. Þeim auglýs-
ingum má fylgja bakgrunnstónlist
viðkomandi hljóðvarpsstöðvar eða
bakgrunnsstef að vali auglýsenda.
-sbs.
Rannsóknarsjóður ríkisins:
Flestar umsókn-
ir vegna fiskeld-
is og -vinnslu
Uppþvottalögur er ekki allur þar sem hann er séður:
Raunverulegt verð fer
eftir sápuinnihaldi
Fljótandi
veitingahús
í sumar ætla menn á Höfn í Homa-
firði að ýta úr vör fljótandi veitinga-
húsi.
„Þetta er gamall eikarbátur, Hrísey
SF. Það er meiningin að setja hann við
stjóra í höfninni til minningar um
þessa gerð af skipum, sem Iengi hafa
verið gerð út frá Höfn, en eru nú að
hverfa.
Við ætlum að byggja yfir dekkið á
honum og hafa þar veitingasal. Síðan
ætlum við að hafa koníakstofu í
brúnni og jafnvel tónleikasal undir
hvalbaknum.
í dag fengum við leyfi heilbrigðis-
ráðuneytisins fyrir þessum rekstri.
Hafnarstjóm hefur samþykkt erindi
okkar, en önnur skipulagsyfirvöld hér
á Höfn eiga eftir að afgreiða málið. Við
gemm okkur vonir um að geta opnað
í sumar," segir Einar Sveinn Ingólfs-
son, útgerðarmaður veitingahússins
fljótandi. -aá.
Merkingar á umbúðum uppþvotta-
lagar gefa enga vísbendingu um
sápuinnihald hans. Því standa neyt-
endur berskjaldaðir þegar gera á
raunhæfan verðsamanburð. Þetta
kemur fram í könnun sem Verðlags-
og Iðntæknistofnun gerðu á upp-
þvottalegi á dögunum.
Á markaðnum í dag er að minnsta
kosti hægt að velja á milli 37 teg-
unda uppþvottalagar í 53 umbúðum.
Tegundirnar eru mjög misjafnar að
gæðum. Sápuinnihaldið reyndist
vera allt frá 6% af rúmmáli lagarins
upp í að vera 39%. Almennir fram-
leiðslustaðlar gera ráð fyrir að sápu
sem nemur 10-40% af heiidarrúm-
máli.
í könnun Verðlagsstofnunar er
raunverulegt verð uppþvottalagarins
fundið út með af bera saman verð á
hverju prósenti af sápuefni í upp-
þvottaleginum. Þannig kemur fram
að lögur, sem við fyrstu sýn reyndist
vera sá ódýrasti, er í raun 10. sá ódýr-
asti. Og sá, sem raunverulega er
ódýrastur, er sá 5. ódýrasti.
Odýrasti lögurinn er Today’s wash-
ing up liquid og kostar 5 kr. á hvert
prósentafsápuefni. Dýrasti lögurinn
er Hreins sítrónu, sem kostar 16,3
kr. á hvert prósent sápuefnis og það
er 226% hærra verð en það lægsta.
-sbs.
Sótt var um stuðning við 138 rann-
sóknar- og þróunarverkefni til Rann-
sóknarsjóðs rannsóknarráðs ríkis-
ins, en umsóknarfrestur þar um
rann út um síðustu mánaðamót.
í frétt frá ráðinu segir að óvenju
margar góðar tillögur hafi borist, þar
sem þátttaka fyrirtækja sé veruleg.
Heildarkostnaður verkefna, sem
sótt var um stuðning við, nemur
765,4 miljónum króna. Sótt er um
325,3 miljónir króna í styrki frá
Rannsóknarsjóði. Áætlað framlag
fyrirtækja sjálfra til verkefnanna
nemur um 200 miljónum króna.
Verkefnin 138, sem sótt er um
stuðning vegna, skiptast í 13 flokka.
Mest er sótt um vegna fiskeldis og
fiskvinnslutækja og - búnaðar. Sótt
er um rúmar 53 miljónir í báðum
þeim flokkum.
Gert er ráð fyrir að í byrjun maí liggi
fyrir hvaða verkefni hljóti stuðning
Rannsóknarsjóðs í ár.
Vinnustaðir - Félagasamtök - Áhugafólk
Burstagerðin
kaupir Frigg
Finnur
Ingólfsson
Ásta R.
Jóhannesdóttir
Bolli
Héðinsson
Hermann
Sveinbjömsson
Samkomulag hefur náöst milli
Delta hf, og Burstagerðarinnar hf.
um að síðamefndi aðilinn kaupi og
taki yfir allan rekstur Sápugerðar-
innar Frigg.
Delta hf. keypti Frigg fyrir nokkru.
Eins og kunnugt er hefur Sápu-
gerðin stundað framleiðslu á
hreinsiefnum og hreinlætisvörum
frá árinu 1929. Burstagerðin hóf
starfsemi sína árið 1930. Fyrirtæk-
in eru því álíka gömul og starfa
bæði á sviði hreinlætismála.
Burstagerðin á einnig og rekur fyr-
irtækin Besta í Kópavogi og Kefla-
vík, sem sérhæft hafa sig í efnum
og tækjum til ræstinga.
—SE
Frambjóðendur B-listans í Reykjavík eru tilbúnir að koma á fundi á vinnu-
stöðum, hjá félagasamtökum eða áhugafólki og ræða stefnumál listans og
svara fyrirspurnum.
Vinsamlega hafið samband við kosningamiðstöðina, Borgartúni 22, sími
620360 og 620361.