Tíminn - 22.03.1991, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 22. mars 1991
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Fréttastjórar:
Auglýsingastjóri:
Kristinn Finnbogason
Indriði G. Þorsteinsson ábm.
Ingvar Gíslason
Oddur Ólafsson
Birgir Guðmundsson
Stefán Ásgrímsson
Steingrimur Glslason
SkrifstofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Sími: 686300.
Auglýsingasími: 680001. Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um
helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Lífvæn fiskveiðistefna
Halldór Asgrímsson sjávarútvegsráðherra sagði
nýlega í ræðu að ágreiningur um stjórn fiskveiða
væri ekki deila um „kvóta“ heldur „hvers konar“
kvóta.
Eins og hverjum manni má vera ljóst er naumast
hægt að orða betur í einni setningu hver sé kjarni
ágreinings um fiskveiðistjórnun. Vandinn felst í því
að velja leiðir til þess að takmarka veiðar á veiði-
stofna, sem ekki þola ótakmarkaða sókn. Vissulega
er hægt að hugsa sér ýmsar aðferðir til þess að tak-
marka veiðar á tegundum sem eru í ofveiðihættu.
Það hefur heldur ekki staðið á því að hinar ýmsu
hugmyndir væru þrautræddar, hins vegar hefur
raunveruleikinn krafist þess að stjórnvöld veldu á
milli hugmynda.
t>ær hugmyndir sem uppi eru um fiskveiðistjórn
eru reyndar ekki ýkja margar þegar vel er að gætt.
Þar er aðallega um að ræða tvær til þrjár leiðir sem
mönnum hefur komið til hugar að fara megi. Ein
þessara leiða er sú að selja veiðileyfi á eins konar
uppboðsmarkaði, sem formælendur þessarar hug-
myndar útiloka ekki að yrði alþjóðleg viðskipti fyrr
eða síðar. Hér er um afar áhættusama leið að ræða,
sem fáir vilja láta leggja nafn sitt við, enda neðst á
umræðulistanum. Veiðileyfakerfið myndi fyrr eða
síðar opna útlendingum leið inn í íslensku land-
helgina.
Að veiðileyfahugmyndinni afgreiddri sem fráleitu
máli eru þeir sem aðhyllast kvótakerfi að ýtast á um
„hvers konar kvóti“ eigi að vera við lýði, svo enn sé
minnt á orð Halldórs Ásgrímssonar. Þetta hefur
m.a. komið fram í máli 15 alþingismanna sem
fluttu í vetur tillögu til þingsályktunar um endur-
skoðun fiskveiðistefnunnar. Þar er fyrst og fremst
um að ræða málflutning sem stefnir að því að of-
gera galla á ríkjandi kvótastefnu, því að flutnings-
menn tillögunnar eru hlynntir takmörkunum á
veiðum sem í innsta eðli er reist á kvótaúthlutun,
þó ekki sé með sama hætti og þróast hefur síðan
fyrstu lög um stjórn fiskveiða tóku gildi fyrir sjö ár-
um.
Hvað sem líða kann einstökum göllum núverandi
kvótakerfis stendur nær að meta þann góða árang-
ur sem orðið hefur af fiskveiðistjórn síðustu ár.
Þeim megintilgangi hefur verið náð að halda uppi
skynsamlegri nýtingu veiðistofna miðað við vernd-
ar- og viðhaldsþörf þeirra. Við nýtum auk þess fleiri
tegundir sjávaraflans og gerum verðmæti úr þeim
frekar en oft áður. Heildarafli landsmanna hefur
verið jafn og stöðugur þessi ár, þótt fyllstu aðgæslu
hafi verið framfylgt um veiðiheimildir.
Við mat á árangri fiskveiðistjórnar hér á landi er
nauðsynlegt að bera hann saman við ástandið í
þeim efnum í Evrópubandalagslöndum. Sá saman-
burður leiðir umfram allt í ljós að íslensk fiskveiði-
stjórn er lífvænleg verndar- og viðhaldsstefna, en
fiskveiðipólitík Evrópubandalagsins er rányrkju-
stefna, sem er m.a. að eyðileggja gjöfulustu fiski-
mið Evrópu, Norðursjóinn.
wjmm
GARRI
Glundroöi íhaldsins
Alþingi er loksins fariö hcim eftir
mikiö japl, jaml og fuöur. Eins og
nær alltaf þegar hlé & að gera á
þinghaidi varö mikiö uppistand og
læti í Alþingishusinu síöustu dag-
ana fyrír þingslit og í því mikia
sjónarspiii léku þingmenn Kvenna-
listans og HjÖrleifur Guttormsson
aðalhlutveridn lengst af. í ieiöara
Morgunblaösins í gær er fjallað um
þessa síöustu daga þingsins og
hreint ótrúlegasta tilraun gerö til
aÖ blása bT» f glundroðagfylu
vinstri- og míðjuflokkanna. Leið-
arahöfundur segir m.a.: „Stjómar-
flokkamir hafa hamast við að reka
rýtínga í bak hvers annars. Þeir
hafa beitt málþófi hver gegn öðr-
um, þeir hafa beitt hvers kyns of-
beldis- og kúgunaraðgerðum gagn-
vart samstarfsflokkum tll þess að
námálum frameða komafveg fyr-
ir framgang máia. Gludroðinn í
röðum vinstri manna er aigjðr.“ Ef
Garri vissi ekki betur hefði hann
. Aiv»V.ur.ReV>ll»v,k
uaraldor Sve>r'*sor'
(,«*»•**•«**' Ha )0hano«ssa".
Rus»|6*»' T* Qunnarsson
fo'Urua* rrts»|0,• B(0tn 10hannsson.
Sla»r>00V-S.0UWi
—:r^r
»»UJ "OO k' --------
Glundroðivinstri
flokkanna
• í;?,,,--— i '■■** .**. &£%$£
póiitísku samstarfi striðandi afla í
Beirút eða Lfbéríu svo mikið er
Mogga í mun að draga upp mynd
giundroöans.
Að fela málefnafátækt
Enduríífgun glundroðagrýlunnar
er Morgunblaðinu og Sjálfstæðis-
flokknum nauðsynieg nú fyrir
kosningar af ýmsum ástæðum og
skulu tvær tiigreindar hér. í fyrsta
fagi er i'haidsöflunum nauðsyniegt
að reyna hjartahnoð á glundroða-
giýlunni til að breiða yfir glundroð-
ann innan eigin raða. Sjálfstæðis-
flokknum tókst ekká að útbúa nagl-
.. v,.jia iðnaflarw"""-
Hemwnniwo". 1 '"rL | itmibnu »*ru í !unn
IfrA bvl h»nn m>n, .juiiuka 1 tH,U <iMWa'ði»manr
íínahU.ði98H.lKUapðl>»W^ roðakenmngtcn
Liarkmiö v»r 1 um.rí ^ (ifarl,.„a á '>\að»
1 líX m.
fastan málefnasamning stríðandi
lýlkinga og sjónarmiða á iands-
fondi sínum um daginn og nauð-
lenti með stefnoskrá sem er iftið
annað en aimennt hjal um að frelsi
og mannúð sé hið besta máL Til að
gæta fyllstu sanngimi er þó rétt að
nefna þau tvö þjóðfélagsmál þar
sem íhaldið hefur skýra stefnu.
Þeir vilja se|ja rás 2 og þeir viija fa
lyklana aö sjávarútvegsráöuneytinu
þó enginn vití hvort það sé tii að
framkvæma nýja sjávarútvegs-
stefnu eða til að innrétta þar ein-
hverjar skrifstofur upp á nýtt. Um
það hefur ekkert verið gefið upp.
Þess vegna verður íhaldið að grípa
það sem gefst, og einn af fáum val-
kostum Sjálfstæöisflokksins er
glundroðagtýlan.
Að fela forystuerfiðleika
I öðru iagi er enduriífgun
glundroðagíýiunnar heppileg fyrir
Morgunblaðið til að kasta rýrð á
banamann bennar. Steingrímur
Hermanusson forsætisráðherra
hefur sýnt óvenjulega hæfiieika tii
forystu og verkstjómar í ríkis-
stjórn. Þeirri verkstjóm er fyrst
og fremst að þakka að tekist hefur
að sigia íslensku efnahagslífi út
úr þeko krappa dansi sem það var
komið í haustið 1988 og á fygnan
sjó. Morgunbiaðið og Sjálfstæðís-
flokkurinn á hins vegar við for-
ystuvandamál að glíma þar sem
ungir og óreyndir menn eru kall-
aðir til formennsku áður en þeir
hafa lært að stíga öiduna í umróti
landsmálanna. 1 örvæntingu sínni
grípur því ieiðarahöfundur Morg-
unblaðsins tii blástursaðferðar-
innar í von um að glundroðagtýl-
an nái að skyggja á forystuhæfi-
ieika forsætisráðhem og gera
samanburðinn við sjóveika sjálf-
stæðisformenn hagstæðari.
Hjálp í viðlögum mun þó tæpast
duga á giundroðagrýluna úr
þessu. Sannleikurinn er einfaid-
iega sá að giundroðinn á stjómar-
heimilinu er ekki meiri en eðlilegt
getur talist. E.t.v. er ástæöa tii að
minna Morgunblaðið á að Kvenna-
Hstinn er f stjómarandstöðu og
hefur starfað þar með Sjálfstæðis-
flokki undanfarin tvö ár. Sérstaða
Hjörleifs Guttormssonar er langt
frá því að vera fréttnæm og það er
raunar til vitnis um þann styrkog
ábyrgð sem þessi stjóm hefur
sýnt að þrátt fyrir Hjörieif hefur
tekist að bana glundroðagrýlunni.
Garri
■ VÍTT OG BREITT WMMÆISk ÍMSMfSSS^S
Ríkisrekinn einkaáróöur
Löngum hafa fulltrúar hagsmuna-
hópa hímt lengur og skemur í
göngum Alþingishússins til að
vekja athygli þingmanna á sérþörf-
um sínum, sem undantekningar-
lítið eru að kría út fé úr lands-
sjóðnum eða svifta hann tekju-
stofnum.
Allt þetta lið vafrar um og situr
fyrir þingmönnum og grípur þá
glóðvolga þegar þeir þurfa að
bregða sér á afvikna staði innan
hússins og eiga yfirleitt leið um þá
almenninga en þinghelgin verndar
vinnustaðinn, sem eru þingsalir og
þingflokkaherbergi.
Svona hagsmunaaðilar eiga ýmist
erindi sem erfiði eða ekki eins og
gengur og er enda misjafnlega lag-
ið að vekja athygli á sér og kröfu-
gerð sinni.
Þegar bestu, skemmtilegustu og
ástsælustu eftirlæti skemmtana-
geirans leggjast í víking og gerast
kröfuharðir hagsmunaaðilar í
þinghúsinu opnast allar fjölmiðla-
gáttir til að auglýsa upp göfug-
mannlegar hvatir þeirra og hags-
muni og árangurinn lætur ekki á
sér standa, þingmenn bráðna eins
og smjör og lofa þjóðinni brauði
og ódýrum leikjum.
Hugðarefni
fjölmiðlanna
í mörgum fjölmiðlanna fékk lík-
lega ekkert annað þingmál eins
mikla umfjöllun tvo síðustu daga
þinghaldsins eins og tillaga um að
fella skyldi niður virðisaukaskatt af
íslenskum hljómplötum eins og
gert var áður varðandi bækur.
Tveir ástsælustu, bestu og
skemmtilegustu tónlistarmenn
þjóðarinnar dvöldu langtímum
saman í þinghúsinu og stálu sen-
unni frá smámálum svo sem mikl-
um breytingum á stjórnarskrá,
lánsfjárlögum upp á tugi milljarða,
byggingu virkjana og stóriðju, og
Ólafur Þ. Valgelr
Þórðarson Guöjónsson
alþinglsmaður. skemmtanamaður.
vegaáaætlun til nokkurra ára, svo
að eitthvað sé nefnt. Hagsmunaað-
ilarnir unnu að því að fá felldan
niður virðisaukaskatt af útgáfu
tónmenntarinnar.
Þeim varð svo vel ágengt að örfá-
ir alþingismenn sáu sér leik á
borði að stinga meðfram tillög-
unni hagsmunamálum annarra
hópa. Þannig var lagt til að sjón-
dapurt fólk gæti fengið endur-
greiddan virðisaukaskatt af sér-
stökum sjóntækjum með framvís-
un læknisvottorðs.
Önnur viðbót var að flotgallar sjó-
manna yrðu undanþegnir virðis-
aukaskatti. Ólafur Þ. Þórðarson
lagði þá breytingartillögu fram.
Fullyrðingar
og aðdróttanir
í írafári síðasta þingdagsins varð
uppáhaldsþingmál ljósvakamiðl-
anna utanveltu ásamt fjölmörgum
öðrum frumvörpum og tillögum.
Svo bar við í síðari fréttum ríkis-
sjónvarpsins á miðvikudagskvöld
að sagt var frá þingslitum og þykir
engum mikið.
En aðalmál starfsfólks fréttastofu
ríkissjónvarpsins var viðtal við
innanhúsmann í ríkissjónvarpinu
þar sem honum leiðst að ausa úr
skálum reiði sinnar og ráðast
harkalega og með einstaklega
ósmekklegum hætti að Ólafi Þ.
Þórðarsyni alþingismanni fyrir að
hafa eyðilagt hagsmunamál tón-
listarframleiðenda um að létta
virðisaukaskatti af innlendum
hljómplötum.
„Lobbyistinn“ og eftirlæti dag-
skrárgerðarmanna og fréttamanna
ríkisins, Valgeir Guðjónsson,
ákvað upp á einsdæmi að allir ráð-
herrar og þingmenn að Ólafi Þ.
Þórðarsyni undanskildum, hafi
staðið með sér í að afnema virðis-
aukaskatt af hljómplötum. En sú
ósvífni Ólafs, að leggja einnig til að
skattinum væri aflétt af öryggis-
búnaði sjómanna, hefði eyðilagt
málið fyrir hljómlistarmönnum.
Valgeir Guðjónsson hefur staðið
sig vel í þessu máli. Hann og hags-
munahópurinn, sem hann er tals-
maður fyrir, notfæra sér vinsældir
hans og kunnáttu til að koma sér á
framfæri til að vekja athygli á
hagsmunanamálinu og hefur hann
vafið þingmönnum og umfram allt
starfsfólki fjölmiðla um fingur sér.
Betri erindreka getur hagsmuna-
hópur tæpast fengið.
Reiðilestur hans og óbótaásakan-
ir á hendur Ólafi Þ. Þórðarsyni al-
þingismanni láta áreiðanlega vel í
eyrum plötuútgefenda, hvað svo
sem sjómenn hafa um þær að
segja.
En hvað kemur fréttastofu ríkis-
sjónvarpsins til að hleypa innan-
húsmanni að með þessum hætti
og líða honum að hafa í frammi
órökstuddar fullyrðingar um þing-
mál og glórulausar ásakanir á
hendur þingmanni er meira en lít-
ið vafasamt.
Þegar svona vinnubrögð eru við-
höfð gæti maður freistast til að
taka undir með sjálfstæðismönn-
um að réttast væri að selja einka-
aðilum rás tvö, og mætti þá ríkis-
rás sjónvarps fylgja með. Þetta er
hvort sem er vettvangur fyrir
einkaskoðanir starfsfólksins og er
engin ástæða til að ríkisreka þær.
OÓ