Tíminn - 03.04.1991, Síða 4

Tíminn - 03.04.1991, Síða 4
4 Tíminn Miðvikudagur 3. apríl 1991 Kommúnistar unnu stórsigur í kosningunum: Vonsviknir stjórnarand- stæöingar mótmæla Til harðra átaka kom milli albönsku lögreglunnar og stuöningsmanna stjómarandstööunnar í borginni Shkoder í noröurhluta Albaníu í gær. Þrír menn létust og a.m.k. 57 særð- ust. Mótmælendur hafa tekið höfuð- stöðvar kommúnistaflokksins í borg- inni á sitt vald. Óeirðirnar hófust á mánudagskvöld þegar ljóst þótti að kommúnistar höfðu unnið stórsigur í þingkosning- unum á sunnudag. Stuðningsmenn stjómarandstöðunnar söfnuðust í kringum höfúðstöðvar kommúnista- flokksins í Shkoder. Lögreglan skaut á mótmælendur með fyrrgreindum afleiðingum. Mótmælendur hertóku höfuðstöðvar Kommúnistaflokksins og ætluðu sér þegar síðast fréttist að varna lögreglunni inngöngu með vopnum sem þeir fundu í bygging- unni. Þá lögðu margir niður vinnu í borg- inni Kavaje eftir að ljóst þótti að kommúnistar hefðu farið með sigur af hólmi í þingkosningunum. „Við viljum raunverulegt lýðræði og það mun verða hvað sem það kostar," sagði Edmond Korbi, einn af þeim sem lögðu niður vinnu í Kavaje. Mót- mælendur brutu rúður í bílum og Tyrknesk yfirvöld: Óttast um líf 200.000 Kúrda Tyrknesk stjómvöld sögðust í gær óttast um líf yfir 200.000 kúrdískra flóttamanna sem stefndu á landamærí Týrklands og skoruðu á Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna að bregðast við vandamálinu. í yfirlýsingu frá Þjóðaröryggis- ráði TVrklands segir að yfir 200.000 manns, mest konur og börn, séu í verulegri lífshættu við landamæri Týrklands. Táls- maður tyrkneska utanrikisráðu- neytisins sagði að öllum sendi- herrum þeirra þjóða, sem hafa neitunarvald í Öryggisráðinu, hefði verið kynnt ástandiö og brýnt hafi verið fyrir þeim að nauðsynlegt sé að halda fund hjá ráðinu vegna ástandsins. Hann sagði einnig að sendiherra íraka í Ankara hefði verið beðinn um að koma þeim boðum áleiðis til íraskra ráðamanna að þau stöðvi á einhvern máta flóttamanna- strauminn til Týrklands. íraski stjórnarherinn hrekur undanhaldið jafnt og þétt. Tals- maður uppreisnarmanna sjíta sagði að vegir til Sýrlands, Tyrk- lands og írans væru yfirfullir af flóttafólki og flugvélar og þyrlur íraska flughersins gerðu loftárás- ir á það. Reuter-SÞJ létu öllum illum látum. Samkvæmt opinberum tölum sem birtar voru í gær vann Kommúnistaflokkurinn, sem nú kallast Verkamannaflokkur- inn, yfirburðasigur í þingkosningun- um á sunnudag. Verkamannaflokkur- inn fékk 162 þingsæti af 250, en Lýð- ræðisflokkurinn, helsta stjómarand- stöðuaflið, fékk ekki nema 65 sæti. Fjögur þingsæti skiptust milli tveggja smáflokka. Á sunnudag verður kosið að nýju um nítján þingsæti í kjör- dæmum þar sem frambjóðendur náðu ekki hreinum meirihluta. Fylgi Verkamannaflokksins er aðal- lega í sveitunum, en Lýðræðisflokk- urinn, sem samanstendur aðallega af menntamönnum, hefur meira fy\g\ í borgunum. Þannig vann Lýðræðis- flokkurinn sigur í Tirana, þar sem for- setinn Ramiz Alia var í framboði, Shkoder og fleiri mikilvægum borg- um. Lýðræðisflokknum var spáð yfir- burðasigri fyrir kosningamar. Leið- togar hans skýra tapið í kosningun- um með því að of lítill tími hafi gefist til undirbúnings, en aðeins fjórir mánuðir eru síðan kommúnistar ákváðu að leyfa starfsemi annarra stjórnmálaflokka og halda kosningar. Reuter-SÞJ Mótmæli hafa brotist út í borgum landsins vegna sigurs kommúnista í þingkosningunum á sunnudag. Júgóslavía: Líkur á borgara- styrjöld aukast Miklar óeirðir hafa geisað í hérað- inu Krajina í Króatíu á síðustu dög- um. Serbar eru í meiríhluta í hérað- inu, en þaö liggur að lýðveldinu Serbíu. Á sunnudag kom til skot- bardaga milli króatísku lögreglunn- ar og Serba í ferðamannabænum Plitivice í Krajina. Einn Serbi og einn Króati létu lífið og yfír tuttugu særðust. Á mánudag lýstu leiðtogar Serba í Krajina yfir að héraðið Kraj- ina tilheyrði Serbíu. Leiðtogamir lýstu því einnig yfir að stofnaðar hefðu verið sveitir sjálfboðaliða og leiðtogar Serbíu hefðu heitið þeim vopnum. Serbar og Króatar eru fjölmenn- ustu þjóðirnar í Júgóslavíu. Þær hafa löngum deilt um völd. Góð sambúð milli þeirra er talin vera nauðsynleg til að ríkjabandalagið Júgóslavía haldi velli. Mesta spennan virðist vera í ferða- mannabænum Plitivice og í gær fjölgaði vopnuðum Serbum í bæn- um og einnig var fjölgað í lögregl- unni. Júgóslavneski herinn hefur skorist í leikinn og tók hann sér stöðu milii lögreglunnar og Serb- anna. Herinn hefur skipað króatísku lög- reglunni að draga sig frá, ellegar beiti hann valdi. Yfirmenn lögregl- unnar benda á að herinn hefur ekki fengið heimild forsetaráðs Júgóslav- íu til að beita sér gegn þeim. í for- setaráðinu eru forsetar lýðveldanna sex og leiðtogar sjálfstjórnarhérað- anna tveggja. Ráðið er æðsti yfir- boðari hersins. Yfirmenn hersins styðja serbnesk yfirvöld og eru á móti því að ríkjabandalagið klofni, en Króatía og Slóvenía vilja sjálf- stæði. Leiðtogar Króatíu viðurkenna ekki yfirlýsingu leiðtoga Serba í Krajina- héraðinu um innlimun í Serbíu og hafa heitið að beita öllum aðferðum til að koma á ró í lýðveldinu. Júgóslavneskir fjölmiðlar skýrðu frá því í gær að Serbar hefðu reist vegatálma í nokkrum borgum Króa- tíu til að verjast árásum lögreglunn- ar og Króatar, í þeim héruðum þar sem Serbar eru í meirihluta, hafi búist til varnar gegn vopnuðum Serbum. Reuter-SÞJ Breskum franir gáfu í gær breskum kaup- sýslumanni, Roger Cooper, frelsi. Hann var dæmdur fyrir njósnir árið 1985. Breskir stjómarerindrekar sögðu frelsun Coopers mikilvæþt skref í að bæta samskiptin milli Ir- ans og Bretlands, en minntu á að enn væru þrír Bretar í haldi upp- reisnarhópa í Líbanon sem njóta stuðnings íranskra yfirvalda. Cooper var í viðskiptaerindum í Te- heran þegar hann var handtekinn í Iran: kaupsýslumanni gefið frelsi nóvember árið 1985. Hann játaði á sig njósnir í íranska sjónvarpinu, en bresk yfirvöld sögðu að hann hefði verið þvingaður. Cooper staðfesti það síðan við komuna til Lundúna í gær. Samskipti írans og Bretlands versnuðu mikið þegar Cooper var handtekinn og þegar Salman Rushdie gaf út bókina „Söngvar Sat- ans“. Ríkin slitu stjórnmálasam- bandi vorið 1989 eftir að bók Rush- dies hafði verið birt og Khomeini, þáverandi forseti írans, dæmt Rushdie til dauða. Samskipti ríkj- anna hafa hins vegar farið batnandi á síðustu misserum og þau tóku upp takmarkað stjórnmálasamband í september í fyrra. Bretar og íranir munu hins vegar ekki skiptast á sendiherrum fyrr en Bretarnir þrír, sem eru í haldi uppreisnarhópa í Líbanon, verða látnir lausir. Ekki er langt síðan breskur dóm- stóll felldi niður ákærur á hendur ír- önskum stúdent, sem sakaður var um að hafa sprengt upp bókabúð sem seldi „Söngva Satans". Ákær- urnar voru felldar niður vegna skorts á sönnunargögnum. írönsk yfirvöld lýstu yfir ánægju sinni með ákvörðun dómsins og varaforseti ír- ans, Mohajerani, sagði að ákvörðun- in væri jákvæð og sýndi pólitískan vilja breskra yfirvalda. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit ANKARA - tyrknesk stjórn- völd sögðu t gær að yfir 200.000 íraskir flóttamenn, mest konur og börn, væru við landamæri Tyrklands og þau væru I mikilli lífshættu. Tals- menn uppreisnarmanna sjíta sögðu að fiugvélar og þyrlur iraska flughersins gerðu loft- árásir á flóttafólkið. OHAHRAN, Saudi-Arabíu Næstum þriðjungur banda- rísku hermannanna sem voru sendir til Persaflóa hafa verið kallaðir heim, að sögn banda- riskra heryfirvalda. MOSKVA - Verð ýmissa vöru- tegunda í sovéskum verslun- um tvö- og þrefaldaðist í gær. Forsætisráðherra Sovétríkj- anna, Valentin Pavlov, átti fund með kolanámumönnum í gær, en þeir eru í verkfalli. JERÚSALEM - Ehud Olmert, ráðherra í ísraelsku rikisstjórn- inni, sagði í gær að ríkisstjórn- in hefði gefið ísraelskum ör- yggissveitum heimild til meiri hörku gagnvart Palestínu- mönnum. TEHERAN - Irönsk yfirvöld stigu stórt skref i gær til að koma samskiptum Irans og Bretlands i eðlilegt horf þegar þau gáfu breska kaupsýslu- manninum Roger Cooper frelsi, en hann hefur verið í fangelsi i íran sfðan 1985 fyrir njósnir. TIRANA - Þrir menn létust ( borginni Shkoder í norðurhluta Albaniu og a.m.k. fimmtíu og sjö særðust i átökum lögreglu og manna sem voru að mót- mæla úrslitum kosninganna á sunnudag þar sem kommún- istar unnu stórsigur. PLITIVICE, Júgóslavíu - Mikil hætta er nú á borgara- styrjöld í Júgósiaviu. Leiðtogar Serba í Króatíu lýstu yfir á mánudag að héraðið Krajina, þar sem Serbar eru í meiri- hluta, tllheyrði Serbíu. Á sunnudag létust tveir og tutt- ugu særðust í átökum milli króatísku lögreglunnar og Serba i ferðamannabænum Plitivice. KARLSRUHE, Þýskalandi Skæruliðasamtökin Rauðu herdeildirnar lýstu yfir ábyrgð sinni á morðinu á Detlev Roh- wedder, yfirmanni einkavæð- ingar ríkisfyrirtækja i Austur- Þýskalandi í gær. Morðið er talið enn eitt áfallið fyrir Helmut Kohl kanslara, sem sætir vax- andi gagnrýni fyrir framgöngu stjórnar sinnar í málefnum Austur-Þýskalands. ROERMOND, Hollandi - Hollenskur dómstóil dæmdi f gær (rann Gerard Harte til átj- án ára fangelsisvistar vegna morða (rska lýðveldishersins (IRA) á tveimur áströlskum tú- ristum i maí síðastliönum. KAIRÓ - Khaled Abdel-Nass- er, elsti sonur Gamai Abdel- Nasser fyrrverandi forseta Eg- yptalands, var i gær sýknaöur af ákærum um að eiga þátt í morðum á israelskum stjórnar- erindrekum á árunum 1984- 1987 sem skæruliðasamtökin Egypska byltingin lýsti á hend- ur sér. NEW YORK - Bandaríski danshöfundurinn Martha Gra- ham lést í gær, 96 ára að aidri. Hún er einn frægasti danshöf- undur sem uppi hefur verið. Reuter-SÞJ -ilLtc ilbOia J 'áTl/ií TUOf»

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.