Tíminn - 03.04.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.04.1991, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 3. apríl 1991 Tíminn 13 BILALEIGA AKUREYRAR Traustir hlekkir í sveiganlegri keðju hringinn í kringum landið Bflaleiga með útibú allt í kringum landið, gera þír möguiegt að leigja bíl á cinum stað og skila honum á öðrum. Nvjustu MITSUBISHI bílarnir alltaf til taks Reykjavík: 91-686915 Akureyri: 96-21715 Borgarnes: 93-71618 ísafjöröur: 94-3574 Blönduós: 95-24350 Sauðárkrókur: 95-35828 Egilsstaðir: 97-11623 Vopnafjörður: 97-31145 Höfn í Hornaf.: 97-81303 ÓDÝRIR HELGARPAKKAR Robln Rafstöðvar OG dælur FRÁ BENSÍN EÐA DIESEL Mjög gott verð Rafst.: 600-5000 W Dælur: 130-1800 l/mín Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 Sími 91-674000 Umsjónarmaður tölvumála Búnaðarfélag íslands óskar að ráða umsjónar- mann tölvumála hjá félaginu. Starfið krefst góðr- ar kunnáttu í gerð hugbúnaðar og notkun vél- búnaðar. Góð búfræði- og landbúnaðarþekking er æskileg. Umsóknir sendist til Búnaðarfélags ísiands fyrir 25. apríl nk. Nánari upplýsingar veita Pétur Þór Jónasson og Jónas Jónsson í síma 19200. Búnaðarfélag íslands Bændahöllinni Pósthólf 7080 -127 Reykjavík. Framtíðarstarf Starfskraftur með vélritunar- og enskukunnáttu^ óskast. Viðkomandi þarf að setja sig inn í tölvusamskipti og innskrift á auglýs- ingum. Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í síma 686300. Notaö &nýtt KOSNINGA- MIÐSTÖÐIN pf —á BORGARTÚNI 22 ri* jjjk REYKJAVÍK BwC * Gestgjafar miðvikudaginn 3. ■lU' . GunnarB. Guðmundsson apríl: Gunnar B. Guðmundsson og Anna Kristinsdóttir. Anna Kristinsdóttir Fjaðrafok út af ummælum Vanessu Redgrave vegna Persaflóastríðs Breska leikkonan Vanessa Redgrave þykir heldur betur fara sínar eigin og róttæku leiðir í stjórnmálum. Og hún liggur ekki á skoðunum sínum þó að hún viti áreiðanlega að þær eiga ekki upp á pallborðið hjá hinum breiða meirihluta almennings sem dansar eftir pípu ráðandi valds hverju sinni. í nýafstöðnu Persaflóastríði lét Vanessa sem oftar rödd sína heyrast þegar hún hvatti til þess að „hersveitir Bandaríkjamanna, Breta og annarra heimsveldis- sinna“ yrðu kallaðar heim áður en átökin hófust. Auðvitað var ekkert hlustað á hana frekar en endranær, en þessi orð hennar urðu fleyg og höfðu ýmsar af- leiðingar, m.a. þær að rift var samningi sem gerður hafði verið við hana um að leika á sviði í Boston. Meira veður hefur þó verið gert í fjölmiðlum af því að sagt er að slest hafi alvarlega upp á vinskap hennar og Lynn systur hennar sem búsett er í Bandaríkjunum og lítur á þau sem heimkynni sín. Ef satt er er þetta sérlega óheppilegur tími fyrir vinslit þeirra systra þar sem þær leika saman um þessar mundir, ásamt bróðurdóttur sinni Jemmu, í leikriti Tsékovs, „Þrjár systur" og hefur sýningin fengið ákaflega góða dóma og víða verið sett upp. Þessa dagana eru „Þrjár systur" á fjölunum í Zúrich í Sviss og þar eins og annárs staðar eru systurnar hundeltar af frétta- mönnum sem spyrja þær í þaula um ósamlyndið. Þegar Vanessa verður fýrir svörum vill hún gera lítið úr því og svarar ein- faldlega: „Ef fólk með ólíkar skoðanir getur ekki unnið og lif- að í sátt og samlyndi þýddi það hreinlega að mannkynið væri búið að vera“. Þegar farið er að spyrja hana um álit hennar á um þessa dagana. Þá vitum við það. Vanessa Redgrave er stöðugt spurð hvort hún og Lynn systir henn- ar séu orðnar óvinir. Hún er minna spurð um samvinnu þeirra í „Þrem systrum" en leiksýningin hefur fengið frábæra dóma. Persaflóastríðinu, sem ætti þó að vera öllum kunnugt eftir allan fréttaburðinn, grípur framleið- andi sýningarinnar í taumana. Sýningin „Þrjár systur" hefur fengið frábæra dóma eins og fyrr segir og enginn neitar því að þær Redgrave-frænkur eru allar mjög góðar leikkonur. Þær búa allar á sama hótgli í Zúrich, en sagt er að systurnar tvær eigi fátt vantalað hvor við aðra í frítím- Gerír það gott á fótleaaiunum! Það er ekki nóg með að Kim hafi fallega fótleggi. Hún kann líka þá list að fara í sokkana á þokkafulian hátt og þykir það góð auglýsing fýrir sokkafyrir- tækið. J 1 Leikkonan Kim Basinger hefur heldur betur dottið í lukkupott- inn, og getur þakkað það fótleggj- unum. Hún hefur nýverið gert tveggja ára auglýsingasamning við sokkafyrirtæki og fær fjórar milljónir dollara á þessum tíma fyrir það eitt að koma fram í tveim auglýsingum og sitja fyrir hjá Ijósmyndara tvisvar. Tálsmaður fyrirtækisins er al- sæll og þykist hafa gert góð við- skipti þar sem Kim sé „hin full- komna kona“, hún sé kvenleg, mjög munaðarfull og ákaflega fal- leg. Og varla fær þessi 35 ára feg- urðardís og fyrrverandi Playboy fyrirsæta áhyggjuhrukkur á næstunni vegna peningamála. Kim Basinger er „hin full- komna kona“ segir sokkafram- leiðandinn og finnst það fjög- urra milljóna doliara virði að fá hana til að auglýsa vaming fýrirtækisins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.