Tíminn - 10.04.1991, Qupperneq 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 10. apríl 1991
Breyting á fasteignagjöldum felur í sér töluverða hækkun til eigenda atvinnuhúsnæðis:
1000% HÆKKUN VEGNA
SORPHIRDUGJALDSINS
Eigendum atvinnuhúsnæðis í Reykjavík bregður lfldega í brún þeg-
ar nýir og breyttir fasteignagjaldaálagningarseðlar, sem nú er verið
að senda út, berast þeim f hendur. Á þeim er að flnna allt að 1000%
hækkun á sorphirðugjaldi auk þess sem alvarlegur misbrestur hef-
ur orðið á framkvæmd gjaldsins því það virðist tilviljunum háð hve
háa upphæð hverjum aðila ber að greiða
. Sigrún Magnúsdóttir, borgarfúll-
trúi Framsóknarflokksins, bar upp
erindi vegna þessa í borgarráði í gær
og lagði þar fram bókun þar sem
segir m.a. að líklegt sé að upphæð
sorphirðugjaldsins komi mörgum á
óvart því ekki var staðið við það fyr-
irheit að senda út upplýsingabæk-
ling um breytingarnar. Einnig kem-
ur fram í bókun Sigrúnar að fram-
kvæmd á álagningu sorphirðu-
gjaldsins virðist sérstaklega vera
einkennileg í húsum þar sem bæði
er atvinnuhúsnæði og íbúðir, en þar
viröist sem sorphirðugjald fyrir öll
flát við húsið sé rukkað til fyrirtæk-
isins. Sem dæmi um það misræmi
sem virðist vera á álagningu sorp-
hirðugjaldsins má nefna tvö at-
vinnuhúsnæði þar sem sambærileg-
ur verslunarrekstur fer fram, en á
öðrum staðnum hækkar álagning úr
973 krónum frá fyrri reikningi í
9.313 krónur, eða um 8.340 krónur,
á hinum hækkar álagning úr 2.100
krónum í 20.100, eða um 18.000
krónur. En samkvæmt samþykkt
borgarstjórnar Reykjavíkur ber eig-
endum atvinnuhúsnæðis að greiða
6.700 kr. fyrir hvert sorpflát.
Sigrún Magnúsdóttir segir að borg-
in hafi alveg brugðist í því að kynna
fyrir atvinnurekendum hvernig
þessar hækkanir færu fram og þá
boðið þeim upp á þann valkost sem
er fyrir hendi. „Atvinnufyrirtæki
geta í raun valið hvort að borgin
hirði sorp eða hvort samið er við
einkafyrirtæki sem bjóða sorphirðu-
þjónustu til flutnings til Sorpu eða
hvort að þeir keyri það sjálfir á
gámastaðina, sem verða átta talsins í
borginni," sagði Sigrún.
„Sorphirðugjaldið er sett á til þess
m.a. að sýna fram á hvað sorp og
sorphirða kostar og hvetja fólk til
þess að hugsa um að förgun sorps og
það magn sem það hendir, en benda
verður þó á hvaða valkosti fólk hefur
og fyrir hvað það er að borga," sagði
Sigrún.
Er sorpböggun
gamaldags?
Sorpeyðingastöð höfuðborgar-
svæðisins, öðru nafni Sorpa, mót-
töku- og böggunarstöð fyrir sorp í
Gufunesi tekur til starfa í vor. Þar
verður tekið á móti hvers konar úr-
gangsefnum til urðunar, flokkunar
og endurvinnslu, jafnframt verður
þar sérstök móttaka á hættulegum
efnum sem Sorpa sér um að farga.
Mikill kostnaður hefur farið í bygg-
ingu og undifbúning að starfsemi
Sorpu, en raddir hafa heyrst sem ef-
ast um notkunargildi urðunar- og
böggunarstöðvar þegar til lengri
tíma er litið.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að hún
hefði ávallt staðið á móti því að
sorpeyðingastöð yrði komið fyrir í
fjölmennu íbúðahverfi því hún veld-
ur mikilli hávaðamengun. „Einnig
tel ég að sorpböggun sé ekki nú-
tímaleg vinnubrögð og margir halda
því fram að við hefðum átt að nota
sorpbrennslu, með góðum mengun-
arvarnarbúnaði, því krafan er sú að
minnka enn frekar sorpmagnið,"
segir Sigrún.
Erfitt hefur reynst að finna lausn á
sorpförgun sem er algerlega um-
hverfisvæn og deila menn um að-
ferðir. Urðun er einn kostur, sem þó
veldur mengun í jarðveginum
hvernig sem á það er litið. Brennsla
er annar kostur, en reykurinn frá
brennslunni hefur reynst mengun-
arvaldur. Nú hafa verið hannaðir
sorpbrennsluofnar sem nýta orku
frá brennslunni til t.d. upphitunar.
Ingvar Níelsson verkfræðingur hef-
ur haft hugmyndir um að setja upp
sorpbrennsluofn í Skaftafelli þar
sem sorp frá ferðamönnum verður
brennt en orkan sem hefst með
brennslunni nýtt til þess að hita upp
sundlaug á svæðinu. Ingvar segir að
með þessum búnaði væri auðvelt að
samræma sorpbrennslu við ýmsa
hitunarþörf í íslenskum bæjar- og
sveitarfélögum.
„Sorpbrennsluofnarnir sem um
ræðir vinna samkvæmt nýjustu
reglugerðum Evrópubandalagsins
um umhverfisverndun. Ofnarnir eru
búnir til að vinna úrgang frá heimil-
um, verslun, viðskiptum og léttum
iðnaði, en hægt er að koma fyrir sér-
stökum búnaði fyrir brennslu á
skaðlegum eða sérlega erfiðum efn-
um,“ segir Ingvar. —GEÓ
Reglur um leyfilegan fjölda grásleppuneta:
100 net
a mann
Sjávarútvegsráðuneytið hefur sett
reglur um takmarkanirá leyfilegan
fjölda grásleppuneta í sjó. Regl-
umar eru settar að frumkvæði
Landssambands smábátaeigenda.
Samkvæmt reglunum miðast
leyfilegur netafjöldi við fjölda í
áhöfn. Sé einn maður á báti má
hann vera með 100 net í sjó, tveir
mega vera með 200 net og séu þrír
eða flehi í áhöfn mega þeir eiga
300 net í sjó. Hver net miðast við
60 faðma ófellda slöngu.
-sbs.
Kjörfundur í Reykjavík
vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 20. apr-
íl 1991 hefst kl. 09.00 og lýkur kl. 22.00 þann
dag.
Sérstök athygli kjósenda er vakin á eftirfarandi
ákvæði laga nr. 10/1991:
„Er kjósandi kemur inn í kjörfundarstofuna gerir
hann kjörstjórn grein fyrir sér með því að fram-
vísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt.
Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði sam-
kvæmt kjörskránni afhendir oddviti honum einn
kjörseðil."
Kjósandi, sem ekki hefur meðferðis persónuskír-
teini, getur átt von á því að fá ekki að greiða at-
kvæði.
Yfirkjörstjórnin mun á kjördegi hafa aðsetur í
Austurbæjarskólanum og þar hefst talning at-
kvæða þegar að loknum kjörfundi.
Reykjavík, 9. apríl 1991.
Yfirkjörstjóm Reykjavíkur.
Bændur
Tvöfaldir plastvaskar á
löppum kr. 15.280.-
meö botnstykki, tilvaldir
í mjólkurhúsin. Einnig
járn í grindur undir
skepnur 1,6x1,6 sm.
Þakstál á 800 kr. m2 og
margt fleira.
LINDIN H/F BÍLDSHÖFÐA 18
Sími 82422 (Gunnar)
Viðskiptaráðherra kynnir ríkisstjórninni skýrslu um sölu ríkisbankanna:
Hver vill kaupa
Búnaðarbankann?
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
kynnti á ríkisstjómarfundi í gær
skýrslu sem Seðlabankinn hefur
unnið um kosti og galla þess að
breyta ríkisbönkunum í hlutafélaga-
banka. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagðist vera þeirr-
ar skoðunar að við eigum áfram aö
hafa a.m.k. einn öflugan ríkisbanka.
Hann sagðist óttast að ef ríkisbank-
amir verði gerðir að hlutafélagi
komist hlutabréfin í hendur fárra
öfiugra aðiia líkt og gerðist þegar
Útvegsbankinn var seldur. „Ég held
að það sé ekki heppilegt fyrir þjóðar-
búið að hlutabréf í bönkum komist
á fárra hendur," sagði Steingrímur.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
minntist á skýrsluna á ársfundi
Seðlabanka íslands sem haldinn var í
gær. Hann sagði það sína skoðun að
draga ætti úr ríkisrekstri í banka-
kerfinu og lýsti því yfir að hann vilji
að Búnaðarbanki íslands veröi gerð-
ur að hlutafélagabanka sem fyrst um
sinn verði í eigu ríkisins, en síðan
yrðu hlutabréf rfkisins seld smátt og
smátt. Jón sagði eðlilegt að taka
Búnaðarbankann fyrir frekar en
Landsbankann þar sem Búnaðar-
bankinn væri minni og fjárhagsstaða
Búnaðarbankans betri.
Ágúst Einarsson, formaður banka-
ráðs Seðlabankans, vék einnig að
skýrslunni í ræðu sinni á fundinum.
Hann sagði að Seðlabankinn gerði
ekki ákveðna tillögu í skýrslunni
heldur væri um að ræða faglegt mat
'sem skoða ætti sem innlegg í nauð-
synlega umræðu um þessi mál. Ág-
úst sagði að ýmsar sérstakar aðstæð-
ur hérlendis, svo sem dreifð byggð,
atvinnutengsl banka og byggða-
stefnuhlutverk þeirra yrði að skoðast
vandlega, áður en stór skref yrðu
stigin.
Tíminn spurði Stefán Pálsson,
bankastjóra Búnaðarbankans, álits á
skýrslu Seðlabankans. Stefán sagðist
ekki vera búinn að kynna sér skýrsl-
una, en hann sagðist hins vegar efast
um gildi þess að breyta ríkisbönkun-
um í hlutafélagabanka.
Stefán sagði þessar hugmyndir
vekja upp nokkrar spurningar.
Hvaða ávinningur er falinn í því að
selja ríkisbankana? Hafa ríkisbank-
arnir staðið sig svo illa að leita verði
að nýju rekstrarformi? Hverjir verða
kaupendur? Og það sem mestu máli
skiptir, telja menn sig fá betra banka-
kerfi með því að selja rfkisbankana?
Stefán sagði að menn væru al-
mennt sammála um að Búnaðar-
bankinn hefði staðið sig vel og væri
góð söluvara. Hann sagðist sjálfur
telja að það gæti verið gott fyrir ríkið
að eiga áfram þessa góðu eign.
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, hefur lýst því yfir að
efst á blaði yfir ríkiseignir sem hann
vilji selja séu ríkisbankarnir. Við-
skiptaráðherra mun einnig vilja
breyta bönkunum í hlutafélaga-
banka. -EÓ
Kosningabaráttan á Austurlandi:
„Kosið um 5 málefni," segir
Jón Kristjánsson
„Nú stendur svo óvenjulega á að
kosningamálin eru þau sömu um
land allt, í dreifbyli sem þéttbýli, í
Reykjavík og úti á landsbyggðinni.
Þau eru fimm. í fyrsta lagi verður
kosiö um afstöðuna til EB. í öðru
lagi verður kosið um sjávarútvegs-
stefnuna. í þriðja lagi um afstöðuna
til franikvæmdar nýs búvörusamn-
ings. í fjórða lagi um efnahagsmál-
in, hvort menn vilja standa vörö um
þjóðarsáttina eða fara að fikta eitt-
hvaö í henni. Það vill Sjálfstæöis-
flokkurinn greinilega gera, ef marka
má afstöðu hans til bráðabirgðalag-
anna. í fimmta lagi er kosið um hver
á að veit nýrri ríkisstjórn forystu.
Hvort að veröur Davíð Oddsson, sem
virðist ekki hafa neina stefnu, eða
Framsóknarflokkurinn. undir for-
ystu Steingríms Hermannssonar.
sem hefur markað skýra stefnu í öll-
um þessum málaflokkum." segir
Jón Kristjánsson, sem er í öðru sæti
á lista Framsóknarflokksins á Aust-
urlandi. -aá.
Jón Kristjánsson.