Tíminn - 10.04.1991, Qupperneq 3
Miðvikudagur 10. apríl 1991
Timinn 3
Förum bara fram á að lögum sé framfylgt, segir formaður Kaupmannafélags Vesturlands:
Lögregla á Vesturlandi
vísar farandsölum brott
Góður árangur í baráttu við farandsala og skyndimarkaði aðkomu-
manna á Vesturlandi var meðal þess sem formaður Kaupmannafé-
lags Vesturlands færði félagsmönnum fregnir af á aðalfundi sam-
takanna.
„Parandsalar voru mjög mikið hér á ferðinni, en það má heita að
hér á Vesturlandi séum við laus við þetta núna. Við fengum bara
fógeta og sýslumenn á svæðinu í lið með okkur til að taka á þessu
máli.
Við förum einfaldlega fram á að
lögum sé framfylgt í þessu efni,
ekkert umfram það,“ sagði Viðar
Magnússon á Akranesi, formaður
Kaupmannafélagsins.
„Já, farandsala er bönnuð í lög-
um, nema hvað hægt er að sækja
um landsleyfi, sem gilda svo lengi
sem ekki er verslað með sömu
vörur innan viss radíus á því svæði
sem farandsali er að selja. Menn
hafa verið að selja alla skapaða
hluti, t.d. bækur, skartgripi og
slíkt og matvæli í stórum stíl, svo
sem egg, rækjur, kjúklinga, kart-
öflur og raunar allt milli himins
og jarðar. Við höfum t.d. tvær
bókabúðir hér á Akranesi og samt
var stöðugur straumur af sölu-
mönnum með bækur. Þetta geng-
ur ekki upp.
Hafi menn ekki formlegt leyfi frá
fógeta eða yfirvaldi á viðkomandi
svæði, þá er þeim bannað að
stunda þessa sölumennsku og þeir
látnir hætta. Þegar við verðum
varir við að sölumenn eru á ferð-
inni þá látum við lögregluna vita
og hún bendir þeim á að starfsemi
þeirra sé ólögleg og segir þeim að
hætta þessu. Við höfum ennþá
ekki þurft að kæra neinn form-
lega. Menn hafa hætt og farið."
Viðar segir þessa farandsölu fyrst
og fremst stundaða með því að
ganga í hús. Fólk sé líka almennt
orðið þreytt á þessum sölumönn-
um sem eru að banka upp á hjá því
á kvöldin og reyna að selja alla
skapaða hluti. Menn vilji hafa frið
fyrir þessu.
„Við höfum líka stoppað menn
sem hafa komið með fatamarkaði
og leigt undir þá félagsheimili eða
slíkt. Verslun verður að vera stað-
bundin og viðkomandi verslun að
hafa verslunarleyfi á svæðinu,
annars er salan ólögleg. Sævar
Karl setti t.d. upp markað í Stykk-
ishólmi. Við stoppuðum það. En
hann reyndi til hins ýtrasta og
hélt að lokum sýningu."
Viðar sagði menn lengi hafa
reynt að sporna við þessu og oft
gengið erfiðlega. „En við höfum
nú náð góðum árangri hér á þessu
svæði, enda ekki nema sjálfsagt
mál að gildandi lög og reglur um
þessa hluti séu virtar.“ Aðspurður
telur hann algengt að reynt sé að
stöðva slíka sölustarfsemi víða um
landið, en með misjöfnum ár-
angri.
Farandsalana segir hann undan-
tekningarlaust aðkomumenn.
Heimafólk standi ekki í þessu.
— En nú hafa t.d. borist fréttir af
því að Kolaportið í Reykjavík
hyggi á söluferð um landið í sum-
ar?
„Já, Kolaportið. Það hefur ekki
reynt á það ennþá, en ég á ekki
von á að því verði veitt nein und-
anþága hér á Vesturlandi," sagði
Viðar Magnússon.
Höfuðstaðarbúar eru heldur ekki
lausir við ónæði dyrasölumanna
um kvöld og helgar. Ólíklegt er að
almenningi sé nægilega kunnugt
um að slík sölumennska stríðir
gegn landslögum.
- HEI
Verkamanna-
sambandiö:
Fagnar fyr-
irheitum
um lægri
skatta
Framkvæmdastjóm Verka-
mannasambands íslands fagnar
fyrirheitum um breytingu á
skattbyrði lágtekjuhópa, sem
bafa komið fram í kosningabar-
áttunni að undanfomu. í álykt-
un, sem stjómin sendi frá sér,
segir að verkaiýðshreyfingin
taki mark á þessum fyrirheitum
og muni fylgja þeim eftir.
„Það liggur í augum uppi að
hópar, sem hafa tvö- og þreföld
dagvinnulaun almenns launa-
fólks, geta greitt hærri skatta
en venjulegur iaunamaður.
Hingað til hefur andstaða við
aukna skattbyrði einkum komið
úr þeirra röðum.... Hér verður
að hafa það hugfast að fólk lifir
af því sem eftir er í buddunni
þegar skattar hafa verið greidd-
ir,“ segir f ályktun Verkamanna-
sambandsins.
-sbs.
Álsamningum miðar vel áfram:
Samningstextinn
liggi fyrir í maí
Jóhannes Nordal formaður íslensku
álviðræðunefndarinnar, Halldór
Kristjánsson lögfræðingur iðnaðar-
ráðuneytisins og Geir Gunnlaugs-
son framkvæmdastjóri, áttu fyrir
helgi fund með samninganefnd Atl-
antsálsfyrirtækjanna þriggja. Vel
miðaði á fundinum og náðist sam-
komulag um endanlegt orðalag
flestra þeirra greina í aðalsamningi
sem áður voru ófrágengnar.
Áfundi, sem Jón Sigurðsson iðnað-
arráðherra átti með forstjórum ál-
íyrirtækjanna 12. og 13. febrúar s.l.,
var ákveðið að stefna að því að ljúka
samningum um álver á Keilisnesi í
maí svo að Atlantsálsfyrirtækin geti
hafið lokaviðræður um fjármögnun
framkvæmda í júní. Eftir fundinn í
síðustu viku ríkir bjartsýni um að
þessi áætlun gangi eftir. Á næsta
samningafundi, sem haldinn verður
síðar í þessum mánuði, verður rætt
um óútkljáð atriði er varða aðra
þætti samninganna, þ.á m. um
orkuverð og orkusöluskilmála,
hafnar- og lóðamál og um starfsleyfi.
Á næstu dögum og vikum munu
Atlantsálsfyrirtækin halda allmarga
fundi sín á milli um eignarhald og
rekstur væntanlegs álvers og samn-
ingagerð þar að Iútandi, svo sem um
hluthafasamning, stjórnarsamning
og málmbræðslusamning. -EO
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Uppsagnarfrestur starfsfólks
framlengdur um þrjá mánuði
- Fyrrum sjúklingar kvitta fyrir góða þjónustu
Uppsagnarfrestur þeirra sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á skurðdeild og
gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem sagt höfðu upp
störfum eða óskað eftir flutningi, hefur nú verið framlengdur um þtjá
mánuði. Tuttugu manns sögðu upp störfum og áttu uppsagnimar að taka
gildi 1. og 15. júm, en í stað þess taka þær gildi 1. og 15. september.
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
FSA, segir að ákvörðun hafi verið
tekin um að framlengja uppsagnar-
frestinn um þrjá mánuði. Ingi segir
að heimild sé fýrir því í lögum að ef
um hópuppsagnir opinberra starfs-
manna sé að ræða, sé heimilt að
framlengja uppsagnarfrestinn.
Starfsfólki hefur þegar verið kynnt
ákvörðunin, og segir Sigurlaug Am-
grímsdóttir, deildarstjóri á gjör-
gæsludeild, að starfsmennirnir hafi
allt eins búist við þessum aðgerð-
um. Uppsagnirnar standi hins vegar
óhaggaðar. Málið er í biðstöðu af
okkar hálfu, og lítið hægt að segja
meiraáþessu stigi.
Ástæður uppsagnanna eru sem
kunnugt er væntanleg afturkoma
Gauta Arnþórssonar læknis að
sjúkrahúsinu í júníbyrjun. Ingi
sagði að engin breyting væri á því að
Gauti tæki til starfa 1. júní. Að-
spurður sagði Ingi að það væri rétt
að stjórn sjúkrahússins hefðu borist
bréf frá fólki sem lýsti yfir stuðningi
við Gauta. Bréfrn em öll samhljóða,
en Ingi vildi ekki tjá sig nánar um
innihald þeirra nema að þau væm
stuðningsyfirlýsing við Gauta.
Viðmælandi Tímans, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, sagðist hafa
fengið svona bréf í hendur. Hann
staðfesti að innihald bréfsins væri
stuðningur við Gauta, og jafnframt
áskomn til stjómar FSA að leysa
þessa deilu. í bréfinu er jafnframt
kveðið á um persónulega reynslu
viðkomandi af hæfni Gauta. Maður-
inn kvaðst á sínum tíma hafa verið
sjúklingur Gauta, og sagðist vita um
annan fyrmm sjúkling sem einnig
hefði fengið svona bréf. Með bréfinu
fylgir frímerkt umslag, og eins og
maðurinn komst að orði: „Maður
þarf bara að kvitta fyrir góða þjón-
ustu og henda þessu í póst.“
hiá-akureyri.
Hvert einasta sæti Súlnasalar Hótel Sögu og aðliggjandi sala var skipað á framsóknarvist Framsóknarfélags Reykjavíkur sl. sunnudag.
Tímamynd: Áml Bjama
Fjölmennasta framsókn-
arvist um árabil að Hótel
Sögu sl. sunnudag:
Sprengdi
af sér
húsnæðið
Framsóknarfélag Reykjavíkur hélt
framsóknarvist að Hótel Sögu sl.
sunnudag og var aðsókn geysimikil
og dugði húsrými Súlnasalar hvergi,
svo að koma varð fyrir borðum í að-
liggjandi salarkynnum hótelsins.
Vegna aðsóknarinnar tafðist að spila-
mennskan gæti hafist á tilsettum
tíma.
Meðan á framsóknarvistinni stóð
voru frambjóðendur B-Iistans í
Reykjavík kynntir og efsti maður list-
ans, Finnur Ingólfsson, ávarpaði
gesti. „Þetta er fjölmennasta sam-
koma af þessu tagi í áraraðir," sagði
Alfreð Þorsteinsson, formaður Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur. „Við
sprengdum húsið utan af okkur og
vegna hinnar miklu aðsóknar urðu
tafir á að spilamennskan gæti hafist.
Samkoman sjálf heppnaðist í alla
staði ljómandi vel,“ sagði Alfreð. —sá