Tíminn - 10.04.1991, Side 19
Miðvikudagur 10. apríl 1991
Timinn 19
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur-Úrslitakeppnin:
FLOKKSSTARF
JAFNTEFLI!
Frá Margréti Sanders fréttaritara Tím-
ans á Suðumesjum:
UMFN sigraði ÍBK 81-91 í fjórða úr-
slitaleik liðanna í Keflavík í gærkvöld
fyrir troðfullu húsi. Hreinn úrslitaleik-
ur um íslandsmeistaratitilinn verður
því á fimmtudaginn í Njarðvík.
Njarðvíkingar mættu mjög ákveðnir til
leik og komust yfir 0-5 strax í byrjun.
Keflvíkingar voru ákveðnir að hleypa
þeim ekki of langt frá sér og komust yf-
ir eftir 5 mín. leik 15-13. Njarðvíkingar
létu þá Ronday Robinson gæta Táirone
Thornton eins og hann hefur gert í fyrri
leikjum og breyttu þeir eftir það stöð-
unni í 25-40. Keflvíkingar komust síðan
yfir 48-47 og munaði þar mestu um
þriggja stiga körfur þeirra og skildi að-
eins 1 stig í lok hálfleiksins 53-52.
Mikil taugaveiklun var í byrjun síðari
hálfleiks og tók tíma hjá liðunum að
finna sig. Njarðvíkingar áttu frumkvæð-
ið og komust yfir 56- 65. Þá skiptu
Njarðvíkingar yfir í svæðisvöm sem
ekki gekk upp og söxuðu Keflvíkingar á
forskotið 71- 73. Spennan var gífurleg
síðustu mínúturnar, Njarðvíkingarvoru
yfir 76-81 þegar tæpar 2 mín. voru til
leiksloka, hver sóknin á fætur annarri
fór út um þúfur hjá báðum liðum,
Njarðvíkingar héldu þó haus í lokin og
bræðurnir Teitur og Gunnar Örlygssyn-
ir tryggðu þeim sigurinn með vítaskot-
um á síðustu mínútunni 81-91. Nú
kláruðu Njarðvíkingar dæmið, ólíkt því
sem gerst hefur í tveimur síðustu leikj-
um.
Hjá ÍBK stóðu þeir Falur, Jón Kr. og
Tairone sig vel, sá síðastnefndi hefur
vaxið með hverjum leik, sérstaklega í
vöm og fráköstum, tók 18 slík í gær.
Sigurður stóð sig vel í fyrri hálfleik. Hjá
UMFN stóðu þeir sig vel Teitur, Krist-
inn, (sak, Gunnar og Friðrik, einnig átti
Hreiðar góða kafla. Ronday var góður í
vöm, en getur mun betur í sókn.
Góðir dómarar voru þeir Kristinn Al-
bertsson og Jón Otti Ólafsson.
Stigin ÍBK: Táirone 22, Sigurður 16,
TeiturÖriygsson varaö öörum ólöstuöum hetja Njarðvíkinga í sigrinum á Keflvik-
ingum í gærkvöld. Til vamar er Albert Óskarsson.
Falur 14, Jón Kr. 13, Guðjón 10, Albert 19, Ronday 14, ísak 11, Gunnar 9, Frið-
4 og Júlíus 2. UMFN: Teitur 27, Kristinn rik 7 og Hreiðar 4. MS/BL
Islandsmótið í karate:
Asmundur og Jónína
meistarar í kata
íslandsmótið í karate (kata) var
haldið um síðustu helgi. Asmundur
ísak Jónsson Þórshamri sigraði í
einstaklingskeppni í karlaflokki,
hlaut 25,4 stig. í öðru sæti varð
Halldór Svavarsson KFR með 25,2
stig og þriðji varð Konráð Stefáns-
son KFR með 24,9 stig.
Jónína Olesen sigraði í kvenna-
flokki, hlaut 26,1 stig. Önnur varð
25,0 stig. í þriðja sæti varð Oddbjöm
Jónsdóttir Breiðabliki með 24,6 stig.
í sveitakeppni kvenna sigraði sveit
Þórshamars, skipuð þeim Ingibjörgu
Júlíusdóttur, Margréti Einarsdóttur
og Laufeyju Einarsdóttur, hlaut 24,3
stig. í öðru sæti varð sveit KFR með
23,9 stig, en hana skipuðu Anna
Carlsdóttir, Áslaug Jónasdóttir og
Guðbjörg Ragnarsdóttir.
Sveit Þórshamars sigraði einnig í
sveitakeppni karla, hlaut 25,0 stig. í
sveitinni vom þeir Ásmundur ísak
Skotfimi:
Carl töluvert
frá sínu besta
en sigraði samt
Um síðustu helgi fór fram opið mót
í innanhússskotfimi, þar sem skotið
var 60 skotum liggjandi. Keppendur
voru 5 talsins.
Sigumegari varð Carl J. Eiríksson
Skotfélagi Reykjavíkur, hlaut 584 stig.
Það er nokkuð frá hans besta árangri,
en hann náði 596 stigum á síðasta ís-
landsmóti. í öðru sæti varð Þorsteinn
Guðjónsson með 573 stig. þriðji varð
Auðunn Snorrason með 571 stig.
Lestina ráku Gunnar Bjarnason og
GylfiÆgissonsöngvari. BL
Jónsson, Grímur Pálsson og Halldór
Narfi Stefánsson. Sveit KFR varð í
öðru sæti, einnig með 25,0 stig. í
sveit KFR voru Halldór Svavarsson,
Konráð Stefánsson og Jóhannes
Karlsson. Þriðja sætið féll í skaut
annarrar sveitar frá KFR, en hana
skipuðu þeir Jón ívar Einarsson,
Guðlaugur Davíðsson og Matthías
Matthíasson. Sveitin hlaut 23,7 stig.
Þórshamar hlaut 3 gull og 1 silfur á
mótinu, KFR 1 gull, 3 silfur og 2
brons og Breiðablik hlaut 1 brons.
BL
Knattspyma - U21 árs landsliðið:
Hólmbert hefur
valið hópinn sem
fer til Færeyja
- og leikur þar tvo vináttuleiki um næstu helgi
Knattspymulandsliðið skipað
leikmönnum undir 21 árs heldur
til Færeyja á föstudaginn, en þar
mun liöið ieika tvo æfinga- og
vináttuleiki um helgina. Þjálfari
liðsins, Hólmbert Friðjónsson,
hefur valið hópinn sem leika mun
leikina, en hvorugur þeirra telst
vera landsleikur. Fyrrí leikurínn
verður á föstudagskvöld gegn
Eyjaúrvali og sá síðari á sunnu-
dag gegn A- landsliði Færeyja.
Eftirtaldir leikmenn voru valdir.
Kristján Finnbogason ÍA
ólafur Pétursson ÍBK
Helgi Björgvinsson Vfldngi
Kristján Hafldórsson ÍR
Þormóður Egilsson KR
Ágúst Ólafsson Fram
Gunnar Pétursson Fyfld
Steinar Guðgeirsson Fram
Ingólfur Ingólfsson Stjömunni
Þorsteinn Jónsson Þór
Haraldur Ingólfsson ÍA
Steinar Adólfsson Val
Haukur Pálmason Ftam
Rflcharður Daðason Fram
Pétur Jónsson ÍR
Amar Gunnlaugsson ÍA
Með í ferðinni verða einnig Egg-
ert Magnússon formaður KSÍ,
Stefán Gunnlaugsson formaður
U21 árs nefndar og nefndar-
mennimir Eyjólfur Bergþórsson
og Tómas Krístinsson, auk Hólm-
berts þjálfara og Sveinbjöms
Sveinbjömssonar nuddara.
BL
ÞITT VAL - ÞÍN FRAMTÍÐ
Halldór Jón Jónas Karen Erla
Ásgrímsson Krístjánsson Hallgrímsson Erlingsdóttir
Frambjóðendur Framsóknarflokksins á
Austurlandi efna til funda undir yfirskriftinni
- Þitt val - Þín framtíð -
á eftirtöldum stöðum:
Neskaupstaö 13. apríl kl. 16 ( Egilsbúð.
Bakkafirói 14. apríl kl. 16 í grunnskólanum.
Vopnafiröi 14. apríl kl. 20,30 f Miklagarði
Egilsstöðum 16. apríl kl. 20,30 í Valaskjálf.
Fundirnir veröa auglýstir nánar meö
dreifibréfi og veggspjöldum á hverjum staö.
Raeöiö viö frambjóöendur Framsóknarflokksins
um framtíöina, atvinnumálin og stjórnmálin
x-B Öflug þjóð í eigin landi x-B
Dýralæknar
Staða héraðsdýralæknis í Þingeyj-
arþingsumdæmi vestra er laus til
umsóknar, tímabundið, frá 20. júní
1991 til 6. ágúst 1992, vegna
námsleyfis héraðsdýralæknis.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Umsóknir sendist fyrir 10. maí nk. til landbúnað-
arráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykja-
vík. Allar nánari upplýsingar veitir yfirdýralæknir,
sími 62-2000.
Landbúnaðanráðuneytið,
9. apríl 1991.
Vinnuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir leiðbeinendum
til starfa við Vinnuskólann í sumar. Starfstími skólans
er frá 1. júní til 31. júlí.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu í verkstjórn
og þekkingu á gróðurumhirðu og öðrum verklegum
störfum. Reynsla í starfi með unglingum er líka æski-
leg.
Ennfremur er sérstaklega auglýst eftir leiðbeinendum
fyrir hóp fatlaðra ungmenna sem þurfa mikinn stuðn-
ing í starfi.
Umsóknareyðublöð eru afhent í Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar, Borgartúni 3, sími 622648. Þar
eru einnig gefnar upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk.
Vinnuskóli Reykjavíkur
------------------------------------------------------.
Hjartkær faöir minn, tengdafaðir og afi
Böðvar Tómasson
byggingameistari
Helgamagrastræti 49, Akureyrí
lést að Dvalarheimilinu Hlíð, sunnudaginn 7. april.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 16. apríl kl.
13.30.
Tómas Búi Böðvarsson
Ragnheiður Stefánsdóttir
Böðvar Tómasson
HlynurTómasson