Tíminn - 17.04.1991, Page 2

Tíminn - 17.04.1991, Page 2
2 Tíminn í v» 'j ,*''' r M Miðvikudagur 17. apríl 1991 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Örlög EES ráðast á ráðherrafundi í maí Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að sameiginlegur utanríkisráðherrafundur Evrópubandalagsins og EFTA, sem hald- inn verður um miðjan næsta mánuð, verði úrslitafundur um lausn á þeim pólitísku deilumálum sem eftir standa í samningaviðræðun- um um evrópskt efnahagssvæði (EES). Á fundinum verði reynt til þrautar að ná samkomulagi um þessi deilu- mál, en þau eru sjávarútvegsmál, landbúnaður og hinn svokallaði þróunarsjóður. Lítill árangur virðist hafa náðst á fundi utanríkisráðherra Evrópu- bandalagsins, sem nú stendur yfir. Eitthvað mun hafa þokast í sam- komulagsátt um stjórnunarþáttinn, þ.e. eftirlitskerfið og EES- dómstól- inn. Staðan breyttist ekkert í fisk- veiðimálinu, en Spánverjar halda fast í kröfu sína um að fyrir toll- ffjálsan aðgang að mörkuðum fyrir fisk komi veiðiheimildir innan land- helgi EFTA-ríkja. EB hefur einnig krafist að fyrir tollfrjálsan fisk komi rýmri aðgangur landbúnaðarvara, framleiddra á mörkuðum EFTA- landa. Andstaða er innan EFTA við þetta, sérstaklega frá Svisslending- um. Jón Baldvin sagði að byggðar hefðu verið upp meiri væntingar í kring- um þennan fund utanríkisráðherra EB en efni stóðu til. Hann sagði að það hefði verið vit- að fyrir þennan fund að ekki væri búið að ná samkomulagi innan EB um fiskveiðimálin. Að því máli yrði unnið áfram næstu vikur. Hann sagðist ekki líta á niðurstöðu þessa fundar sem áfall fyrir EES- viðræð- urnar. -EÓ Er hægt að bæta minnið um 400%? Ragnar Bjömsson flytur eríndi. Á myndinni sér í bak Ragnheiðar Davíðsdóttur, sem túlkaði eríndið á táknmál. Tímamynd: Ami Bjama Fatlaðir á fjölmiðlaöld: Dagblöðin á tölvutæku formi Neytendasamtökin vara við óprúttnum sölu- mönnum sem selja neysluvaming „án“ VSK: Mynd- bandstæki atvinnu- tæki? Neytendasamtökunum hafa bor- ist kvartanir neytenda víða um land vegna viðskipta við farand- sölumenn. Neytendasamtökin þekkja dæmi þess að þeir byggl sölumennsku sína á ósannind- um og bjóði í raun lakarí kjör en versianir. Nokkur dæmi eru um að bænd- ur hafi keypt ryksugur, mynd- bandstæld og annað þess háttar, í þeirri góðu trú að þeir fái virð- isaukaskattinn af þeim endur- greiddan. Hið gagnstæða kemur auðvitað í ijós þegar kaupendur athuga málið hjá skattayfirvöld- um. Neytendasamtökin kunna einnig dæmi þess að vara er boð- in á hsrra verði en hún fæst við í verslunum. Á hinum Norðurlöndunum gilda lög, sem veita neytendum rétt til að rifta kaupum allt að viku eftir að þau eru gerð. Hér á landi hafa neytendur enga bygg- ingu af þessu tagi. Neytenda- samtökin þekkja hins vegar dæmi þess að kaupandi hafi get- að keypt sig frá kaupum við far- andsölumann, með æmum kostnaði. Um leið og Neytendasamtokin vara fólk við óprúttnum sölu- mönnum, krefjast þau þess að íslenskum neytendum verði tryggður sami réttur og norræn- ir neytendur njóta. „Hér er ekki um skipulagða hópa að ræða. Þetta er bara eins og gengur, menn sem fara um landið og reyna að selja sína vðru. Við höfum fengið margar kvartanir vegna þeirra. Fólk tel- ur sig vera hlunnfarið í viöskipt- um við þá. Bændum hefur til dæmis verið talin trú um að þeir fái virðisaukaskatt af tyksugum og myndbandstæhjum endur- greiddan, vegna þess að Ifta megl á þau sem atvinnutæki. Neytendur á ísiandi sftja ekki við sama borð og neytendur á öðrum Norðurlöndum. Þeir hafa viku til að hugsa sig um, og geta í lok hennar rift kaupum ef þeir v)|ja. Það er ekki erfitt að koma svipuðum ákvæðum í lög hér á landi. Við munum þrýsta á að það yerði gert,44 segir Garðar Guðjónsson hjá Neytendasam- tökunum. -aá. Á föstudaginn héldu Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið ráðstefnu um fjölmiðla og fatlaða. Tilgangurinn var að vekja athygli á rétti fatlaðra til að fylgjast með í fjölmiðlum. Kortlagðar voru ýmsar leiðir sem fjölmiðlum eru færar til að mæta Fjárveitinganefnd klofnaði í þrennt í afstöðunni til tillagna samgöngu- ráðherra um Qárveitingar vegna loðnubrests. Þrír nefndarmenn vildu endurskoða skiptinguna, fjór- ir lögðust gegn því og tveir sátu hjá. Því er Ijóst að upphaflega úthlutun Qárveitinganefndar verður ekki endurskoðuð og óljóst hvert fram- haldið verður. Á fundinum í gær var tekin afstaða til tillagna samgönguráðherra, sem vildi gera nokkrar breytingar á upp- haflegri skiptingu nefndarinnar. Gengið var til atkvæða um það hvort nefndarmenn væru tilbúnir til að endurskoða skiptingu nefndarinnar og vildu Margrét Frímannsdóttir Al- þýðubandalagi, Málmfríður Sigurð- ardóttir Kvennalista og Egill Jóns- son Sjálfstæðisflokki endurskoða skiptinguna. Hins vegar lögðust Sighvatur Björgvinsson Alþýðu- flokki, Alexander Stefánsson Fram- sóknarflokki, Friðjón Þórðarson og þörfum fatlaðra. Nú þegar er að flestu leyti gerlegt að setja dagblöð- in á tölvudiskling. Honum má stinga í svokallaðan talgervil og þannig geta blindir hlustað á dag- blöðin sín. Á ráðstefnunni kom fram að heyrnarlausir hafa nú aðeins 5 mín- Pálmi Jónsson Sjálfstæðisflokki gegn því að breyta ákvörðun fjár- veitinganefndar. Ólafur Þ. Þórðar- son Framsóknarflokki og Ásgeir Hannes Eiríksson Borgaraflokki sátu hjá. Rfldsstjómin ákvað í gær að verja 15 milljónum í viöbót viö þær 10 milljónir, sem þegar hefur verið ákveðið að veija til að kynna Leif heppna Eiríksson í Norður-Amer- íku. Það eru Norðmenn og íslend- ingar sem sameiginlega standa á bak við þetta kynningarátak. Kostn- aður við það hefur fariö nokkuö fram úr áætlun og hafa norsk stjómvöld þegar varið til þess auknu fé. útna táknmálsfréttatíma í sjónvarpi. Honum stjórna þeir sjálfir og greiða af kostnað. Þar er hins vegar aðeins hægt að miðla um 5% af fréttum dagsins. Enn er því langt í land að fatlaðir njóti þeirra réttinda lýðræðisins, að vera upplýstir. SQómir Landssamtakanna Þroska- hjálpar og Ötyrigabandalags íslands átelja harðlega afstöðu bæjarstjómar Seltjamamess til heimilis einhverfra við Sæbraut á Seltjamaraesi. Á næsta ári verður þess minnst að 500 ár eru liðin frá því að Kólumbus kom til Ameríku. Af því tilefni verð- ur mikið um hátíðahöld vestra. Frændur Leifs heppna vilja minna íbúa Ameríku á að Leifur var á ferð um álfuna nokkrum öldum áður en Kólumbus kom þangað. Það stefnir því í að Kólumbus og Leifur heppni muni keppa á næsta ári um athygli íbúa Ameríku. -EÓ „Við erum fær um að muna marg- falt meira en við gemm. Það þarf bara að kenna fólki að nota þá hæfi- leika sem það hefur,“ sagði Guð- mundur Rúnar Ásmundsson í sam- tali við Tímann, en hann hefur lært aðferð sem getur hjálpað fólki til að bæta sitt minni. Guðmundur sagði að ef fólk nái tökum á þessari tækni, sem hann kallar ofurminni, geti það bætt hæfileikann til að muna hluti um a.m.k. 300-400%. Guðmundur sagði þessa aðferð byggða á aldagömlu kerfi sem Forn- Grikkir notuðu mikið. í stað þess að endurtaka hluti nóg og oft þangað til þeir eru lærðir, er lögð áhersla á að hugsa í myndum. ímyndunarafl- ið er virkjað á nýjan hátt. Fólki með fjörugt og gott ímyndunarafl geng- ur oftast nær betur að tileinka sér þessa tækni en öðrum. Guðmundur tók fram að fólk þyrfti ekki að vera neitt sérstaklega gáfað til að geta nýtt sér námskeiðin. Allir geti bætt sitt minni. Guðmundur lærði um ofurminni í Bandaríkjunum í tvö ár og er nú kominn heim til að fræða fólk um ofurminni. Námskeiðin, sem Guð- mundur býður upp á, eru 14-16 tím- ar og á sú kennsla að duga til að hver og einn nái vissri grunnþekk- ingu. Þessi aðferð byggir á þjálfun og þess vegna verður fólk að halda þekkingunni við, vilji það ná frekari árangri á þessu sviði. Guðmundur kennir ofurminni á námskeiðum sem haldin eru á Hót- el Lind. -EÓ Að eiga heimili eru grundvallar mannréttindi sem allir þegnar þessa Iands eiga að njóta, einnig fatlaðir. Ef heimilinu væri gert að flytja væri það brot á þessum mannréttindum. Afstaða bæjarstjórnar Seltjarnar- ness er með öllu óskiljanleg í ljósi þess að komið hefur verið að veru- legu leyti til móts við tillögur til lausnar málsins. Stjórnir Þroskahjálpar og Öryrkja- bandalagsins munu standa vörð um mannréttindi fatlaðra með öllum tiltækum ráðum. Þær skora því á bæjarstjórn Seltjarnarness að aftur- kalla áskorun sína til félagsmálaráð- herra um að flytja heimili einhverfra frá Seltjarnarnesi, og þannig í nafni mannúðar, að standa vörð um grundvallar mannréttindi fatlaðra á Islandi. Fjárveitinganefnd Alþingis: Mun ekki endur- skoða upphaf- lega úthlutun Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið átelja bæjarstjórnina á Nesinu: Réttur allra að eiga sér heimili -SE Kynning í BNA á þeim sem fann Ameríku: Hver var þessi Leifur?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.