Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 17. apríl 1991
MINNING
Bjami Stefánsson
formlistamaður
Fæddur 13. september 1923
Dáinn 27. mars 1991
Þann 5. apríl sl. var til moldar bor-
inn, Bjarni Stefánsson, formlista-
maður við Þjóðleikhúsið í Reykja-
vík. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að
ósk Bjarna.
Bjarni fæddist að Steinholti í Gler-
árþorpi við Akureyri 13. sept. 1923.
Hann var sonur sæmdarhjónanna,
Stefáns Kristjánssonar, sjómanns og
starfsmanns Gefjunar, og Kristínar
Bjarnadóttur konu hans. Þau eru nú
látin fyrir nokkrum árum síðan.
Þegar Bjarni var á 5. ári fluttist fjöl-
skyldan til Reykjavíkur, ásamt yngri
bróður hans, Braga, og þar fæddust
yngri bræður hans, Baldur prentari
og Höskuldur blikksmiður.
Ég kynntist Bjarna fyrst þegar
hann bjó að Freyjugötu 1, á fimmta
áratugnum, en þar bjó einnig Skúli
Hansen tannlæknir, sem var söng-
unnandi, plötusafnari og diskofil
eins og það er kallað á plötumáli.
Við ívar heitinn Helgason, sem
einnig var kunnur plötuvinur, kom-
um oft til Skúla, þá til að heyra nýj-
ustu sendingar bestu samtíma
söngvara sem til voru, en Skúli fékk
plötur þessar frá Mflanó og London,
einnig á ferðum sínum víða um lönd
á þessum árum. Skúli kynnti okkur
fyrir Bjarna, sem einnig var plötu-
safnari og diskofil. Þar tókust kynni
með okkur og vinátta sem stóð alla
tíð síðan og hef ég talið Bjarna til
minna bestu vina.
Bjarni gekk í Myndlistaskólann í
nokkur ár og var myndlistamennt-
aður hjá Jóhanni Briem og Finni
Jónssyni listmálurum. Síðar var
Bjarni um skeið í Englandi við
formlistanám. Á eftirstríðsárunum
vann hann um tíma við nokkur leik-
hús þar í landi.
Bjarni kvæntist Guðbjörgu Bene-
diktsdóttur ritara, en þau slitu sam-
vistum í vinsemd eftir nokkur ár.
Bjarni var barnlaus.
í kringum 1947 eða 8, stóð fyrir
dyrum Snorrahátíðin mikla í Reyk-
holti. Guðlaugur Rósinkranz, verð-
andi Þjóðleikhússtjóri, var fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar. Hann
fékk Bjarna ásamt fleirum til að
annast skreytingar hátíðarsvæðis-
ins, sem tókst mjög vel og vakti at-
hygli fyrir smekkvísi og kunnáttu.
Guðlaugur sá í Bjarna þann hugvit-
sama formlistamann sem hann taldi
Þjóðleikhúsið ekki mega missa af,
og réð hann til starfa þar sem Bjarni
starfaði til dauðadags.
Bjarni var mjög fær formlistamað-
ur. Margar af styttum hans, Mad-
onnum og skúlptúrum af Rómverj-
um voru gerðar úr frauðplasti, sem
tóku slíkum breytingum í höndum
hans að gestum leikhússins sýndust
þær gerðar úr þungum marmara,
Bjami Stefánsson og rómverskir skúlptúrar í Þjóðleikhúsinu.
séð utan úr sal, svo maður nefni
ekki allar grímurnar og vasana frá
öllum tímum. Það eru því miður
ekki margir sem átta sig á því hve
gífurleg vinna og útsjónarsemi ligg-
ur að baki formlistagerð, djúphugs-
uð kunnátta og mikill tillestur. Þess
oftar undrar mann hve fákunnandi
eða ófróðir sumir leiklistarumsegj-
endur eru þegar þeir fjalla um leik-
verk eða óperur að þeim yfirsést oft-
ar en sjaldan sá þáttur formlistar,
sem bjargar oft lélegri leikmynda-
gerð.
Bjarni hafði mörg áhugamál og
ólík, öll menningar- og listalegs eðl-
is. Um árabil stundaði hann Ijós-
myndun með ágætum árangri og
stúderaði þessi fræði vel. Þessi list-
grein kom honum oft vel í starfi
hans við leikhúsið. Þess má geta að
myndir teknar af Bjarna hafa birst í
erlendum tímaritum.
Gaman var að fara með honum á
málverkasýningar. Hann var sér-
fræðingur í þessu og benti okkur á
hin ýmsu tilþrif og einkenni sem við
komum ekki alltaf auga á við íyrstu
sýn.
Eins og margir vita var Bjarni frá-
bær teiknari og það er synd að hann
skyldi ekki hafa haft sig nokkuð í
frammi á því sviði, því það var
ástæða til, hann átti þar erindi.
Bjarni var mikill bókaáhugamaður
og var tíður gestur á bókauppboð-
um. Hann átti vandað sérvalið
einkabókasafn á ýmsum málum um
velflest áhugamál sín. Einnig átti
hann frumútgáfur margra góðra
verka, enda var Bjarni ágætur
tungumálamaður, talaði frönsku og
ensku reiprennandi, skildi og las
ítölsku og eitthvað í þýsku.
Svo verður ekki skilið við Bjarna
Stefánsson vin minn, að ekki verði
minnst á aðaláhugamál hans alla
ævi, en það var tónlistaráhugi hans.
Músík umlék Bjarna allt hans líf og
þá sérflagi sönglistin, drottning list-
Norðuriandskjördæmi
eystra
Aðalkosningaskrifstofa framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra að
Hafnarstræti 90, Akureyri, símar 96-21180,
96-26054 og 96-26425 er opin alla virka
daga frá kl. 9.00-22.00.
Höfum einnig opnað skrifstofu á Dalvík,
Hafnarbraut 5, sími 96-63191 og á
Húsavík, Garðarsbraut 5, sími 96-41225.
anna. Hann var mikill plötusafnari,
diskofil, og í meira lagi vandlátur
með söngvara. Plötusafn hans var
sérvalið úrvalslið bestu söngvara í
heimi á öllum tímum. Bjarni gerði
skýran mun á þvf fáfengilega dúlli
sem við höfum haft í kringum okkur
undanfarið, og glæsilegum óperu-
söng fyrri ára, enda var hann meira
og minna þátttakandi í þeim óperu-
sýningum sem skilið hafa eftir sig
umtalsverðar listrænar endurminn-
ingar. Það er varla hægt annað en að
minnast á örfáa af þeim frægu og al-
þekktu söngvurum sem allir plötu-
vinir og safnarar þekkja og Bjarni
hreifst svo af. Til að mynda Giovanni
Zenatello, einn mesta Othello aldar-
innar, sérstaklega „Esultate", inn-
komu Othellos, atriði sem var tekið
upp á sýningu 1928, og er talið það
besta sem hefur verið gert, eða óper-
an Aida frá 1929 með A. Pertille sem
Radames og Dusolinu Giannini sem
Aidu, talin klassískasta og best
sungna innspilningin sem gerð hef-
ur verið. Dusolina söng Aidu á móti
Pétri Á. Jónssyni í Þýskalandi 1928.
Franski söngvarinn Léon Escalais,
hinn frægi Cesar Vezzani frá Kor-
síku sem söng Faust, komplett 1933
með hinum fræga Frakka Marcel Jo-
urnet. Svo maður nefni suma fræg-
ustu Wagnersöngvara aldarinnar
sem allir þekkja, t.d. Franz Völker,
Max Lorenz, Lauritz Melchior, Leo
Slezak. Bjarni var mjög imponerað-
ur af gríska tenórsöngvaranum
fræga Ulysses Lappas, og átti margar
plötur með honum eða Urbano,
Chaljapin, Spani. Belcantomeistari
aldarinnar, Tito Schipa, G. de Luca,
hinn fræga tenór Pattiera, hin
ítalska Carmen, Gabriella Besanz-
oni, svo mætti lengi halda áfram.
Þess má geta að Bjarni stóð í bréfa-
skriftum við marga af ofangreindu
listafólki.
Margir íslenskir söngvarar höfðu
það kvalitet sem hreif Bjarna svo
mjög hver á sinn veg, eins og Pétur
Á. Jónsson, María Markan, Stefán ís-
landi, Sigurður Skagfield, Gunnar
Pálsson, Einar Hjaltested, Eggert
Stefánsson o.fl.
Bjarni var alla tíð mikill náttúru-
unnandi. Hann ferðaðist vítt og
breitt um landið, og dáðist að gróðri
þess og fegurð. Hann ferðaðist mik-
ið með Ferðafélagi íslands. í Öræf-
unum hlustaði hann með andakt á
hina stóru symfóníu, symfóníu
þagnarinnar, með sóló ívafi smá-
fuglanna. Sú symfónía er aðeins
leikin í óbyggðum íslands, þessi
hljómkviða.
Sú var tíðin að plötuvinir komu
saman á laugardögum hjá Ásmundi
í Gramminu til að ræða málin og
panta sérvaldar hljómplötur, með
bestu söngvurum heimsins. Þar var
líka drukkið kaffi, hlustað á músík
og skoðaðir listar. Þegar best tókst
til varð stemmningin eins og á Café
Momus. Nú heyrir það sögunni til.
Bjarni var oft gestur okkar hjóna
við ýmis tækifæri. Mörg voru þau
vellukkuð gamlárskvöldin og
skemmtileg, þegar hann og aðrir
vinir komu. Hann var skemmtilegur
og kom vel fyrir í hvívetna, kurteis,
ræðinn og hafði frá mörgu að segja
á sinn sérstaka hátt og var þakklátur
fyrir hvaðeina sem fyrir hann var
gert. Það var alltaf ánægjulegt að fá
Bjarna í heimsókn.
Bjarni kom oft á heimili bróður
síns, Baldurs Stefánssonar prentara,
og konu hans, frú Bergþóru Frið-
geirsdóttur, bæði við hátíðleg tæki-
færi svo og þegar erfiðleikar Bjarna
og sjúkdómur sóttu að. Naut hann
umönnunar þeirra og hjálpsemi þar
til yfir lauk.
Bjarni lést á Borgarspítalanum 27.
mars sl. eftir stutta en erfiða legu,
langt um aldur fram. Það gaf lífinu
gildi að hafa þekkt Bjarna, átt sam-
leið með honum og eiga hann að
vini.
Við Maddý og fjölskyldan öll þökk-
um honum samfylgdina. Minningin
lifir um þennan hýra og glaða heið-
ursmann sem vildi öllum svo vel.
Hvfli hann í friði.
Maríus Blomsterberg
Kópavogur
Kosningahátíð
Stelngrimur
Hermannsson
Guðrún Alda
Harðardóttir
Siguröur
Geirdal
Kosningahátíð B-listans í Kópavogi verður
haldin í Félagsheimili Kópavogs, fimmtu-
daginn 18. apríl.
Stutt ávörp. Fjölbreytt skemmtiatriði.
Húsið opnað kl. 20.30.
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka I
Reykjavík 12.-18. april er I Ingólfsapóteki og
Lyfjabcrgi, Breiðhoiti. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna fró kl. 22.00 að kvöldi
til kl. 9.00 að morgnj virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýslngar um læknis- og tyfla-
þjónustu eru gefnar I sima 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Sím-
svari 681041.
Hafnartjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opiö í þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavíkur Opifl virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
SeHoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sóiarhringinn.
Á Seftjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. Id. 10.00-11.00. Lokaöá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, simaráöleggingar og timapant-
anir I slma 21230. Borgarsprtalinn vaktfrá Id. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúöir og læknaþjónustu emgefnar i slm-
svara 18888.
Ónæmisaðgeföir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Sefljamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Simi
612070.
Garðabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
sima 51100.
Hafnarijöröur Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Læknavakt simi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavflc Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000.
Sáiræn vandamái: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál-
fræðilegum efnum. Simi 687075.
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvenrtadetldin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspitail Hringsins: Kt. 13-19 alla daga.
Öldmnarfæknlngadelld Landspitalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16ogkl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartimi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arsprtalinn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.306119.30ogeftirsamkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkmnardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæöingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppssprtali: Alla
daga kl. 15.3061 kl. 16ogkl. 18.30 61 kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vifilsstaðasprtali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspítali Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
SunnuNið hjúkmnarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikuriæknishéraös og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Simi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgar og á hátíðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúslð: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild atdraöra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusími frá kl.
22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan simi
611166, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarflörður Lögreglan simi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 51100.
Keflavfk: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabíll simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666,
slökkviliö simi 12222 og sjúkrahúsiö simi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafjötðu': Lögreglan slmi 4222, slökkvilið simi
3300, brunasimi og sjúkrabifreið sími 3333.
Wfcfc\.V.V,'/.'A-tvV.vwr ». .......