Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 13

Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 17. apríl 1991 Tíminn 13 Sumarhjólbarðar Hágæða hjólbarðar HANKOOK frá KÓREU Á lágu verði. Mjög mjúkir og sterkir. Hraðar hjólbarðaskiptingar. Barðinn h.f., Skútuvogi Sími: 30501 og 84844 2 BÚSTJÓRI Starf bústjóra við Einangrunarstöðina í Hrísey er laust til umsóknar. Búfræðimenntun áskilin. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 1. maí nk. til yfirdýralækn- is, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. BÍLALEIGA AKUREYRAR Traustir hlekkir í sveiganlegri keðju hringinn í kringum landið Bílaleiga nieO útibú allt í kringum landið, gera þér inúguiegt að leigja bíl á cinum stað og skila honum á öðruni. Nvjustu MITSUBISHI bílarnir alltaf til taks - rr Revkjavík: 91-686915 Akureyri: 96-21715 Borgarnes: 93-71618 ísafjörður: 94-3574 Blönduós: 95-24350 Sauðárkrókur: 95-35828 Egilsstaðir: 97-11623 Vopnafjörður: 97-31145 Höfn í Hornaf.: 97-81303 ÓDÝRIR HELGARPAKKAR OG dælur FRÁ BENSÍN EÐA DIESEL Mjög gott verð Rafst.: 600-5000 W Dælur: 130-1800 l/mín AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS: 680001 & 686300 Jé held ég gangi heim" Eftir einn -ei aki neinn uÉUMFERÐAR Urað Fyrsti kvenstríðsfanginn heldur brúðkaup í ágúst Nafnið Melissa Rathbun-Nealy komst á hvers manns varir þegar hún var tekin til fanga í Persaflóastríðinu, fýrst bandarískra her- kvenna. Hún hefur nú opinberað trúlofun sína og Michaels Cole- man, sem líka var hermaður við Persaflóa. Mamma og pabbi voru ósköp ánægð að fá dóttur sína aftur heim heila á húfí. En kærastann hennar þekkja þau ekki neitt, enda átti hún annan þegar hún fór í stríðið. Melissa Rathbun-Nealy kom heim úr íröskum stríðsfangabúðum á tuttugasta og fyrsta afmælisdaginn sinn, 9. mars sl. En þó að aldurinn sé ekki hár hefur margt gerst í lífi þessarar ungu bandarísku stúlku. Hún hefur verið sæmd ýmsum heiðursmerkjum og viðurkenning- um fyrir þátttöku sína í stríðinu og hún hefur tilkynnt trúlofím sína og Michaels Coleman, sem líka gegndi herþjónustu í Persaflóastríðinu. Það er svo sem ekkert óvenjulegt að 21 árs stúlka opinberi trúlofun sína, en Melissa virðist skilja eftir sig fleiri brostin hjörtu en búast má við af ekki eidri stúlku. Móðir kær- asta hennar úr gagnfræðaskóla er a.m.k. ekki sátt við þessa nýju trú- lofun. Hún segir svo frá að Melissa og sonur hennar, Rodney Bozman, hafi kynnst 1986 og hafi ætlað sér að giftast strax og þau lykju skóla- námi. Sjálf segist hún hafa trúlof- unarhringinn, sem Rodney ætlaði að gefa Melissu, í vörslu sinni. Ekkert varð þó af þeirri trúlofun, þar sem foreldrar þeirra beggja lögðust gegn henni vegna þess hvað þau voru ung. Melissa gekk þá í herinn, á hælana á Rodney sem þegar var þar kominn, og það skipti engum togum að hún giftist snar- lega öðrum hermanni, Anthony Nealy. Þau skildu eftir nokkra mán- uði. Mamma Rodneys segir það hjónaband hafa verið byggt á alger- um misskilningi, enda hafi þau Rodney og Melissa verið ætluð hvort öðru frá upphafi. En eitthvað hefur skolast til um tilfinningar Melissu, því að þegar hún skrifaði vinkonu sinni frá víg- línunni nefndi hún nýju ástina í Iífi sínu Mike og það var Michael Cole- man sem fylgdi Melissu til opin- beru athafnarinnar í Washington DC þar sem hún fékk viðurkenn- ingu fyrir frammistöðu sína í stríð- inu. Hún hafði staðið á því fastar en fótunum að írakamir sneru aftur til að bjarga félaga hennar, David Lockett, sem þeir höfðu skilið eftir særðan í eyðimörkinni. Melissa Ienti svo sem líka í ástar- ævintýri í fangavistinni. Ensku- mælandi fangavörður gætti þess vel og vandlega að hún fengi nóg að borða og drekka og deildi bróð- urlega með henni sígarettu- skammtinum sínum. Hann bar upp hátíðlegt bónorð við hana, á hverjum degi, og hún hryggbraut hann jafnoft. Gullhamramir, sem hann sló henni vom ekki í hógvær- ari kantinum. Hann líkti henni við Brooke Shields og sagði að hún væri eins djörf og Sylvester Stall- one! Auðvitað vom foreldrar Melissu áhyggjufullir meðan einkabam þeirra var í óvinahöndum. En nú virðast taka við önnur vandamál: að reyna að vinna úr ástamála- fiækjunni, sem ekki er víst að hún sé einfær um að átta sig á. SNEMMA BEYGIST KRÓKURINN — Amber Rose Le Bon sigrar tískuheiminn í París Amber Rose Le Bon er ekki há í loftinu. Hún er ekki heldur alveg stöðug á fótunum. Samt var hún óumdeild stjama á tískusýning- um Chanels fyrir skömmu. Amber Rose er ekki nema 18 mánaða gömul. Hún er dóttir bresku stórfyrirsætunnar Yasmin og popparans Simons Le Bon í Duran Duran og alls ekki óvön því að eftir henni sé tekið. Enda er hún ekki enn búin að læra hvað orðið „feimirí' þýðir. Hún skálmaði hin glaðasta með mömmu sinni niður sýningar- brautina, í sérhönnuðum galla eftir Karl Lagerfeld, en áður hafði hún aðeins kynnt sér rándýru snyrtivörumar sem mamma hennar notar í vinnunni, og það var sko ekki síður skemmtilegt. „Þetta er skemmtilegt Kannski ég verði tískusýningardama eins og mamma þegar ég verð stór. En núna þarf að leiða mig, því að ég er ekki nema eins og hálfs árs görnul." Yasmin Le Bon er greinilega stolt af dóttur sinni. Hún á von á bami nr. tvö í haust.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.