Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Halnarhusinu v Tryggvogotu, ________S 28822________ Ókeypis auglýsingar fyrir einstakiinga POSTFAX 91-68-76-91 rvaanríel 7P' HÖGG- > . DEYFAR Verslið hjá fagmönnum Qj varahlutir )rJ/ HaaarshöfAa 1 - s. 67-6744 Jf A w A Iíniinu MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 1991 Norður-Atlantshafsnefndin: Kemur hugsanlega í stað Alþjóðahvalveiðiráðsins Nú stendur yfír í Reykjavík 4. alþjóðlega ráðstefnan um stjórnun og skynsamlega nýtingu sjávarspendýra. Þar mætast fulltrúar frá íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi, Japan og Sovétríkjun- um. Auk þeirra senda Kanadamenn, sem sögðu sig úr Alþjóða- hvalveiðiráðinu í fyrra, áheyrnarfulltrúa. Þar er m.a. rætt hvort þessar þjóðir eigi að stofna með sér formleg samtök, væntanleg- an arftaka Alþjóðahvalveiðiráðsins. Á ráðstefnunni verður reynt að ná kenna nú að engin vísindaleg rök sem mestri samstöðu með þessum þjóðum. Meðal annars verður rætt hlutverk Norður- Atlantshafsnefnd- arinnar í að samhæfa rannsóknir og veiði á sjávarspendýrum. Er þá orð- ið stutt í að hún taki alveg við hlut- verki Alþjóðahvalveiðiráðsins. Það vita menn innan ráðsins. Bret- ar virðast tilbúnir að leyfa takmark- aðar veiðar. Ráðamenn þar viður- séu gegn hvalveiðum. Úr því eiga Bretar aðeins eina leið. í andstöðu sinni við hvalveiðar hafa þeir alltaf farið að ráðum vísindamanna. Það verða þeir að gera áfram, ef nokkur á að taka mark á þeim. í annan stað óttast breskir ráðamenn, ekki á ósekju, að Japanir, íslendingar og Norðmenn segi sig úr Hvalveiðiráð- inu, ef takmarkaðar veiðar verða ekki leyfðar. Með því væru dagar ráðsins líka taldir. Breskir ráða- menn óttast að þá verði heldur engri stjóm komið á hvalveiðar. Þeir vilja því flest til vinna að halda ráðinu saman. Bandarískir ráða- menn hafa einnig lýst þeim ásetn- ingi sínum að sækja um veiðileyfi fýrir Inúíta í Alaska á ársfundinum í vor. Virðist nú mega ná upp nógum þrýstingi innan Alþjóðahvalveiði- ráðsins til að tryggja takmarkaðar veiðar á ný. Ef ekki, hefur þegar ver- ið lagður grundvöllur að nýju ráði. Frá ráðstefnunni í gær. Hermann Sveinbjömsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra. Tímamynd: Ámi Bjama Islenskir hópferðahafar fara óvenjulega leið við rútubílakaup og spara stórfé: Ríkisstjómin samþykkti neyðaraðstoð við Kúrda: Bflgrindur keyptar í Þýskalandi og yfir- byggðar í Júgóslavíu Nú eru í smíðum suður í Júgó- slavíu 8 rútubílar fyrir íslenska hópferðahafa. Grindurnar að bílun- um eru af gerðinni Mercedes Benz og keyptar í Þýskalandi, en síðan er smíðað yfír þær í Júgóslavíu eftir íslenskum teikningum. Að sögn Gjaldþrot Amarflugs. Ríkissjóður greiðir laun starfsmanna: Tugmitljóna launakröfur Fyrrverandl starfsmenn Amar- flugs krefja þrotabú fýrirtækis- Ins um 100 milljónlr króna. Kröfur þeirra ganga fyrir öðrum kröfum. Þó er jjóst að þrotabúió getur aðeins greitt Iítinn hluta þeirra. Þegar málskostnaður hefur verfð greiddur, koma til skipta um 10 milljónir. Ríkið er samkvæmt iögum ábyrgt fyrir launakröfum sem ekki fást greiddar. Þó þar sé á ákveðið hámark, er Ijóst að út- gjöld rikissjóðs nema tugum milljóna. -aá. Skarphéðins D. Eyþórssonar hjá Hópferðamiðstöðinni munar miklu í verði að hafa þennan hátt á. Skarphéðinn segir að til þessa hafi hópferðahafar nær eingöngu keypt nýja bfía af gerðinni Mercedes Benz. Þeir séu hins vegar afar dýrir. Sl. haust fóru nokkrir menn saman og könnuðu þann möguleika að kaupa bílgindur og láta smíða yfir þær í Júgóslavíu. Skarphéðinn segir að í skoðunarferð í júgóslavneskum verksmiðjum heföi þeim virst vinnubrögðin vönduð og ekki síðri en annarsstaðar. í framhaldi af þessu var síðan farið til Þýskalands þar sem keyptar voru bfígrindur af Benz- gerð og þær sendar til Júgó- slavíu. Þar er nú verið að smíða yfir- byggingu á þær. Verkteikningar eru íslenskar og maður héðan fýlgist með verkinu. Bílarnir koma hingað til landsins í tveimur sendingum. Sú fýrri kemur um miðjan maí og sú síðari í miðjum júní. „Það munar geysimiklu í verði að fá bílana svona, eða kaupa þá tilbúna úr verksmiðju. Nýir bfíar, 50 til 60 manna, kosta í kringum 30 milljón- ir króna. En með þessu vonumst við til að geta fengið þá fyrir 15-18 milljónir.“ sagði Skarphéðinn. -sbs. Island sendir 70 Ríkisstjórnin samþykkti í gær að veija þeim 70 milljónum, sem eft- ir voru af fjárveitingu sem á sín- um tíma var ákveðið að veita til flóttamannahjálpar vegna Persa- flóastríösins, til neyðarfajálpar við Kúrda. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráöherra flutti tlllögu þessa efnis f ríkisstjóminni. Haft verður samráð við fjárveitinga- nefnd og samstarfshóp ráðuneyt- anna, sem fjallaði um málið þegar þaö var á dagskrá í janúar, um skiptíngu fjárins. Rauði kross ís- þeim til hjálpar hefur farið seint lands mun annast framkvæmdina af stað. Það er nauðsynlegt að í samráði við alþjóðleg hjálpar- þjóðir heims leggi sitt af mörkum samtök. til að aðstoöa Kúrda,“ sagði Jón „Vlð horfum upp á það þessa Baldvln. dagana að maður, sem nú hefur Ekld hefur verið ákveðið hvemig áunnlð sér títiiinn böðuliinn frá fjárveltingin verður nýtt. Hugsan- Bagdad, skirrist ekki við að fremja legt er að íslensk matvæli, ullar- raunvemlegt þjóðarmorð á þess- teppi eða aðrar skjólflfímr frá ís- ari marghijáðu þjóð. Tugþúsundir landi verði sendar til hjálparsvæð- em við dauðans dyr vegna matar- anna. Jón Baldvin sagöi mikilvægt skorts, kulda og ofsókna morð- að nýta fjárveitínguna sem allra sveita Saddams. Alþjóðlegt átak best. -EÓ Poppstöðvarnar skrúfa upp og reyna að yfirkeyra hverjar aðrar: ALLT í BOTN Útvarpsstöðvar hér á landi hafa mjög háan sendistyrk, sem er jafn- vel hærri en hann gerist í öðmm löndum. Styrkur tónlistarstöðv- anna er frá 75 í allt að 100 kílórið. í nágrannalöndunum em reglur um að styrkurinn skuli vera 75 kílórið. Þegar strikinu á FM-kvarða út- varpstækis er snúið koma stöðvarn- ar missterkt inn. Sumar mjög sterkt og aðrar vægt. Hans Þormar, tækni- fræðingur hjá Pósti og síma, segir að sendistyrkur útvarpsstöðvanna sé á bilinu 75 til 100 kflórið, en styrkur Rásar 1 sé aðeins um 50. Þannig er hægt með ákveðinni tækni að þjappa hljóðinu saman þannig að útsent hljóð verður mjög hátt. En um leið minnka tóngæðin. Engar ákveðnar reglur eru til hér á landi um hver styrkur útvarps- stöðva skuli vera. Hans Þormar segir að hann sé þeirrar skoðunar að setja þurfi regl- ur um sendistyrk útvarpsstöðva. Æskilegt sé að hann verði bundinn við 75 kfíórið eins og viðgengst er- lendis. -sbs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.