Tíminn - 17.04.1991, Qupperneq 3
Miðvikudagur 17. apríl 1991
Tírhinn 3
Benedikt Ámason leiksQóri.
Menningarsjóður
Þjóðleikhússins:
Benedikt fékk
viðurkenningu
A frumsýningu á Söngvaseið sl.
föstudagskvöld var Benedikt Árna-
syni veitt viðurkenning úr Menn-
ingarsjóði Þjóðleikhússins en hann
mun bráðlega láta af störfum á veg-
um þess.
Benedikt stundaði á sínum tíma
leiklistarnám í Lundúnum og hefur
að mestu starfað í Þjóðleikhúsinu.
Fyrst sem leikari og síðar sem leik-
stjóri. Auk þess hefur hann margoft
stýrt útvarpsleikritum.
Fyrsta verkið sem Benedikt leik-
stýrði fyrir Þjóðleikhúsið var Litli
kofinn og eru uppfærslur hans nú
orðnar yfir 50 talsins. Hin síðari ár
hefur Benedikt einkum stýrt söng-
leikjum og má þar nefna Vesaling-
ana árið 1985, Oliver 1989 og nú
síðast Söngvaseið sem var frum-
sýndur á föstudaginn við fádæma
góðar undirtektir. -sbs.
kemur út á föstudag
T Tíminn
Landssamband iðnaðarmanna um aðgerðir
sérsveita fjármálaráðuneytisins:
Aögerðirnar
SJOMINJASAFNIÐ
VILL KAUPA SKÚTU
Sjóminjasafn Islands hefur verið Fríða var smíðuð í Hull í Englandi
boðin til kaups í Englandi nýlega
uppgerð skúta sem áður hét Fríða
RE 13 og gekk til fiskveiða frá
Reykjavík og Hafnarfirði á árunum
1897-1913. Seljandi skútunnar vill
fá 150.000 pund fyrir skútuna eða
15,8 milljónir íslenskra króna. Safn-
ið hefur ákveðið að leita eftir stuðn-
ingi hjá ýmsum aðilum með það í
huga að kanna hvort yfirleitt sé
hægt að fjármagna kaupin á Fríðu.
íslendingar hafa ekki hirt um að
varðveita gamlar skútur, en þessi
mikilvægu atvinnutæki áttu drjúg-
an þátt í að koma þjóðinni úr fátækt
og til auðlegðar. A Akranesi er varð-
veitt skútan Sigurfari, en hún er
ósjófær og mun aldrei geta orðið
neitt annað. Fríða er hins vegar haf-
fær og í góðu ásigkomulagi.
árið 1884 og er tvímastra kútter
byggður úr eik, rúmlega 80 brl. Á
árunum 1897-1913 var hún gerð út
frá Reykjavík og Hafnarfirði og tald-
ist þá meðal vönduðustu og bestu
skipa í flotanum. Árið 1913 var
skútan seld til Færeyja og var gerð
út þaðan allt til ársins 1980 þegar
enskir áhugamenn um seglskip
keyptu hana og komu henni í haf-
fært ástand.
-EÓ
Frá og með 15. apríl eiga bílar að vera komnir yfir á sumardekk. Þess vegna var mikið að gera á hjól-
barðaverkstæðum í gær og fyrradag. Tímamynd: Áml Bjama.
Allir bflar á sumardekk
Mikið var að gera á hjólbarða-
verkstæðum í Reykjavík í fyrradag,
15. apríl, en frá og með þeim degi
eiga allir bílar að vera komnir yfir
á sumardekkin. Samkvæmt lögum
sem samþykkt voru í fyrra er mið-
að við að skipt sé yfir á sumardekk
15. apríl og bílar séu á þeim til 1.
nóvember. Þessum dagsetningum
þarf þó ekki að fylgja ef veðráttan
segir annað.
Verkstjórar á þeim hjólbarðaverk-
stæðum sem Tíminn ræddi við í
gær sögðu að nokkuð væri síðan
að fólk hefði byrjað að láta skipta
yfir á sumardekkin. Segja þeir þar
komi til hve góð veðrátta hefur
verið að undanförnu. Verð á um-
skiptingu af vetrar- og yfir á sum-
ardekk er almennt í kringum 3500
krónur.
Ingi A. Magnússon gatnamála-
stjóri sagði að götur í Reykjavík
kæmu illa undan vetri, en þó e.t.v.
betur en í fyrra. Hann áætlar að
viðgerðarkostnaður á götunum
verði íkringum 150 milljónir. Ingi
sagði að notkun nagladekkja
standi nokkurn veginn í stað. „Fyr-
ir fjórum var hún um 75%, en eft-
ir að við settum í gang áróður
gegn notkun þeirra náðum við
þessu niður í um 60%. Og ég
myndi segja að þannig hafí hún
staðið í stað síðustu tvö árin.“
-sbs.
Ríkisspítalamir:
Fæiri sjúkradeildum lokað
nú en síðastliðið sumar
„Ef þær upplýsingar sem ég hef núna eru réttar, og fjár-
veitingar til okkar standast, ættum við að geta dregið
heilmikið úr lokunum frá því sem var í fyrrasumar. Þar
munar nálega helmingi.
Við skiptum starfsemi okkar á
handlækningasvið, barnalækninga-
svið og lyflækningasvið.
Á handlækningasviði verður bækl-
unarskurðgangur, með 23 sjúkra-
rúmum, lokaður frá 6. júlí til 17.
ágúst. Æðaskurðdeild, með 21
rúmi, verður Iokuð frá 14. júlí til
25. ágúst.
Á barnalækningasviði eru þrjár
deildir. Deild með 13 rúmum verð-
ur lokuð frá 28. júní til 3. ágúst.
Deild með 15 rúmum verður lokuð
frá 23 júní til 3. ágúst. Deild með 26
rúmum verður lokuð frá 4. ágúst til
24. ágúst.
Á lyflækningasviði verður lungna-
deild á Vífilsstöðum, með 19 rúmum,
lokuð frá 1. júlí til 11. ágúst. Deild
með 21 rúmi verður lokuð frá 15 júní
til 1. september. Þetta eru samanlagt
40 deildarvikur. Deildum verður því
lokað í nálega helmingi færri vikur
en í fyrrasumar. Þar munar mestu að
öldrunardeildum verður ekki lokað,"
segir Davíð Gunnarsson, forstjóri
Ríkisspítala. -aá.
■ r
Sala á Egils bjór í verslunum
jókst verulega fyrstu þrjá
mánuði ársins þrátt fyrir al-
mennan samdrátt t bjórsölu
hérálandi.
Samkvæmt tölum ÁTVR var
samdrátturinn tæplega 100
þúsund lítrar eða um 7,7%.
Fyrstu þijá mánuði ársins
hefur orðið nærri fjórðungs
söluaukning á Egilsbjór og af
einstöokum tegundum má
aukningu á sölu Egils-Gulls
um 55% miili ára.
-sbs.
ástæðulausar
Fulltrúar Landssambands iðnaðar-
manna segja að verulegur hluti
þeirra athugasemda, sem sérsveitir
fjármálaráðuneytis hafa gert við
söluskráningu fyrirtækja, séu til-
efnislausar. Fullyrðingin byggir á
könnun sem sambandið hefur látið
gera.
Leitað var til 413 fyrirtækja í iðn-
greinum. 117 svöruðu, eða 28,3%. Af
þeim höfðu 53 fengið heimsókn sér-
sveitanna. Þær höfðu gert alls 40 at-
hugasemdir við söluskráningu hjá
31 fyrirtæki. Þar af fengu 19 bréflega
athugasemd með hótun um lokun.
Fulltrúar Landssambands iðnaðar-
manna fullyrða að flestar athuga-
semdirnar séu tilefnislausar, snúist
um formsatriði, sem ekki hafi efnis-
lega þýðingu fyrir öryggi í sölu-
skráningu og skattaeftirliti. Þá full-
yrðingu byggja þeir á könnun, sem
aðeins 28,3% af þeim sem lentu í úr-
taki, svöruðu.
„Ég get ekki tekið undir að könnun-
in sé lítil, eða ekki marktæk, þó svar-
endur séu aðeins 117 af 413. Sum
þeirra fyrirtækja sem við leituðum
til hafa ekki sjóðsvélar. í okkar huga
er aðalatriðið að menn skuli fá hót-
anir um lokun af litlu sem engu til-
efni,“ segir Guðlaugur Stefánsson,
hjá Landssambandi iðnaðarmanna.
-aá.
TIMANS