Tíminn - 17.04.1991, Blaðsíða 9
8 Tíminn
Miðvikudagur 17. apríl 1991
Miðvikudagur 17. april 1991
Tíminn 9
Að mati nokkurra manna, sem Tíminn ræddi við í gær, snúast kosningarnar nk. laugardag um stöðugleik-
leikann sem náðst hefur og framhald hans, áframhaldandi þjóðarsátt, kjaramál, afstöðuna til EB o.fl.:
Stöðugleiki stjómar
eða stefnuleysi liakls
Kosningarnar næsta laugardag eru að margra áliti mjög mik-
ilvægar kosningar, þó svo að því sé haldið fram fyrir hverjar
kosningar, eins og einn viðmælenda Tímans orðaði það í gær.
í kjördæmisþáttum Sjónvarpsins hefur komið fram að at-
vinnu- og samgöngumál brenna hvað mest á fólki, en einnig
hafa launamál, byggðamál sem og afstaðan til Evrópubanda-
lagsins, ásamt efnahagsmálum almennt, verið ofarlega í hug-
um fólks. Tíminn leitaði álits hjá nokkrum aðilum úr ýmsum
geirum þjóðfélagsins á því hver væru helstu kosningamálin.
Svör þeirra fara hér á eftir. Það skal tekið fram að ekki var leit-
að til manna sem fulltrúa tiltekinna stjórnmálaflokka eða
stjórnmálaskoðana.
HJÁLMAR ÁRNASON:
Þarf að skila þjóðar-
sáttinni til launþega
„Ég held að þessar kosningar hljóti að snú-
ast um það hvaða atvinnustefnu við eigum að
móta í þessu landi. Þær hljóta líka að snúast
um það hvaða launastefna á að ríkja í þessu
landi. Þjóðarsáttin byggir m.a. á því að laun-
þegar landsins hafa tekið á sig ákveðnar
„skyldur". Þjóðarsáttin hefur skilað jákvæðum
árangri og næsta skrefið hlýtur því að vera að
skila aftur til launþega því sem þeir lögðu á
sig, án þess þó að við missum tök á efnahags-
stjórninni," sagði Hjálmar Árnason, skóla-
meistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
„Það hlýtur líka aö vera kosið um það hvort
að þessi svokölluðu mjúku mál í samfélaginu
eigi að vera áfram hornreka eða hvort við vilj-
um gefa þeim einhvern gaum. Vanræksla
þeirra birtist í ýmsum myndum: vaxandi of-
beldi, hærri sjálfsmorðstíðni og almennu rót-
leysi."
— Hvað þarf til að bæta þetta ástand?
„Það þarf í fyrsta lagi að móta einhverja
stefnu og síðan að fýlgja þeirri stefnu eftir í
verki. Alþingi hefur gert allt of mikið af því að
álykta um ýmsa málaflokka, en látið þá síðan
Eftir
Stefán
Eiríksson
drabbast niður með því að veita ekki fjármun-
um til þeirra.“ Ég tel að þetta séu stærstu mál-
in, en sem skólamaður þá hlýt ég að gera þá
kröfu til stjórnmálamanna að þeir sinni
menntamálum þjóðarinnar betur. Við erum
aftarlega á merinni miðað við þróuð ríki
heimsins hvað varðar útgjöld til menntamála
sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu. Á því
sviði þurfum við að bæta okkur ef við ætlum
einhvern tímann að rífa okkur upp af veiði-
mannastiginu, sem við höfum dvalið heldur
lengi á,“ sagði Hjálmar Árnason.
EMIL ALS:
Gruna þá um að líta á
inngöngu í EB sem
raunhæfan möguleika
„Ég er að vona að fólk átti sig á mikilvægi
þessa máls fyrir framtíð íslands. Mér sýnist að
allt of mikið sé gert úr mikilvægi Evrópu fyrir
okkur íslendinga. Til dæmis sýnist mér að sá
ávinningur, sem sagt er að hafi náðst meö inn-
göngu í EFTA á sínum tíma, sé enginn og
hefði náðst hvort sem var.“
Þetta eru orð Emiis Als læknis, en Emil hef-
ur starfað innan Sjálfstæðisflokksins um ára-
bil. Hann kveðst óánægður með afstöðu for-
ystumanna flokksins í EB-málum og segir:
„Þeir eru ekki nógu eindregnir í afstöðu sinni.
Ég gruna þá um að líta á inngöngu í EB sem
raunhæfan möguleika."
— En verðum við ekki að ná samningum til
að tryggja markaði fyrir fiskinn?
„Ég hef engar áhyggjur af því. Evrópubúa
vantar fisk og þeir eiga eftir að koma hingað
og biðja okkur um hann. Auk þess eru aðrir
markaðir ónýttir. Ég tel að við gætum selt allt
okkar sjávarfang í BNA ef kapp væri lagt á það.
Þá eru Japan og SA- Asía óskrifað blað, svo fátt
eitt sé nefnt."
Emil kveður hálfvelgju Sjálfstæðisflokksins
gagnvart EB alvarlegt mál og segir: „Mér
finnst ekki seinna vænna að fólk átti sig á að
kosningarnar nú snúast um EB- málið. Útaf
fyrir sig er skiljanlegt að landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins hafi ekki viljað kveða upp úr
með það í eitt skipti fýrir öll að aldrei yrði
gengið í EB. Ég heyri það hins vegar á sumum
forystumönnum flokksins að þeim finnst að
við ættum að elta einhver Norðurlönd inn í
bandalagið, sem ég tel að við verðum að gjalda
varhug við.
Efnahagsgrundvöllur okkar er gjörólíkur
þeirra og ég lít svo á að við séum algjörlega sér
á báti hvað varðar aðstöðu og kringumstæður.
Bæði er lega landsins sérstök og þá erum við
matvælaframleiðendur og það eru okkar
tromp."
— Forsætisráðherra hefur verið gagnrýnd-
ur fyrir að segja að kosningarnar snúist um
Evrópumálin.
„Ég er sammála þeim sem svo mæla og mun
láta þetta mál algerlega ráða mínu atkvæði nú
og sennilega það sem eftir er,“ sagði Emil Als.
KONRÁÐ EGGERTSSON:
Kosið um störf
ríkisstjómarinnar
,Að mínu mati verður kosið um störf ríkis-
stjórnarinnar ef fólkið hefur yfir höfuð skilið
þau. Þegar þessi stjórn tók við, þá var fjöldinn
allur af fyrirtækjum að fara tii andskotans og
mörg þeirra hafa síðan þá rétt úr kútnum.
Verðbólgan hefur minnkað, það viðurkenna
allir, og það er orðið léttara hjá fólki að borga
af lánum. Ég veit ekki hvort fólkið áttar sig á
þessu almennt, því er nú verr,“ sagði Konráð
Eggertsson, formaður Félags hrefnuveiði-
manna.
„Ég held að það væri nú óhætt að leyfa þess-
um mönnum að vera aðeins lengur við stjórn-
völinn og halda áfram við verkið. Það er ákaf-
lega þægilegt að taka við og kenna öðrum um,
en núverandi stjórn þarf að fá að vera aðeins
lengur og sýna hvað í henni býr,“ sagði Kon-
ráð.
„Margir segja að kosið verði um EB, en ég
er nú á þeirri skoðun að það sé útilokað að
kjósa um EB. Það hlýtur að koma í Ijós, þegar
menn fara að ræða málin, hvort menn hafa
hagnað af því að ganga í bandalagið eða ekki.
Ég held að enginn geti sagt: Við göngum ekki
í EB. Við verðum að vita hvað þeir hafa upp á
að bjóða og hvað þeir vilja fá í staðinn," sagði
Konráð.
Konráð sagðist telja að sjávarútvegsstefnan
væri ofarlega í hugum manna og sjálfsagt
væri margt við hana að athuga. „Ég hef hins
vegar ekki séð nema sáralítið koma fram hjá
þeim mönnum sem eru harðast á móti núver-
andi kerfi. Þeir, sem eru harðastir í gagnrýn-
inni, koma með minnst í staðinn. Ég hef ekki
séð það ennþá sem er skárra en núverandi
kerfi, en það getur átt eftir að koma og þá
verðum við að skoða það,“ sagði Konráð Egg-
ertsson.
JÓHANN GEIRDAL:
Fá þeir sem náðu stöðug-
leikanum að halda áfram?
„Ég hefði nú gjarnan viljað að það yrði sett
upp þannig að það yrði kosið um áframhald-
andi stjórnarstefnu eins og nú hefur verið, eða
þá íhaldsstjórn. Um það snýst málið fyrst og
fremst," sagði Jóhann Geirdal verslunarmað-
ur.
Jóhann sagði að það þyrfti að hamra á þeim
stöðugleika, sem náðst hefði með núverandi
stjórn, og hann treysti betur þeirri stjórn
heldur en íhaldsstjórn til að skila ávinningi
stöðugleikans til launafólks, sem væri næsta
mál á dagskrá.
„Það, sem mér finnst standa upp úr, er fyrst
og fremst þessi ávinningur og hvort þeir, sem
hafa náð þessum ávinningi, fái tækifæri til að
halda áfram því starfi eða hvort þeir, sem voru
búnir að koma öllu í vaskinn, fái að taka við
þokkalegu búi þegar búið er að hreinsa upp
eftir þá. Samkvæmt fyrri reynslu má búast við
því að allt fari í vaskinn aftur ef íhaidið kemst
til valda. Vinstri stjórn þarf því að taka aftur
við eftir fjögur ár, til þess að hreinsa upp óráð-
síuna, og það verður ennþá erfiðari vinna, því
þó að það hafi verið hægt nú að fá fólk til að
fallast á þessa þjóðarsátt, sem hefur gengið al-
veg þokkalega, þá verður mjög erfitt, eftir
fjögur ár, að fá fólk til þess að gera það aftur,"
sagði Jóhann.
„Reyndar er eitt mál, sem mér hefur verið
ofarlega í huga, sem er herstöðin á Miðnes-
heiði. Ég hef verið óánægður með það að rík-
isstjórn, sem Alþýðubandalagið á aðild að,
skuli ékki hafa gert meira en þetta,“ sagði Jó-
hann. „Þessar breyttu aðstæður í heiminum
hafa gert það að verkum að stóra málið er ekki
lengur að krefjast brottfarar hersins. Hins
vegar þurfa menn að fara að búa sig undir það
þegar hann fer, í sambandi við atvinnumálin,"
sagði Jóhann.
Jóhann taldi að eftir kosningar gæti komið
upp sú staða við stjórnarmyndun að stjórnar-
flokkarnir þrír, að undanskildum Borgara-
flokki, mynduðu blokk og Sjálfstæðisflokkur-
inn aðra blokk. Kvennalistinn væri því kom-
inn í oddaaðstöðu og gæti því valið á milli.
„Þetta held ég að flokkarnir þrír vilji ekki að
gerist og þess vegna eru þeir tilbúnir að riðla
sinni fylkingu til þess að koma í veg fyrir að
Kvennalistinn fái að velja. Þar með eru komn-
ir upp þrjú möguleg stjórnarmynstur og af
þeim tel ég viðreisnarstjórn líklegasta," sagði
Jóhann Geirdal.
SNÆR KARLSSON:
Kosið um þann stöðug-
leika sem ríkt hefur
„Það verður auðvitað margt sem verður kos-
ið um næsta laugardag. Eg býst nú við að
menn kjósi m.a. um þann stöðugleika í efna-
hagslífinu, sem ríkt hefur núna undanfarna
mánuði. Kvótamálin og fiskveiðistefnan hafa
áhrif víða úti á landi og samgöngumálin
munu trúlega einnig vega þungt þar. Atvinnu-
málin eru náttúrlega í fijllu samhengi við
þetta tvennt. Síðan horfa menn til skattamál-
anna, það hefur komið greinilega fram að
undanförnu, sérstaklega hjá fiskvinnslufólk-
inu,“ sagði Snær Karlsson, formaður deildar
fiskvinnslufólks hjá Verkamannasambandi ís-
lands.
Snær sagði að hækkun skattleysismarka
væri ein af kröfum fiskvinnslufólksins og
stjórnmálamenn þyrftu að standa við þau lof-
orð, sem þeir gæfu í sambandi við það. Snær
sagði að málefni EB vægju þungt hjá þeim,
sem væru í atvinnulífinu, og þeim sem hafa
kynnt sér málið betur en aðrir. „Mér virðist
sem almenn fræðsla um þessi mál sé mjög í
skötulíki, því miður. Ég veit ekki hversu mikil
áhrif þessi mál hafa á fólk, en þau hafa vafa-
laust einhver áhrif. Það er erfitt að gera sér
grein fyrir því, vegna þess að maður verður
óþyrmilega var við það að menn eru ekki nógu
meðvitaðir um málið.“
— Hvað með þjóðarsáttina, er verkafólk
ánægt?
„í sjálfu sér eru menn ekki óánægðir með
þann árangur, sem orðið hefur af þessum
samningi sem nefndur hefur verið þjóðarsátt.
Hins vegar vill fiskvinnslufólk t.d. ekki þjóðar-
sátt undir þeim formerkjum að hún sé aðeins
fyrir surna."
— Nú hefur verið gert lítið úr þætti ríkis-
valdsins í þjóðarsáttarsamningunum. Skiptir
máli hverjir eru við stjórnvölinn hjá ríkisvald-
inu í komandi samningum?
„Það er rangt að gera lítið úr þætti ríkis-
valdsins í þeirri lausn sem fundin var í febrúar
í fyrra. Auðvitað átti ríkisvaldið þar þátt í mál-
um. Ég vil nú ekki trúa því að menn séu það
ábyrgðarlausir í íslensku stjórnmálalífi að það
hafi úrslitaáhrif hverslags ríkisstjórn situr.
Það getur trúlega haft einhver áhrif á það
hvaða leiðir menn velja, en ég held að allir
hljóti að stefna að því að leysa málin á skyn-
semisgrunni," sagði Snær Karlsson.
Kosningamar á laugardaginn snúast um áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum á þeim nótum sem núverandi ríkisstjóm hefurtek-
ist að byggja upp.