Tíminn - 17.04.1991, Side 15
Miðvikudagur 17. apríl 1991
Tíminn 15
IÞROTTIR
Körfuknattleikslandsliðið leikur 7 leiki á næstu 8 dögum:
Leikið gegn Skotum í kvöld
Þrátt fyrír að fceppnistímabili körfu-
knattleiksmanna sé nú lokið er langt
frá því að okkar bestu menn séu
komnir í sumarfrí. Undirbúningur
karíalandsliðsins fyrir Evrópu-
keppnina, sem haldin verður hér á
landi í byrjun maí, er nú á lokastigi.
Á næstu 8 dögum Ieikur landsliðið 7
landsleiki hér á landi gegn Skotum
og Austurríkismönnum. Fyrsti leik-
- fyrsti opinberi leikurinn í íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti
urínn verður í kvöld gegn Skotum í
iþróttahúsi Fjölbrautaskólans í
Breiðholti við Austurberg.
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari
hefur valið 17 manna hóp, sem taka
mun þátt í undirbúningnum fyrir
Evrópukeppnina. Eftirtaldir leik-
menn eru í hópnum:
Nafn félag aldur hæð
Jón Kr. Gíslason ÍBK 28 185
Opna breska meistaramótið í júdó:
Bjarni Friðriks
í þriðja sætinu
Bjami Friðriksson, júdómaður úr
Ármanni, vann bronsverðlaun í
—95 kg flokki á opna brcska
meistaramótimi í júdó, sem fram
fór f Crystal Palace höllinni í Lond-
on um helgina. Bjami Íagði 4 af 5
mótheijum sínum f keppninnL
Bjami mætti Bretanum Charíton
í fyrstu umferð og lagði hann á
„ippon“ eða 10-0. Því næst mætti
hann Frakkanum Pilildan og sigr-
aðihanná ,ó«ko“ eða 5-0. í þriðju
umferöinni mætti Bjami Bretan-
um Brady og enn sigraði Bjami,
nú á „wasari“ eða 7-0. í undanúr-
siitum lenti Bjami á móti Frakk-
anum Guenet og tapaði 0-7. Þar
með missti hann af viðureigninni
um gullið á mótinu. Bjand glímdi
því við Frakkann Peesque um
bronsverðlaunin. Bjami sigraði á
,dppon“ og hreppti þvi bronsiö.
Góður árangur Bjama, sem f fyrra
vann silfrið á þessu sama mótL
Bjami býr sig nú af kappi fyrir Evr-
ópumeistaramótið, sem haldið
verður í Prag í Tékkóslóvakíu um
miðjan maí.
Fimm aðrír íslenskir júdómenn
tóku þátt í mótinu. Bestum ár-
angri þeirra náði Halldór Haf-
steinsson, en hann sigraði Bret-
ann Shoplanot á ,4ppon“ í fyrstu
umferð, en tapaöi fyrir Finnanum
Vallama á næstu umferð á „was-
ari“.
Eiríkur Ingi Kristinsson tapaði
fyrir Bretanum Kissin í fyrstu um-
ferö á ,4ppon“. Sömu sögu var að
segja af Karii Eríingssyni, sem tap-
aði fyrir Mitty frá Bretlandi. Sig-
urður Bergmann tapaði á „wasari“
fyrir Bretanum Webb í fyrstu um-
ferð og Þórir Rúnarsson tapaði
einnig í fyrstu umferðinni og var
úrleik. BL
Deildakeppnin í badminton:
C-lið TBR sigraði
- TBR með 5 af 6 liðum í 1. deild á næsta ári
Deildakeppnin í badminton var
haldin í Laugardalshöll um síðustu
helgi. Keppnin í 1. deild var jöfn og
Knattspyrna:
Sigur og jafntefli
gegn Færeyingum
íslenska U-21 árs landsliðið í knatt-
spymu lék tvo leiki í Færeyjum um
helgina. Á föstudag unnu okkar
menn úrvalslið eyjanna 1-0 með
marki Haraldar Ingólfssonar. Á
sunnudag var leikið gegn A-liði Fær-
eyinga; úrslitin urðu 2-2 jafntefli.
Ríkharður Daðason skoraði bæði
mörk íslands í leiknum.
Skvass:
Arnar og Ragnheiður
urðu íslandsmeistarar
íslandsmótið í skvassi var haldið í
Veggsport um helgina. Sigurvegarar
í karlaflokki þriðja árið í röð varð
Amar Arinbjamar, en hann sigraði
Jökul Jörgensen í úrslitaleik. í
kvennaflokki sigraði Ragnheiður
Víkingsdóttir, en hún sigraði Helgu
Bryndísi Jónsdóttur f úrslitaleikn-
um.
Vaxtarrækt:
Sigurður og Margrét
með besta vöxtinn
Sigurður Gestsson frá Akureyri
varð íslandsmeistari í vaxtarrækt
um síðustu helgi. Hann sigraði í -90
kg flokki og heildarkeppni mótsins
eftir harða keppni við Guðmund
Marteinsson úr Olafsvík. Guðmund-
ur vann þar með í áttunda sinn. í
kvennaflokki varð íslandsmeistari
Margrét Sigurðardóttir frá Reykja-
vík. BL
Magnús Matthíasson Val 23 204
Falur Harðarson ÍBK 23 184
Teitur Örlygsson UMFN 23 189
Guðmundur Bragason UMFG 23 200
Axel Nikulásson KR 28 192
Páli Kolbeinsson KR 27 184
Jón Amar ingvarss. Haukum 18 184
Valur Ingimundarson UMFT 29 193
Guðni Guðnason KR 25 188
Guðjón Skúlason ÍBK 23 182
Kristinn Einarsson UMFN 24 192
Friðrik Ragnarsson UMFN 20 183
Albert Óskarsson ÍBK 22 190
Rúnar Ámason UMFG 22 194
Sigurður Ingimundar. ÍBK 24 193
Pétur Guðmundsson UMFT 32 218
íslenska landsliðið hefur búið sig
eins vel og kostur hefur verið á,
undir Evrópukeppnina og eru leik-
irnir gegn Skotum og Austurríkis-
mönnum liður í þeim undirbúningi.
Leikmenn UMFN og ÍBK eru þó ný-
farnir að æfa með liðinu, en þeir
voru sem kunnugt er á fullri ferð
með félögum sínum í úrslitakeppn-
inni.
Evrópukeppnin verður leikin í
Laugardalshöllinni. Vegna sýningar,
sem verður í húsinu næstu daga,
mun landsliðið aðeins geta æft í tvo
daga í húsinu fyrir mótið og er það
lýsandi dæmi um þörfina á nýrri
höll, sem nota mætti fyrir stærri
sýningar.
Torfa Magnússyni til aðstoðar verð-
ur Glenn Thomas, þjálfari Hauka.
Hann mun einnig verða með Torfa í
Andorra síðast í maí, þegar bæði
karla- og kvennalandsliðin taka þar
þátt í Smáþjóðaleikunum. BL
hörð, einkum milli A-, B- og C-liða
TBR. Margir leikjanna voru hníf-
jafnir, en C-liðinu tókst að knýja
fram sigur gegn B-liði TBR í síð-
ustu umferð mótsins 5-3.
Mestu munaði um óvæntan sigur
Áslaugar Jónsdóttur og Aðalheiðar
Pálsdóttur gegn Hönnu Láru Páls-
dóttir og EIsu Nielsen, en Elsa er ís-
landsmeistari í einliðaleik kvenna.
KR-a féll niður í 2. deild eftir harða
baráttu við Víking og TBR-d.
í sigurliði TBR-c voru Aðalheiður
Pálsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Jó-
hann Kjartansson, Skarphéðinn
Garðarsson, Þorsteinn Páli Hængs-
son, Gunnar Björgvinsson og
Hannes Ríkharðsson.
TBR-e sigraði óvænt í 2. deild og
þar með mun TBR eiga 5 af 6 liðum
í 1. deild á næsta ári. í siguriiði
TBR-e voru: Njörður Ludvigsson,
Skúli Sigurðsson, Sigurjón Þór-
hallsson, Jón E. Halldórsson, Walt-
er Lentz, Sigríður Jónsdóttir og
Sigríður M. Jónsdóttir. Akureyring-
ar og KR-b veittu liðinu harða
keppni, en þrátt fyrir það tókst e-
liðinu að sigra. í 3. deild féllu Hafn-
firðingar.
Siglfirðingar komu, sáu og sigruðu
í 3. deild. f deildinni kepptu 4 Iið og
var keppni mjög hörð milli liðanna.
í liði TBS voru: Haraldur Marteins-
son, Jóhann Bjarnason, Bjarni
Árnason, Halldór B. Sigurðsson,
Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Sigrún
Jóhannsdóttir.
Deildakeppni BSÍ er eitt viðamesta
badmintonmót ársins. Samtals voru
leiknir 288 leikir á þremur dögum.
Þátttakendur voru um 150 talsins.
BL
Þrír leikmenn hafa orðið að hætta í
hópnum sem lék gegn Dönum milli
jóla og nýjárs: Jóhannes Sveinsson
ÍR sem meiddist í baki, Pálmar Sig-
urðsson og ívar Ásgrímsson Hauk-
um, sem ekki höfðu tíma til að vera
með.
Pétur Guðmundsson er sem kunn-
ugt er meiddur og hann mun ekki
verða með í leikjunum gegn Austur-
ríki og Skotlandi. Hann er aftur á
móti inní myndinni hvað varðar
Eyrópukeppnina.
í kvöld eru það Sigurður, Rúnar, Al-
bert og Friðrik, auk Péturs, sem
hvfla.
íslendingar og Skotar hafa leikið 14
landsleiki. ísland hefur unnið 9, en
Skotland 5. Stigatalan er íslending-
um hagstæð 11058-1011. Síðast
léku þjóðirnar í Evrópukeppninni,
sem haldin yar hér á landi 1986, og
þá sigruðu íslendingar 75-71.
Alls verða þrír leikir gegn Skotum:
í kvöld í íþróttahúsi FB, á morgun í
íþróttahúsinu í Kapiakrika kl. 20.00
og á laugardag í Keflavík. Gegn
Austurríkismönnum verður leikið á
sunnudag á Akranesi kl. 20.00, í
Seljaskóla á mánudag kl. 20.30, í
Grindavík þriðjudag kl. 20.00 og í
Þorlákshöfn á miðvikudag kl. 20.00.
Leikurinn í nýja FB-húsinu er
fyrsti opinberi leikurinn sem fram
fer í húsinu. Sá leikur, ásamt leikj-
unum í Kaplakrika og Þorlákshöfn,
eru einnig fyrstu körfknattleiks-
iandsleikirnir sem fram fara í þess-
um húsum.
Lið Skota er blanda af eidri og yngri
leikmönnúm, sá yngsti er 20 ára og sá
elsti 35 ára. í liðinu er einn leikmaður
sem er yfir tveir metrar á hæð.
Magnús Matthiasson Val, besti leikmaöur og besti nýliöi úrvalsdeildar,
verður í eldlínunni í landsleiknum gegn Skotum í íþróttahúsi FB í kvöld.
Leikurínn hefst kl. 20.00. Tímamynd Pjetur
Körfuknattleikur - Lokahóf KKÍ:
Magnús og Linda best
Frá Margréti Sanders, fréttaritara
Tímans á Suöumesjum:
Lokahóf körfuknattleiksmanna var
haldið í Veitingahúsinu K-17 í Kefla-
vík sl. laugardag. Þar voru afhent
verðlaun til þeirra sem skarað hafa
framúr á nýliðnu keppnistímabili,
ræður haldnar og dans stiginn fram á
nótt.
Sveinn Bjömsson, forseti ÍSÍ, óskaði
körfuknattleiksmönnum til hamingju
með skemmtilegt keppnistímabil og
sagði að körfuknattieikurinn hefði
bakað aðrar íþróttagreinar hvað vin-
sældir varðar. Því næst afhenti hann
Kolbeini Pálssyni, formanni KKÍ,
gullmerki ÍSÍ.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og
frístundakörfuboltamaður, hélt ræðu
og gerði stökkkraft ráðherra f ríkis-
stjóminni að umtalsefhi.
Því næst afhenti Kolbeinn Pálsson
þeim Sveini Bjömssyni, Birgi Emi
Birgis, Helga Ágústssyni, Hilmari
Hafsteinssyni, Hrafni G. Johnsen, Ing-
vari Jónssyni, Jóni Eysteinssyni, Jóni
Otta Ólafssyni, Kristbirni Albertssyni
og Helga Jóhannssyni gullmerki KKÍ.
Þá var komið að viðurkenningum til
handa leikmönnum. Þær hlutu:
Stigahæsti leikmaður 1. deildar
kvenna: Anna María Sveinsdóttir ÍBK.
Stigahæsti leikmaður úrvalsdeildar:
Ronday Robinson UMFN.
Flestar þriggja stiga körfur í 1. deild
kvenna: Björg Hafsteinsdóttir ÍBK.
Flestar þriggja stiga körfur í úrvals-
deiid: Franc Booker ÍR.
Besta vítanýting í 1. deild kvenna:
Björg Hafsteinsdóttir ÍBK.
Besta vítanýting í úrvalsdeild: Franc
Booker ÍR.
Flest fráköst í úrvalsdeild: Ronday
Robinson UMFN.
Prúðasti ieikmaður úrvalsdeildar:
Brynjar Harðarson Snæfelii.
Mestu framfarir dómara í úrvalsdeild:
Guðmundur Stefán Maríasson Bol-
ungarvík.
Besti dómari úrvalsdeildar: Kristján
Möller UMFN.
Þjálfari ársins í úrvalsdeild: Friðrik
Ingi Rúnarsson UMFN.
Besti nýliði í úrvalsdeild: Magnús
Matthíasson Val.
NIKE-lið 1. deildar kvenna:
Björg Hafsteinsdóttir ÍBK, Linda
Stefánsdóttir ÍR, Vigdís Þórisdóttir ÍS,
Hafdís Helgadóttir ÍS, Anna María
Sveinsdóttir ÍBK.
NIKE-lið úrvalsdeildar: Jón Kr. Gísla-
són ÍBK, Falur Harðarson ÍBK, Teitur
Örlygsson ÍBK, Valur Ingimundarson
UMFN, Magnús Matthíasson Vai.
Besti leikmaður 1. deildar kvenna:
Linda Stefansdóttir ÍR.
Besti leikmaður úrvaisdeildan Magn-
ús Matthíasson Val.
Dómaranefnd KKÍ veitti sérstök
verðlaun í hófinu. Heftiplásturinn
fengu þeir leikmenn, sem mest hafa
kvartað í dómurum. Bronsverðlaun:
Albert Óskarsson ÍBK, silfurverðlaun
ívar Ásgrímsson Haukum, gullverð-
laun Bárður Eyþórsson Snæfelli.
Þá afhenti dómaraneihdin þeim fjöi-
miðli verðlaun sem gáfulegustu um-
mælin viðhafði um dómara. Gullverð-
laun fékk Ægir Már Kárason DV fyrir
ummælin: .Afspymuslakir dómarar
voru þeir Bergur Steingrímsson og
Ægir Már Kárason, og var engu líkara
en þeir hefðu spmngið í upphitun-
innii"
Njarðvíkingar afhentu dómumm úr-
siitaleiksins, þeim Jóni Otta Ólafssyni
og Kristni AJbertssyni, mynd af þeim í
öruggri gæslu Magnúsar Vers Magn-
ússonar kraftlyftingamanns.
Víkurfréttir afhentu Teiti Örlygssyni
verðlaun sem besta leikmanni úrslita-
keppninnar.
MS/BL