Tíminn - 24.04.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v Tryggvagotu,
« 28822
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-T6-91
HOGG-
DEYFAR
Versiið hjá fagmönnum
GS varahluti
Hamarsböfóa 1 - s. 67-67-44
LH.
I í niinn
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1991
Jarðskjálftakippir í Holtum:
Tveir snarpir og
fjölmargir vægir
Fjölmargir vægir jarðskjálftakippir fundust í ofanverðum Holt-
um í Rangárvallasýslu fram eftir degi í gær. Auk þess fundust
tveir aðrir sem voru öðrum snarpari eða rúmir 3 á Richter.
„Þetta eru ekki það stórir skjálftar að það sé líklegt, enn sem
komið er, að þeir boði eitthvað stærra þ.e. Suðurlandsskjálfta,“
sagði Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu
íslands í samtali við Tímann.
Skjálftahrinan hófst í fyrra-
kvöld með vægum kippum.
Klukkan 8:13 í gærmorgun
fannst skjálfti sem var 3,2 á
Richter og klukkan 10:26 annar
sem var 3,6. Það voru tveir
snörpustu sjálftarnir og þeir
sem gleggst fundust. Fram eftir
degi í gær skjálftar sem voru
mun vægari. Síðdegis í gær
hafði hins vegar mjög dregið úr
þessari virkni og skjálftarnir
orðnir fáir á hverri klukku-
stund. Upptök skjálftanna voru
ofarlega í Holtum, norðaustur
af bænum Saurbæ.
Eftir hádegi í gær gáfu Al-
mannavarnir út viðvörun vegna
þessara skjálfta. Guðjón Peter-
sen sagði að fylgst yrði vel með
þessum skjálftum og varinn
hafður á.
Um tíuleytið í fyrrakvöld varð
mjög öflugur jarðskjálfti í
Costa Rica og Panama sem
mældist 7,2 á Richter. Þeir
komu glöggt fram á mælum
hér á landi. En getur verið eitt-
hvert samhengi milli skjálftans
þar og hér?: „Við höfum engar
forsendur til þess að svo sé, þó
maður skildi aldrei fortaka fyrir
neitt. Jarðskjálftinn í Costa
Rica veldur ekki þessum hreyf-
ingum hér en það gæti auðvitað
verið einhver sameiginleg or-
sök en hana þekkjum við ekki,“
sagði Ragnar Stefánsson. -sbs.
Borgarráð samþykkir:
Borgin býður
í Blikastaði
Borgarráð hefur samþykkt að gera
kauptilboð í jörðina Blikastaði í
Mosfellsbæ. Þar mun verða framtíð-
arbyggingarland að hluta.
Kauptilboðið hljóðar upp á 244,9
milljónir króna. Jörðin er talin 170
hektarar á stærð. Samkvæmt gild-
andi aðalskipulagi Mosfellsbæjar
reiknast um 90 hektarar neðan Vest-
urlandsvegar, og 50 hektarar ofan
Vesturlandsvegar, byggingasvæði. 30
hektarar neðan vegar falla utan
byggingasvæða.
Borgin býður 2,5 milljónir í hvern
hektara innan byggingasvæðis neð-
an vegar, samtals 225 milljónir. Fyr-
ir land ofan vegar býður Borgin 200
þúsund fyrir hvern hektara, samtals
10 milljónir. Fyrir annað land býður
borgin 330 þúsund fyrir hvern hekt-
ara, samtals 9,9 milljónir.
Tilboðið er gert með þeim fyrirvara
að Mosfellsbær noti ekki forkaups-
rétt sinn og að samkomulag náist
milli sveitarfélaganna um málefni,
sem varða kaup þessi. Þá er hugsan-
Loðskinn
að hækka
Verð á refa- og minkaskinni fer
hækkandi. Það hefur verið mjög lágt
um nokkura ára skeið. Á uppboði á
fmnskum skinnum í Helsinki dag-
ana 19. til 22. apríl fékkst 30 til 60%
hærra verð, en í febrúar. T.d. fór
blárefur á 2508 krónur og slifurre-
fur á 3153 krónur. Verð á minka-
skinni var frá 931 krónu á pastel til
2237 á scanglow.
íslensk skinn voru ekki boðin upp í
Helsinki. Þau verða á uppboði í Dan-
mörku nú um mánaðamótin. Eftir-
spurn er meiri en framboð og loð-
dýrabændur gera sér vonir um að
nú sé að birta til í ræktinni. Að sögn
forráðamanna Félags loðdýrarækt-
enda eru rekstrarskilyrði greinar-
innar nú viðunandi, ef frá er dreg-
inn mikill fjármagnskostnaður
vegna fyrri skulda.
Slökkviliðið í Reykjavfk var í gær kallað að Starmýri 2, þar sem verslunin Vfðir var áður til húsa, en þar
hafði kviknaði eldur í gaskút Iðnaðarmenn voru að vinna viö að innrétta nýja húsgagnaverslun og fyrir
mlstök gleymdlst að skrúfa fyrir kútinn. Gas lak út meðfram slöngunni og nelsti frá smergll kveikti f. Hvorki
urðu skemmdir á húsnæðinu né slys á mönnum og var kúturínn fluttur f burtu eftir að búið var að kæla
hann. Tímamynd: Pjetur
legt að breytingar verði á lögsagnar-
umdæmum Reykjavíkur og Mos-
fellsbæjar.
Tilboðið stendur til 29. apríl. Ef af
verður eru þetta með meiriháttar
landakaupum sem borgin hefur gert.
Eigendur Blikastaða eru Helga
Magnúsdóttir og Sigsteinn Pálsson.
Reiðhjólahjálmar:
Meira en
tvöfaldur
verðmunur
Meira en tvöfaldur verðmunur er
á reiðhjólahjálmum fyrir börn.
Þetta kemur fram í könnun sem
Verðlagsstofnun gerði í verslun-
um á höfuðborgarsvæðinu á dög-
unum.
í könnuninni var eingöngu gerð-
ur verðsamanburður en ekki lagt
mat á gæði hjálmanna eða útlit.
Lægsta verð á hjálmunum var
2.100 kr. en hæst var verðið 4.649
kr. Ódýrastir voru hjálmarnir í
versluninni Fífu við Klapparstíg
og í Skeljungsbúðinni við Síðu-
múla. Dýrastir voru þeir aftur á
móti á Bensínstöðvum Shell við
Kleppsveg og Bústaðaveg og í
Skeljungsbúðinni við Síðumúla. í
síðastnefndu versluninni var um
aðra gerð og stærð á hjálmum að
ræða en þeir sem reyndust ódýr-
astir f sömu verslun.
,Af þeim þrettán tegundum, sem
Verðlagsstofnun fann á markaðn-
um á höfuðborgarsvæðinu, báru
ellefu tegundir merki um öryggis-
viðurkenningu frá viðkomandi
framleiðslulandi. Það skal tekið
fram að hér er eingöngu um verð-
samanburð að ræða og ekki lagt
mat á gæði hjálmanna," segir í
fréttatilkynningu frá Verðlags-
stofnun.
-sbs.
Flugfélag Norðurlands:
Flogið á milli Akur-
eyrar og Keflavíkur
Flugfélag Norðurlands hf. mun
heQa áætlunarflug frá Akureyri til
Keflavíkur 10. maí nk. og verður
flogið fjórum sinnum í viku í sum-
ar, á mánudögum, fímmtudögum,
föstudögum og sunnudögum.
Brottför frá Akureyri verður kl.
14.15 og frá Keflavík kl. 17 alla
dagana.
Til þessa flugs verður notuð flug-
vél af gerðinni Fairchild Metro III,
sem félagið hefur nýlega tekið í
notkun. Metro vélin er hraðfleyg
skrúfuþota með jafnþrýstiklefa fyrir
19 farþega. Flugtími hennar milli
Akureyrar og Keflavíkur er 50 mín-
útur.
Áætlunin er við það miðuð að far-
þegar geti náð öllum síðdegisferð-
um frá Keflavík til útlanda og kom-
ist til Akureyrar skömmu eftir komu
sína frá Evrópu. Á undanförnum ár-
um hefur síðdegisferðum frá Kefla-
vík fjölgað talsvert og er nú m.a.
flogið til Kaupmannahafnar, Lond-
on, Amsterdam, Hamborgar, Hels-
inki og Glasgow auk New York,
Baltimore og Orlando.
Auk farþega til og frá útlöndum,
má búast við að þessi nýja flugleið
verði talsvert notuð í samskiptum
milli Suðurnesja og Eyjafjarðar-
svæðisins, en á þessum svæðum eru
samtals um 35.000 íbúar. Fullt far-
gjald verður 5.400 kr. hvora leið, en
það er sama gjald og milli Akureyrar
og Reykjavíkur. Allir almennir af-
slættir veröa í boði á þessari flug-
leið. —SE
látinn
vorið 1954. Hann lauk lagaprófi
frá HÍ árið 1960 og varð hæsta-
réttarlögmaður árið 1966.
Hann rak lengi lögmannsskrif-
stofu í Reykjavík, íyrst með Bene-
dikt Sveinssyni hrl. en lengst af
með Ágústi Fjeldsted og síðan
með honum og Hákoni Árnasyni
hrl.
Benedikt Blöndal var skipaður
hæstaréttardómari árið 1988.
Hann gegndi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir stétt lögmanna o.fl. og
var m.a. formaður Lögmannafé-
lags íslands 1971-1973. Hann sat
í stjórn Rauða kross íslands frá
1973 og formaður hans frá 1982-
1986. Hann var formaður lands-
kjörstjórnar þegar hann lést.
Eftirlifandi kona Benedikts er
Guðrún Karlsdóttir. Þau áttu þrjú
börn, Karl, Lárus og Önnu.
Benedikt Blöndal
Látinn er í Reykjavík Benedikt
Blöndal hæstaréttardómari.
Benedikt varð stúdent frá MR