Tíminn - 27.04.1991, Side 4

Tíminn - 27.04.1991, Side 4
4 Tímirm Laugardagur 27. áþ'ríí '199"í UTLOND Andlát móður Bakers stöðvar friðarviðræðurnar: Astæða til bjart- sýni segir Bush James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna þurfti skyndilega að fara til Bandaríkjanna í gær vegna andiáts móður sinnar, sem var 96 ára gömul. Viðræður hans og Yits- haks Shamirs, forsætisráðherra ísraels, voru rofnar og hélt Baker strax til Bandaríkjanna. Baker átti að ræða við Moshe Arens vamar- málaráðherra ísraels og leiðtoga Palestínumanna síðar um daginn en þeim viðræðum þurfti að fresta. Baker náði að klára viðræður við David Levy utanríkisráðherra ísraels í gærmorgun og að sögn ísraelska ut- anríkisráðuneytisins komust þeir að samkomulagi um fimm atriði við- víkjandi þeirri friðarráðstefnu sem stefnt er á að halda. George Bush Bandarfkjaforseti sagðist hafa talað við Baker í gærmorgun og taldi ástæðu vera til bjartsýni. Ekkert samkomulag var gert á milli Bakers og Shamirs vegna skyndilegs fráfalls móður Bakers. Hins vegar náðu Baker og Levy samkomulagi um fimm atriði í viðræðum sínum um morguninn. Meðal þeirra atriða var að Sovétmenn mundu ásamt Bandaríkjamönnum leiða friðarráð- stefnuna en með því skilyrði að Sov- “etmenn tækju upp fullt stjórnmála- samband við ísrael sem þeir slitu ár- ið 1967. Einnig komust þeir að sam- komulagi um að Evrópubandalagið tæki þátt í ráðstefnunni og mun end- anlegt hlutverk þess verða ákveðið í "maí þegar Levy fer til Briissel til að jæða við leiðtoga þess. Hins vegar náðist ekki samkomulag um hlut- verk Sameinuðu þjóðanna né heldur hverjir ættu að vera fulltrúar Palest- ínumanna á ráðstefnunni. Baker var nýkominn frá Sovétríkj- unum þar sem hann ræddi við Alex- Griðasvæðin í Norður-írak: 1 íraskir her- menn farnir frá Zakho Baker var að ræða við Shamir þegar hríngt var í hann ffá Bandarikjun- um og honum tilkynnt andlát móður sinnar. ander Bessmertnykh, utanríkisráð- herra Sovétríkjanna. Þeir komust að samkomulagi um að Bandaríkin og Sovétríkin mundu í sameiningu hafa forystu fyrir friðarráðstefnunni. Bessmertnykh mun bráðum fara til Miðausturlanda. Menn hafa verið að tala um að hann muni fara til ísraels en hann hefur ekki viljað staðfesta það. Nokkur arabaríki, eins og t.d. Sýr- land, setja það sem skilyrði fyrir frið- arráðstefnunni að Sameinuðu þjóð- irnar taki fullan þátt í henni en ísra- elsmenn eru harðir á móti því. Þá vilja Palestínumenn að Frelsissam- tök Palestínu (PLO) fái fulltrúa á ráð- stefnunni en því hafna ísraelsmenn. Allt að þúsund íraskir leynilögreglu- og hermenn, sem komu til íraska landamærabæjaríns Zakho á sunnu- dag og mánudag, yfirgáfu bæinn í gær eftir að bandarísk, bresk og frönsk stjómvöld höfðu hótað að fiytja þá frá bænum með valdi. írösku hermennimir fældu kúr- disku fióttamennina frá gríðasvæð- unum en þau em skammt frá Zak- ho. Um fimmtíu íraskir lögreglu- menn eru eftir í bænum en það er eðlilegur fjöldi. Þeir munu eingöngu bera skammbyssur en ekki Kalas- hnikovriffia eins og hermennimir voru með. George Bush Bandaríkja- forseti sagðist ánægður með þróun mála í Norður-írak og taldi ekld lík- ur á að í odda skæríst milli íraskra og bandarískra hermanna. Irösku leynilögreglu- og hermenn- irnir hafa staðið í vegi fyrir áætlun- um bandamanna um að koma u.þ.b. 850 þúsund kúrdiskum flóttamönn- um til hjálpar. Föstudaginn 19. mars var ákveðið á fundi með íröskum hershöfðingjum að íraksher héldi sig a.m.k. 30 km suður af Zakho en á sunnudeginum komu 200 vopnaðir íraskir leynilögreglumenn til Zakho og á mánudeginum allt að 700 til við- bótar. Það var síðan á fimmtudegin- um í þessari viku sem íraski fulltrú- inn hjá Sameinuðu þjóðunum til- kynnti að írösku hermennirnir ætl- uðu að hörfa eftir að bandamenn höfðu hótað að beita þá valdi. Um 2.300 bandarískir, franskir og breskir hermenn eru nú í Norður- ír- ak. Þeir munu sjá til þess að íraksher haldi sig sunnan 30 km línunnar og einnig halda uppi gæslu í Zakho og fylgjast með þeim 50 lögreglumönn- um sem eru þar. Kúrdisku flóttamennirnir eru enn dálítið hikandi við að koma til griða- svæðanna að sögn bandarísks emb- ættismanns en þeir óttast mjög írösku hermennina. Stjórnvöld í Saudi-Arabíu eru að reisa flóttamannabúðir fyrir íraska flóttamenn í norðurhluta Saudi- Ar- abíu. Þau eru tilbúin að veita allt að 50.000 íröskum stríðsföngum og flóttamönnum pólitískt hæli en mjög margir hafa ekki áhuga á að snúa aft- ur til föðurlandsins. Fréttir bárust af því í gær að allt að 2.000 íraskir flóttamenn við landa- mæri írans og íraks létu lífið á hverj- um degi en írönsk stjórnvöld hafa kvartað yfir því að lítið sé gert til að koma þeim til hjálpar. Þetta virðist nú hins vegar vera að breytast til batnaðar. í gær lagði af stað frá París lest með 600 tonn af matvælum og fatnaði til írans og á laugardag mun bandarísk flugvél full af fatnaöi lenda í íran. Von er á meiru frá Bandaríkj- unum. Reuter-SÞJ Finnland: NY RIKIS* STJÓRN TÓK VIÐ í GÆR Mauno Koivisto, forseti Finnlands, skipaði í gær nýja ríkisstjóm undir forystu formanns Miðfiokksins, Esko Aho. Fjórir flokkar taka þátt í ríkisstjórainni. Auk Miöfiokksins eru það Hægri fiokkurínn, Sænski þjóðarfiokkurínn og Krístilegi flokkurinn. Esko Aho er yngsti maðurinn sem gengt hefur embætti forsætisráð- herra í Finnlandi. Flokkur hans, Miðflokkurinn vann stórsigur í þingkosningunum sem fram fóru 17. mars síðastliðinn, fékk 55 sæti af 200. Hægri flokkurinn tapaði og fékk 40 og Jafnaðarmannaflokkur- inn sem hefur verið í ríkisstjórn síð- asta aldarfjórðunginn fékk aðeins 48 sæti en hafði 56. Sænski þjóðar- flokkurinn og Kristilegi flokkurinn eru smáflokkar og fengu nokkur sæti en þau nægja til að tryggja rík- isstjórninni meirihluta. Miðflokkurinn, sem er íhaldssamur bændaflokkur, hefur átta af sautján ráðuneytum, Hægri flokkurinn hef- ur sex, Sænski þjóðarflokkurinn tvö og Kristilegi flokkurinn eitt. I yfirlýsingu stjórnarinnar er aðal- lega lögð áhersla á að bjarga landinu úr þeirri efnahagskreppu sem nú blasir við. Stefnt er á að draga mikið úr útgjöldum ríkissjóðs. Þá gerir stjórnarsáttmálinn ráð fyrir frjálsari utanríkisstefnu en líklegt þykir að það muni koma í hlut þessarar ríkis- stjórnar að taka afstöðu til frekara samstarfs Finna við Evrópubanda- lagið. Hins vegar er tekið fram að halda beri áfram góðu og traustu sambandi við Sovétríkin. Búist er við að meiri harka færist nú í finnsk stjórnmál. Vinstri flokk- arnir eru nú í fyrsta sinn í mörg ár sameinaðir í stjórnarandstöðunni gegn borgaraflokkunum og fulltrúar verkalýðssamtaka hafa lýst sig van- trúaða á ríkisstjórnina. Reuter-SÞJ Fréttayfirlit Nikósía - frösk yfirvöld hafa kallað hundruð fraskra leynilög- reglu- og hermanna frá íraska landamærabænum Zakho en hann er rétt hjá griöasvæðun- um. Líklegt þykir að þessir menn hafi hrætt kúrdisku flótta- mennina frá þvi að koma niður úr fjöllunum. Starfsmenn Sam- einuðu þjóðanna á landamær- um (rans og (raks sögðu i gær að allt að 2.000 flóttamenn lét- ust þar á degi hverjum. Bagdad - írösk stjórnvöld til- kynntu í gær að þau hefðu ákveðið að leysa upp Alþýðu- herinn. f Alþýðuhernum, sem stofnaður var áður en stríöiö við Irani hófst árlð 1980, eru mest 16 og 17 ára unglingar sem eru undir eiginlegum herskyldualdri og karlmenn eldri en 45 ára. Eitthvað er um konur í þessum her. Samtals eru þetta um millj- ón hermenn. Hermenn í þess- um her hafa gegnt öörum störf- um með hermennskunni. Genf - Saudi-Arabar eru að reisa flóttamannabúðir fyrir fraska flóttamenn I norðurhluta Saudi- Arabíu. Yfirvöld í Saudi- Arabiu hafa samþykkt að veita allt að 50.000 íröskum flótta- mönnum og stríðsföngum pólit- ískt hæli í landinu, að sögn tals- manns Sameinuðu þjóðanna, en fjölmargir írakar vilja ekki snúa tii föðurlandsins. Jerúsalem - James Baker, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, batt enda á þriðju friðarferö sína um Miöausturlönd í gær þegar móðir hans lést í Bandarikjun- um. Baker var að ræða við Yits- hak Shamir, forsætisráðherra fsraels, þegar hann frétti andlát móður sinnar. Talsmaður Sham- irs sagði að Baker mundi haida friðarviðræðonum áfram þrátt fyrir þessa óvenjulegu truflun. Moskva - Verkamenn í Rúss- landi mótmæltu í gær slæmum lífskjörum og verðhækkunum með þvi að leggja niður vinnu í stuttan tíma. Moskva - Sprengja sprakk við höfuðstöðvar sovéska kommún- istaflokksins I Tallin i Lettlandi í gær að sögn opinberu fréttastof- unnar Tass. Nokkrar rúður brotnuðu og ein hurð eyðilagð- ist. Enginn mun hafa slasast. Jerúsalem - Til átaka kom á Vesturbakkanum i gær milli ísraelskra hermanna og Palest- ínumanna. Einn israelskur her- maður og tveir Palestínumenn særðust. Nýja Delhí, Indlandi - Öflug sprengja sprakk í stóru verslun- arhverfi í Nýju Delhí i gær og a.m.k. einn maður lét lífiö. Eng- inn hafði lýst yfir ábyrgð sinni á verknaðinum. Cotabato, Filippseyjar - Mannræningjar franska róm- versk- kaþólska prestsins, Yves Caroff, slepptu honum í gær eft- ir að hafa haldið honum í um 30 daga í frumskógum Suður-Fil- ippseyja. Peureulak, Indónesía - Mikill kólerufaraldur geysar nú i Sumatran, sem er hérað í norð- urhluta indónesíu. A.m.k. 55 hafa látist og um 6.000 hafa þurft að leggjast inn á sjúkra- hús, að sögn indónesískra heil- brigðlsyfirvalda. Jóhannesarborg - Nelson Mandela einn af leiðtogum Afr- íska þjóðarráðsins (ANC) sagð- ist í gær vera ákveðinn í því að slíta samningaviðræðunum við stjórnvöld iandsins fyrir 9. maí ef stjórnin mundi ekki fyrir þann tima reyna aö binda enda á átök blökkumanna. F.W. de Klerk for- seti Suður-Afriku vinnur nú smátt og smátt að því að leggja niður aðskiinaðarstefnuna í samráði við blökkumenn. Jóhannesarborg - Nelson Mandela einn af leiðtogum Afr- íska þjóðarráðsins (ANC) sagð- ist í gær vera ákveðinn i því að slfta samningaviöræðunum við stjómvöld landsins fyrir 9. maí ef stjómin mundi ekki fyrir þann tíma reyna að binda enda á átök biökkumanna. F.W. de Klerk for- seti Suður-Afríku vinnur nú smátt og smátt að því að leggja niður aðskilnaðarstefnuna i samráði við blökkumenn. Reuter-SÞJ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.